Morgunblaðið - 02.10.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.10.1992, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C 224. tbl. 80. árg. FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Alvarleg sljórnmálakreppa komin upp í Úkraínu Vantraust á stj órnina samþykkt nær einróma Koss Ferot tilkynnir framboð sitt. Næst honum stendur eiginkona hans, Margo. Varaforsetaefnið Jim Stockdale og eiginkona hans, Sybil, fylgjast með. Kiev. Reuter. MIKIL kreppa er nú i stjórnmálum Úkraínu. Þing landsins lýsti í gær vantrausti á ríkisstjórnina en daginn áður hafði forsætisráðherr- ann sagt af sér. Vantrauststillaga á ríkisstjómina var samþykkt með 295 atkvæðum gegn 6. Neyðist ríkisstjórnin því til að segja af sér. Þingið virti þannig að vettugi vilja Leoníds Kravtsjúks forseta landsins. Hann hafði æskt þess að þingmenn samþykktu af- sögn forsætisráðherrans, Vítoids Fokíns, en leyfðu ríkisstjórninni að sitja áfram. „Þetta varð að gerast,“ sagði Volodíjmír Grinjov, frjálslyndur þingmaður sem þykir koma til greina sem forsætisráðherra. „Nú er tækifærið til að byija raunveru- legar umbætur.“ Ríkisstjórnin hefur að undan- förnu sætt vaxandi gagnrýni fyrir að láta undir höfuð leggjast að koma með tillögur um hvernig vinna megi á efnahagskreppunni í land- inu. Ennfremur hefur þótt standa á skýrri áætlun um markaðsvæð- ingu efnahagslífsins. Úkraína öðlaðist sjálfstæði í des- ember síðastliðnum er Sovétríkin leystust upp. Vonir manna úm að landsins gæði myndu fljótlega færa betri tíma hafá síðan dofnað mjög. Framleiðsla dróst saman um 15% á fyrri helmingi þessa árs, verðbólga leiddi til versnandi lífskjara og nýr gjaldmiðill landsins hefur ekki hald- ið velli andspænis rúblunni. Perot segist fulltrúi fólksins og býður sig fram til forseta Bandaríkjanna „Er ekki skuldbundinn neinum nema ykkur“ Dallas. Reuter. „ÉG er engum skuldbundinn nema ykkur. Þið, fólkið, eigið mig. Ef þið kjósið mig þá verð ég ykkar þjónn,“ sagði auðkýfingurinn frá Texas, Ross Perot, er hann tilkynnti á fréttamannafundi í Dallas í gær að hann byði sig fram til embættis forseta Bandaríkjanna. Bill Clinton, frambjóðandi demókrata, lét sér fátt um finnast í gær: „Þetta hefur alls engin áhrif á mig,“ sagði hann. Marlin Fitz- water, talsmaður Bandaríkjastjórnar, sagði að áfram yrði litið á Clinton sem höfuðandstæðing George Bush Bandaríkjaforseta. CNN birti í gærkvöld skoðana- könnun sem gerð var skömmu eft- ir að Perot tilkynnti framboð sitt. Samkvæmt henni nýtur Clinton stuðnings 52% kjósenda, Bush 35% og Perot 7%. Þessi könnun er vís- bending um að erfitt verður fyrir Perot að ná aftur því fylgi sem hann naut samkvæmt skoðana- könnunum í sumar, en það mæld- ist þá mest 36%. Nú verður Kravtsjúk að koma með tillögu að nýjum forsætisráð- herra innan tíu daga. Sá mun svo hafa tíu daga til að koma saman nýrri stjórn. ------» ♦■"4---- KGB í Noregi Utvarps- stjóri vitnar Ósló. Reuter. EINAR Förde, yfirmaður Norska ríkisútvarpsins, NRK, sagði í gær, að sovéska öryggislögreglan, KGB, kynni að hafa litið á hann, ranglega þó, sem aðalheimildar- mann sinn í Noregi. Förde viðurkenndi, að hann hefði hitt háttsetta fulltrúa KGB í Ósló á áttunda og níunda áratugnum og sagði að hann kynni að hafa haft dulnefnið „Dudin", sem var einn af þremur aðalheimildarmönnum Kremlar í Noregi samkvæmt nýrri bók eftir KGB-mann sem sveikst undan merkjum, Míkhaíl Bútkov. „Dudin“ gæti vel hafa verið ég,“ sagði Förde í viðtali við dagblaðið Verdens Gang, en neitaði jafnframt, að hann hefði látið KGB-mönnum í té nokkrar upplýsingar, sem talist gætu trúnaðarmál. Hann sagðist aldrei hafa þegið peninga fyrir fundina og hann hefði látið norsku lögregluna vita um þá. Þar að auki hefði KGB getað fundið þær upplýsingar, sem hann veitti þeim, í hvaða dagblaði sem var. Förde, 49 ára, var stjórnmálamað- ur og gegndi þingmennsku fyrir Verkamannaflokkinn, og átti sæti í utanríkisnefnd Stórþingsins. „Sjálfboðaliðar í öllum ríkjunum fimmtíu hafa beðið mig að gefa kost á mér sem forseti Bandaríkj- anna,“ sagði Perot á blaðamanna- fundinum. „Jim Stockdale, vara- forsetaefni okkar, og ég teljum það heiður að taka áskorun þeirra.“ Ross Perot er 62 ára gamall Texasbúi og er talinn með auðug- ustu mönnum Bandaríkjanna. Við hlið Perots á fréttamannafundin- um stóðu eiginkona hans Margot og nokkur barnanna fimm sem þau eiga. Ennfremur varaforsetaefnið Jim Stockdale. Hann er sjóliðsfor- ingi á eftirlaunum sem m.a. hefur verið heiðraður fyrir hetjulega framgöngu í Víetnamstríðinu. - I júlí síðastliðnum ákvað Perot að draga sig í hlé og hætta við framboð. Perot bað nú stuðnings- menn sína fyrirgefningar; þetta hefði verið frumhlaup. Undanfarna daga hefur hann ferðast um Bandaríkin og kannað vilja stuðn- ingsmanna sinna og metið hvort væri hyggilegra að bjóða sig fram eða lýsa yfir stuðningi við annan hvorn frambjóðandann, 6ush Bandaríkjaforseta eða Clinton, rík- isstjóra í Arkansas. Perot sagði að ástæðan fyrir því að hann gæfi nú kost á sér, einung- is mánuði fyrir kosningar, væri sú að hvorugur frambjóðenda stóru flokkanna hefði látið sig varða þau málefni sem skiptu bandarísku þjóðina máli. Perot hefur einkum lagt áherslu á að vinna bug á spill- ingu í stjórnsýslunni, minnka skuldabagga þjóðarbúsins og draga úr hallanum á ríkisbúskapn- um. Stöðu ríkissjóðs vill hann bæta með skattahækkunum og niður- skurði ríkisútgjalda. Sumir hag- fræðingar hafa hælt dirfskufullum áætlunum Perots í því efni en jafn- framt dregið í efa að þær séu póli- tískt framkvæmanlegar. Það er öldungis óvíst hvaða áhrif framboð Perots hefur á kosninga- baráttuna. Samkvæmt síðustu skoðanakönnunum hefur demó- kratinn Clinton verulegt forskot á repúblikanann Bush. En kannanir hafa einnig sýnt að Perot sé lík- legri til að taka fylgi frá Clinton en forsetanum. Stjórnmálaskýr- endur bentu á það í gær að auð- legð Perots og hugsanleg þátttaka hans í sjónvarpskappræðum gætu gert honum kleift að hafa veruleg áhrif á kosningabaráttuna. Bandaríska sjónvarpsstöðin Einkavæðingin silast af stað Moskvu. Reuter. The Daily Telegraph. EINKAVÆÐINGIN í Rúss- landi fór heldur brösótt af stað í gær. Starfsmenn banka sem dreifa ávísunum til almennings bjuggust við miklum straumi viðskiptavina en þvert á móti var lítil eftirspurn eftir seðlun- um. Gengi rússnesku rúblunn- ar féll enn í gær og hefur ekki verið lægra gagnvart Banda- ríkjadal. Stjórnvöld höfðu búist við ýfir- þyrmandi aðsókn að bankastofn- unum og gripið hafði verið til ýmissa fyrirbyggjandi ráðstafana til að hindra öngþveiti í biðröðun- um. En ekki var þörf á neinu slíku. Fáeinar hræður komu til að vitja ávísananna sinna, eink- um ellilífeyrisþegar. í óformlegri skoðanakönnun sem blaðamaður The Daily Telegraph gerði í Moskvu kom fram að fæstir vissu hvað ætti að gera við ávísanirn- ar. Um er að ræða seðla sem eru 10.000 rúblur að nafnvirði og nota má um áramótin til að kaupa hlutabréf í tilteknum ríkisfyrir- Reuter Lítið var að gera í gær er dreifing ávísananna hófst. Þessi roskna kona sótti þó seðilinn sinn sem er að nafnvirði 10.000 rúblur. tækjum sem til stendur að einka- væða. Einnig má selja seðlana á fijálsum markaði og sagði einn viðmælenda að sér hefðu verið boðnar 40.000 rúblur fyrir stykk- ið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.