Morgunblaðið - 14.02.1993, Side 24

Morgunblaðið - 14.02.1993, Side 24
24 B MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1993 ,JJún gxtL i/eriá Ungfbj riLtiéimur cc hira&tx armari, ptanetu son er." Skrifaðu: eyjan er uppfull af kommúnistum og her- stöðvarandstæðingum. Þá koma þeir og bjarga okkur! Úps! Gleymdi ég enn einu sinni að sjóða eggið þitt? BREF TIL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 681811 Blekkingar í þjóðfélaginu Frá Níelsi Einarssyni: BLEKKINGAR í þjóðfélaginu eru margar. í Morgunblaðinu 23. jan- úar sl. voru 270 dálksentimetrar notaðir undir auglýsingar þar sem boðið var upp á ýmiskonar dans- leiki. Taldar voru upp ýmsar frá- bærar hljómsveitir og góður mat- ur. Ekkert var aftur á móti sagt frá áfengi (enda ólöglegt að aug- lýsa það) en samt er sala á áfeng- um drykkum það sem heldur þess- um stöðum gangandi. Sjálfsblekking var í lesendabréfi frá templaranum Gunnari Þorláks- syni, „Komið og dansið“. Ófag- lærðir aðilar að kynna íslenska dansskóla. Vafalaust telja templar- ar sig vera að kynna starfsemi ís- lenskra dansskóla með það í huga að þeir sem læra vilji meira, viti hvert þeir eiga að snúa sér! Gott mál! En bíðum nú við, ég undirrit- aður kannast ekki við að Gunnar né nokkur annar templari hafi komið inn fyrir dyr Nýja dansskól- ans til að kynna sér starfsemi okk- ar. Er hið rétta ef til vill að þessir aðilar eru hvorki að hugsa um dansskólana né þau háleitu mark- mið, sem á sínum tíma voru sett, þegar þeirra samtök voru stofnuð? Eru þessir aðilar ekki aðeins að hugsa um peninga? Eg ætla að beina skrifum mínum að þessari reglu. í greininni kemur fram að u.þ.b. 2.000 þátttakendur hafa sótt þessa léttu sveiflu og að gjaldið sé frá 600 til 1.500 kr. Það vita allir að ein kók kostar ekki eins mikið og einn kassi. Einnig er staðfest í greininni að gefnar hafa verið út yfir 200 snældur. Ekki geri ég réð fyrir því að þær fáist afhentar endurgjaldslaust. Þá er talað um í greininni að aðeins viðurkenndir leiðbeinendur megi sjá um kennsl- una. Viðurkenndir af hveijum? Er ekki hið rétta, að þessir aðilar í Noregi eru með samning við templ- ara, og færu í mál við þá ef þeir vissu að templarar væru ekki með skriflega samninga við þessa leið- beinendur, því það þarf að greiða Norðmönnum þóknun af brúttó- tekjum „Komið og dansið"? Gott mál og miklar tekjur fyrir þá norsku og ókomin ár. Hið rétta er hins vegar að leiðbeinendumir eru ófaglærðir íslenskir og norskir. Nemendinn er blekktur því þið teljið honum trú um að hann geti lært dans á tveim dögum. Því er raunverulega verið að gera vínveit- ingahúsunum góðan greiða, því þetta fólk fer væntanlega á skemmtistaði, gerir ýmsar vitleys- ur og þá er farið á barinn. Danskennsla er eins og önnur kennsla ábyrgðarmikið starf. Huga þarf bæði að líkamlegum og and- legum þroska nemenda. Síðstliðið haust, þegar templar- ar fóru aftur af stað með þessa „kennslu“, óskaði ég eftir því að samtarf yrði með danskennurum og templurum vegna þess að templarar töldu sig vera að gera góða hluti. Ég leitaði því eftir samstarfi sem ekki fékkst. Aftur á móti sagði Gunnar, að hann fagnaði blaðadeil- um því þá kæmu fleiri til þeirra. Nú er nóg komið. Frá stofnun sam- taka ykkar hefur markmiðið verið bindandi. Er ekki verið að gera mistök með því að koma af stað deilum við danskennara, þá aðila sem ættu að vera í samstarfí við ykkur? Því eru margfalt fleiri í AA-samtökunum en í ykkar reglu. Það er rétt að samtök ykkar eru vel fjáð, með eignir um allt land, sem nýtast illa. Þá er gott ráð að bjóða upp á „danssveiflu" og koma fólki illa undirbúnu á vínveitinga- húsin með lakri leiðbeiningu. Ég held að danskennarar þurfi ekki þessa hjálp, eins og hún er fram- kvæmd hjá ykkur. Er ekki best að hver sérhæfí sig á sínu sviði? Við danskennarar í dansi og þið templarar í ykkar góða starfi, bar- áttu fýrir bindindi. Af hveiju beitið þið ykkur ekki fyrir því t.d. að hjálpa AA-samtökunum? Þá vantar áreiðanlega aðstoð. Til eru mörg samtök sem beijast gegn áfengi og vímu. Við danskennarar gerum okkar besta til að byggja upp ein- staklinginn með góðri dans- kennslu. Fullorðinn einstaklingur sem er góður í dansi getur valið hvort hann fer á barinn eða dans- gólfið (þar er kallað valfrelsi). En góður dansari veit að hann er ekki vinsæll á vínveitingahúsum því hann drekkur minna. Góður maður varaði mig við að deila við ykkur því templarar væru sterk samtök. Hvemig sem það er þá er ekki hægt að sætta sig við það sem þið eruð að gera með þessum skemmd- arverkum. Ef þið viljið, eins og þið segið, kynna íslenska dansskóla þá ættuð þið fyrst að leita eftir samstafí við danskennara. Það væri sorglegt ef dansskólar á íslandi þyrftu að opna bari í skólunum til að fjármagna þá starfsemi sem þar fer fram, eins og gert er víða í Evrópu. Þá væru forsendur góðrar danskennslu væntanlega brostnar og þau mark- mið sem danskennarar hafa sett sér, en þau eru að losa um hömlur og gera einstaklinginn hæfan til að tjá sig í dansi án vímuefna. NÍELS EINARSSON, Nýja dansskólanum, Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirði. EES-samingurinn, ef og þegar hann kemur til framkvæmda, opnar okkur arðgæfari og greiðari leið á mikilva:gasta sjávarvörumarkað heims. I kjölfar hugsanlegs GATT- samnings og EES-samnings kann að skapast möguleiki á því að breyta óbeislaðri vatnsorku í ríkara mæli en nú er í störf, verðmæti og lífskjör. Ef við kunnum fótum okkur for- ráð og drögum verulega úr einka- og opinberri eyðslu, vindum ofan af erlendum skuldum og sköpum atvinnuvegum okkar svipað rekstr- arumhverfí og í samkeppnisríkjum, hækkar sól fljótlega á efnahags- himni okkar. Ekki sízt ef ytri að- stæður, aukið frjálsræði í viðskipt- um milli þjóða heims, stuðla að al- þjóðlegum hagvexti á tíunda ára- tugnum. Boðorð Víkveija eru: 1) Stórefl- um vísindalegar rannsóknir í þágu atvinnulífsins, 2) byggjum upp físk- stofnana, 3) lögum íslenzkan at- vinnurekstur og þjóðarbúskap að efnahagslegum veruleika umheims- ins, 4) varðveitum þann stöðugleika í efnahagslífí og verðlagi sem náðst hefur, 5) semjum aðeins um skipt- ingu á þeim verðmætum sem til eru í þjóðarbúskapnum, 6) glötum ekki efnahagslegu fullveldi í eyðslu um efni fram og auknum erlendum lán- um/skuldum. Víkveiji skrifar Nýfundnaland, sjávarútvegsríki vestarlega í Atlantshafi, fór galdþrotaleið inn á brezka og síðan kanadíska gjörgæzlu. Það glataði fullveldi sínu, heyrir nú til hjálpar- ríkinu Kanada og býr að auki við tveggja ára þorskveiðibann. Al- mannakjör eru umtalsvert lakari þar en annars staðar í N-Ameríku. Frændur okkar, Færeyingar, sitja nú á rústum fyrtí „velmegun- ar“, sem m.a. var fjármögnuð með erlendum lánum. Bankar þeirra og sjávarútvegur standa á brauðfótum og erlendar skuldir sliga landssjóð- inn. Kaup hefur lækkað hjá opinber- um starfsmönnum, kjaraskerðing í einni eða annarri mynd knúð dyra hjá almenningi og atvinnuleysi breiðist hratt út. Grannar okkar í vestri, Græn- lendingar, súpa nú fjöru sams kon- ar vanda. Þeir ganga nú bónarveg til Dana; skortir fjárhagsaðstoð sem samsvarar mörgum milljörðum ís- lenzkra króna.. Vandi Grænlend- inga er tvíþættur. í fyrsta lagi hall- inn á Ötgerðinni, sem að stærstum hluta er á hendi Royal Greenland. Heimastjórnin er stærsti eigandi þess fyrirtækis. Þorskveiði hefur nær alveg brugðizt í tvö ár. Í annan stað fara skuldir landssjóðsins vax- andi. Víkveiji kemst ekki hjá að álykta sem svo að rauði þráður vandans hjá þessum þremur löndum, Ný- fundnalandi, Færeyjum og Græn- landi, sé einn og samur. Nytjafisk- urinn var ofveiddur. Landssjóðir og lífskjör fjármögnuð með erlendum lánum. Niðurstaðan; þjóðir á vonar- völ. Er þetta sú „framsóknarleið" sem meirihluti íslendinga vill ganga? xxx Víkveiji las þá staðhæfingu í virtu riti, að landsframleiðsla íslendinga á hvern íbúa væri ívið minni nú, mæld í Bandaríkjadölum, en fyrir átta árum (1985). Síðastliðin átta ár hefur okkur ekkert miðað áfram, þvert á móti dulítið afturábak, í því að auka framleiðslu og framleiðni og skapa grundvöll fyrir bætt lífskjör. Þjóð- inni fjölgar, þjóðartekjurnar drag- ast saman, lífskjörum er haldið uppi með erlendum lánum. Satt kann að vera að við höfum ekki, enn sem komið er, ekið fram af þessari varhugaverðu skulda- brún. Við stöndum að skömminni til skár að vígi en Grænlendingar og Færeyingar. En stjórnarstefna níunda áratugarins og eyðsla þjóð- arinnar langt umfram tekjur hafa leitt okkur fram á hengiflugið. Þar vegum við nú salt. Og stjórnarand- staðan, sem söm er við sig, heimtar enn meiri erlendar lántökur! Sér þá hvergi til sólar í íslenzkum þjóðarbúskap, Víkveiji góður? Svo sannarlega.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.