Morgunblaðið - 14.02.1993, Síða 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1993
IBIO
Kvikmyndavikur og
hátíðir sjá til þess að
kvikmyndaúrvalið hér
verði ekki of einhæft en
ná þegar hafa verið
haldnar þrjár kvik-
myndavikur, skosk,
sænsk og kvikmynda-
dagar Hvíta tjaldsins. í
mars verður haldin norr-
æn kvikmyndahátíð og í
haust verður kvikmynda-
hátíð Listahátíðar og
fleiri kvikmyndavikur
munu væntanlega verða
haidnar á árinu.
Fjöldi athygiisverðra
mynda bæði í Evrópu og
Bandaríkjunum og víðar
komast aldrei á hvíta
tjaldið hér á landi því
aðsókn á þær jafnast
aldrei á við myndimar
úr bandaríska skemmt-
anaiðnaðinum. Þó koma
alltaf myndir eins og
Hávarðsendi hingað, Bit-
ur máni eftir Roman Pol-
anski og Baðdagurinn
mikli úr danska kvik-
myndaveldinu. En fyrir
hverja eina er hægt að
nefna tíu aðrar jafnat-
hyglisverðar, sem aldrei
sjást.
Gamanleikur?; úr myndinni „The Crying Game“.
Ásfarþríhyrn-
ingur frá írlandi
Irski leikstjórinn Neil Jord-
an hefur slegið í gegn hjá
gagnrýnendum með nýjustu
mynd sinni, „The Crying
Game“, en þeir hafa ausið á
hana lofi að undanfömu.
Þetta er mannráns- og
ástarsaga frá Norður-
írlandi. Jordan, þekktastur
fyrir „Mona Lisa“ og mis-
heppnaðan feril í Hollywood,
byijar myndina eins og póli-
tískan trylli þegar meðlimir
írska lýðveldishersins ræna
breskum hermanni og hóta
því að myrða hann ef félaga
þeirra er ekki sleppt úr haldi.
Einn ræningjanna er Fergu-
son sem lítur á fangann sem
mann af holdi og blóði en
ekki óvin og fær áhuga á
honum. Myndin hættir að
vera pólitísk þegar Ferguson
fer til London og hittir eigin-
konu fangans án þess að
gefa upp hver hann er og
þau verða ástfangin.
Þar með er kominn upp
sérkennilegur ástarþríhyrn-
ingur og segja blaðadómar
myndina gerast æ fyndari
eftir það, nk. gamanleik þar
sem misskilningur, dular-
gervi og umsnúin kynhlut-
verk leika stóra rullu. Forrest
Whitaker er sennilega fræg-
asti leikarinn í myndinni fyr-
ir utan Miranda Richardson
sem fer með lítið hlutverk
skæruliða. Stephen Rea hef-
ur aldrei leikið neitt áður en
þykir frábær í hlutverki
Fergusons og Jay Davidson
leikur eiginkonu fangans.
Laugarásbíó
6000 séð
Eilífðar-
drykk-
inn
Alls hafa nú tæplega
6.000 manns
séð gamanmyndina
Eilífðardrykkinn
í Laugarásbíói-
að sögn Grétars •
Hjartarssonar bíó- ..
stjóra en myndin er
einnig sýnd í Sambíóunum.
Þá hafa 3.000 manns séð
talsettu teiknimyndina h
Nemó og sami fjöldi hefur
séð spennumyndina Rauða
þráðinn.
Næstu myndir Laugarás-
bíós eru spennumyndin
„Raising Caine“ eftir Brian
De Palma með John Lithgow
í aðalhlutverki, „Cool World“
eftir Ralph Bakshi með Gabriel
Byrne og Brad Pitt en myndin
splæsir saman teiknuðum og
leiknum atriðum svipað og Hver
skellti skuldinni á Kalla kanínu? \v
gerði um árið og gamanmyndin „Out
on a Limb“ með Matthew Brod-
erick.
Páskamynd Laugarásbíós gæti /
orðið framhaldsmyndin „Week- •—«.
end at Bernie’s 2“ eða „Fixing the
Shadow“ með Charlie Sheen.
Svala ver-
öld; aðal-
teiknif-
ígúran í
„Cool
WorId“,
sem sýnd
verður á
næstunni.
KVIKMYNDIRv^
/Hverjir verba útnefndir til Óskarsins?
Dansinn í
kringum Óskar
Tilkynnt verður um út-
nefningar til Óskarsverð-
launanna á miðvikudaginn
kemur en sjálf verðlauna-
afhendingin fer fram í
endaðan mars. Eru menn
fyrir löngu farnir að spá í
hveijir hljóti útnefningar
og síðan Oskarinn og eru
margir kallaðir til sögunn-
ar. Þykir útval karlleikara
sem til greina koma t.d.
óvenjugott í ár, leikkon-
urnar hafa margar unnið
leiksigra, Ieiksljórar aldrei
verið betri og handritin
óvenju vel skrifuð. Eins og
venjulega.
Karlleikararnir sem til
greina koma eru
reyndar ekki af verri endan-
um. Við höfum ekki séð þá
alla því myndirnar þeirra eru
ekki komnar til landsins en
•sagt er að
A1 Pacino
fari á kost-
um sem
blindur
maður í
Konuilmi
eftir Arnold °S e*ns
Indriðason ÞykJa Þeir
góðir
Denzel Washington í hlut-
verki Malcolm X í sam-
nefndri mynd Spike Lees og
Jack Lemmon, sem leikur
fasteignasala í leikriti David
Útnefningar?:
Jack Nicholson í Heið-
ursmönnum, Daniel
Day-Lewis Spike Lee,
Susan Sarandon og
Emma Thompson.
Mamets, „Glengarry Glen
Ross“.
Við höfum séð til annarra.
Clint Eastwood var unaðs-
legur harðjaxl í Hinum
vægðarlausu. Jack Nichol-
son fór vel með sálsýki yfir-
mannsins í réttardramanu
Heiðursmönnum og hann
gæti verið útnefndur fyrir
leikinn í Hoffa, sem ekki er
komin til Iandsins. Tom Cru-
ise hlutverkið í Heiðurs-
mönnum er varla í óskar-
svikt en það er hlutverk
Tim Robbins í Leikmann-
inum, frábærri háðsá-
deilu á Hollywoodkerfið.
Og svo eru það óvæntu
úrslitin; Stephen Rea
þykir fara á kostum í
írsku myndinni „The Cry-
ing Game“, Jeremy Irons
er í „Damage" Louis
Malle, Anthony Hopkins
var góður í Hávarðsenda
og svo er það Daniel
Day-Lewis, hetja ársins,
í Síðasta Móhíkananum.
Ogjafnvel Robert Down-
eý fyrir Chaplin.
Leikkonurnar sem
taldar eru koma til greina
við útnefninguna eru m.a.
Emma Thompson, sem
fer með aðalhlutverkið í
Hávarðsenda og er stór-
kostleg þar. Einnig Susan
Sarandon sem leikur í
„Lorenzo’s Oil“ og önnur
bresk leikkona, Miranda
Richardson fyrir „Enc-
hanted April" en hvorug
þessara mynda hafa náð
hingað. Þá er talið líklegt
að franska leikkonan
Catherine Deneuve kom-
ist á blað fyrir leikinn í
Indókína og Michelle
Pfeiffer er nefnd til sög-
unnar, ekki fyrir Kattar-
konuleikinn í Leðurblöku-
manninum (þótt allt geti
gerst), heldur mynd sem
var frumsýnd fyrir ára-
mótin og heitir „Love Fi-
eld“. Þá hljóta þær að
koma til greina ungu leik-
konurnar úr Meðleigj-
anda óskast, Jennifer Ja-
son Leigh og Bridget
Fonda.
Af leikstjórum sem til
greina koma má nefná
Spike Lee og ekki í fyrsta
skipti. Malcolm X er hans
stærsta og metnaðarfyllsta
verk til þessa og það verður
ekki litið framhjá því. Clint
Eastwood leikstýrði Hinum
vægðarlausu og blés enn lífi
í vestrann á eftirminnilegan
hátt. Það er spurning hvort
Danny De Vito sé inni í
myndinni fyrir Hoffa, sem
fengið hefur blendna dóma
en dómar um „The Crying
Game“ hafa allir verið á einn
veg og því á Neil Jordan
góða möguleika. Ekki má
gleyma Robert Altman en
það væri toppurinn á tilver-
unni ef Hollywood réttí hon-
um hinn vangann og Óskar
í þokkabót. Þá er ekki ólík-
legt að leikstjórar og höfund-
ar teiknimyndarinnar Aladd-
in fái viðurkenningu og hún
verði útnefnd í flokki bestu
mynda síðasta árs. Fríða og
dýrið var fyrsta teiknimynd-
in til að hljóta þá útnefningu
í fyrra en hreppti ekki hnoss-
ið. Kannski Aladdin geri það.
Aðrar myndir sem líklegar
eru til að fá útnefningar sem
bestu myndir eru Konuilmur
Pacinos, Malcolm X, Leik-
maðurinn, Hinir vægðar-
lausu, jafnvel Hoffa, Heið-
ursmenn og Síðasti Móhík-
aninn.
Hér er auðvitað langt í frá
allt tínt til en það má mikið
vera ef einhyer af þessum
nöfnum verða ekki nefnd við
útnefninguna.
■ Mel Brooks er orðinn
hundleiður á Hróa hattar
myndum og ætlar að snúa
útúr þeim í sinni næstu gam-
anmynd sem heitir Hrói
höttur: Karlmenn í sokka-
buxum. Brooks er þekktast-
ur fyrir að gera grín að ýms-
um tegundum Hollywood-
mynda, m.a. þöglu myndun-
um, hrollvekjunum, vestrun-
um og stjörnustríðsmyndun-
um. Kominn tími til að Hrói
og hans kátu kappar fái á
baukinn.
■ Af þeim 32 bíómyndum
sem komust á lista yfir mest
sóttu myndir á íslandi á síð-
asta ári (fóru yfir 15.000
manns í aðsókn) voru 20
sýndar í Sambíóunum, þar
af þijár samtímis í Laugarás-
bíói og Sambíóunum.
■ Metsölubókin Firmað„T-
he Firm“ verður brátt að
bíómynd undir leikstjóm
Sidney Pollacks með Tom
Cruise í hlutverki nýútskrif-
aðs lögfræðings sem fær til-
boð frá stóru lögfræðifirma
sem hann getur ekki hafnað
og lendir í lífshættu áður en
Iýkur. Fjöldi þekktra leikara
fara með hlutverk, m.a._ Je-
anne Tripplehorn úr Ógn-
areðli, en í hópinn hafa
bæst Ed Harris og David
Strathairn, sem leikur
blinda manninn í Laumuspili
eða „Sneakers".
■ Menn hafa lent í vand-
ræðum með nýjustu hasar-
mynd Bruce Willis, sem
heitir „Striking Distance“
og er leikstýrt af Rowdy
Herrington („Gladiator").
Hefur stjarnan valdið vand-
ræðum með afskiptasemi, lét
endursemja atriði og annað
ef marka má fréttir að utan,
svo nú er allt í ruglingi og
þarf að taka upp aftur hluta
af myndinni til að sagan
verði skiljanlegri.
Hættuleg
B-mynd
Joe Dante leikstjóri Greml-
inmyndanna og „Inn-
erspace" hefur sent frá sér
nýjan vísindaskáldskap sem
heitir „Matinee" og gerir heil-
mikið út á gamla, ódýra B-
mynda hryllinginn sem tröll-
reið bíóhúsum vestra á sjötta
og sjöunda áratugnum,
myndir eins og „The Blob“.
„Matinee" gerist í smábæ
árið 1962 þegar Kúbudeilan
stendur sem hæst og B-
mynda framleiðandi kemur í
bæinn með nýjustu hrollvekju
sína. Hann kann að plata
krakkana og hefur hjúkrun-
arkonu frammi í anddyri ef
einhver skyldi deyja úr
hræðslu á myndinni. Bæði
setja þau sterkan svip á bæ-
jarlífið.
Með aðalhlutverkin fara
John Goodman, sem leikur
framleiðandann, og Cathy
Moriarty, sem leikur kærustu
hans og „hjúkku“.
B-hryllíngur; úr myndinni „Matinee" eftir Joe Dante.