Morgunblaðið - 02.10.1992, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1992
ÍSLAND
GRIKKLAND
LANDSLEIKUR í FLÓÐLJÓSUM
MIÐVIKUDAGINN
7. OKTÓBER KL.20 Á LAUGARDALSVELLI
Æsispennandi landsleikur milli fslands og Grikklands verður haldinn
í nýjum flóðljósum Laugardalsvallar og er leikurinn liður í heims-
meistarakeppninni. Nú eiga íslensku strákarnir möguleika! Liggjum ekki
á liði okkar heldur hvetjum þá til sigurs.
Mætið tímanlega á völlinn því nýju flóðljósin verða vígð með
glæsilegri opnunarhátíð kl. 19.00, en völlurinn opnar kl. 18.00.
Meðal atriða á opnunarhátíðinni verða hinir stórskemmtilegu Gysbræður.
Aðeins verður selt í stúku og sæti. Takmarkaður miðafjöldi. Tryggið ykkur
miða í tíma í stúku eða góð sæti því þau eru númeruð.
Forsala aðgöngumiða verður í Kringfúnni í dag kl. 16-19, á morgun laugardag
frá kl. 10-16 og á sunnudag frá kl. 13-17.
Verð aðgöngumiða: í stúku 1500 kr. , MÆTUM
í sæti 1000 kr. Börn 500 kr. A VOLLINN!
#
SAMSTARFSAÐILAR KSI
M Landsbanki n__,
Blk gjands ^ Prentsmiðjan iljjDI hf FLUGLEIDIR
• VISA ISLAND
EIMSKIP
kandia
sland
moyc
GÓ':
4 4
ÚRV*TSÍs?5
KNATTSPYRNA
Júgóslavar
útilokaðir
fráHM 1994
STJÓRN Alþjóða knattspyrnu-
sambandsins, FIFA, ákvað á
fundi sínum í gær, að Júgóslöv-
um yrði meinuð þátttaka í
heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu 1994 þar sem
samskiptabanni Sameinuðu
þjóðanna gagnvart Júgóslavíu
hefur ekki verið aflétt. Júgó-
slavia átti að vera í sama riðli
og ísland í undankeppni HM
1994.
Júgóslavía átti að leika gegn ís-
lendingum á Laugardalsvelli 2.
september sl. en FIFA frestaði
leiknum vegna ástandsins í Júgó-
slavíu og tilkynnti við sama tæki-
færi að endanleg niðurstaða varð-
andi þátttöku Júgóslava í HM yrði
tekin 7. september. FIFA ákvað
síðan samkvæmt beiðni Milans
Panic, forsætisráðherra Júgóslavíu,
að bíða þar til 30. september um
að taka ákvörðun. Og í gær var sú
ákvörðun tekin, að útiloka Júgó-
slava frá þátttöku í heimsmeistara-
keppninni 1994 þar sem ástandið í
landinu hafí ekkert lagast.
FIFA ákvað einnig að Júgóslavar
fengju ekki að taka þátt í loka-
keppni HM í knattspyrnu innanhúss
sem fram fer í Hong Kong í næsta
mánuði. Ákveðið er að Belgar taki
sæti þeirra í keppninni. Eins og
kunnugt er var Júgóslavíu meinuð
þátttaka í úrslitakeppni Evrópu-
mótsins í Svíþjóð sl. sumar á síð-
ustu stundu vegna viðskiptabanns
Sameinuðu þjóðanna. Danir tóku
þá sæti Júgóslava og stóðu upp sig-
urvegarar.
Fordæmir ákvörðun FIFA
Branko Bulatovic, framkvæmda-
stjóri júgóslavneska knattspyrnu-
sambandsins, fordæmir ákvörðun
FIFA, en sagði þó að hún hefði
ekki komið á óvart. „Okkur finnst
þetta ómannúðlegt og samræmist
ekki íþróttahugsjóninni. Þetta bitn-
ar fyrst og fremst á íþróttafólkinu
sjálfu," sagði Bulatovic. „Þessi
ákvörðun veldur okkur að sjálf-
sögðu vonbrigðum. En við erum
ekki illir út í stjórn FIFA vegna
þess að hún reyndi þó allt til að
hafa okkur með og beið í fjóra
mánuði með að taka þessa ákvörð-
un.“
Útlendingamir verða heima
fram yfir Rússaleikinn
Atvennumennirnir fjórir sem koma heim I landsleikinn gegn
Grikklandi í HM á miðvikudaginn kemur, Guðni Bergsson,
Þorvaldur Örlygsson, Eyjólf Sverrisson og Sigurður Grétarsson,
fara ekki til liða sinna í Englandi, Þýskalandi og Sviss, fyrr en
eftir landsleikinn gegn Rússum í Moskvu 14. október. Guðni, Þor-
valdur og Sigurður koma til landsins á sunnudaginn, en Eyjólfur
á mánudag. „Það er mjög gott að geta haft landsliðshópinn óskipt-
an á milli landsleikjanna gegn Grikkjum og Rússum," sagði Ás-
geir Elíasson, landsliðsþjálfari íslands.
KORFUKNATTLEIKUR
Valsmönnum og Keflvík-
ingum spáð bestu gengi
Islandsmótið í körfuknattleik hefst
á sunnudaginn og er Val og ÍBK
spáð bestu gengi ef marka má spá
forsvarsmanna og leikmanna félag-
anna í gær þegar Islandsmótið var
kynnt.
Það voru einmitt Valur og ís-
landsmeistarar ÍBK sem léku til
úrslita um íslandsmeistaratitlinn
fyrra.
Forsvarsmenn og leikmenn spáðu
Val fyrsta sæti og ÍBK í öðru sæti.
Þetta snérist við í spá blaðamanna,
sem höðfu ÍBK í efsta sæti. Skoðum
fyrst spá leikmanna:
1. Valur 205, 2. ÍBK 181, 8. KR 134, 4..
Njarðvík 130, 4. Grindavík 130, 6. Haukar
119, 7. Tindastóll 76, 8. Snæfell 66, 9.
Skallagrímur 42, 10. Breiðablik fékk ekk-
ert stig.
Spá blaðamanna:
1. ÍBK 38, 2. Valur 30, 2. Njarðvík 30, 4.
Haukar 28, 5. KR 24, 6. Grindavík 21, 6.
Tindastóll 21, 8. Snæfell 10, 9. Breiðablik
9, 9. Skallagrímur 9.
Keppnin hefst á sunnudaginn og
verður mótið formlega sett í Grinda-
vík þar sem heimamenn mæta
Borgnesingum kl. 16.00. Síðan
mætast ÍBK og Njarðvík í Keflavík,
Valur og KR að Hlíðarenda og á
Sauðárkróki mætast Tindastóll og
Haukar. Þrír síðarnefndu leikirnir
hefjast kl. 20.00.
HANDKNATTLEIKUR / EM
FH mætir Kyndli
Islandsmeistarar FH mæta Kyndli
frá Færeyjum í síðari leik lið-
anna í Evrópukeppni meistaraliða í
handknattleik í Kaplakrika í kvöld
kl. 20.30. FH vann fyrri leikinn sem
fram fór í Færeyjum með sjö marka
mun, 27:20.
Geir Hallsteinsson, fram-
kvæmdastjóri FH, sagði að þó svo
að FH hefði sjö mörk í plús væri
ekki allt gefið í þessu. „Við megum
ekki vera of sigurvissir og nú verð-
ur Andreas Hansen, sem lék með
Fram í fyrra, í fullu fjöri. Hann var
meiddur í fyrri leiknum og kenndu
Færeyingar því um að ekki gekk
betur hjá þeim.“
Leikmenn Kyndils komu til
landsins í gær. Dómarar leiksins
koma frá Danmörku.