Morgunblaðið - 02.10.1992, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 02.10.1992, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992 fclk f fréttum SKOLAMAL Ráðherraheimsókn Laugarvatni. ^ SJONVARP I konunglegum hlutverkum Raunveruleikinn getur verið býsna óraunverulegur á stundum; líkastur ævintýri, nú eða bíómynd kynni einhver að segja. Svo er að minnsta kosti farið um bresku drottningarfjölskylduna, sem hefur fengið háðulega útreið í þarlendum fjölmiðlum. Samt þótti þeim er framleiða sjónvarps- þætti ástæða til að bæta um betur og varð mikið kapphlaup um það hver yrði fyrstur til að sýna sjón- varpsáhorfendum sannar sögur úr höllinni. Myndin sem sigraði í kapphiaupinu var sýnd í Banda- ríkjunum 28. september en vegna þess hversu snör handtök voru við gerð myndarinnar voru slegnar nokkrar feilnótur. Fjármálaráðgjafans Johns Bry- ans, sem sérhæfir sig í tákossum, er ekki getið og rýrir það óneitan- lega gildi myndarinnar. Þá þykja lokaorð hertogaynjunnar af York óheppileg í ljósi þess sem fylgdi í kjölfar skilnaðarins en handrits- höfundar myndarinnar láta hana klykkja út með því að ekki beri að trúa öllu sem í blöðunum stend- ur. Meðal þeirra sem lögðu gjörva hönd á plóg við gerð myndarinnar var Andrew Morton, höfundur bókarinnar umdeildu, Díana - sönn saga, sem út kom í sumar. Þykir hann taka á viðfangsefni sínu með silkihönskum. Leikararn- ir eru flestir breskir og lítt þekkt- ir utan heimalands síns. Og töku- staðir eru einnig á Bretlandi en ekki gekk þrautalaust fyrir sig að útvega þá. Breski aðallinn er vand- ur að virðingu sinni og stendur vörð um meðlimi sína, hvort sem þeim hefur orðið á í messunni eður ei. Um síðir hafði leikstjórinn þó upp á fyrrverandi kærasta Söru Ferguson, sem hafði fulla þörf fyrir aurana sem honum voru boðnir og var myndin að hluta tekin á heimili hans. Það er nú til sölu fyrir 700 milljónir króna. F.v.: Ólafur G. Einarsson, menntamálaráðherra, Árni Guðmundsson skólastjóri ÍKÍ, Hafsteinn Þorvalds- son skólanefndarmaður ÍKÍ, Réynir G. Karlsson íþróttafulltrúi ríkisins og Hermundur Sigmundsson framkv.stj. íþróttamiðstöðvar íslands. Pippa Henley og Sam Miller í hlutverkum sínum sem her- togahjónin af York á brúð- kaupsdaginn. Fróðlegt er að bera myndina saman við fyr- irmyndina, sem mörgum er í fersku minni. Adam Bareham þykir heldur gamall og fullvel hærður miðað við fyrirmyndina, Karl krónprins, en Edita Brychta tekur sig bara út sem Díana. enntamálaráðherra, Ólafur G. Einarsson, heimsótti Laugar- Hnmmijm. Heilsaði staðurinn ráðherra og hans förUneyti með sínu fegursta veðri, blankalogni og sól. Sagði Ólafur markmiðið vera að gera sér grein fyrir staðháttum og aðstöðu skólanna. „Gerð hefur verið úttekt á eignum ríkisins á Laugarvatni og skipulag yfír nýt- ingu þeirra í framtíðinni," sagði hann ennfremur. Ráðherra gekk um staðinn og skoðaði húsnæði skólanna og að- stöðu. Skoðaði hann einnig aðstöðu fyrir væntanlegt Landsmót UMFÍ sem fram fer á Laugarvatni í júlí 1994. Lofaði hann mjög umhirðu eignanna sem hann sagði í góðu lagi. Sagðist hann ætla að sjá til þess að uppbyggingu skólanna yrði haldið áfram og vallaraðstaðan fyr- ir Landsmótið yrði tilbúin á tilsett- um tíma. Kári. COSPER - Þetta er barnapían þín, hún spyr hvar þú geymir hassið?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.