Morgunblaðið - 24.10.1992, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.10.1992, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 1992 Er endurhæfing- á lands- byggðinni óþörf? eftir Stefán Yngvason Á síðustu vikum hafa málefni Kristnesspítala verið til umfjöllunar í fjölmiðlum og nú nýverið einnig á Alþingi. Ástæðan er aðför heil- brigðisráðherra að stofnuninni, þar sem hann leggur til að annaðhvort verði hún lögð niður eða rekin áfram með um 30% niðurskurði á rekstr- arfé, eða sem nemur 40 milljónum króna. Til að framkvæma þetta verk hefur hann sett á fót nefnd, sem nýlega hefur hafið störf. Nefndin á létt verk fyrir höndum, því öllum má vera ljóst, þ.m.t. heilbrigðisráð- herra, að spítalinn getur ekki sinnt hlutverki sínu með slíkum niður- skurði. Þannig er stefnt leynt og ljóst að lokun spítalans. ÖIlu erfiðara verður starf nefndarinnar þegar kemur að því að leysa vistunarvanda sjúklinga spítalans og endurhæf- ingarþjónustu Norðlendinga. Forsaga Kristnesspítali var reistur á árun- um 1926-27 sem heilsuhæli fyrir berklasjúklinga. Heimamenn lögðu fram mikla fjármuni og vinnu til að af þessu gæti orðið enda ríkti þá neyðarástand vegna berklanna. Ríkisstjóminni var síðan afhent hæl- ið til rekstrar. Margt er Iíkt með Kristnesspítala og þeim berklahælum sem reist voru annars staðar í Evrópu. Þeim var valinn staður á fögrum stað í hæfi- legri fjarlægð frá þéttbýliskjömum. Þegar sigrast hafði verið á berklun- um mættu þessi heilsuhæli öðrum þörfum, oftast á sviði endurhæfing- ar- og öldmnarþjónustu. Kristnes- hæli, eins og það hét þá, var engin undantekning frá þessu. 1976 gaf þáverandi heilbrigðisráðherra út bréf þess efnis að efirleiðis skyldi Krist- neshæli rekið sem hjúkrunar- og endurhæfíngarspítali. Ekkert bólaði þó á endurhæfingunni og spítalinn var enn um sinn eingöngu hjúkmnar- stofnun. Endurhæfingarhugsjónin lifði þó áfram. Til að undirstrika breytta starfsemi stofnunarinnar var nafninu breytt í „Kristnesspítali“ árið 1984. Ári síðar samþykkti stjómamefnd ríkisspítala að áfram skyldi rekin hjúkmnardeild fyrir langlegusjúklinga á efri hæð, en á neðri hæð yrði rekin endurhæfingar- deild fyrir lyflæknisjúklinga, bæklun- arsjúklinga og gigtarsjúklinga. 1986 samþykkti stjómamefndin fyrirliggj- andi starfsemi- og byggingaráætlun. Byggingaráætlunin fól í sér nýbygg- ingar og endurbætur í sex áföngum. Áætlunin var þannig úr garði gerð að sérhver áfangi nýttist strax og að fullu. Öldrunardeild Öldmnardeild (hjúkmnardeild) spítalans rýmir 24 sjúklinga og er alltaf fullskipuð. Undanfarin ár hefur spítalinn aukið öldmnarþjónustu sína með hvíldarinnlögnum, auk þess sem læknir deildarinnar er mjög virkur í þjónustuhópi aldraðra á Akureyri sem sér um faglegt mat á hjúkmnar- þörf aldraðra í heimahúsum. Þetta nægir þó ekki og er mikil þörf fyrir stofnun öldmnarlækningadeildar, sem sér um greiningu, mát öldmnar- sjúkdóma og þjálfun þegar hún á við. Rök em fyrir því að slík eining eigi að vera á Kristnesspítala, en þau verða ekki kynnt hér. Hvað verður um hjúkmnarsjúkl- inga spítalans ef honum verður lok- að? Á Akureyrarsvæðinu em fleiri hjúkmnarrúm en í Reykjavík, ef tek- ið er mið af fjölda rúma og fjölda einstaklinga 70 ára og eldri. Þrátt fyrir þetta liggja að staðaldri 12-15 hjúkmnarsjúklingar á bráðadeildum Fjórðungssjúkrahússins. Ef of- angreindum 24 rúmum verður lokað þýðir það hlutfallslega færri hjúkr- unarrúm en í Reykjavík, en þar hef- ur verið lýst yfir neyðarástandi. Endurhæfingardeild Endurhæfíng hófst 1988 með ráðningu eins sjúkraþjálfara. Tveim ámm síðar var ráðinn iðjuþjálfi. Undirritaður hóf störf á Kristnes- spítala 1. ágúst 1991, samtímis því að spítalanum var deildaskipt og endurhæfíngardeild formlega stofn- uð. Var með þvi brotið blað í sögu endurhæfíngar á íslandi, þar sem deildin er sú fyrsta utan höfuðborg- arsvæðisins. Reiknað hefur verið með 34 rúmum á deildinni. Með því starfsfólki sem endurhæf- ingardeild hefur yfir að ráða nú er mögulegt að sinna 6-8 sjúklingum á hveijum tíma. Deildin hefur þó sinnt allt að 12 endurhæfingarsjúkl- ingum í einu, og um hundrað sjúkl- ingar á ári njóta þjónustu hennar. Auk þess sinnir deildin tímabundið öldmnarþjónustu með rúm fyrir hjúkmnarsjúklinga og hvíldar- innlagnarsjúklinga og er heildarfjöldi sjúklinga deildarinnar á bilinu 15-18 eftir umönnunarþyngd á hveijum tíma. Starfsemin er margþætt. Þjónust- an hefur annars vegar miðast við þarfir bráðasjúkrahúsa, aðallega Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, og hins vegar við þarfír sjúklinga heilsugæslunnar. Þjónustusvæðið er stórt og nær yfir allt Norðurland. Vaxandi aðsókn er frá Austurlandi þar sem menn hafa áttað sig á þeim möguleika sem þama býðst. Miðað við höfðatölu ætti endurhæfingar- deild sem sinnti eingöngu Norður- landi að hafa 36 rúm. Að Austur- landi meðtöldu þyrftu rúmin að vera 51. Hefur þá ekki verið reiknað með dagdeildum, heilsuhælisrými eða 'öldmnarlækningarými sem til staðar em á höfuðborgarsvæðinu. % hlutar endurhæfíngarsjúklinga koma frá bráðadeildum FSA eða öðr- um bráðasjúkrahúsum. Tekið er við sjúklingunum um leið og ástand þeirra leyfír. Þessi starfsemi er því sambærileg við það sem gerist á end- urhæfíngardeild Borgarspítala við Grensás. 'h hluti sjúklinga kemur úr heimahúsum gegnum heilsugæslu. Markmið deildarinnar er að veita alhliða endurhæfíngu öllum þeim sjúklingum sem þurfa á slíku að halda. Starfsemi Reykjalundar með öfluga aðstöðu til þjálfunar, útivistar og íþrótta fyrir fatlaða er fyrirmynd sem reynt verður að fylgja. Slíkt mun taka tíma, en ég er þess fullviss að félagasamtök munu ekki liggja á liði sínu við lagfæringar í umhverfi spítal- ans, t.d. gerð göngustíga. Samstarf deildarinnar takmarkast ekki eingöngu við sjúkrastofnanir. Þannig eru góð tengsl við Atvinnuleit fatlaðra á Akureyri og í samstarfi við Tryggingastofnun ríkisins er hafíð útlán sérhæfðra hjálpartækja. Um árabil hafa verið biðlistar að endurhæfingarstofnunum höfuð- borgarsvæðisins. Efling endurhæf- Stefán Yngvason „Á sama tíma og stjórn- arnefnd leggur til við ráðherra að leggja skuli endurhæfingu á Kristnesspítala á hill- una, koma í ljós hug- myndir þeirra um end- urhæfingardeild á Kópavogshæli. ingar fyrir norðan kemur því ekki bara landsbyggðinni til góða heldur bætir aðgang fólks á höfuðborgar- svæðinu að þeirri þjónustu. Hér fyrir norðan lengist biðlistinn þrátt fyrir vaxandi starfsemi. Þörfín Er þörf fyrir endurhæfíngu á landsbyggðinni? Tvímælalaust, og það mjög brýn. — Áthugun sem gerð var árið Margeir Pétursson „Ég held líka að ís- lenskir blaðalesendur séu ekki svo einfaldir að láta skákfréttir af Fischer og Spasskí villa sér sýn um ófremdar- ástandið í þessum hluta Evrópu.“ stefnu og þar hefur KGB átt ítök. Nokkrum árum seinna var Fischer handtekinn í misgripum fyrir banka- 1987 leiddi í ljós að á hveijum tíma voru um 30 einstaklingar með lög- heimili á Norðurlandi eystra innrit- aðir á endurhæfíngarstofnanir á suð- vesturhomi landsins. Athugun á veg- um Læknafélags Akureyrar frá 1990 staðfesti að á hveijum tíma voru að meðatali 38,5 einstaklingar úr Norð- urlandsfjórðungi á endurhæfíngar- stofnunum sunnan heiða. — Það er mikið álag fyrir einstakl- inga, sem verða fyrir fötlun af völd- um slysa eða sjúkdóma, að þurfa að dveljast langdvölum fjarri heimkynn- um og ástvinum. — Endurhæfíng fjarri heimkynn- um verður ófullkomin þar eð fjar- lægðin hindrar eðlilegar aðgerðir svo sem heimilis- og vinnustaðaathugan- ir, sem og náin tengsl endurhæfíng- arstarfsfólks við samstarfsaðila í heilbrigðis- og félagsmálageiranum í heimahéraði sjúklings. Möguleikar sjúklings til helgarleyfa takmarkast mjög af sömu ástæðu. Margir hafa því ekki treyst sér í þá endurhæfingu sem þeir þurfa og eiga rétt á. — Skortur á þjónustu nálægt heimabyggð veldur eðlilega fólks- flutningi þangað sem þjónustan er, það er á höfuðborgarsvæðið. Staðsetning Hvar á slík endurhæfing £ið vera? Akureyri og nágrenni er stærsti þétt- býliskjami landsbyggðarinnar. Mannnijöldaspár ganga í þá átt að sá kjarni muni enn stækka og vaxa að mikilvægi sem þjónustukjami Norðurlands. Kristnesspítali er ein- ungis í 10 km fjarlægð frá Akureyri og vegurinn þar á milli er með því bezta sem gerist í þjóðvegakerfi landsins. Batnandi samgöngur hafa aukið vægi spítalans. Þannig eiga Norðlendingar og Austfírðingar mun skemmri leið til þessarar þjónustu en áður. Heilbrigðisáætlun kveður einnig á um eflingu endurhæfíngar á Akureyri. Vanefndir og skilningsleysi Framantalið yfirlit af sögu, þörf, áhuga heimamanna og væntingum, gefur tilefni til að ætla að málefnum spítalans hafi verið vel sinnt, jafn brýn og þau eru. Annað hefur verið uppi á téningnum. Stjómamefnd rík- isspítala hefur sýnt málefnum spítal- ans, og þar með endurhæfíngar- og öldrunarmálefnum Norðlendinga, úmtalsvert áhugaleysi. Dæmi: 1) Af byggingaráætluninni sem samþykkt var 1986, hefur verið stað- ið við framkvæmd tveggja áfanga af sex, sem er tengibygging milli legudeilda og meðferðarálmu, ásamt stiga og lyftuhúsi. Framkvæmdir em 4 árum á eftir áætlun. 2) Fjárframlög til eðlilegrar end- umýjunar tækjabúnaðar hafa verið afar lítil. Hefði einhver trúað því að ræningja á götu í Pasadena í Banda- ríkjunum og varpað í fangelsi. Fyrir tæpum áratug reyndu velunnarar Fischers að rétta hlut hans og nefnd Bandaríkjaþings skoðaði mál hans gagnvart FIDE og lýsti því yfir að í augum þess væri hann ennþá heimsmeistari í skák. Ekki var hins vegar gripið til neinna aðgerða í framhaldi af því. Vegna þessa hefur Fischer orðið mjög beiskur og lokast inni í eigin heimi _ ásakana og samsæriskenn- inga. I ljósi lífshlaups hans held ég að hann eigi ekki síður skilið með- aumkun en fyrirlitningu. Að hætta að flytja fréttir af þessu einvígi get ég ekki séð að þjóni nein- um tilgangi. Þær taka ekki pláss frá umljöllun um stríðsástandið og hörmungarnar í Bosníu. Þvert á móti hefur einvígið vakið athygli margra á þvf ófremdarástandi sem ríkir í Serbíu. Það hefur orðið til þess að umheimurinn veit að stríðs- gróðabraskarar á borð við einvígis- haldarann Jezdimir Vasiljevic hafa makað krókinn við þau óeðlilegu skilyrði sem þar ríkja. Það kann að hafa verið mikill afleikur hjá Vas- iljevic að hafa komið fram S dagsljós- ið með einvígishaldinu. Hans nótar þrífast best í skúmaskotum. Nú líður senn að útborgun hæsta verðlaunasjóðs í sögu skáklistarinnar og þá vakna spumingar, s.s. hvort og hvemig féð verði greitt? Hvert ætla þeir Fischer og Spasskí að fara með það og í gegnum hvaða lönd og banka verða fjánnálatilfærslumar? Um þetta og framtíð Bobby Fisc- hers veit ég að marga íslendinga Ritskoðun leysir engan vanda eftirMargeir Pétursson Friðrik Ásmundsson Brekkan ritar grein í Morgunblaðið á miðvikudag og sakar þá sem fjallað hafa um ein- vígi Fischers og Spasskís um að hafa fallið fyrir áróðursbragði Serba, án þess að tilgreina neinn ákveðinn fjöl- miðil. Nú get ég auðvitað aðeins svarað fyrir sjálfan mig og störf mín, en ég er þessu algerlega ósam- mála. Hvað Morgunblaðið varðar hlýtur ásökun Friðriks að stafa af því að hann hefur ekki fylgst með öllum fréttum og greinum sem blað- ið hefur birt frá einvíginu. Aðrir verða svo að svara fyrir sig. Ég er reyndar sammála Friðriki að því leyti að um einhverskonar áróðursbragð hafí verið að ræða. Sá vafasami fjármálamaður Jezdimir Vasiljevic snarar ekki út mörgum milljónum Bandaríkjadala að gamni sínu. Þegar ég dvaldi í Svartfjalla- landi í fimm daga í byijun septem- ber og fylgdist með upphafi einvígis- ins reyndi ég einmitt að komast að því hvað vekti fyrir honum með þessu brölti og hver staða skákmannanna sjálfra væri. f grein í sunnudagsblaði Morgun- blaðsins 13. september sl. setti ég síðan fram ályktanir mínar um þessi atriði sem voru í aðalatriðum: 1) Vasiljevic hefur byggt upp stór- veldi með svartamarkaðsbraski sínu, er tengdur vopnasölu og stuðlar að brotum á viðskiptabanni SÞ. Margir í Serbíu, líklega þeir sömu og for- dæma stríðið, hafa litið hann hom- auga og hann virðist vera að reyna að bæta ímynd sína innanlands. Ruddaleg framkoma hans í garð er- lendra blaðamanna bendir hins vegar ekki til þess að hann hafí gert sér vonir um að hljóta lof í augum um- heimsins. 2) Vasiljevic og hans nótar eru að nota Bobby Fischer í áróðurstilgangi. Vanhugsaðar yfírlýsingar þessa við- kvæma einfara hafa því miður verið vatn á myllu ofstækismanna. Við þetta má bæta að sem að- dáanda Fischers frá bemsku hefur mér einkum fallið tvennt þungt: í fyrsta lagi að hann skyldi fara að halda á Ioft hugmyndum sínum um gyðingasamsæri og staðfesta að hon- um sé uppsigað við þann kynþátt. í Serbíu og Svartfjallalandi er þjóðem- ishatur útbreitt, það eru einkum múslímar og Albanir sem verða fyrir því. Þessi ummæli þjóðhetjunnar réttlæta vafalaust slík viðhorf í hug- um margra Serba. í öðru lagi að hann skyldi heimsækja Slobodan Milosevic, forseta Serbíu, og láta mynda sig með honum. (Sjá Morgun- blaðið 7. október.) Milosevic er ein- mitt sá einstaklingur sem talinn er bera mesta ábyrgð á hörmungunum. Þetta breytir því þó ekki að Bobby Fischer varð heimsmeistari hér hjá okkur fslendingum árið 1972 og engin furða að við viljum fá af honum fréttir, jafnvel þótt daprar séu. Síðan 1972 hefur Fisch- er ekki verið öfundsverður. Árið 1975 var hann sviptur heimsmeist- aratitlinum, bæði vegna eigin stífni og ítaka sovéska skáksambandsins í Alþjóðaskáksambandinu FIDE. Þess má geta að aðferðir sovéska skáksambandsins hafa ávallt verið mjög í anda sovéskrar harðlínu-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.