Morgunblaðið - 14.04.1993, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRIL 1993
23
Umferðarátak lög-
reglu á Suðvesturlandi
Vaskhugi
Tölvubókhald
Sími 682 680
eftir Ómar Smára
Armannsson
Lögreglan á Selfossi, höfuðborg-
arsvæðinu og á Suðurnesjum verður
með samstillt átak í umferðarmál-
um dagana 14.-21. apríl og mun
þá beina athyglinni sérstaklega að
ökuhraða og réttindum ökumanna.
Á síðasta ári þurfti lögreglan á
þessu svæði að kæra nálægt 10.000
ökumenn fyrir að aka of hratt.
Svipta þurfti u.þ.b. 300 þeirra öku-
skírteini „á staðnum", og enn fleiri
voru sviptir þeim síðar. Á sama
tímabili stöðvaði lögreglan nær 300
ökumenn, sem þegar höfðu verið
sviptir ökuréttindum vegna hraða-
aksturs, gáleysislegs aksturs eða
ölvunaraksturs. Þeir þurftu að
greiða háar sektir og nokkrir kom-
ust ekki hjá því að þurfa að taka
út varðhaldsrefsingu. Til viðbótar
þessum fjölda voru u.þ.b. 200 öku-
menn staðnir að því að aka án þess
að hafa nokkurn tíma öðlast öku-
réttindi. Allmargir þeirra voru und-
ir 17 ára aldri.
Okuhraði
Samkvæmt meginreglu umferð-
arlaganna skal vegfarandi sýna til-
litssemi og varúð svo eigi leiði til
hættu eða valdi öðrum tjóni eða
óþægindum. Þá segir í leiðbeining-
arreglunum að vegfarandi skuli
fara eftir leiðbeiningum um umferð,
sem gefnar eru með umferðar-
merkjum.
í fimmta kafla laganna er kveðið
á um ökuhraða. Þar segir m.a. að
„ökuhraða skuli jafnan miða við
aðstæður með sérstöku tilliti til ör-
yggis annarra. Ökumaður skal
þannig miða hraðann við gerð og
ástand vegar, veður, birtu, ástand
ökutækis og hleðslu svo og umferð-
araðstæður að öðru leyti. Hraðinn
má aldrei verða meiri en svo að
ökumaður hafi fullt vald á ökutæk-
inu og geti stöðvað á þeim hluta
vegar fram undan, sem hann sér
yfir og áður en hann kemur að
hindrun, sem gera má ráð fyrir“.
Þá segir að „í þéttbýli megi öku-
hraðinn ekki vera meiri en 50 km
á klst. Utan þéttbýlis má hann ekki
vera meiri en 80 km á klst., þó 90
km á klst á vegum með bundnu
slitlagi". Hér er að sjálfsögðu miðað
við bestu hugsanlegu aðstæður.
Ökuhraði annarra bifreiða en
fólksbifreiða má aldrei vera meiri
Ómar Smári Ármannsson
„Þetta ættu ungir öku-
menn sérstaklega að
hafa í huga því meira
en 30% þeirra sem slas-
ast í umferðinni eru úr
þeirra hópi enda virð-
ast þeir að jafnaði aka
hraðar en aðrir.“
en 80 km á klst. og ökuhraði bifreið-
ar með eftirvagn eða skráð tengi-
tæki má aldrei vera meiri en 70
km á klst.
Að öðru leyti skal t.d. ekið sér-
staklega hægt miðað við aðstæður
í þéttbýli, þegar útsýni er takmark-
að, í beygjum, við vegamót, áður
en komið er að gangbraut, við blind-
hæð, í hálku, þegar ökutæki nálg-
ast, þar sem vænta má búfjár, þar
sem vegavinna fer fram og þar sem
umferðaróhapp hefur orðið.
Lögreglan hvetur ökumenn til
þess að sýna varúð og aka ekki
hraðar en aðstæður leyfa á hveijum
stað og/eða leyfileg hámarkshraða-
mörk segja til um. Ef einhver telur
sig vera að vinna tíma með því að
aka hraðar en leyfilegt er þarf sá
hinn sami að endurskoða hug sinn
til þeirra mála. Að ætla sér slíkan
gróða er afskaplega hæpið, sérstak-
lega þegar horft er til þess að hlut-
Lokun Austurstrætis fyrir bílum
Þörf er á frek-
ari mælingum
EKKI þykir ástæða til að grípa til aðgerða vegna mengunar,
sem mælst hefur í Austurstræti við sérstakar aðstæður. Niður-
staða sérmælinga heilbrigðiseftirlitsins sýna að mengun var 10%
undir viðmiðunarmörkum og langt frá hættumörkum. Að sögn
Markúsar Arnar Antonssonar borgarstjóra verður ákvörðun um
lokun Austurstrætis fyrir bílaumferð að grundvallast á frekari
mælingum og hefur verið rætt um að selja upp tæki sem mæli
mengunina að staðaldri.
Að sögn borgarstjóra, telur for-
stöðumaður heilbrigðiseftirlitsins að
víðtækari mælingar þyrftu að fara
fram í Austurstræti áður en borgar-
yfirvöld tækju ákvarðanir um breyt-
ingar á bílaumferð. Hafa yrði í huga
að mælingarnar voru gerðar á mót-
um Austurstrætis og Pósthússtræt-
is, þar sem bílar eru í hægagangi
við gatnamót og því mikill útblástur
frá þeim á afmörkuðu svæði.
Heilbrigðisnefnd fylgist með
„Það er heilbrigðisnefndar að
fylgjast með ástandinu og ef hún
sendir frá sér viðvaranir á grund-
velli athugana heilbrigðiseftirlitsins
þá verður tekið tillit til þess og
ákvarðanir teknar um til hvaða ráð-
stafana skuli grípa," sagði Markús.
Sagði hann það almennt sjónar-
mið að niðurstaða sérmælinganna
gæfu ekki til kynna að þarnar væri
alvarleg hætta á ferðum sem ástæða
væri til að vara við. Aðstæður væru
þannig að þeim bæri að taka með
fyrirvara en fylgst yrði með þröng-
um götum í gamla miðbænum, þar
sem umferðarþungi er talsverður og
hætt við mengun.
fallslega flest dauðaslys og alvarleg
slys í umferðinni verða vegna hrað-
aksturs. Þetta ættu ungir ökumenn
sérstaklega að hafa í huga því
meira en 30% þeirra sem slasast í
umferðinni eru úr þeirra hópi. Enda
virðast þeir að jafnaði aka hraðar
en aðrir.
Ökumaður einn vildi halda því
fram að hann gæti stórgrætt á því
að aka hraðar en leyfilegt er. í
hvert sinn sem hann fór hraðar og
varð ekki stöðvaður af lögreglu taldi
hann sig græða þá upphæð sem
sektin hefði ella orðið. Upphæðin í
bankabók hans óx hins vegar ekki
að sama skapi. Hún minnkaði hins
vegar verulega þegar hann varð
loksins stöðvaður af lögreglunni.
Það er með öðrum orðum ekkert
hægt að græða með því að brjóta
af sér í umferðinni, en hins vegar
er hægt að tapa verulegum upp-
hæðum á því ef svo ber undir.
Umferðaryfirvöld á einu Norður-
landanna beittu sér nýlega fyrir
nýstárlegri rannsókn á sviði um-
ferðarmála. Reynt var að kanna
hvort samhengi væri á milli greind-
ar ökumanna og hegðunar þeirra í
umferðinni. Niðurstaðan kom fæst-
um á óvart. Ekki var um að villast
að þeir ökumenn, sem gáfu t.d.
ekki stefnumerki, virtu ekki um-
ferðarmerki og óku hraðar en leyfi-
legt var, þóttu mun tregari en þeir
sem fóru eftir settum reglum. Slík
könnun hefur ekki verið gerð hér á
landi svo vitað sé.
Höfundur er aðstoðaryfir-
lögregluþjónn í Reykjavík.
Akstur og sigling 1993
Áætlun fyrir sumarið 1993 er nú komin út.
Laat verður udd í fvrstu ferð fró Borqartúni 34 bann 2. iú
Siglt til Danmerkur með Norrænu og ekið um Evrópu á íslenskum
hópferðabíl með íslenskum bflstjóra.
Þetta er sjötta árið í röð, sem við bjóðum upp á þennan vinsæla
ferðamáta.
f ár verður ekið um Þýskaland og Sviss, til Ítalíu, um Austurríki,
Danmörku og Noreg auk þess sem farinn verður hringvegurinn
á íslandi. Einnig gefst kostur á að fljúga aðra leiðina og sigla
hina, hvort heldur er að heiman eða heim.
Einnig er áætluð Þýskalandsferð í ágúst. Leitið upplýsinga.
<3*
Ferðaskrifstofa
Guðmundar Jónassonar hf.
Sími 683222.
Canon Prima Twin S með 38 mm/76
mm linsu og fáanleg með dagsetningu.
Tilboðsverð: 13.790 kr.
Canon Prima 5 með þriggja
geisla fókuskerfi og fáanleg með
dagsetningu^______________
Tilboðsverð: 8.990 kr.
Canon Prima Junior Hi með sjálfvirku
flassi og sjálftakara.
Tilboðsverð: 5.990 kr.
BANKASTRÆTI, GLÆSIBÆ, AUSTURVERI, LAUGAVEGI 1 78,
KRINGLUNNI, LYNGHÁLSI, HÓLAGARÐI, SKEIFUNNI 8 OG GRAFARVOGI
Við kynnum Canoil„Prima fjölskylduna"
Skynsamleg fermingargjöf fyrir skynsamt ungt fólk