Morgunblaðið - 14.02.1993, Qupperneq 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1993
Af ungu fólki/ Hér segir af íslenskum skiptinema í landi kúrekanna
Að finna
hjartslátt
landsins
eftir Hafdísi Rósu Sæmundsdóttur
í ÁGÚST síðastliðnum steig ég ásamt 20 öðrum skipti-
nemum upp í Hafdísi nöfnu mína á Keflavíkurflug-
velli. Áfangastaður var Bandaríkin. Eftir 5 klukku-
stunda flug komum við til Baltimore, þar sem við gist-
um eina nótt á flugvallarhóteli. Eftir að við höfðum
komið okkur fyrir og vanist hitanum, ákváðum við að
fara niður íveitingasalinn og panta það sem Bandarík-
in eru hvað frægust fyrir; hamborgara!
Hafdís Rósa Sæmundsdóttir.
Einhver misskilning-
ur kom upp milii
íslendinganna og
þjónsins, ham-
borgarinn samanstóð af
brauði og kjöti. Engin sósa
eða grænmeti. Við gáfumst
algjörlega upp og hringdum
og pöntuðum pizzu. Stelpan
sem hringdi var ekki alveg
búin að venjast því að tala
ensku og þegar afgreiðslu-
maðurinn spurði hvað margar
kókdósir hún vildi þá svaraði
hún eins og skot: „Sex ple-
ase“, sem auðvitað kom nokk-
uð flatt upp á afgreiðslu-
manninn. Þegar pizzunni
hafði verið sporðrennt fórum
við að sofa því framundan var
mikill dagur. Við áttum loks-
ins að hitta fjölskyldurnar
okkar í fyrsta sinn eftir
margra mánaða bið.
För minni var heitið til
Laramie, Wyoming (lands
kúrekanna), og þar átti ég að
eiga heima hjá hjónunum
Mark og Lori í eitt ár. Þau
sóttu mig á flugvöllinn og óku
með mig um Laramie og við
skoðuðum það helsta. Þau
sýndu mér fangelsið sem er
reyndar safn og við skoðuðum
það utanfrá. Það er alveg eins
og fangelsin í Lukku-Láka
bókunum. Svo keyrðum við
um í gamla bænum og þar
er allt eins og í villta vestr-
inu. Ég var ósjálfrátt farin
að svipast um eftir hestum
og kúrekum en sá ekkert svo-
leiðis. Svo keyrðum við í
kringum háskólalóðina og hún
er engin smásmíði, enda koma
þangað um 12-13 þúsund
nemendur árlega.
Fyrsta vikan erfið
Fyrsta vikan var mjög erf-
ið. Ég átti erfítt með að sofna
á nætumar og var alltaf
svöng á röngum tíma. Þegar
klukkan er sjö að kvöldi heima
á íslandi er hún um hádegi
hérna.
Erfiðast af öllu var þó að
koma inn í nýja fjölskyldu,
því allar fjölskyldur hafa
óskráð lög; til dæmis að setja
upp hundahliðið þegar enginn
er heima og fleira.
Það sem hjálpaði mér mikið
fyrstu vikuna var undirbún-
ingsnámskeiðið á vegum
ASSE á íslandi. Áður en ég
fór fannst mér námskeiðið
vera algjör tímasóun, ég var
fær í flestan sjó og hafði eng-
ar áhyggjur af að ég mundi
fá þetta blessaða menning-
arsjokk sem alltaf var verið
að minna okkur á. En ein-
hvem veginn læddist það aft-
an að mér og gaf mér væg
einkenni. Ég get fullyrt það
að ef undirbúningsnámskeiðið
hefði ekki verið til staðar,
væri ég núna mjög niðurdreg-
in manneskja.
Hluti af menningarsjokk-
inu var maturinn. Fyrstu tvær
vikumar var ég alltaf að
borða eitthvað nýtt. Pylsur
(sausages) og hrærð egg í
morgunmat og Latan Jón í
kvöldmat, skolað niður með
Dr. Pepper. Inn á milli var svo
nartað í bleikt og blátt popp-
korn og tuggið sjálflýsandi
tyggjó. Mest hissa er ég þó á
því að hérna er lambakjötið
dýrara en nautakjötið.
Að kynnast fólki
Eftir fyrstu vikuna var svo
kominn tími til að kynnast
fólki og byija í skólanum.
Þegar kennaramir voru að
kalla upp nöfnin í fyrsta skipti
áttu þeir í miklum erfiðleikum
með að segja nafnið mitt.
Yfirleitt kom löng þögn sem
ég fljótlega rauf til að segja
að það væri sennilega nafnið
mitt, sem þeir væm að böggl-
ast með. Allir eiga mjög erfitt
með að segja Hafdís og oftast
kemur það út sem „hálfur
diskur" (Half-Dish)!
Sumir sem ég hitti eru
mjög fróðir um ís-
land, vita að ísland
er í NATO, að hér
em hverir, og að aðalflugvöll-
urinn á íslandi er í Keflavík.
Einn strákur sem ég hitti sló
mig þó alveg út af laginu;
hann hélt að ísland væri heil
heimsálfa.
Fyrir nokkm fór ég með
Dawn (sem er frá Danmörku
og heitir reyndar Gry, en
Kanarnir geta ekki með
nokkru móti borið nafnið
I
AFSLATTARMIÐI
Gegn afhendingu þessarár auglýsingar
færð þú 20% afslátt af matseðli kvöldsins.
Bjóðum upp á stórgott
hádegisverðartilboð.
Tilboðsverð á bjór eftir kl. 22.00 á kvöldin:
0,5 cl bjór kr. 390 og 0,33 cl kr. 270.
Verið velkomin!
Veitingakráin
'i
REST Allft»NT'8*ll
Lauyaveyi i^o, aiiiii ioooo
(//ð Áar'flar'/fínar'..