Morgunblaðið - 31.12.1992, Side 22
22 B
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1992
fclk f
fréttum
BLONDUOS
Lúðrablástur þeirra yngri
Blönduósi.
Atta skólalúðrasveitir víða af
Norðurlandi hittust fyrir
'-skömmu á Blönduósi. Um var að
ræða tveggja daga lúðrasveitamót
og lauk því með lokatónleikum í
nýja íþróttahúsinu sunnudaginn 29.
nóvember.
Skarphéðinn Einarsson, stjórn-
andi skólalúðrasveitar Blönduóss,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að hljómsveitir hefðu komið frá
Kópaskeri, Húsavík, Eyjafjarðar-
sveit, Akureyri, Dalvík, Skaga-
strönd og Blönduósi. Að sögn
Skarphéðins gerði hið nýja íþrótta-
hús á Blönduósi það mögulegt að
ráðast í þetta verkefni. Eins og
áður greinir voru hljómsveitirnar
átta talsins og þátttakendur voru
alls eitt hundrað og sjötíu.
- Jón Sig
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Smáfólkið fékk að reyna sig við blásturshyóðfærin.
AUGLYSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* 10.000,00 GKR.
1975-1 .fl. 10.01.93 kr. 22.831,35
1975-2.fl. 25.01.93-25.01.94 kr. 17.222,79
1976-1. fl. 10.03.93- 10.03.94 kr. 16.405,87
1976-2.fl. 25.01.93-25.01.94 kr. 12.332,93
1977-1 .fl. 25.03.93 - 25.03.94 kr. 11.510,73
1978-1 .fl. 25.03.93 - 25.03.94 kr. 7.804,72
1979-1.fl. 25.02.93 - 25.02.94 kr. 5.160,53
INNLAUSNARVERÐ *
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL Á KR. 10.000,00
1981-1 .fl. 25.01.93-25.01.94 kr. 210.013,94
1985-1 .fl.A 10.01.93- 10.07.93 kr. 55.439,68
1985-1.fl.B 10.01.93- 10.07.93 kr. 32.266,40**
1986-1 .fl.A 3 ár 10.01.93-10.07.93 kr. 38.213,82
1986-1.fl.A4 ár 10.01.93- 10.07.93 kr. 42.125,23
1986-1.fl.A6 ár 10.01.93- 10.07.93 kr. 43.503,04
1986-1.fl.B 10.01.93- 10.07.93 kr. 23.797,65**
1986-2.fl.A4 ár 01.01.93-01.07.93 kr. 35.502,52
1986-2.ÍI.A 6 ár 01.01.93-01.07.93 kr. 36.589,68
1987-1 .fl.A 2 ár 10.01.93- 10.07.93 kr. 30.264,38
1987-1.fl.A4 ár 10.01.93-10.07.93 kr. 30.264,38
1987-1.fl.D 6 ár 10.01.93 kr. 30.264,38
1989-1 .fl.A 2,5 ár 10.01.93-10.01.94 kr. 15.413,39
*lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
**Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Athygli skal vakin á lokagjalddaga spariskírteina
í 1. flokki 1975 og 1. flokki D til 6 ára frá 1987.
Reykjavík, desember 1992.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Dagmar Elvarsdóttir og Linda Oddsdóttir frá slysavarnasveitinni
Þórkötlu afhentu nemendum í Grunnskóla Grindavíkur endurskins-
borða. ________________
GRINDAVIK
Gáfu grunnskóla-
nemum endur-
skinsborða
Grindavík.
Kvennadeild Þórkötlu í Grinda-
vík hefur staðið fyrir fjáröflun
á liðnum árum fyrir björgunarsveit-
ina Þorbjörn.
Konurnar í sveitinni vinna þó
einnig að öðrum verkefnum og nú
á dögunum fóru þær í Grunnskól-
ann og afhentu nemendum í þremur
bekkjardeildum endurskinsborða til
þess að þeir sjáist betur í umferð-
inni nú í svartasta skammdeginu.
Jenný Jónsdóttir er formaður
slysavamadeildarinnar Þórkötlu.
Hún sagði í samtali við Morgun-
blaðið að aðalstarf sveitarinnar sé
að standa bakvið björgunarsveitina
en þó væri reynt að vinna fyrir-
byggjandi starf eins og að gefa
borðana. „Við töldum orðið þörf á
að gefa endurskinsborða því okkur
fundust börnin hér ekki nægilega
merkt. Við stefnum að því að gera
þetta að árvissum viðburði í yngstu
bekkjunum og þannig náum við að
lokum til allra hér af yngri kynslóð-
inni.
Að undanförnu höfum við verið
að seija merkimiða fyrir Slysa-
varnafélag íslands, Gjöf á gjöf, í
Keflavík og hér í Grindavík og það
hefur gengið vel. Fólk hefur tekið
okkur vel og það hefur verið auð-
velt að fá konur til að starfa með
okkur. Milli 35 og 40 konur gengu
í 3.500 hús á Keflavíkursvæðinu
og það er ekki hægt annað en að
vera ánægð með það,“ sagði Jenný.
- FÓ
_______ Morgunblaðið/Sverrir
TÓNLIST
Heiðraður fyrir stjórn-
un skólahljómsveitar
Björn Guðjónsson, sem um mörg ár hefur æft og kennt félögum í
Skólahljómsveit Kópavogs var nýlega heiðraður af félögum í Rotary-
klúbbi Kópavogs í félagsheimili bæjarins fyrir óeigingjarnt starf að tónlist-
armálum ungs fólks í Kópavogi, en Bjöm hefur verið stjórnarndi hljóm-
sveitarinnar í mörg ár. Á myndinni eru Jón Gunnlaugur Magnússon og
Kristján Þorvar Einarsson að afhenda Birni, sem er í miðið, viðurkenning-
una.
COSPER
- Er eitthvað hér í glugganum, sem þú gætir hugsað
þér að fá í afmælisgjöf?