Morgunblaðið - 02.10.1992, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992
Deilur Breta og Þjóð-
verja blossa upp aftur
Major segir tíma til kominn að slíðra sverðin
London, Frankfurt. Reuter.
BRETAR og Þjóðveijar eru aftur komnir I hár saman og að þessu
sinni vegna umdeildrar yfirlýsingar þýska seðlabankans þar sem
stefna hans í gjaldeyrisumrótinu á dögunum er varin. Sver hann
þar af sér allir sakir vegna gengisfellingar sterlingspundsins.
Hefur breska fjármálaráðuneytið mótmælt yfirlýsingunni en tals-
maður þýska seðlabankans segir, að hún hafi ekki átt að birtast
opinberlega, aðeins að vera til upplýsingar fyrir þýska sendiherr-
ann í London. Þýska utanríkisráðuneytið er þó á öðru máli. John
Major, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær, að kominn væri
tími til að binda enda á þessar ýfíngar enda hefði þýski seðlabank-
inn harmað yfírlýsinguna.
Allt í hönd-
um sonarins
KIM Jong-il, sonur Kim Il-sungs,
forseta Norður-Kóreu, hefur tek-
ið við daglegum stjómarstörfum
í ríkinu að sögn utanríkisráðherra
landsins, Kim Young-nam. „Leið-
toginn Kim Jong-il stjómar nú
flokknum, ríkinu, hemum, stjóm-
málastarfseminni, efnahagsmál-
unum, menningarmálunum og
öðru,“ sagði utanríkisráðherrann,
sem er nú staddur á allsheijar-
þingi Sameinuðu þjóðanna í New
York. Kim Jong-il var fyrst út-
nefndur krónprins og arftaki föð-
ur síns á áttunda áratugnum.
Vilja samræma
kjamorkuvamir
PIERRE Beregovoy, forsætisráð-
herra Frakklands, hvatti í gær
til viðræðna Breta og Frakka um
samræmda stefnu í kjamorku-
vopnamálum með það fyrir
augum að leggja grunn að
sameiginlegum
kjamorkuvörnum Evrópu-
bandalagsins, EB. Kom þetta
fram á ráðstefnu, sem franska
vamarmálaráðuneytið efndi til,
en Malcolm Rifkind,
vamarmálaráðherra Bretlands,
lagði þetta sama til í fyrradag
en lagði áherslu á, að samstarf
ríkjanna yrði innan ramma
Atlantshafsbandalagsins, NATO.
Embættismenn bandalagsins
fullyrða, að Bretar muni aldrei
skilja á milli vama Evrópu-
ríkjanna og annarra aðildarríkja
Atlantshafsbandalagsins.
Mikið skart-
griparán
EITT mesta skartgriparán, sem
um getur í Bretlandi, var framið
í fínu hverfí í London 18. síðasta
mánaðar og er verðmæti djásn-
anna talið nema milljónum sterl-
ingspunda. Meðal annars var um
að ræða gripi, sem áður vom í
eigu hertogaynjunnar af
Windsor, en sagt er, að núverandi
eigendur séu fólk af ónefndri
konungsætt í arabalöndum.
Vandasamur
skilnaður
DRÖGUM að skilnaðarskilmál-
um Tékka og Slóvaka var hafnað
á tékkneska sambandsþinginu í
gær og kom stjómarandstaða
vinstrimanna í veg fyrir
samþykktina. Vaclav Klaus,
forsætisráðherra Tékka, sagði,
að skamma stund yrði hönd
höggi fegin. „Sambandsríkið er
að klofna hvort sem okkur líkar
betur eða verr. Stjóm-
arandstaðan hefur ekkert til
málanna að leggja annað en að
valda glundroða," sagði Klaus.
Sagt er, að þingumræður í gær
hafi einkennst af lágkúra og lýð-
skrumi og oft snúist upp í hreinan
skrípaleik.
Arabaríki
deila
STJÓRNYÖJLD j .Q^ar sökuðu í
gær Sáudi-Araba um að 'jjgfa
ráðist á landamærastöð og fellt
tvo qatárska hermenn og hánd-
tekið þann þriðja. Saqdi-
Arabíustjóm neitar jæssu • og
segir, að atvikið hafí átt sér étað
innan laqdamæri Saudi-Arabíu
þegar . í adda skarst - með
hirðingjaflokkum. Eriendir
stjómarerintjrekar 'segjay; að
Saudi-Arabár beiti nágranna
sína, smáríkin viú. Persaflóa,
miklum þrýstingi og mihijá S- að
fyrir tveimur áium fví.sáu
Sameinuðu araWsku furstádæm-
in sig tilneydd til að lát.a nokkuri
land af hendi við þá. '
Talsmaður þýska utanríkisráðu-
neytisins sagði, að yfírlýsingin
hefði verið send fjölmiðlum í fullu
samráði við seðlabankann og vís-
aði á bug, að hún hefði aðeins
verið til innanhússnota. í Bretlandi
olli hún hins vegar mikilli óánægju
seðlabanka- og stjómmálamanna,
sem hafa haldið því fram, að
Helmut Schlesinger, þýski seðla-
bankastjórinn, hafi fellt gengi
pundsins með viðtali, sem hann
átti við þýska blaðið Handelsblatt
Moskvu. The Daily Telegraph, Reuter.
VALERÍJ Zorkín, yfírdómari
stjómarskrárdómstóls Rúss-
lands, hefur hótað að neyða Mík-
hall Gorbatsjov, fyrrverandi for-
seta Sovétríkjanna, til að bera
vitni um starfsemi kommúnista-
flokksins.
Dómarinn sagði að svar Gorb-
atsjovs við beiðni dómstólsins um
vitnisburðinn hefði ekki verið full-
nægjandi. Hið sama væri að segja
um svar Valentíns Falins, fyrrver-
andi yfírmanns alþjóðadeildar mið-
stjómar kommúnistaflokksins. Fal-
in er nú í vel launuðu starfi í Ham-
borg og setti það skilyrði fyrir því
að fara til Moskvu til að bera vitni
að rússnesk yfirvöld tryggðu að
hann gæti snúið aftur til Þýska-
lands og greiddu allan kostnað hans
af ferðinni, auk bóta vegna vinnu-
taps.
„Það væri hyggilegt að biðja
framkvæmdavaldið um að tryggja
vitnisburð Falíns við réttarhöldin.
daginn áður en pundið var dregið
út úr Gengissamstarfi Evrópu,
ERM. Þar gaf Schlesinger í skyn,
að endurskráning gjaldmiðlanna
innan ERM væri nauðsynleg og
markaðimir skildu það sem svo,
að hann ætti við pundið.
Þessi deila er talin geta spillt
fyrir tilraunum til að bjarga Maas-
tricht-samkomulaginu en þær
verða aðalefni skyndifundar Evr-
ópubandalagsleiðtoganna í Birm-
ingham 16. þ.m. Hún gerir heldur
Ef til vill verður mál Gorbatsjovs
leyst með sama hætti," sagði Zork-
ín.
Dómarinn sagði í gær að Gorb-
atsjov hefði sem rússneskur borgari
í höfuðborginni, Luanda, fjöl-
mennasta kjördæminu, hafði Sant-
os fengið 73,69% atkvæða þegar
búið var að telja fimm prósent og
MPLA 73,55%. Þá var Sawimbi
ekki John Major, forsætisráðherra
Bretlands, léttara um vik í slagn-
um við Maastricht-andstæðingana
í íhaldsflokknum.
Þýski seðlabankinn sagði í nýrri
yfírlýsingu í gær, að hann harm-
aði það ef fyrri yfírlýsingin hefði
valdið „misskilningi" og Major for-
sætisráðherra kvaðst taka þá „af-
sökun“ góða og gilda. Sagði hann
nauðsynlegt að binda á orðasenn-
una milli ýmissa frammámanna
landanna, Bretlands og Þýska-
lands, og bætti því við, að Ma-
astricht-samningurinn yrði lagður
fyrir þingið fyrir jól eða strax með
nýju ári.
Ýmis dagblöð í Bretlandi, sem
stutt hafa Ihaldsflokkinn, tóku í
gær undir með stjórnarandstöð-
unni, Verkamannaflokknum, og
kröfðust þess, að Norman Lamont
fjármálaráðherra yrði látinn víkja
til að Major gæti endurskipulagt
efnahagsstefnuna. „Ný vinnu-
engan rétt til að „skjóta sér undan
lögunum" og bætti við að sú af-
staða hans að vilja ekki koma fyrir
réttinn væri „móðgun" við rússn-
eskt réttarfar.
með 19,05% og Unita með 16,8%.
Santos Qg stjórnarflokkurinn höfðu
einnig forystu í þeim kjördæmum
þar sem stuðningur við Unita er
þó mestur og því þykir ljóst hver
Reuter
Norman Lamont fjármálaráð-
herra kemur til ríkisstjórnar-
fundar í Downing-stræti 10.
Orðahnippingarnar milli Breta
og Þjóðveija hafa aftur vakið
upp kröfur um, að hann segi af
sér.
brögð krefjast nýs manns“ sagði
Financial Times en Lamont sjálfur
vísaði því á nug, að hann hygðist
segja af sér.
Ástralía
Slæva kyn-
hneigð með
lyfjagjöf
Sydney. Reuter.
TILLOGUR stjórnarinnar í
Norður-Ástralíu um að beita
lyfjagjöf til að draga úr kyn-
hneigð kynferðisafbrotamanna
hafa hlotið góðar undirtektir
hjá almenningi og verða að öll-
um líkindum lagðar fram í
frumvarpsformi.
„Við höfum fengið margar vís-
bendingar um, að vilji íbúanna
standi til, að stjórnvöld láti verða
af þessu,“ sagði Darryl Manzey,
talsmaður dómsmálaráðherra.
Stjórn íhaldsmanna hefur lagt
til, að dómstólum í N-Ástralíu
verði fengið vald til að neyða of-
beldishneigða kynferðisafbrota-
menn til að láta sprauta sig með
lyfinu Depo-Provera. Læknar
segja, að lyfíð dragi úr kynhneigð
karla um 30-60%.
Lyfið var venjulega notað sem
getnaðarvarnarlyf fyrir konur og
dugði hver inngjöf í þrjá mánuði.
Samkvæmt tillögum stjórnar-
innar verður lyfjagjöfin liður í
tveggja ára ráðgjafarmeðferð, sem
kynferðisafbrotamenn verða að
gangast undir.
Ekki er ólíklegt, að tillögurnar
hljóti lokaafgreiðslu í þinginu fljót-
lega eftir áramót.
úrslitin verða þótt talningu Ijúki
ekki fyrr en eftir tvo daga.
Talsmenn Unita héldu því raunar
fram í gær, að flokkurinn hefði
forystu í talningunni en yfírmaður
landskjörstjórnar vísaði því á bug.
Evrópubandalagið fagnaði í gær
fyrstu ftjálsu kosningunum í Ang-
óla og sagði í yfirlýsingu þess, að
þær myndu greiða fyrir uppbygg-
ingunni í landinu eftir margra ára
upplausn og ófrið.
Reuter
Níkolaj Ryzhkov, fyrrverandi forsætisráðherra Sovétríkjanna, bandar með hendinni um leið og hann
ber vitni fyrir stjómarskrárdómstólnum en yfírdómarinn, Vladímír Zorkín (annar frá vinstri) hefur
látið að því liggja, að Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseti Sovétríkjanna, verði neyddur til að mæta
einnig.
Gorbatsjov neydd-
ur til að bera vitni?
Kosningar í Angóla
Útlit fyrir sigur Santosar
Luanda. Reuter.
FYRSTU tölur úr þing- og forsetakosningunum í Angóla benda til
öruggs sigurs Jose Eduardos dos Santos forseta og sljórnarflokks-
ins, MPLA. Var að vísu aðeins búið að telja fáein prósent atkvæða
en Santos hafði alls staðar yfirhöndina, líka í þeim hémðum þar sem
mótheiji hans, Jonas Sawimbi, leiðtogi Unita-hreyfingarinnar, hafði
verið álitinn sterkari.