Morgunblaðið - 31.12.1992, Page 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1992
Um áramót 1992-1993
Nú er glatt...
Nú er breytt um ljóð og lag
í landbúnaðarkórnum.
Steingrímur þar stóð hvern dag
með stefnuna í flórnum.
En fagurt er útlitíð
eins og vera ber.
Blöndal kennir bændum
að bjarga sjálfum sér.
Nú er lag um byggð og ból,
braskið aldrei þrýtur.
Gjaldþrot eru í hveijum hól
og hvert sem auga lítur.
Þeir koma með gjaldþrotin
og krónan fyrir bí,
; koma svo til baka
og kaupa þau á ný.
Nú er kátt um borg og bí,
bráðum hækkar sólin.
Bókaflóði ösla í
allir fyrir jólin.
Allt kemur fýrir
? og almenningur fer
sj að gefa út í ótal bindum
ævina hjá sér.
Ostöðvandi er eyðslan hér
- ennþá snúast hjólin. -
Til útlandanna fólkið fer
í flokkum nú um jólin.
Allt þetta „vesen“
fær vetri í vorsöng breytt.
Kaupa í marga kassa,
það kostar ekki neitt.
Útgerðarmál
Bara að kaupa - bara að græða
báta kaupir sérhver hræða
togarar með flottir fljóta
fiskiskip - með engan kvóta.
Allir viíja á þeim dorga
auðvitað má ríkið borga
braskað er og bara eytt
borgar enginn neitt.
í útlöndum fæst allt að láni
allir vona að miðin skáni.
Að laxveiði er nú lítill fengur
ljós og skuggar eins og gengur.
Hafmeyjarnar hugans freista.
Á hvalreka er ekki að treysta.
Hámeri og háfur þá
helst sem treyst er á.
Flotinn þeytist út um álfur
eins og jafnvel fjandinn sjálfur.
Elta þorskinn upp á tíu
alla leið til Síberíu.
Karfinn hræddur fer í felur,
íjFinnlands djúpi manninn elur.
Út í botniaust ballarhaf
„björgin“ stingur af.
Eftir 5 ár ýmsir láta
í úreldingu sína báta.
Allt er því á ísi hálum
engin stjórn á fiskimálum.
Þjóð mín. Ekki er þetta gaman.
Þorsteinn nær þó ýmsu saman.
Ferskan anda fær hann nú
fyrir L í Ú.
Hið andlega
Á okkar andlega plani
er allt í steik eða hnút
og kirkjan okkar að koðna
og Krossinn að slá hana út???
En - á kirkjuþingi er mjög að morgna,
messuvín afleggst þar brátt...
Prestar og þjónar Krists þorna
og þróast í bindindisátt.
Ljúft er að láta sig dreyma
um lifandi og betri heim.
Þótt hinir fari á hausinn
helst ekki að fylgja þeim.
Menn kafa í allt krassandi og fíkið
uns kláminu er fjöldinn háður...
Sumir hrópa um hjálp á ríkið
sem himininn tilbáðu áður ...
En í réttarfarinu situr vor sómi
svo sem hæfir og venja er til.
Þeir brotlegu bíða eftir dómi
bara í eitt kjörtímabil.
Því mergurinn er í málningardósum
og meiningin öll í lit.
Þangað til gengur logum ljósum
lífsreynsla og hvolpavit...
Allir fjasa um atvinnuleysi.
Og er það nema von
að þurfa í aðra heimsálfu að halda
til að. hlusta á Kristján Jóhannsson.
Ómar frá seinustu ríkisstjórn
Hvað fæ ég?
Með ákefð slóst Ólafur Ragnar
auðmenn og braskara við.
Sú staðreynd er: Stefnuskráin
stóðst fram í andlátið.
Ja, þar var nú stórhuga stefnan
og stefnt upp á hæsta tind.
Fjárlögin ráddsett og rauluð
að rússneskri fyrirmynd.
Svavar í rauðgrautnum svamlar
og síst vantar kjaftæðið.
í útlöndum allt hann þekkir
og alla hann sagt getur við:
Við förum alls ekki í EES
sem allt vill hneppa í bönd
fyrst Internatíonalinn gat ekki
tengt okkur strönd við strönd.
Alþingi voða er í voða
eftir að vinstri stjórnin sprakk
og varð að halda út í haga
„taka hest sinn og hnakk".
„Nú dugar íslandi ekki annað
fyrst úti er um SÍS og KRON
nema heimspeki Höllustaða
og Hjörleifur Guttormsson."
Menntamálaráðuneytið
meira ekki að ræða um það
fyrst köttur í bólið Bjarnar
er borinn og sestur að.
Krummarnir á skjánum
kalla hásir inn: Fæ ég nú bara saft og súpu,
Sighvatur minn?
Og krummarnir á skjánum
kalla rámir inn:
Hvað fæ ég út úr fjárlögunum,
Friðrik minn?
Ur skýrslum lögregluimar í des.
Lögreglan í Reykjavík nú fyllir heila hít
hirðir upp af borgarstrætum ferskan mannadrít.
Það er margt sem brasað er til bóta á næturnar
þegar borgararnir „hálfir" ganga örna sinna þar.
Þetta er allt frá bjórnum, sem nú bætir mannskapinn,
bjórstofurnar rísa hratt og þenja út miðbæinn.
Að áburðurinn vaxi og angi stræti og torg,
allt er þetta gratís fyrir Reykjavíkurborg.
Samvinnuljóð dagsins
Þess berum við sár, í ótalmörg ár,
ekki í landsstjórninni að.vera,
við gleymdum svo mörgu og áttum líka eftir
sem við ætluðum síðar að gera ...
Drýpur hryggð - við að horfa nú á
hina skera - já, skera og skera.
Því nú stefnir allt í foræði og fen,
við famir úr öruggflm sporum.
Hörmung er, þjóð mín, að hugsa til þess:
Þú hlýddir ei ráðum vorum.
Drýpur nú hryggð - er við horfum á
hina skera - það sem átt’ekk’að skera.
Hugleiðingar
Enn eru komin áramót á Fróni.
Er þá nokkur furða þótt menn góni
á skattana í hrönnum með skyldum alls staðar
og skýrslurnar sem mörgum þykja nokkuð kyndugar.
Hugarfar - hollu lífi að ama
hugarfar - mér er alveg sama
hugarfar.
Þér íslands börn. Hve blessast yður kvótinn?
Er bókhaldið í lagi um áramótin?
Nú efna þeir til verkfalla bara’ upp á ugga og roð
þeir Ögmundur í sultinum og Gvendur kempan J.
Á verkföllum - mun verkafólkið græða
á verkföllum - um annað er ekki’ að ræða
bara verkföllum.
Hér eru menn sem óháð fá að braska
eins og galtóm svartadauðaflaska.
En hvað um þessa ríku, með auð um allan heim?
Ekki náði vinstri stjórnin peningum af þeim.
Það er og - þetta stendur heima
það er og - það er enginn vandi’ að gleyma
það er og.
Það fylgir jafnan blessun hveiju barni.
í barnsmeðlögum felst því djúpur kjarni.
Hver á að borga meðlögin - maðurinn eða hún
máske sveit og ríki verði að leysa slíka rún?
Þingið er — í þokkalegri pressu
Þingi ber — að ráða fram úr þessu
sýnist mér.
Á alþingi er alltaf verið að ræða,
andríkið um stóla og bekki flæða.
Ræðurnar um EES í tonnatali þar
svo taugarnar um nætur verða þvers og umsnúnar.
Á skammri stund - skipast ræða í .hvofti
á skammri stund — skipast veður í lofti
á skammri stund.
I áttina - fram, fram fylking
Vertu hjá mér, Davíð, meðan kommar öllu kyngja
og kverkarnar í Steingrími eru að þorna í pólitík,
og þá er gott með Jóni Baldvin söngvana að syngja
þá söngva sem að gegnum árin byggðu upp Reykjavík.
Vertu kátur, Davíð, því allt mun aftur glansast
þótt andstaðan í þinginu sé nú með pú og gust.
Eyjólfur mun hressast og Ingi Björn mun sansast
og Eggert hætta að snúast eins og vindhani á burst.
Á meðan blómin anga - og Sambandið vill sofa
er sælt að fá að vaka - til bjargar landi og þjóð.
Og SÍS hafði upp á Kirkjusandi komið Dalakofa.
Kannske lesa skáldin þar upp öll sín bestu ljóð?
Þótt oft sé þröngt í búi, og bjartara úti í heimi.
Benedikt hjá ASI hefir það bara skítt, -
með allan þennan hala og ótal drauga á sveimi
því Ögmundur er lystugur og Gvendur vill fá sitt.
Þótt Kvennalistinn sé eins og á niðadimmri nóttu
og nái varla réttum tón í lífsins ólgu sjó.
Þeir kunnu ekki alltaf áralagið, fast er sjóinn sóttu,
að sýna sig í þinginu er alveg meira en nóg.
En Davíð minn, þig sakar ei þótt naprir vindar næði
og nokkrir stjórnarandstæðingar klóri þér um bak
og þótt þú sért á hlaupum og hafir aldrei næði
þá held ég næstu árin verði bara fyrirtak.
Árni Helgason,
Stykkishólmi.
FJÖR
/ / /
HJA SOLEYJ VETUR!
NYTT!
AEROBIC
NYTT!
10 til 13 ára