Morgunblaðið - 14.02.1993, Síða 25
MORGÚNBLAÐIÐ VELVAKAIWM
HíK
Hvað er reiki?
Frá Bergi Björnssyni:
NÚ ÞEGAR komið er á 4. ár frá því
reiki barst fyrst hingað til lands og
einhver hundruð karla og kvenna
hafa lært það, þá er ennþá nokkuð
algeng þessi spuming. Hvað er reiki?
Orðið reiki sem upphaflega er jap-
anskt en má nú orðið telja alþjóðlegt
er sett saman úr tveimur orðum Rei
og Ki. Rei merkir guðleg viska og
Ki merkir lífsorka. Þannig merkir
reiki guðlega stýrð lífsorka.
Saga reikis: Reiki er náttúmleg
heilunaraðferð að mestu framkvæmd
með handayfirlagningu og upphaf-
lega talin vera mörg þúsund ára
gömul. Reiki var síðan enduruppgöt-
vað á síðustu öld af Japananum
Usui sem ýmist hefur verið talinn
kristinn eða búddhatrúar. Tilgangur
hans var að finna hvemig Jesú og
Búddha hefðu læknað hina sjúku.
Sagt er að 10 ára leit hans hafi leitt
hann fram og atur um Japan, Kína
og Indland þar til hann fékk hugljóm-
un sem opinberaði honum hið full-
komna reiki kerfi. Hvernig er reiki-
meðferð? Reiki er yfirleitt gefið með
handayfirlagningu og þó stundum
með fjarheilun. Venjuleg meðferð
felst í ákveðnum handstöðum á höfði,
öxlum, maga, baki og fótum. Þessu
til viðbótar má nota aðrar stöður til
þess að mæta sérstökum þörfum
þiggjanda. Hverri stöðu er haldið í
3-5 mínútur að jafnaði og full með-
ferð tekur gjama 45-60 mínútur.
Reikimeðferð myndar dásamlega
orkugeislun sem er um leið mjög
slakandi og felur í sér margskonar
jákvæð áhrif bæði fyrir veitanda og
þiggjanda.
Reiki er í grundvallaratriðum frá-
brugðið öðrum heilunaraðferðum t.d.
er hægt að gefa sjálfum sér reiki.
Einfaldlega með því að leggja lófana
á sig fer reikið að streyma og bytja
sitt heilunarstarf. Þó svo að reiki
henti vel til heilunar andlegra mála
þá er sérstaða þess meiri hvað við-
kemur heilun líkamans og annarra
efnislegra hluta. Reiki er bæði öflugt
og blítt og þó svo aldrei sé ljóst fyrir-
fram hvar forsjónin leyfir lækningu,
þá segir saga reikis frá heilun og
aðstoð við lækningu nánast allra
þekktra sjúkdóma og slysa þ.m.t.
alvarleg veikindi, s.s. krabbamein,
hjartveiki, skinnsjúkdóma, skurðþ
beinbrot, getuleysi, skort á sjálfstra-
usti o.fl. o.fl.
Hverjir geta lært reiki? Reiki er
ekki kennt á sama hátt og aðrar
heilunaraðferðir nema að litlu leyti.
Hæfileikinn til þess að leiða reiki er
yfirfærður frá reikimeistara með
dulvígslum. Þess vegna geta nánast
allir lært reiki sem vilja, án þess að
hafa sérstaka reynslu eða hæfileika
fýrir. Vígslurnar opna reikinu leið
um orkustöðvamar í höfðinu, við
hjartað og í lófunum og mynda teng-
ingu nemans við reikið. Síðan er
skýrt og sýnt hvemig vinna megi
með reiki. Að þessu loknu er það
eina sem neminn þarf að gera að
leggja lófana á þiggjandann og þá
streymir reikið sjálfkrafa í gegnum
veitandann til þiggjandans. Vegna
þessara sérstöku dulvígsla er hægt
að kenna reiki á einu helgamámske-
iði eða nokkrum kvöldum. Hvernig
vinnur reiki? Reiki er stórkostleg
orka sem kemur frá guðlegum upp-
runa. Það virðist hafa eigin visku og
Descartes hefur orðið
Frá Richardt Ryel:
A SL. ÁRI kom út smákverið „Orð-
ræða um aðferð" eftir franska heim-
spekinginn René Descartes (f. 1596)
í þýðingu Magnúsar G. Jónssonar.
Þótt ég sé Descartes ósammála í
veigamiklum atriðum, þá er bæði
heiðarlegt og sanngjarnt að gefa trú-
manninum Descartes orðið, með leyfi
útgefanda, enda tel ég að Descartes
eigi erindi við hugsandi og fróðleiksf-
úsa lesendur blaðsins. Descartes seg-
ir nokkurn veginn orðrétt: „Bijóst-
viti er deilt með mönnum af mestum
jöfnuði, og fáir telja sig afskipta í
því efni. Ætla verður að hæfileikinn
til að vega og meta, og greina rétt
frá röngu sem einn er réttilega
nefndur bijóstvit, eða skynsemi, sé
af náttúrunnar hendi samur og jafn
í öllum mönnum.
Ólíkar skoðanir stafa því ekki af
því að einn sé öðrum skynsamari,
heldur einungis af hinu að hugsana-
hátturinn er breytilegur frá manni
til manns, og viðfangsefnin margvís-
leg. Þess utan er ekki einhlítt að
vera góðum gáfum gæddur, heldur
skiptir mestu máli að beita þeim rétt.
í fari ágætustu manna má finna
verstu lesti, ekki síður en bestu
dyggðir. Sjálfur hefi ég raunar ein-
att óskað að hugsun mín væri jafn
hröð og ímyndunaraflið jafn skírt og
skarpt, og minnið jafn víðtækt og
sumum öðrum er gefið. Ég fæ ekki
séð að góðar gáfur séu fólgnar í
öðru en þessu.“
Descartes var rökhyggjumaður.
Hann taldi að skynsemin væri und-
irstaða allrar þekkingar. stundum er
sagt að rökhyggjumenn vilji hugsa
sér alla þekkingu í líki stærðfræði-
legrar þekkingar. „Menn hefja aldrei
anda sinn yfir skilvitlega hluti“, seg-
ir Descartes. Þeim er tamt að hugsa
aldrei að neinu öðruvísi en gera sér
mynd af því í huganum, en þann
hátt hafa menn jafnan á um efnis-
lega hluti, og allt sem ekki er unnt
að setja sér fyrir sjónir virðist þeim
óskiljanlegt.
Heimspekingar hafa þá megin-
reglu að menn geti ekki skilið nema
þeir hafí áður skynjað það. En víst
er að menn hafa aldrei skynjað Guð
eða sálina. Ef svo loks eru þeir menn
sem eru ekki enn sannfærðir um til-
veru Guðs og sálarinnar, þá vildi ég
að þeir vissu að allt sem þeir hyggj-
ast vita með vissu svo sem þeir hafí
líkama og að til séu stjörnur og jörð
og slíkir hlutir — er óvissa. Það er
meiri vissa fyrir því að Guð sé til,
en að þú og ég séum til.
Mikið vatn er runnið til sjávar síð-
an Descartes.birti þessar hugleiðing-
ar sínar, en viðfangsefnin eru mörg
þau sömu í dag.
Hugvitið, bijóstvitið, andinn, sálin
og skilyrðislausa skylduboðið til-
heyra sögunni, og eru flest gengin
sér til húðar. E.t.v. er sjálf heimspek-
in að geispa golunni. | dag er allt
vefengt og tortryggt. í dag þekkja
menn hvorki sígildan né algildan
sannleika. Allt er í dag afstæðis-
kennt. Vísindin hafa haldið innreið
sína. Héðan af verður ekki aftur
snúið. Einni spurningu geta vísindin
þó aldrei svarað, enda ekki í verka-
hring þeirra, en það er spumingin
um tilvist Guðs. Menn geta ályktað,
ímyndað sér, velt vöngum, trúað
þessu eða hinu, en tilvist Guðs verð-
ur hvorki sönnuð né afsönnuð.
Sá boðskapur sem mér fannst eiga
erindi við lesendur er sú einfalda
staðreynd að enginn einn getur talið
sig vita betur en annar. Skoðanir
manna eru eins margbreytilega og
smekkur þeirra, en eru þess utan
sífelldum breytingum undirorpnar.
Descartes var hughyggjumaður.
Guð er raunverulegri en þú og ég.
Raunhyggjumenn eru efnishyggju-
menn. Þeir byggja á þekkingu,
reynslu og lögmáli náttúru. Rétt er
það eitt sem er satt, og satt er það
eitt sem hægt er að færa sönnur á.
Þeir krefja náttúruna svars, og leit-
ast við að afhjúpa leyndardóm nátt-
úrunnar. Öfugt þarf sá trúaði ekki
að vita, hann spyr ekki, því hann
hefur þegar öðlast sannfæringu.
Auðvitað hafði Descartes rétt til
að hafa sína trú. Hvort það var hug-
arburður, ímyndun, hugarórar, loftk-
astalar eða eitthvað annað skiptir
ekki máli. Það sem skiptir máli er
hvaða gildi trúin hefur fyrir einstakl-
inginn. Menn spyija ekki hvort til
sé vera sem samsvarar hugmynd
þeirra um Guð, vitandi að ekkert
svar er til við þeirri spurningu. Held-
ur spyija menn um hagnýtt gildi trú-
arinnar, og þann persónulega ávinn-
ing sem trúnni er samfara. Það er
notagildið sem að síðustu ræður
ákvörðun þinni en þegar þú ert búinn
að taka þína ákvörðun fer fyrir þér
eins og Descartes.
Restin af ævinni fer í að réttlæta
ákvörðun þína.
RICHARDT RYEL,
Sollered Park 12, 1-17,
2840 Holte, Danmörku.
veit því nákvæmlega hvert það á að
fara og hvað það á að gera. Reiki
starfar á öllum víddum og leitast við
að heila orsök vandamála hvar sem
hún kann að liggja, í líkama, huga
eða anda. Það er ekki nauðsynlegt
fyrir veitandann að stýra eða stjóma
orkustreyminu og í reynd getur hann
það lítið. Reiki er bæði einföld og
öflug heilunaraðferð sem allir geta
lært. Af því að sá sem veitir reiki
leiðir það í gegnum sig þá gengur
hann ekki á eigin orkuforða, frekar
á hinn veginn að hann hlaði sjálfan
sig um leið og auki orku sína. Þeir
sem hafa unnið við annarskonar heil-
un, s.s. nudd, upplifa mikla orku-
aukningu eftir reikinámskeið.
Er reiki trúarbrögð? Þó að reiki
sé guðlegt í eðli sínu þá er það ekki
trúarbrögð. Það hefur enga fordóma
og fólk þarf ekki að trúa neinu sér-
stöku til þess að geta lært reiki.
Þiggjandinn þarf ekki einu sinni að
trúa á reiki til þess að það verki,
enda hægt að gefa það ómálga böm-
um, dýmm og plöntum. Reiki á sam-
leið með öllum trúarbrögðum og
greinum þeirra alveg á sama hátt
og t.d. jóga eða hugleiðsla. Margs
konar not. Reiki er íjölhæft og hægt
er að nota það til þess að heila eða
bæta hvaða mannlegt ástand eða
erfiðleika sem er. Til viðbótar því að
geta heilað sjálfan sig eða aðra, er
hægt að veija sig gegn harmi, hjálpa
til við lausn vandamála og að ná
markmiðum. Hvar er reikimeistari?
í reiki em 3 þjálfunarstig og þannig
gefur hvert viðbótarstig aðgang að
orku á hærri tíðni. Reikimeistari er
sá sem hefur lært öll stigin og þann-
ig fengið aðgang að orku á hæstri
tíðni og jafnframt kunnáttu til þess
að kenna öðmm reiki. T.d. kennir
undirritaður nú reiki 1 og 2 saman
á námskeiði en reiki 3 aftur í tveim-
ur áföngum. Reikihugleiðsla: Á
framhaldsnámskeiði í reiki er kennd
reiki hugleiðsla. Þessi hugleiðsla er
að hluta byggð á tækni sem kennd
er við Tíbet/Yantra og að hluta á
Tao hugleiðslu í bland við reiki. Þessi
hugleiðsla innifelur kosti flestra ann-
arra hugleiðslukerfa, s.s. afslöppun,
andlegan skýrleika, víkkun vitundar
til viðbótar við heilun og vemd reik-
is. Heildrænt kerfí. Reiki er fullkom-
ið kerfí heilunar líkamlegra og and-
legra mála og persónulegs þroska.
Hin guðlega stýrða orka er til þess
að heila sjálfan þig og aðra, leysa
vandamál, víkka vitund þina og
þroska þig andlega.
BERGUR BJÖRNSSON,
Skúlagötu 26,
Reykjavík.
Pennavinir
ítalskur 24 ára karlmaður vill
skrifast á við stúlkur á aldrinum
18-24 ára:
Danilo Santanatoglia,
Via Vivaldi no 4,
62010 Appignano (Macerata),
Italy.
Fimmtán ára þýsk stúlka með
margvíslega áhugamál:
Ute Schremser,
Hochstrasse 4,
6477 Limeshain 2,
Germany.
Frá Ghana skrifar 24 ára stúlka
með margvísleg áhugamál:
Joana Jackson,
P.O. Box 172,
Cape Coast,
Ghana.
Tvítug þýsk stúlka með áhuga á
tennis, útreiðum, ferðalögum o.fl.:
Diana Gerth,
Göttliner Strasse 7,
D-1830 Rathenow,
Germany.
LEIÐRÉTTING
Fleiri atvinnu-
lausir
Mishermi var í frétt um atvinnu-
leysi á baksíðu blaðsins í gær. Sagt
var að atvinnuleysi í janúar hefði
verið heldur minna en í desember,
en þarna átti að standa að heldur
fleíri hefðu verið atvinnulausir en í
desember.
YFIR 4000 LAG VERÐ
Pantið
nýja listann
strax og sparið
Verð kr. 190 án bgj.
Pöntunarsími 52866
BM B- magnússon hf.
Hólshrauni 2 - sími 52866 - Hafnarfiröi
DRNSRHUGHFÓLK
Nú er tækifæriö! Á sunnudögum í vetur mun Perlubandið
(big band) undir stjórn Karls Jónatanssonar ásamt
söngkonunni Hjördísi Geirsdóttur leika (ballroom músik)
fyrir dansi í Vetrargarði Perlunnar.
Matargestir fá ókeypis aðgang. Aðrir gestir kr. 650.
Þeir, sem vilja láta taka frá borð, vinsamlegast hafi samband I
síma 620200. Spilað verður frá kl. 21.00 til 24.00.
-4
P E R L A N
Nautastelk
(innralærisvöövi)
sveppir- laukur- hrasalat-
nyft grænmeti-
>4 fMnskar-syeppasosa-
bearnaisesösa
^fSódýrari en þeir sem
^ -^eru næst lægstir!
595r
Lambasteik
(glöðarsteíkt fílet)
idýrari en þeir sem
;eru næst lægstir!
595r
Svínasteik
:ppas<
laukur-
jpn- hrasalat-
>sa- sveppir-
franskar
dýrari en þeirsem
eru næst lægstir!
595.-
BÓNUSBORGARI
Armúla 42
08129 90