Morgunblaðið - 02.10.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 02.10.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992 21 Breytingar á útsendingartíma veðurfregna hjá RÚV Veðurfræðingar eru andvígir breytingum Orkar tvímælis fyrir sjómenn segir forseti Sjómannasambandsins MEÐ nýrri vetrardagskrá Ríkisútvarpsins sem tekur gildi laugardag- inn 3. október nk. breytist útsendingartími veðurfregna nokkuð. Fyrstu veðurfregnir að morgni verða kl. 7.30 í stað 6.45. Næstu kl. 10.45 og síðan í hádeginu. Þá verða þær breytingar, að á Rás 1 verða lesnar ítarlegar veðurfregnir, en samtímis verða lesnar styttri veðurfregnir á Rás 2, nema kl. 12.45 og 19.30. Oskar Vigfússon, forseti Sjómanna- sambands Islands, segist telja breytingar á útsendingartíma veður- fregna orka mjög tvímælis fyrir sjómannastéttina. Að sögn Páls Bergþórssonar veð- þessu efni orka mjög tvímælis fyrir urstofustjóra eru ástæðurnar fyrir breytingunum þríþættar. í fyrsta lagi verða útsendingartímarnir reglulegri. Um leið verður jafnara og betra ráðrúm fyrir starfsmenn Veðurstofunnar að vinna úr veður- skeytunum. í þriðja lagi bætast við styttri og gagnorðari veðurfregnir á Rás 2 og í fréttum. Þá verða veður- fregnirnar yfirleitt ítarlegri á Rás 1 en verið hefur hingað til. „Ég held að þessi breyting sé til bóta að því leyti m.a. að á Rás 1 verður alltaf byijað með því að lesa veðrið á 15-20 stöðum á landinu. Yfirleitt verða stöðvarnar valdar þannig að þær séu til upplýsinga fyrir sjómenn, en kl. 16.30 verða valdar stöðvar í sveitum til upplýs- inga fyrir bændur og ferðamenn," sagði Páll Bergþórsson. Óskar Vigfússon, forseti Sjó- mannasambands Islands, sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki hafa kynnt sér nákvæmlega breytingarn- ar á útsendingartíma veðurfregna, en í fljótu bragði séð ætti hann ekki von á öðru en að þetta kæmi illa við sjómenn. „Allar breytingar í sjómannastéttina, því sjómenn eru svolítið fastheldnir á það sem þeir þekkja. Við munum örugglega ræða þetta þar sem þetta er veigamikið öryggisatriði fyrir sjómannastéttina, og við munum að sjálfsögðu gæta þess að þeirra hagsmunir verði ekki fyrir borð bornir á þessu sviði,“ sagði hann. Veðurfræðingar eru andvígir þessum breytingum. Á fundi í Félagi íslenskra veðurfræðinga 8. septem- ber sl. var eftirfarandi ályktun sam- þykkt: „Félag íslenskra veðurfræðinga vill ítreka andstöðu félagsins við fyrirhugaðar breytingar á tiihögun útvarpsveðurfrétta og telur þær hvorki tímabærar né að þær muni bæta veðurspár. Fundurinn lýsir einnig yfir furðu með að ekkert formlegt samstarf hefur verið haft við veðurfræðinga í spádeild um breytingar þessar." Sigurður Þorsteinsson veðurfræð- ingur segir í athugasemd vegna ályktunar Félags íslenskra veður- fræðinga að breytingar sem verða í veðurfregnaflutningi muni bæta þjónustuna og ná til fleiri útvarps- hlustenda en áður. „Þessar nýju veð- urfregnir á Rás 2 eru stuttar og gagnorðar og ásamt þeim verða lesnar fregnir af því á hvaða spá- svæðum er búist við stormi eða það- an af verra veðri. Einnig verða þess- ar nýju veðurfregnir fluttar í lok þriggja helstu fréttatíma dagsins. Að meðaltali verða það 20 þúsund hlustendur eða fleiri sem munu heyra þessar nýju veðurfregnir átta sinnum á sólarhring, og margir þeirra munu telja þetta fullnægjandi þjónustu fyrir sig. Út af fyrir sig eru þetta góð tíðindi. En sagan er ekki öll sögð með því. Um leið hafa útsendingartímar þessara nýju veð- urfregna og hefðbundnu veðurfregn- anna á Rás 1 verið samstilltir og hagað svo að veðurfræðingar fá betra ráðrúm en áður til að undirbúa spárnar. Þeir sem heyra að nýju veðurfregnirnar eru að byrja á Rás 2 vita þess vegna að um leið er ver- ið að byija að lesa hinar hefðbundnu og ýtarlegu veðurfregnir á Rás 1. Þeir geta þá flutt sig yfir á þá rás ef þeim sýnist svo.“ „í stuttu máli má segja að í stað þess að hingað til hefur meðalfjöldi veðurfregnahlustenda á Rás 1 verið 5-10 þúsund manns verða nú að meðaltali um 30 þúsund hlustendur sem fá átta sinnum á sólarhring valfrelsi um annað hvort hinar ýtar- legu og hefðbundnu veðurfregnir eða þá styttri veðurfréttir og storm- fregnir,“ segir í athugasemd Sigurð- ar. Ein athugasemd borist vegna Fljótsdalslínu EIN athugasemd hefur borist vegna fyrirhugaðrar lagningar Fljótsdalslínu, frá Þríhyrnings- vatni að Suðurárbotnum. Sá er hana sendi er búsettur í Reykja- vík. í Lögbirtingarblaðinu 21. ágúst sl. var lýst eftir athuga- semdum vegna lagningu 220 kv háspennulinu, sem mun liggja um tvö sveitarfélög, Jökuldals- hrepp og Skútustaðahrepp. Arnór Benediktsson, oddviti Jök- uldalshrepps, sagði að hver sem er gæti mótmælt lagningu Fljótsdalsl- ínu, en honum sýndist sem Jökul- dælingar væru tiltölulega sáttir við þá leið sem valin hefur verið. Hins vegar hefði borist með pósti í gær ein athugasemd frá Reykvíking, sem lýsti sig ósáttan við línulagn- inguna. Sigurður R. Ragnarsson sveitar- stjóri í Skútustaðahreppi sagði að engin athugasemd hefði borist til hreppsins. Tillögur að legu línunnar ásamt fylgiskjölum liggur frammi almenn- ingi til sýnis á hreppskrifstofunum og í dag eru síðustu forvöð fyrir almenning að kynna sér tillögurn- ar. Skila þarf athugasemdum skrif- lega á skrifstofur Jökuldalshrepps og Skútustaðahrepps fyrir 16. októ- ber. -----♦ ♦ ♦-- Laugavegssamtökin Lengri opn- unartími á laugardag LAUGAVEGSSAMTÖKIN, sem eru samtök kaupmanna við Laugaveg hafa samþykkt breytt* an afgreislutíma verzlana við Laugaveg. Nú verður fyrsti laug- ardagur í mánuði, svokallaður langur laugardagur, þ.e. verzlan- ir verða opnar til klukkan 17 frá kl. 10. Aðra laugardaga verður opið til klukkan 14. Fyrsti langi laugardagurinn er hinn næsti, 3. október. Á föstudögum verða verzlanir við Laugaveg opnar til klukkan 18,30, en aðra virka daga til klukkan 18. Lokað verður á sunnudögum. Fundað um landanir þýzkra togara á Isafirði ÁKVEÐINN hefur verið fundur fulltrúa samtaka útvegsmanna í Cuxha- 'ven og áhugahóps vestfirzkra útgerðar- og fiskvinnslumanna um hugs- anlega fisklandanir þýzkra ísfisk- og frystitogara í vestfirzkum höfn- um. Bolvíkingar hafa riðið á vaðið með landanir á ísfiski í Cuxhaven og er gangkvæmur vilji beggja aðila til samvinnu á þessu sviði. Áður hefur komið fram villji Hafnfirðinga til fiskkaupa af þýzkum togurum. Kristján Jón Guðmundsson, út- gerðarstjóri og forsvarsmaður þeirra Vestfirðinga, segir að samvinna af þessu tagi hijóti að koma báðum aðilum til góða. „Við höfum karfann, sem þá vantar, og þeir hafa heimild- ir til veiða á þorski, sem okkur vant- ar. Við hér fyrir vestan ætlum okkur að vera með í leiknum, enda er okk- ur ekki síður en öðrum, þörf á auknu hráefni til vinnslu. Við höfum á viss- an hátt haft frumkvæðið í gagn- kvæmum viðskiptum af þessu tagi með löndun togaranna Heiðrúnar og Dagrúnar í Cuxhaven í haust, en ég tel mikla nauðsyn á því, að milli borganna Cuxhaven og Bremerha- ven myndist nokkur samkeppni um fiskinn frá íslandi. Sú samkeppni hlýtur að koma okkur til góða, til dæmis í betri þjónustu og lækkandi löndunarkostnaði," segir Kristján Jón Guðmundsson. Wolfgang Berger, framkvæmda- stjóri Fiskmarkaðs Cuxhaven og full- trúi samtaka útvegsmanna, segist ánægður með það samstarf, sem hefur náðst með löndunum íslenzkra togara í Cuxhaven. Þessi fundir hér á landi séu jákvæðir og auki mögu- leika á gagnkvæmum viðskiptum við Vestfirðinga. Þessi mál séu hins veg- ar á frumstigi og lítið hægt að segja um mögulega framvindu, en hann bindi miklar vonir við viðræðufund sinn með Vestfirðingunum á ísafirði um helgina. Almanak Háskól- ans 1993 komið út ÚT ER komið Almanak fyrir ísland 1993, sem Háskóli íslands gefur út. Þetta er 157. árgangur ritsins, sem komið hefur út samfellt síðan 1837. Dr. Þorsteinn Sæmundsson stjarnfræðingur hjá Raunvísindastofn- un Háskólans hefur reiknað almanakið og búið það til prentunar. Rit- ið er 96 bls. að stærð. Auk dagatals og upplýsingum um flóð og gang himintungla flytur al- manakið margvíslegan fróðleik s.s. yfírlit um hnetti himingeimsins, mælieiningar, skrá um veðurmet og töflu sem sýnir stærð ríkja, mann- fjölda þeirra og höfuðborgir. Allar þessar skrár eru endurskoðaðar á hveiju ári. í almanakinu er einnig að finna stjörnukort sem sýnir átta- vitastefnur íslands og kort sem sýn- ir hvað klukkan er hvar sem er á jörðinni. Af nýju efni má nefna grein um lengd sólargangs á íslandi og hve ört hann breytist á mismunandi árstímum. Háskólinn annast sölu almanaks- ins og dreifingu þess til bóksala. Almanakið kemur út tæplega 7.000 eintökum en auk þess eru prentuð 2.500 eintök sem Þjóðvinafélagið gefur út sem hluta af sínu almanaki með leyfi Háskólans. (Fréttatilkynnmg) AíLæstu sheusíöS Undirbúum oru99an Mlrarakshir &0-n boð F/?4 SiceuuH©\

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.