Morgunblaðið - 14.04.1993, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 14.04.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1993 17 Þjónusta við aldraða - þáttur fjölskyldu og aðstandenda eftir Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur Þjónusta við aldraða er vaxandi þáttur í uppbyggingu og rekstri fé- lags- og heilbrigðisþjónustu á ís- landi. Svo er einnig í öllum ríkjum hins vestræna heims. Með vaxandi velferð aukast lífslíkur íbúanna og lífaldur þeirra hækkar. Það er því eðlileg þróun að samfélögin bregðist við breyttri aldurssamsetningu íbú- anna og byggi upp viðeigandi þjón- ustu. í flestum svonefndum þróuðu ríkjum veraldar er þessi þróun kom- in nokkuð á veg en í mörgum þriðja heims ríkjum má nú sjá ýmis teikn sem benda til þess að sama þróun sé þar í uppsiglingu. Flestir þekkja þá félags- og efna- hagslegu þróun sem breytti Islandi úr bændasamfélagi í tæknivætt iðn- ríki nútímans þar sem aðskilið heim- ilishald sjálfstæðra einstaklinga eða kjarnafjölskyldna kom í stað marg- kynslóða framleiðslueininga bænda- býlanna. Þá er öllum ljóst að íbúum landsins sem náð hafa 65 ára aldri fjölgar hratt hér sem annars staðar í heiminum. Svo er árangri vaxandi almennrar þekkingar á hreinlæti, aukinnar heilbrigðisþjónustu og fleiru að þakka. En það er ekki aðeins flölgun í þessum aldurhópi heldur hækkar jafnframt meðalald- ur hans. Þeim öldruðu sem eru í sambúð eða í hjónabandi fjölgar einnig verulega, en sú staðreynd skiptir miklu máli þegar uppbygging og skipulag á þjónustu við aldraða er annars vegar. Þó konur lifi reynd- ar oftast menn sína og búi oft mörg ár einar sem ekkjur þá hefur nú í seinni tíð heldur dregið saman með kynjunum hvað þetta áhrærir hér á landi. Þó líflegt hafi verið á fæðing- ardeildum sjúkrahúsanna undan- farnar vikur þá hefur fæðingum fækkað miðað við það sem áður var, standa reyndar í stað í þróuðum ríkjum en spáð er að verulega dragi úr fæðingum í þriðja heiminum á næstu 20-30 árum. Þetta þýðir rheð öðrum orðum að þeim sem þurfa á þjónustu að halda í heiminum fjölg- ar meðan þeim sem hana veita fækkar. Hverjir veita umönnun? Þáttur ættingja vina eða ná- granna í aðstoð við gamalt fólk er í flestum fræðiritum kallaður „hin óformlega umönnun" (the informal care) meðan þáttur hins opinbera kallast „hin formlega umönnun" (the formal care). Þetta hljómar undarlega þegar haft er í huga að þáttur fjölskyldunnar í þjónustunni við aldraða hefur alla tíð verið og er enn mjög stór. Þetta á sér þá skýringu að þjónusta hins opinbera er skipulögð og byggir á fyrirfram ákveðnum verkefnum samkvæmt skilgreindri þörf meðan aðstoð fjöl- skyldunnar byggir á sameiginlegri sögu, gagnkvæmum tilfinningum, félagslegum þörfum og væntingum. Það sem einkennir þó hvort tveggja er að þeir sem eru í umönn- unarhlutverkinu eru nánast undan- tekningalaust konur. Konur sem dætur, eiginkonur eða starfsmenn opinberrar þjónustu. Um er að ræða konur á miðjum aldri sem hugsa um mæður sinar eða konur yfir sex- tugt sem hugsa um eldri eiginmenn sem þarfnast umönnunar. Þetta er sérstakt umhugsunarefni þegar haft er í huga að miðaldra konum á hverja 1.000 aldraða fækk- ar. Þannig voru 1.100 miðaldra kon- ur í Svíþjóð á hveija 1.000 aldraða árið 1920 en þær verða 630 árið 2000. Þessi sama þróun á sér stað hér á landi. Samhliða þessu hefur þátttaka kvenna á almennum vinnu- markaði aukist og konur hafa í auknu mæli aflað sér lengri mennt- unar. Þannig hafa konur nú skyld- um að gegna ekki aðeins gagnvart eigin heimili, maka og börnum og sem tengiliðurinn í stórfjölskyldunni heldur einnig gagnvart vinnuveit- enda. Flestum er ljóst að hér er ekki alltaf um að ræða spurningu um val, heldur byggir fjárhagsleg afkoma heimilanna í sífellt vaxandi mæli á atvinnuþátttöku tveggja ein- staklinga þ.e. beggja foreldra þegar um slíka fjölskyldugerð er að ræða. Opinber þjónusta Á undanförnum árum og áratug- um hefur opinber þjónusta við aldr- • aða í hinum vestræna heimi vaxið hratt. Framan af var nánast ein- göngu um stofnanaþjónustu að ræða, þ.e. þjónustu á stofnun sem kom og kemur að öllu leyti í staðinn fyrir heimili hins aldraða og fer oft stigvaxandi þar til umfang þjón- ustunnar er orðið slíkt að stofnana- vistun er talin óhjákvæmileg. Veruleg áhersla hefur verið lögð á þessa tegund þjónustu á undan- förnum árum. Hefur sums staðar verið gengið svo langt t.d. í Dan- mörku og Svíþjóð að heimaþjónusta hefur átt að koma alfarið í staðinn fýrir stofnanir t.d. dvalarheimili aldraðra. Óhætt er að segja að þær tilraunir hafi mistekist, í það minnsta reyndist kostnaður það mikill og skipulagsvandi svo um- fangsmikillar þjónustu svo mikill að til vandræða horfði. Þær raddir gerast nú stöðugt háværari að fjölskyldan sé að bregð- ast skyldu sinni gagnvart gamla fólkinu. Aukin opinber þjónusta sé að riðla fjölskylduböndum og brjóta niður félagsleg tengsl. Goðsögnin um, að gamla fólkið í þriðja heiminum hafi það gott í faðmi fjölskyldu sinnar, haldi áhrifa- stöðu sinni þar og njóti félagslegs öryggis hefur vakið upp vangaveltur um það hvort stórijölskyldan sé ekki rétta lausnin. Hvort fjölskyldan eigi ekki að bera meiri ábyrgð á umönnun og velferð gamalla ætt- ingja sinna nú þegar öldruðum fjölg- ar hratt og kostnaður hins opinbera vegna öldrunarþjónustu margfald- ast ár frá ári. Er opinber þjónusta að reka fleyg á milli aldraðra og aðstandenda þeirra? Á undanfömum árum hafa verið gerðar ítarlegar rannsóknir beggja vegna Atlantshafsins á sambandinu milli fjölskyldutengsla og aukinnar opinberrar þjónustu. Allar þessar rannsóknir benda til hins sama: Þáttur fjölskyldunnar í aðstoðinni við aldraða er verulega stór, þrátt fyrir aukið vinnuálag, vaxandi ytra áreiti á kjarnafjölskyldunni, meiri vegalengdir milli fjölskyldumeðlima, færri börn á hverja aldraða foreldra og aukna opinbera þjónustu. Til dæmis má nefna að 80% ein- staklinga 65 ára og eldri er nutu aðstoðar í Matitoba í Kanada árið 1987 fengu aðstoðina frá fjölskyldu- meðlimum. Rannsókn sem gerð var í Svíþjóð árið 1985 sýndi að 42% aðstoðarþega fengu eingöngu að- stoð fjölskyldumeðlima, 35% ein- göngu aðstoð hins opinbera og 22% aðstoð frá hvorum tveggja. Nokkrar ítarlegar athuganir hafa verið gerðar í Noregi. Árið 1969 og aftur árið 1981 voru gerðar sam- bærilegar athuganir á eftirspurn eftir opinberri þjónustu, en á þessu tímabili margfaldast þjónustan við aldraða, þá sérstaklega heimaþjón- usta af ýmsu tagi. Þessar athuganir leiddu eftirfarandi í ljós: Þrátt fyrir verulega eftirspurn eftir opinberri þjónustu fyrir aldraða fannst ekkert í fyrirliggjandi athugunum sem benti til þess að sambandið milli hins aldraða og ijölskyldu hans hefði minnkað. Áherslur höfðu hins vegar breyst og það staðfesta ýmsar aðrar kannanir. Fjölskyldan er virkari og stærri þáttur aðstoðarinnar þegar um er að ræða stutta eða tíma- bundna aðstoð við heimilishald, við lengri og varanlegri persónulegri umönnun er þáttur hins opinbera stærri. Árið 1985-1986 var gerð við- horfskönnun meðal 70 ára og eldri AR ALDRAÐRA i EVRÓPU 1993 í Ósló. Framangreind verkaskipting milli fjölskyldunnar og hins opinbera endurspeglar þau viðhorf sem þar komu fram. Flestir leita fyrst til bama sinna eftir aðstoð, ef þörfín er tímabundin, léttari aðstoð við heimilishald en um leið og kemur að persónulegri umönnun vilja aldr- aðir leita til hins opinbera. Gallup stofnunin í Noregi gerði nýlega viðhorfskönnun meðal Norð- manna 18 ára og eldri. Um helming- ur aðspurðra á öllum aldri taldi sig bera skyldu til að annast foreldra sína yrðu þeir veikir. Hins vegar vildu einungis einn af hverjum fimm að bömin sín myndu annast sig í veikindum. Foreldrar em mjög meðvitaðir um að ofgera eða íþyngja ekki bömum sínum. Það gildir hér eins og ann- ars staðar meðal allra aldurshópa að það er auðveldara að gefa en að þiggja, auðveldara að vera óháður gefandi en háður þiggjandi. Slík staða hefur sjaldan leitt til góðra fjölskyldutengsla, en í ofangreind- um rannsóknum mátti fínna að vemlega hafíð dregið úr togstreitu og ágreiningi í fjölskyldunum og í staðinn var komin svokölluð „nánd í fjarlægð“. Þannig hefur hin opinbera þjón- usta stuðlað að sjálfstæði í daglegu lífí hins aldraðra rétt eins og ellilíf- eyrir stuðlaði að efnahagslegu sjálf- stæði á sínum tíma. Fjölskyldu- tengsl hafa breyst í þá átt að vera meiri að gæðum, vera tilfinningaleg- ur og félagslegur stuðningur er byggir í meira mæli á gagnkvæmni þess að heyra til fjölskyldu. Öldrunarfræðin Hin nýju fræði, „öldmnarfræðin“, hafa verið skilgreind sem „þekking um það að eldast“ eða á dönsku „læring om normal ældring". I öldr- unarfræðinni er gengið út frá hinu eðlilega og heilbrigða við það að eldast. Öldrunarfræðin nálgast þetta viðfangsefni mannlegs lífs út frá vísindum líffræðinnar, læknis- fræðinnar, atferlis- og samfélags- fræðinnar. Oft hefur verið á það bent að sú tilhneiging sé ríkjandi að líta á gam- alt fólk sem mjög einlitan hóp, hinn grái massi eins og hann hefur stund- um verið kallaður. Ef til vill er ástæðan fyrir þeirri tilhneigingu sú að of mikil áhersla hefur verið lögð á hinn líffræði- og læknisfræðilega þátt öldmnarinnar en minna Q'allað um atferlis- og samfélagslega þátt- inn. Þetta er sérstakt íhugunarefni þegar tekið er tillit til þeirra öru þjóðfélagsbreytinga sem orðið hafa á þessari öld. Sú kynslóð sem telst til aldraðra í dag hefur í ljósi at- burða 20. aldarinnar, að geyma ekki aðeins ólíka samfélagshópa heldur einnig ólíka aldurshópa sem hver og einn er barn síns tíma sem hefur tekið með sér áhrif og sam- spil hinnar opinberu sögu og eigin sögu í viðmiðunum sínum, vænting- um og viðhorfum. Það er talandi dæmi um hinar ólíku kynslóðir sem búa í þessu landi þar sem hraði er ríkjandi og tækni virðist úreldast fljótt, að þessi þáttur öldrunarfræð- innar, þ.e. atferlis- og samfélags- fræðin er afgreiddur með tveimur orðum, „gamli skólinn" og verð- mætamat hans er „gamaldags". Signrbjörg Sigurgeirsdóttir „ Aftur á móti hefur reynslan sýnt að með heimaþjónustu opnast nýjar leiðir fyrir fjöl- skylduna til að taka þátt í aðstoð við aldraða miðað við aðstæður hveiju sinni og vera hið félagslega og tilfinn- ingalega akkeri sem einstaklingurinn þarfn- ast.“ Til að skilja betur ástæður þess að gamalt fólk vill ekki vera undir bömum sínum komið með langvar- andi persónulega umönnun, en kýs þá frekar aðstoð hins opinbera þá verðum við að skoða sögu 20. aldar- innar betur og sjá hvaða áhrif hún hafði á daglegt líf og afkomu fólks og hvaða tækifæri opnuðust sem gerðu fjölskyldu betur kleift að að- laga sig breyttum aðstæðum í sam- félaginu. Við vitum í raun sáralítið um afkomu og velferð gamals fólks í stórfjölskyldusamfélaginu. Hversu fús og gefandi var yngri kynslóðin í því þrönga og lokaða samfélagi? Hvernig var að vera háður og þiggja þar? Síðari tíma rannsóknir sem ég gat um hér áðan benda allar til þess að gamalt fólk kjósi frekar „nánd í ijarlægð" en að vera háður þiggjandi á kostnað góðra fjöl- skyldutengsla sem byggja á gagn- kvæmum þörfum. Möguleikar fjölskyldunnar í ljósi nýrra leiða Með tilkomu heimaþjónustu hefur þáttur fjölskyldunnar í aðstoð við aldraða stóraukist því heimaþjón- usta er í eðli sínu þannig að hún kemur á móti hinu svokallaða óformlega hjálparkerfí hins aldraða og tekur við þar sem getu þess sleppir. Henni er ekki ætlað að koma í staðinn fyrir fjölskyldu- eða stofn- anaþjónstu og getur það reyndar ekki. Meðan stofnanaþjónustan var eina úrræðið sem þjónusta við aldr- aða hafði hún mun meiri tilhneig- ingu til að ijúfa fjölskyldutengsiin en tilfellið er með heimaþjónustu þar sem stofnanaþjónustan er í eðli sínu þjónusta sem kemur í staðinn fýrir eitthvað annað. Heimaþjónustan byggir á nánu samstarfi við aðstandendur og að- stoðarþega og er nánast ófram- kvæmanleg nema svo sé. Sú verka- skipting sem verður til milli þessa tveggja „kerfa“ kemur í kjölfar þess samstarfs og er í eðlilegu samræmi við aðstæður hveiju sinni. Reynslan hefur sýnt að tiltrú og aðgengi al- mennings að slíkri þjónustu skapar öryggi hjá öldruðum og aðstandend- um þeirra sem aftur er undirstaða eðlilegra samskipta milli kynslóð- anna. Dæmi hafa sannað að engin ein þjónusta getur komið í staðinn fyrir aðra. Þannig getur heimaþjónusta ekki komið alfarið í staðinn fyrir stofnanaþjónustu. Þá getur fjöi- skyldan í nútímaþjóðfélagi ekki komið ein í staðinn fyrir heima- eða stofnanaþjónustu og aftur ekkert komið í staðinn fyrir fjölskylduna. Hin lýðfræðilega þróun er ákveð- in staðreynd. Okkur ber fyrst og fremst siðferðisleg skylda til að líta á afleiðingu slíkrar þróunar sem eðlilegt viðfangsefni er kallar á sam- starf og skipulagningu. Forsjár- hyggja eða skyndilausnir sem ekki eru í takti við heildaruppbyggingu þjónustunnar, samspil ólíkra þjón- ustuþátta og þær áherslur sem þar ríkja hafa ekki gefíð góða raun. Aftur á móti hefur reynslan sýnt að með heimaþjónustu opnast nýjar leiðir fyrir fjölskylduna til að taka þátt í aðstoð við aldraða miðað við aðstæður hveiju sinni og vera hið félagslega og tilfinningalega akkeri sem einstaklingurinn þarfnast. Heimildir: 1. Svein Olav Daatland. (1990) What are families for? Ageing and Society, 10, 1990. Cambridge University Press. 2. Neena Chappel and Audrey Blandford. (1990) Informal and formal care: Exploring the complementarity. Ageing and Society, 11, 1991. Cambridge University Press. 3. H. Kendig, A. Hashimoto and L.C. Copp- ard. (1991) Family Support for the Elderly. The international experience. WHO. Oxford University Press. 4. Lars Tomstan (1992). Den demografiska bomben och de nya kraven pá den infor- mella omsorgen - framtidshot eller myt? 5. Turid Noack og Inger Texmon (1991). Dagens og morgendagens kvinner - en demografísk beskivelse. Gamle kvinner i Norden. Rapport 6 - 1991. Norsk gerontol- igisk institutt. Höfundur er félagsrádgjnfi og yfirmaður öldrunarþjónustudeildar hj& Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar. Skýrsla Bifhjólasamtaka lýðveldisins Umferðarátak Sniglanna á síðasta ári gekk vel BIFHJÓLASAMTÖK lýðveldisins hófu á síðastliðnu ári baráttu gegn bifhjólaslysum undir nafninu „Umferðarátak snigla 1992“. Umferðarátakið var rekið undir einkunnarorðunum: „Sérðu mót- orhjól, líttu aftur“. Átakið fór þannig fram að innsksot voru á báðum sjónvarpsstöðvum 9 sinnum á hvorri stöð, veggspjöld voru hengd upp á bensínstöðvum og útvarpsinnskot voru send öllum útvarpsstöðvum utan Rásar 2. Frá þessu segir í skýrslu, sem Morgunblaðinu hefur borist frá Um- ferðarátaki snigla. Heildarkostnaður við átakið var 2.3 milljónir króna. í lokaorðum skýrslunnar segir svo: „Markmið okkar með þessu umferð- arátaki er að fækka bifhjólaslysum um allt að 15% og minnka kostnað þjóðarinnar af þeirra völdum. Til hliðsjónar höfum við upplýsingar frá umferðarátaki sem Umferðarráð og Fararheill gengust fyrir 1988. Þeð því átaki tókst að fækka slysum um 27%. Miðað við kostnað tryggingafélag- anna af bifhjólaslysum 1990 myndi átakið spara þeim um 9.000.000 kr. Miðað við kostnað heilbrigðisgeir- ans fyrir sama ár myndu sparast um 55.000.000 kr. Með kröftugu umferðarátaki sem kostar tæpar 2.000.000 kr. er hægt að spara þjóðarbúinu allt að 64.000.000 í beinhörðum peningum. Okkur þykir þó meira um vert að hlífa lífum og limum 30-40 ungra manna og kvenna ár hvert.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.