Morgunblaðið - 27.10.1992, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ VlÐSKIPTI/ATYINNULfF ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1992
35
Ráðgjöf
Um 50 markaðssvæði í
hinni nýju Evrópu
Líta verður á Evrópu sem heimamarkað
Með víðtækara Evrópusamstarfi
verða íslendingar að breyta hugs-
unarhætti sínum þegar þeir mark-
aðssetja vöru innan Evrópubanda-
lagsins. íslensk fyrirtæki munu
ekki vinna með einum innflytjenda
í hveiju landi heldur verða þau
að snúa sér beint til smásala.
Þannig geta þau einbeitt sér að
ákveðnum svæðum innan land-
anna, t.d. einungis Bayern í Þýska-
landi, en þurfa ekki að markaðs-
selja sína vöru í löndunum sem
einni heild. Þetta er mat Lars
Weibull sem nýlega hélt fyrirlest-
ur um sóknarfæri á Evrópumark-
aði.
Lars Weibull kom hingað á vegum
Útflutningsráðs íslands frá sænska
fyrirtækinu Lars Weibull AS sem
hefur sérhæft sig í að fínna sam-
starfsaðila í Evrópu fyrir sænsk fyr-
irtæki.
í erindi sínu fjallaði Weibull m.a.
um bakgrunn EB, nýjar reglur innan
EB, reglur EFTA og EB um þarfa-
vörur, samninginn um EES, mark-
vissar skilgreiningar á Evrópumark-
aði, stöðu og samkeppnisgreiningu
og sérstakar áherslur vegna íslenskr-
ar framleiðsluvöru.
Weibull leggur mikla áherslu á að
ekki eigi að líta á hvert land fyrir sig
í hinni nýju Evrópu heldur megi skipa
henni upp í ótalmörg markaðssvæði
og tilgreinir hann um 50 slík í Evr-
ópu, sem saman mynda þennan nýja
heimamarkað.
Til að ná sem.bestum árangri í
markaðssetningu vöru í Evrópu segir
Weibull mikilvægt að fyrirtæki geri
sér grein fyrir því verði sem almennt
sé á sambærilegum vörum í Evrópu.
Einnig sé mikilvægt að afla upplýs-
inga um hvaða greiðsluskilmálar
tíðkist á viðkomandi svæðum og
fylgja þeim eftir.
María E. Ingvadóttir deildarstjóri
utanlandsdeildar Útflutningsráðs,
sem hefur kynnt sér starfsaðferðir
Weibuls, mun veita sambærilega
þjónustu og vinna með íslenskum
fyrirtækjum að markaðssetningu í
Evrópu. María segir að með sameig-
inlegum markaði bjóðist ný tækifæri
en einnig munu íslensk fyrirtæki
standa frammi fyrir kröfu um sam-
keppni í verði og gæðum. Af því
þurfi m.a. að taka mið þegar leitað
er inn á markaði í Evrópu.
Verslun
*
Haustfundur haldinn hjá Islensk
-ameríska verslunarráðinu
ÍSLENSK-ameríska verslunar-
ráðið hélt haustfund í húsakynn-
um Sameinuðu þjóðanna 25. sept.
sl. Um 70 manns komu á fundinn,
íslendingar og Bandaríkjamenn.
Aðalræðumaður og gestur
fundarins var Friðrik Sophusson,
fjármálaráðherra. Ræddi hann um
efnahagsástandið á íslandi og stöð-
una í helstu viðskiptalöndum Islend-
inga. Hann vék sérstaklega að fram-
tíðarhorfum í íslenskum sjávarútvegi
í ljósi skerðingar á aflaheimildum
og minnti á hve þýðingarmikil þessi
atvinnugrein er fyrir þjóðina. Þá
gerði hann að umtalsefni vaxandi
atvinnuleysi, en benti á að helsta
huggunin í þessum þrengingum
væri hve vel hefði tekist að binda
endi á verðbólguna.
Á undan ræðu fjármálaráðherra
þakkaði formaður félagsins, Magnús
Friðgeirsson, framkvæmdastjóri Ice-
landic Seafoodj fráfarandi fram-
kvæmdastjóra Úlfi Sigurmundssyni,
fyrrverandi viðskiptafulltrúa í New
York fyrir vel unnin störf í þágu fé-
VERSLUNARRÁÐ — Frá haustfundi íslensk-ameríska versl-
unarráðsins. Á myndinni eru f.v. þeir Úlfur Sigurmundsson, fyrrverandi
viðskiptafulltrúi, Magnús Friðgeirsson, framkvæmdastjóri Iceland Seafo-
od, Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra og Jón Sigurðsson, viðskiptafuli-
trúi.
lagsins allt frá stofnun þess í febrúar I asta aðalfundi félgsins var Úlfur kos-
1986 til júníloka á þessu ári. Þá tók inn í stjórn og er hann fyrsti stjómar-
við því starfi Jón Sigurðsson. Á síð- | maðurinn með aðsetur á íslandi.
CASCAMITE
VATNSHELT
TRÉLÍM
ARVÍK
ARMÚU 1 - REYKJAVlK - SlMI 687222 -TELEFAX 687295
Umbúðasamképpni
Félags íslenskra iðnrekenda 1993
Samkeppnin er fyrir allar gerðir umbúða, jafnt
flutningaumbúðir sem sýninga- og neytendaum-
búðir. Til umbúða telst allt sem umlykur vöru.
Þátttökurétteiga umbúðir, hannaðará íslandi,
sem komið hafa á markað hér eða erlendis frá
áramótum '89/’90 og í síðasta lagi daginn sem
tilkynningarfresturinn rennurút.
Framleiðandi umbúðanna, notandi eða hönnuð-
ur geta tilkynnt þátttöku að fengnu samþykki
hinna aðilanna.
Þátttökugjald fyrir hverjar tilkynntar umbúðir er
kr. 5.000.
Ath.: Þátttöku skal tilkynna til Félags íslenskra
iðnrekenda í síðasta lagi 29. október kl. 16.30.
Þátttökutilkynningar og reglur fást á skrifstofu
Félags íslenskra iðnrekenda, Hallveigarstíg 1,
101 Reykjavík, sími (91) 27577.
&
FELAG ISLENSKRAIÐNREKENDA
Hugbúnaður
Morgunblaðið/Þorkell
NAMSKEIÐ — Notkun sérhæfða samskiptaforritsins HBX-PAD
fyrir IBM RS/6000 tölvur var kynnt á námskeiði hjá Hugbúnaði hf. í
síðustu viku. Þar var einnig kynnt nýtt kerfi fyrir flugvelli og flugfélög
sem dreift verður um næstu mánaðarmót.
HBX-PAD forritíð hefur
selst í 540 eintökum
HUGBÚNAÐUR hf. hefur selt um
540 eintök af sérhæfða samskipta-
forritinu, HBX-PAD, sem skrifað
var til að gera kleift að tengja
IBM RS/6000 tölvur við X.25
gagnanet á sem einfaldastan og
öruggastan hátt. Hugbúnaður hf.
og IBM á íslandi hófu útflutning
á forritinu í byijun árs 1991, en
Íiað er að mestum hluta selt utan
slands og hefur til þessa verið
eina forrit sinnar tegundar á
markaðnum að sögn Páls Hjalta-
sonar hjá Hugbúnaði. Um síðustu
áramót höfðu verið seld 205 ein-
tök.
í síðustu viku hélt Hugbúnaður nám-
skeið í notkun HBX-PAD fyrir um-
boðsmenn og þjónustuaðila fyr-
irtækisins. Tilgangurinn var að
kynna uppsetningu forritsins og
samspil milli þess, tölvunnar og X.25
gagnanetsins. Námskeiðið sóttu að-
ilar frá Bandaríkjunum, Bretlandi,
Danmörku og Frakklandi.
Á námskeiðinu var einnig kynnt
kerfi til aðstoðar starfsmönnum
flugvalla og flugfélaga við að senda
á milli sín skeyti um komu og brottf-
arir flugvéla. Kerfið er hannað í
samræmi við alþjóðastaðla og samið
í samvinnu við aðila hér á landi sem
hafa sér þekkingu á þessu sviði eins
og starfsmenn frystistöðvarinnar á
Gufunesi.
Að sögn Páls verður kynningar-
útgáfu sem sýnir hvað kerfið getur
gert án þess þó að geyma skeyti,
dreift í um 300 eintökum til flugvall-
arstarfsmanna víðsvegar um heim
um næstu mánaðarmót. Líki viðtak-
endum kerfið geta þeir haft samband
við Hugbúnað og fengið útgáfu sér-
staklega gerða fyrir sig. Vonast er
tii að með þessi verði hægt að fá
notendur tii að standa á bak við frek-
ari þróun á kerfinu sem mun kosta
um 400 dollara eða rúmlega tuttugu
þúsund krónur.
Morgunverðarlundur
föstudag 30. október 1992
kl. 08.00 ■ 09.30, i Átthagasal Hótels Sögu
ENSKILDA-SKYRSLAN UM
HLUTABRÉFAMARKAÐINN
Enskilda Corporate Finanœ i London leggur nú fram
annan áfanga skýrslu sinnar um íslensk verðbréfaviðskipti
- um hlutabréfamarkaðinn.
Hver gæti þróunin orðið?
Hvaða áhrifhefur sala á ríkisfyrirtækjum?
Hverjir eru líklegir fjárfestar, fá þeir nægar
markaðsupplýsingar, hafa þeir næga
þekkingu á hlutabréfaviðskiptum?
Hvar standa lífeyrissjóðirnir?
Hvaða gildi hefur almenn hlutabréfaeign?
Er von á erlendum fjárfestum?
Fundurinn fer fram á ensku.
Frummælendur eru aðalhöfundar skýrslunnar,
David Watson og Birgitta Albáge, fjármálaráðgjafar
Enskilda á vettvangi Norðurlanda.
Sérstakar umræður fara fram við pallborð með íslenskum
þátftakendum. Fyrirspumum úr sal verður svarað.
Fundurinn er opinn, en tilkynna verður fyrirfram
um þátttöku í síma 676666.
Þátttökugjald m. morgunverði kr. 1.000.
ENSK/LDA-SKÝRSLAN ER GERÐ Á VEGUM
SEÐLABANKANS, VERSLUNARRÁÐSINS OG
IÐNÞRÓUNARSJÓÐS.
EINTÖK VERÐA SELD VIÐINNGANG Á FUNDINN.
VERSLUNARRAÐ ISLANDS