Morgunblaðið - 14.04.1993, Side 20

Morgunblaðið - 14.04.1993, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRlL 1993 Ný gerð bamabílstóla * Fyrlr böm frá fæðingu til 5 ára aldurs. * Þægilegar 5 punkta fest- ingar með axlapúðum. * Stillanlegur. * Stólnum má snúa með bakið fram (->9kg.) eða aftur (9-18kg.). * Má hafa frístandandi. * Vasi á hlið. fyrir leikföng eða annað. * Auðvelt að taka áklæðlð af og þvo það. * Viðurkenndur. * Verd kr. 10.998,- Borgartúni 26 Sími: (91) 62 22 62 Mynds.:(91) 62 22 03 Vér mótmælum öll eftir Sæmund Norðfjörð Ágætu íslendingar, það voru ekki við sem ruddum götur blóðs á Balk- anskaga. Það voru ekki við sem sáldruðum hatri yfir þjóðirnar sem þar búa. Það voru ekki við sem ætluðum þeim þau grimmu örlög að deyja tugum og stundum hund- ruðum saman í einhverjum ónefnd- um dal eða afskekktu þorpi. Við nauðguðum ekki konum þeirra, við myrtum ekki foreldra þeirra og böm, og aldrei skutum við á Sarajevo. Við erum blessunarlega saklaus af þessu öllu og ég endurtek blessunarlega, því hver sá sem sek- ur er hefur stein fyrir hjarta, hálm fyrir heila og má enginn maður telj- ast. Mennskan er tign mannsins og hún hefur gert okkur göfug. Ætlum við þá í tign okkar oggöfgi að álykta sem svo að við stöndum utan við þetta stríð, það komi okkur ekki við? Hvaða boðskap eigum við að nema úr kvaladráttum fórnarlam- banna og veinum þeirra? Eigum við að sætta okkur við það að hver stuna hljóðni, hver kvaladráttur stirðni, og allar ljótar sögur taki enda? Ef það er hugsun okkar, þá erum við að sönnu huglaus í skoðun okkar og óábyrg frammi fyrir því réttlæti og siðferði sem við gerum að skilyrð- islausri kröfu í samfélagi okkar. Eg hef heyrt málsmetandi menn í þjóðfélaginu tala um það í alvöru að forðast beri að fella áfellisdóma yfir stríðandi aðilum. Það sé erfitt að átta sig á stöðunni, á bak við átökin séu ýmsar sögulegar forsend- ur sem taka beri tillit til. Gott ef þeir vilja ekki láta í það skína að átökin séu réttlætanleg í því ljósi. Svei, þeim og þeirra fávisku. Nú biðjum við ekki um skýringar máls- metandi manna á þessum átökum heldur einarða kröfu sem felur í sér númer eitt, tvö og þtjú, að stríðandi aðilar leggi niður vopn sín og friður náist. Afstöðuleysi og aðgerðaleysi er í sjálfu sér dulbúin krafa um óbreytt ástand og það má ekki hvíla á samvisku íslensku þjóðarinnar. Það er nákvæmlega eitt ár síðan ég ferðaðist vítt og breitt um Króat- íu í þeim tilgangi að gera heimildar- mynd um ástandið þar. Á meðan á ferðinni stóð hélt ég dagbók. Eitt af því síðasta sem ég skrifaði í hana voru þessi orð: Dubrovnik, mið. 1. apríl '92. í gærkvöldi kom ég örmagna að hótelinu, lagðist til svefns. KI. 23.00 var byrjað að skjóta á borgina. Það var skotið á hótelið og þessa nótt var ég viss um að ég færist. Eftir 5 tíma skothríð varð allt kyrrt, þá fyrst sofnaði ég. Hótelstjórinn sagði í morgun að þetta hefði veríð nokk- uð „þung“ nótt. Hann benti mér á skemmdirnar á hótelinu og sagði svo að þetta væri ekkert miðað við annað hótel sem værí þarna rétt hjá. Það væri allt í molum. Enginn dó sem betur fer ... Það er svo skrítið að ganga hérna um og sjá skólakrakka leika sér á götunum eftir slíka nótt og fyrr í dag versl- aði ég í túristasjoppu og ég er eini útlendingurinn í þessari borg fyrir utan EB-Iiðið. Það er eins og fólkið hérna átti sig ekki á þeirri líkblæju sem liggur yfir borginni . . . Mér finnst þau vera hetjur án þess að falla að nokkurri hetjuímynd. Þetta eru ósköp venjulegt fólk... Loksins Nysköpun er nauðsyn Fundur í Hafnarfirði Ræðumenn verða Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra og fulltrúar frá Iðnlánasjóði, Iðntæknistofnun og Iðnþróunarsjóði. Fundurinn er öllum opinn en höfðar einkum til þeirra sem láta sig varða atvinnumál. Fjallað verður um aðgerðir og verkefni til að styðja við frumkvæði í nýsköpun. Fundartími: Fundarstjóri: Staður: 15. apríl 1993 kl. 20:30 Jóna Ósk Guðjónsdóttir Hraunholt, Dalshrauni 15 Jón Sigurðsson, Hallgrímur Jónasson, Þorvarður Alfonsson, Bragi Hannesson, iðn.ráðherra Iðntæknistofnun Iðnþróunarsjóður Iðnlánasjóður IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ IÐNÞRÓUNARSJÓÐUR i IÐNLANASJÓÐUR lóntæknistofnun n fékk ég skýríngu. Maðurínn hennar Vesnu sagði mér að um leið og sprengjurnar fengju þau til að hættu sínu daglega vafstri væru þau sigr- uð ... Þau eru hetjur. Daginn eftir var ég á heimleið, þá farm ég fyrir fögnuði yfir því að vera íslendingur. Þótt við íslending- ar getum fagnað því að búa við frið erum við samt sem áður ábyrgir í afstöðu okkar til ástandsins á Balk- anskaga. Við stöndum ekki utan við þessi átök nema í landfræðilegri merkingu. Við getum haft áhrif á gang mála þar og okkur ber að gera það. Það eru tvær leiðir sem hafa mest áhrif. Önnur fer í gegnum hjálparstarf og langar mig til að geta sérstaklega þeirra sem standa nú yfir. Annars vegar söfnun Vin- áttufélags íslands og Króatíu (VÍK) á póstgíróreikningi 400025, handa flóttamönnum og þeim sem eru að endurbyggja hús sín eftir sprengju- árásir og hins vegar söfnun Hjálpar- stofnunar kirkjunnar, handa fórn- arlömbum nauðgana. Hin leiðin, sem er kannski mikilvægari, felst í því að íslensk stjórnvöld marki sér skýra stefnu um málið og beiti sér fyrir því á alþjóðavettvangi. Þannig gæti fulltrúi Islands á alþjóðavett- vangi tekið sér stöðu fyrir aftan ræðupúltið, horft fram í salinn, horft í augu þess valds sem mestu ræður og sagt hátt og snjallt: „Ég mót- mælk“ Þetta yrði ekki í fyrsta sinn sem íslendingUr léti þessi orð falla. Sæmundur Norðfjörð „Við stöndum ekki utan við þessi átök nema í landfræðilegri merk- ingu.“ Það væri vart af minna tilefni og hefði sá jafnan heiður af og þegar Jón Sigurðsson forseti varði sjálf- stæðiskröfur íslendinga á frægum þjóðfundi árið 1851. Höfundur er í stjórn VIKoggerði heimildarmyndina „Króatía: vorið 1992“. Fyrirlestur um hjúkrunarfræði DR. KRISTÍN Björnsdóttir flytur opinberan fyrirlestur á vegum námsbrautar í hjúkrunarfræði og Rannsóknastofu í kvennafræð- um við Háskóla íslands fimmtudaginn 15. apríl. Fyrirlesturinn nefnist Sjálfsskilningur íslenskra hjúkrunarkvenna á tuttugnstu öldinni: Orðræða og völd. í honum fjallar Kristín um mótun hugmynda um hjúkrunarstarfið á íslandi í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa á heilbrigðiskerfinu á tutt- ugustu öldinni. í greiningu sinni beit- ir Kristín m.a. kenningum úr kvenna- fræðum og skoðar hjúkrunarstarfið í ljósi þess að það hefur verið kvenna- starf. Kristín er hjúkrunarfræðingur að mennt. Hún lauk doktorsprófi í hjúkrunarfræði frá Columbia háskól- anum í New York á síðasta ári og starfar nú sem lektor í námsbraut í hjúkrunarfræði við Háskóla íslands. Fyrirlesturinn hefst kl. 17.15 í stofu 101 í Odda. Hann er öllum opinn. (Fréttatilkynning) NÁMSAÐSTOÐ á lokasprettinum fyrir vorprófin • réttindakennarar • flestar greinar • öll skólastig Innritun í síma 79233 frá kl. 14.30 til 18.30 virka daga Nemendaþjónustan sf. KRAKKAR - KRAKKAR - FORELDRAR - FORELDRAR I SUMARDVALARHEIMILIÐ KJARNHOLTUM, - BISKUPSTUNGUM. 31. MAÍ-28. ÁGÚST. Ævintýraleg sumardvöl fyrir 6-12 ára börn. Reiðnámskeið, íþrótta- og leikjanámskeið, ferðalög, sund, sveitastörf, kvöldvökur. Nýjungar! Nú er hægt að skrá sig inn á heimilið alla daga, eins lengi og hverjum hentar. (Lágmarkstími 6 dagar). Stórlækkað verð! Aðeins kr. 2.000,- á dag (um 25% verðlækkun) 20% afsláttur í ágúst eða kr. 1.600,- á dag. Greiða má með raðgreiðslum í allt að 6 mánuði. Dæmi: 12 dagar, kr. 24.000,- eða kr. 4.000,- á mánuði + kostnaður. Upplýsingar og innritun í síma 91-641929.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.