Morgunblaðið - 02.10.1992, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.10.1992, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992 Morgunblaðið/Rúnar Þór HORFT ÚTÍHEIMINN Niðursuðuverksmiðja K. Jónssonar Skipaafgreiðsla KEA: Níu starfs- mönnum sagt upp NÍU starfsmönnum Skipaaf- greiðslu Kaupfélags Eyfirðinga hefur verið sagt upp störfum. Uppsagnirnar koma til vegna breytinga sem orðið hafa á tækni við afgreiðslu skipa. Gunnlaugur Guðmundsson deild- arstjóri sagði að breytingar hefðu orðið á vinnutilhögun starfsmanna eftir að gámar komu til sögunnar, áður hefði mikil vinna verið við afgreiðslu skipa, m.a. við að koma vörum fyrir í skemmum og fleira, en nú væru gámarnir teknir beint af bryggjunni þannig að manns- höndin þyrfti lítið að koma nærri. Gunnlaugur sagði einnig að Samskip hefðu nú sem stendur aðeins eitt skip í ferðum til Akur- eyrar og kæmi það á mánudögum, eða áður hefði skip einnig komið seinni part vikunnar. Óljós væri hvort skipaferðum yrði fjölgað aft- ur. Kvaðst Gunnlaugur vænta þess að einhverjir starfsmenn yrðu end- urráðnir en ljóst væri að hagræða þyrfti og breyta rekstrinum með hliðsjón af þeim tæknibreytingum sem orðið hefðu. farautan Tuttugu sagt upp vegna rækjuskorts ar í Barentshafi sem byggður verður á fyrri veiðireynslu þannig að nú keppast skipin við að ná sem mestum afla. Þá væru mörg íslensku skipanna nú á loðnuveiðum þannig að erfitt væri um þessar mundir að útvega hráefni. „Við erum með allar klær úti við að útvega okkur hráefni, en við fáum ekki eins mikið og við vild- um. Þetta er stór verksmiðja og þarf mikið hráefni, en fryst rækja er stærsti einstaki framleiðsluþátturinn hjá okkur,“ sagði Aðalsteinn. Hann sagði að auk þess sem minna magn hefði fengist af rækju til vinnslunnar þá væri skýring upp- sagnanna einnig sú að almennt væri verið að hagræða í rekstrinum. Hjá Niðursuðuverksmiðju K. Jóns- sonar hf. hafa að undanförnu starfað um 90 manns, en verða um 70 eftir að uppsagnimar taka gildi. Aðal- steinn sagði erfitt að segja nú til um hvort hægt væri að endurráða starfs- fólkið, það færi eftir verkefnum á næstu misserum. TUTTUGU starfsmönnum hjá Niðursuðuverksmiðju K. Jónssonar hf. var sagt upp störfum í gær. Óvíst er hvort hægt verður að endurráða það fólk sem sagt var upp störfum. Verið er að hagræða í rekstri fyrirtækisins, en aðalástæða þess að fólkinu er sagt upp störfum er sú að verksmiðjan hefur fengið mun minna af rækju til vinnslu en áætlað hafði verið. Aðalsteinn Helgason, fram- kvæmdastjóri Niðursuðuverksmiðju K. Jónssonar, sagði að minna magn af rækju hefði fengist til vinnslunnar en áætlanir hefðu gert ráð fyrir. Erfíðlega hefði gengið að fá keypta rækju að undanfömu frá Rússlandi þar sem flest skip stundi nú þorsk-, veiðar í Barentshafí. Á næsta ári verður kvóti tekinn upp á þorskveið- Vinnumiðlunar- skrifstofan Um 170 á atvinnu- leysisskrá TÆPLEGA 170 manns voru skráðir atvinnulausir hjá Vinnu- miðlunarskrifstofunni á Akureyri um mánaðamótin, en í síðasta mánuði fengu um 90 manns störf í átaki í atvinnumálum sem nú stendur yfir og um 30 manns hafa farið af atvinnuleysiskrá og i skóla í mánuðinum. Haustferðir til Dyflinnar og Edinborgar Um 1.650 manns Sigrún Bjömsdóttir forstöðumað- ur Vinnumiðlunarskrifstofunnar sagði að nýskráningar í síðasta mán- uði hefðu verið alls 132, sem væri langt yfír meðaltali, en hún taldi að yfír 500 manns hefðu haft lengri eða skemmri viðkomu á atvinnuleysis- skránni í septembermánuði. í lok síðasta mánaðar voru tæp- lega 170 manns á atvinnuleysiskrá á Akureyri, en vom 260 um mánaða- mótin ágúst/september. Fækkun á atvinnuleysiskrá á milli mánaða er fyrst og fremst til komin vegna átaks sem nú stendur yfír í atvinnumálum, en um 90 manns starfa að ýmsum verkefnum á vegum bæjarfélagsins í átakinu. Þá hafa einnig horfíð af skránni um 30 manns sem farið hafa í skóla. Loks má nefna að fólk hefur fengið vinnu í sláturhúsi og í þessum mánuði var ráðið fólk til starfa hjá íslenskum skinnaiðnaði. Stæði um- rætt átak í atvinnumálum ekki yfír má gera ráð fyrir að um 260 manns væru á atvinnuleysiskrá í bænum. í beinu flugi frá Akureyri UM 1.650 manns fara í haust með beinu flugi frá Akureyri til tveggja borga, Dyflinnar á írlandi og Edinborgar á Skotlandi. Auk þess hefur á annað hundrað manns á Akureyri bókað sig í ferðir til Dyflinnar sem farnar verða frá Keflavíkurflugvelli. Fyrsta slíka haustferðin var farin í gærmorgun. Ásdís Árnadóttir hjá Samvinnu- ferðum-Landsýn sagði að þegar væri búið að ákveða fjórar ferðir beint frá Akureyri til Dyflinnar og væri þessa dagana verið að bóka í dagsferð til borgarinnar. Þegar hafa bókað sig í þá ferð á milli 60 og 70 manns. Vélamar sem notaðar eru í þessar ferðir taka 176 manns í sæti og fór fyrsta vélin frá Akureyri í gærmorg- un. Hvert sæti var skipað og sagði Ásdís að biðlisti hefði verið í vélina. Næstu ferðir eru 7. og 11. októ- ber og 6. nóvember, en í þá síðustu er langur biðlisti, fullbókað er í næstu ferð, en nokkur sæti laus í þá sem Atvinna • Htvinna • Htvinna farin verður 11. október. Að dags- ferðinni meðtalinni munu 880 manns fara utan í beinu flugi frá Akureyri til Dyflinnar í haust, en einnig hefur eitthvað á annað hundrað manns bókað sæti til borgarinnar í ferðir sem farnar verða frá Keflavíkurflug- velli, þannig að á vegum ferðaskrif- stofunnar fara yfír eitt þúsund manns utan í haust. Ásdís sagði að stærstur hluti fólks- ins væri Akureyringar, en einnig væri töluvert um fólk úr nágranna- byggðalögum og þá væru á bilinu 40 til 50 manns frá Austfjörðum, svæðinu frá Vopnafírði til Neskaup- staðar í þessar ferðir. Á vegum Úrvals-Útsýnar verða famar fimm ferðir í beinu flugi frá Akureyri til Edinborgar, fjórar í októ- ber, dagana 8., 11., 15. og 29. októ- ber og sú síðasta 19. nóvember. MorgunDlaoio/KUnar POr Um 1.650 manns fara í beinu flugi frá Akureyri til tveggja borga í haust og á myndinni er Jósep Sigurjónsson að athuga með ferðir til Dyflinnar hjá Ásdísi Árnadóttir hjá Samvinnuferðum-Landsýn. Fullbókað er í allar ferðimar, en vélarnar taka 153 í sæti þannig að um er að ræða 765 manns. „Við settum upp þijár ferðir, en viðbrögð- in voru svo mikil að ákveðið var að bæta við tveimur aukaferðum," sagði Sigríður Sigtryggsdóttir hjá Úrvali- Útsýn. Hún sagði að ferðalangar væru einkum frá Akureyri, en einnig væri um fólk úr nágrannabyggðum að ræða, m.a. fara um 100 Húsvík- ingar utan í lok mánaðarins. Skrifstofustjóri íslenskur skinnaiðnaður Við leitum að starfsmanni með góða við- skiptamenntun og sjálfstæða hugsun. í starfinu felst m.a.: ★ Umsjón með fjárreiðum, viðskipta- mannabókhaldi og áætlanagerð. ★ Stjórnun sölumála. Um heilsdagsstarf er að ræða. Umsækjandi þarf að geta hafið störf strax. Upplýsingar og umsóknareyðublöð aðeins á skrifstofu okkar. RÁÐNINGAR Endursko&un Akureyri hfv Glerárgötu 24, sími 26600 Hagnaður fyrstu 8 mánuði REKSTUR íslensks skinnaiðnaðar hefur gengið vel það sem af er ári og samkvæmt átta mánaða uppgjöri sem nú liggur fyrir er hagnaður af rekstrinum. Sala á framleiðsluvörum fyrirtækisins hefur gengið ágætlega og er nú verið að undirbúa nýtt sölutímabil á næsta ári. Væringar á gjaldeyrismörkuðum setja nokkurn ugg að forráðamönnum fyrirtækisins, en helstu sölumyntir eru ítölsk líra og pund. Bjarni Jónasson framkvæmda- stjóri Islensks skinnaiðnaðar sagðist vera nokkuð ánægður með rekstur- inn, en átta mánaða uppgjör sýnir að hagnaður er af rekstri fyrirtækis- ins. „Sala á framleiðsluvörum okkar hefur gengið ágætlega á árinu og endurspeglast í uppgjöri fyrir fyrstu átta mánuði ársins þar sem kemur fram að hagnaður er af rekstrinum, hann er ekki mikill, en hagnaður samt,“ sagði Bjarni. Verið er að undirbúa nýtt sölu- tímabil sem hefst eftir áramót og sagði Bjarni að búið væri að kynna umboðsmönnum fyrirtækisins nýja liti sem þróaðir hefðu verið innan veggja þess og á næstunni yrðu þeir kynntir mikilvægum viðskiptavinum. „Þær væringar sem verið hafa á gjaldeyrismörkuðum að undanförnu setja að okkur nokkurn ugg, helstu sölumyntir okkar eru ítölsk líra og pund, en þessir gjaldmiðlar hafa fall- ið um 9-10%. Þetta hefur enn sem komið er ekki veruleg áhrif á söluna, en gæti haft áhrif á tekjur okkar á seinni hluta árs og því næsta ef þetta ástand verður til frambúðar. Við munum bregðast við þessu með því að þróa nýjar leiðir sem skila enn meiri gæðum á okkar framleiðslu- vöru og í kjölfarið hærra verði,“ sagði Bjarni. Hjá íslenskum skinnaiðnaði starfa nú um 240 manns, en ársverk hjá fyrirtækinu eru tæplega 200.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.