Morgunblaðið - 14.04.1993, Page 28

Morgunblaðið - 14.04.1993, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRIL 1993 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRIL 1993 29 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Arvakurh.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1200 kr. á mánuði innan- lands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Morgnnblaðið á tímamótum að voru merk tímamót í sögu Morgunblaðsins, þegar starfsemi þess var flutt úr Aust- urstræti í Morgunblaðshúsið við Aðalstræti. Þá var gert ráð fyrir því, að hin nýju húsakynni gætu hýst blaðið næstu áratugi og þeir sem höfðu þurft að búa við þrengslin í Austurstræti horfðu vonbjörtum augum til þeirra rúmgóðu aðstæðna, sem vænta mátti í hinu nýja Morgunblaðs- húsi. Blaðið hafði um áratuga skeið haft aðsetur í gamla ísa- foldarhúsinu og þar hafði öll starfsemi þess verið á einum stað. Þegar hér var komið sögu voru þrengslin farin. að há blaðinu og starfsemi þess enda þótt hún væri enn öll á einum stað og var það mikill kostur út af fyrir sig. Prentsmiðjan var á jarðhæð í viðbótarbyggingu sem sneri út að Austurvelli, afgreiðsla blaðs- ins í einni kytru við aðalinngang við Austurstræti en starfsemi bláðsins að öðru leyti á 2. hæð þar sem ritstjórn og fram- kvæmdastjóm voru í húsnæði álíka stóru og fyrirlestrarsalur- inn í hinu nýja Morgunblaðshúsi við Kringluna 1. En blaðið hafði hleypt heimdraganum og fyrir- heit mikilla ævintýra blöstu við. Blaðið þurfti því að sníða sér stakk eftir vexti og stækkaði með hveiju ári sem leið og því hin mesta nauðsyn að flytjast í nýja húsnæðið við Aðalstræti. Þar fékk starfsfólk Morgun- blaðsins rúmgóðan samastað og dugði í nokkur ár en blaðinu óx jafnt og þétt fiskur um hrygg svo að nauðsynlegt var að byggja nýtt hús yfir prentsmiðju þess og var það fyrri áfangi að nýjum höfuðstöðvum Morgunblaðsins í hinum nýja miðbæ við Kringl- una. Síðar sprengdi Morgunblað- ið húsið utan af sér og undanfar- in ár hefur ritstjórn þess verið dreifð um miðborg Reykjavíkur. Nú þegar Morgunblaðið er allt komið undir eitt þak má segja, að það marki mikilvæg tímamót í sögu blaðsins, ekki sízt vegna þess að ritstjómin hefur undan- farin ár verið samtals á fjórum stöðum en þó aldrei nema þrem- ur í einu. Það hefur verið erfítt og óhentugt. En blaðinu hefur vegnað sérlega vel við Aðal- stræti, þar hefur það tekið út endanlegan þroska og er nú orð- ið stórblað á íslenzkan mæli- kvarða með yfir 50 þús. eintaka upplag, aukna starfsemi um allt land og síbætta þjónustu við auglýsendur. Þá hefur blaðið verið búið fullkomnasta tölvu- búnaði sem nú þekkist og öðrum þeim tækjum sem nauðsynleg þykja í nútímablaðamennsku og hafa lesendur ekki sízt fagnað þeim framförum, sem orðið hafa í litprentun og útliti blaðsins en litprentunin er með því bezta sem gerist. Þegar Morgunblaðið fluttist í Aðalstræti árið 1956 eignaðist það nýja prentvél, sem þar var einnig staðsett og auðveldaði það alla starfsemi blaðsins. Nú hefur þeim sama áfanga einnig verið náð að ritstjórn og framkvæmda- stjórn eru á sama stað og prent- verk blaðsins og húsnæðið allt hannað með þeim hætti, að vinn- an verði sem auðveldust og þá einkum með það markmið í huga, að blaðið komist í tæka tíð í hendur lesenda sinna. í útgáfu dagblaðs er hver mínúta dýrmæt og enginn vafi á því, að hin nýju húsakynni og sú hagkvæma skipan sem arkitekt hússins, Gunnar heitinn Hansson, lagði höfuðáherzlu á, eiga eftir að skila sér í hraðvirkari vinnubrögðum og skilvísari afgreiðslu blaðsins. Þess ber þó að geta að Helga, dóttir Gunnars, útfærði grunn- hugmyndir föður síns sem hafði lagt meginlínur að teikningum hússins, þegar hann féll frá. En það er þó að sjálfsögðu mikilvægasti þáttur allrar blaða- útgáfu, að hún byggist á metnað- arfullu starfí ritstjómar, sem vinnur úr daglegum atburðum og mikilsverðum efnisþáttum og gerir sitt ýtrasta til að koma réttum upplýsingum á framfæri og leiða fróðleiksfúsa lesendur að kjarna málsins. Eigendur Morgunblaðsins og stjómendur Árvakurs, útgáfufélags blaðsins, hafa ávallt gert sér far um að skapa starfsmönnum þess sem bezt skilyrði svo blaðið geti sinnt skyldu sinni við sjálft sig og ís- lenzkt þjóðfélag. Þessar skyldur eru miklar og mikilvægar, þegar haft er í huga, að Morgunblaðið er langstærsti prentmiðill lands- ins. Árvakurs-stjórn hefur ávallt verið vel á verði og fylgzt ræki- lega með tæknilegum nýjungum eins og sjá má, þegar gengið er um hin nýju og glæsilegu húsa- kynni Morgunblaðsins í Kringl- unni 1. Þessi afstaða stjórnarinn- ar hefur verið starfsfólki blaðsins ómetanleg hvatning og ritstjórn- inni lyftistöng. Nú þegar Morgunblaðið er enn á ný komið undir eitt þak og ómetanlegum áfanga er náð í 80 ára sögu blaðsins er full ástæða til að þakka öllum þeim, sem hafa lagt hönd á plóginn og gert þetta ævintýri að veruleika. Hér hefur verið unnið stórvirki, sem blaðið og lesendur þess munu njóta góðs af. Flutningur- inn á tækjum og öðrum búnaði blaðsins í hið nýja hús var afrek út af fyrir sig, og var þessum flutningi lokið á nokkrum sólar- hringum. Öllum þeim, sem unnu að skipulagningu og framkvæmd flutninganna, skulu færðar beztu þakkir. Þá ber einnig að fagna því, að Borgarbókasafnið tekur við því húsnæði, sem Morgunblaðið yfírgefur nú í miðbænum, enda hefðu Morgunblaðsmenn ekki kosið aðra arftaka fremur en þá sem eiga að hlú að bókum, auka og efla bókmenningu höfuðborg- arinnar og koma henni á fram- færi — og þá ekki sízt við fróð- leiksfúsa æsku, sem á vonandi samleið með Morgunblaðinu um ókomin ár. Borgarbókasafnið og blað allra landsmanna eiga það vænt- anlega sameiginlegt að stuðla að auknum þroska, varðveizlu tung- unnar og betri yfírsýn yfír flókið samtímalíf líðandi stundar. Slíkir fjölmiðlar eiga að efla andlegt atgervi þeirra, sem hafa löngun til að fræðast og fylgjast með. Sagt hefur verið að þroskinn sé hinn mikli töframaður lífins. Og ef við höfum hann að marki komi hamingjan sem aukageta, komi sem merki þess, að við séum á réttri leið. Vonandi höfum við Morgunblaðsmenn reynt að þroskast eitthvað með blaðinu og blaðið með okkur því fátt er nú mikilvægara en að fjórða afl- ið eflist að styrk og sjálfstæði og vinni sitt verk í lýðræðislegu íslenzku samfélagi eins og til er ætlazt. Sá sem er ungur að árum lætur sig dreyma en fullorðinsár- in nota menn til framkvæmda. Morgunblaðið átti sína drauma og vonandi er hin nýja umgjörð um starfsemi blaðsins réttlæting þeirra drauma, sem hafa verið veganesti blaðsins alla tíð. Upp- fylling drauma er öðru mikilvæg- ara og þá ekki síður að láta draumana halda áfram að hrísla eldi sínum um mikilvæg störf og sýna að hugsjónin lifir af allt mótlæti, erfiðleika og vonbrigði. Það er hlutverk Morgunblaðs- ins og markmið að vera heiðar- legur boðberi og sjálfstæður túlkandi markverðra atburða. Vonandi fylgir sá andi því nýja Morgunblaðshúsi sem nú hefur verið tekið í notkun. Morgunblað- ið á í senn að taka áskorun umhverfísins og takast á við umhverfí sitt. Kyrrstaða er allri fjölmiðlun öndverð. Dagblað er eins og allt, sem er í tengslum við lífíð sjálft; hreyfíng og við- brögð. Gott og mikilvægt dag- blað er eins og strengir þandir milli tveggja skauta, milli tveggja ólíkra heima svo að vitn- að sé í einn þeirra andans manna, sem skrifað hafa í Morgunblaðið á undanförnum áratugum. Gott dagblað getur ekki gert hið dýr- sterka og ruddalega umhverfi að hugsjón sinni, heldur á það að reyna að hlú að þeim þroska sem hamingjan nærist á. Og þá fyrst er það sjálft mikilvægur þáttur þeirra verðmæta, sem helzt skipta máli, þegar upp er staðið. Við trúum því, að þessi verð- mæti séu til og um þau eigi að fjalla í Morgunblaðinu eins og allt annað. Hvað sem öllu líður, já, hvað sem áróðri líður, er blað allra landsmanna vettvangur þjóðarinnar. Þar hafa menn skeggrætt gegnum tíðina og þar er þjóðfélagstorgið þétt skipað. Á það má enn minna að Morgun- blaðið hefur ávallt átt sinn dag eins og Einar Benediktsson segir í Pundinu og vonandi hefur okk- ur stundum tekizt að leika á þann streng sem blaðið okkar á fegurstan og sannastan. Sá tónn er mikilvægur því hann er berg- mál úr þjóðardjúpinu. Og nú heyrist hann úr nýju og fallegu umhverfí sem ber höfundum sín- um fagurt vitni. Fylgt til hafnar VARÐSKIP kemur með rækjubátinn Ogmund til hafnar í Siglufirði á annan í páskum Morgunblaðið/Sverrir • • Rækjubáturinn Ogmundur strandaði í Siglufirði Otrulega litlar skemmdir RÆKJUBÁTURINN Ögmundur RE-94 strandaði á Staðarhólsfjöru rétt við Siglufjörð snemma morguns á annan í páskum. Báturinn var á töluverðri ferð er hann tók niðri og segir Kristján Elíasson skip- stjóri að miðað við höggið sem kom séu skemmdir á bátnum ótrúlega litlar, aðeins eitt botnstykki skemmt og kjölurinn nuddaður. Kristján segir að báturinn haldi aftur á veiðar í kvöld. Mikil fundarhöld aðila vinnumarkaðar og ríkisstjórnar í gær Brugðið getur til beggja vona með gerð samninga Enn deilt um afturvirkni í kjaradeilunni í Straumsvík Svarta þoka var á þessum slóðum, en logn og blíða, er óhappið varð og Ögmundur á leið til hafnar í Siglu- fírði með um 22 tonna rækjuafla. Kristján segir að hann hafí verið sofandi er óhappið varð en vaknaði við höggið og skruðninga er því fylgdu. „Við kölluðum strax eftir aðstoð og okkur var tjáð að varðskip væri í um þriggja tíma siglingu frá okkur,“ segir Kristján. „Varðskipið náði síðan til okkar upp úr klukkan ellefu og varðskipsmenn hófu strax undirbúning að því að koma bátnum á flot.“ Þegar Ögmundur strandaði skömmu eftir klukkan sjö um morg- uninn var byijað að falla frá og því hallaði báturinn meir og meir er leið á morguninn. Segir Kristján að hall- inn hafí numið mest um 40 gráðum er byijaði að falla að aftur. Varðskipsmenn settu taug um borð í Ögmund, kipptu í bátinn og hann rann á flot aftur um klukkan hálf eitt. Síðan fylgdi varðskipið bátnum til hafnar á Siglufirði en strandið var í aðeins hálfrar mílu fjarlægð frá gömlu hafnarbryggjun- um á Siglufirði. Kristján vill koma sérstökum þökkum á framfæri til varðskips- manna sem björguðu Ögmundi af strandstað svo og til björgunarsveit- arinnar Stráka á Siglufírði. MIKIL óvissa ríkti í gær- kvöldi um hvort tækist að ná kjarasamningum aðila vinnu- markaðarins með atbeina ríkisvaldisins eða ekki, en talsmenn úr röðum beggja aðila voru sammála um að það hlyti að skýrast innan tíðar. Fundað var í kjaradeil- unni í álverinu í Straumsvík í gær, en þar var enn deilt um hvort 1,7% launahækkun samsvarandi launahækkun í miðlunartillögu ríkissátta- semjara á síðasta ári ætti að vera afturvirk eða gilda frá undirskrift samninga. Fulltrúar Alþýðusambands ís- lands, Vinnuveitendasambands ís- lands og Vinnumálasambands sam- vinnufélaganna funduðu með ríkis- stjórninni í gærmorgun, þar sem þeim var kynnt niðurstaða af fundi ríkisstjórnarinnar á skírdag varð- andi það með hvaða hætti stjórn- völd gætu stuðlað að gerð kjara- samninga. Voru aðilar ósáttir við svör ríkisstjórnarinnar, einkum inn- an raða Alþýðusambandsins, og töldu þeir að í raun hefði staðan í samningamálunum ekkert breytst frá því fyrir páska er hlé var gert á viðræðunum. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins voru það einkum fjögur atriði sem gerðar voru athugasemd- ir við. í tillögum ríkisstjórnarinnar var gert ráð fyrir að lækkun virðis- aukaskatts á matvöru úr 24,5% í 14% taki gildi frá áramótum, en gerð hafði verið krafa um að lækk- unin kæmi til framkvæmda í haust. Þá fannst mönnum yfirlýsing ríkis- stjórnarinnar um vaxtamál gagn- slítil og sama gilti um yfirlýsingu um lylja- og lækniskostnað. í svari ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að aflétta 2,5% tryggingargjaldi af útflutningsgreinum og vilja menn að það gildi fyrir allt þetta ár en ekki frá gerð samninga, en það er talið kosta um 800-900 milljónir á heilu ári. Ögmundur Jónasson, formaður samninganefndar BSRB, sagði í samtali við Morgunblaðið að fulltrú- ar ríkisins hefðu kynnt tillögur ríkisstjórnarinnar um að fé yrði látið renna til atvinnuskapandi að- gerða, virðisaukaskattur á matvæl- um lækkaður og tryggingagjald á útflutningsatvinnugreinar fellt nið- í svari ríkisstjórnarinnar er sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins ennfremur gert ráð fyrir lækkun hafnargjalda og að þorskígildum í hagræðingarsjóði yrði úthlutað endurgjaldslaust. Lækkun virðis- aukaskatts á matvælum er talin kosta um þrjá milljarða króna, en verð sælgætis og gosdrykkja verður ur tímabundið. Á móti yrði tekinn upp skattur á fjármagnstekjur, en hann dugaði ekki nema að litlu leyti til að fjármagna aðgerðirnar. „Þeg- ar kemur að því að fá svör við því, hvernig eigi að snúa sér varðandi fiármögnun, eru þau ekki fyrir hendi. Allir endar eru þarna óhnýtt- ir og staðan mjög svipuð og var óbreytt og er því náð frarti með hækkun vörugjalda. Til að mæta tekjutapinu er gert ráð fyrir álagn- ingu 10% flats skatts á fjármagns- tekjur og er það talið gefa 700- 1.000 milljónir í tekjur. Óánægja ríkti ennfremur með það að ekki skyldi koma fram í svari ríkisstjórn- arinnar hvemig þeirra tekna sem á vantaði til að mæta tekjutapinu yrði aflað. fyrir páskafrí. Það kom mönnum sannast sagna mjög á óvart,“ sagði Ögmundur. Fjármögnun sótt til almennings? Hann sagðist hafa rökstuddan gran um að fjármögnun aðgefð anna yrði sótt í vasa hins almenna launamanns með lækkun bóta úr almannatryggingakerfínu, hækkun þjónustugjalda og öðrum slíkum aðgerðum eða þá að skorið yrði niður hjá ríkinu, þjónusta skert og störfum fækkað. „Reyndar var á ráðherrum að skilja að sú kynni að verða raunin, í þeim viðræðum sem við áttum við þá fyrir páskahelg- ina. Þetta þykir mönnum ekki fýsi- legur kostur og hefur vakið mjög litla lukku í okkar búðum,“ sagði Ögmundur. Ríki og sveitarfélög funda með BSRB o g Kennarasambandi Boðið upg á eins samn- ing og ASI og VSI ræða BSRB hafnar samningum af þessu tagi en kennarar hugsa sig um SAMNINGANEFND ríkisins og sveitarfélaga átti í gær fund með samninganefnd Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Opinberum starfsmönnum var boðið upp á sams konar samn- ing og þann, sem rætt hefur verið um í viðræðum Alþýðusam- bandsins og vinnuveitenda og kynntar þær aðgerðir, sem ríkisstjórnin er tilbúin að ráðast í til að greiða fyrir samning- um. Um er að ræða samning án kauphækkana, en með greiðslu sams konar uppbóta og í síðasta samningi, fram til ársloka 1994. BSRB hafnaði samningi af þessu tagi, en kenn- arar tóku sér umhugsunarfrest, að sögn Þorsteins Geirsson- ar, formanns samninganefndar ríkisins. Eldsvoði í Grindavík Brennu- varga er leitað Grindavík. MIKIÐ tjón varð þegar eldur kom upp í söluturninum Stjörnunni í Grindavík að morgni annars í pásk- um. Talið er að brotist hafi verið inn í söluturninn og kveikt í honum. Leitað er þeirra sem þarna voru að verki. Það var laust fyrir klukkan fimm að morgni mánudags sem lögreglunni í Grindavík barst tilkynning um að mikinn reyk legði frá sölutuminum og var slökkvilíði gert viðvart. Mikill reykur barst frá þaki hússins og þurftu slökkviliðsmenn að byija á því að ijúfa þakið. Við það gaus upp mik- ill eldur og logaði í þakinu. Slökkvilið- inu tókst að ná tökum á honum og slökkvistarf stóð yfír í rúman klukku- tíma. Að sögn Ásmundar Jónssonar va- raslökkviliðsstjóra var mestur eldur milli þilja á þaki og hitinn gríðarleg- ur. Rannsóknarlögregla ríkisins stjómar rannsókn og fann ummerki innbrots og upptök eldsins voru rakin í skrifstofu sem er bakatil í húsinu. Ljóst er að tjón er mikið í brunanum. Eldur kom einnig upp í Stjörnunni í september í fyrra. FÓ Zinkskammtur, litaðar glærur og gleraugu hjálpa lesblindum Ný sýn á lestrarerfíðleika NÝ AÐFERÐ við kennslu lesblindra, sem nálg- ast mjög svið læknisfræðinnar, er óðum að fá hljómgrunn hjá íslensku skólafólki. Aðferð, sem byggist á lestri í gegnum litaðar glærur og steinefnagjöf með aðaláherslu á zinki, er að ryðja sér til rúms víða erlendis. Gyða Stef- ánsdóttir, sérkennari í kennslu lesblindra, kynnti þessa aðferð í viðtali í Morgunblaðinu 16. mars síðastliðinn. I framhaldi af því var leitað álits í Selásskóla og Menntaskólanum í Kópavogi, þar sem Gyða hefur kennt og land- læknir inntur eftir læknisfræðilegum viðhorf- um. Ólafur Ólafsson landlæknir sagði að upplýsing- um, sem birst hafa um þessar aðferðir, hefði verið safnað á vegum landlæknisembættisins. Hann segir að áhrif zinksins séu mjög umdeild, engar sannanir liggi fyrir, ennþá lítið í læknis- fræðibókum til að byggja á og sérfræðingar hér á landi séu mjög vantrúaðir á gagnsemi þess. Myndi styðja rannsóknir Landlæknir segir að hann myndi styðja rann- sóknir á þessu sviði ef hæft fólk og fjármagn fengist. „Eg hef trú á aðferð Gyðu og því sem hún er að gera. Hún hefur náð góðum árangri með því að aðstoða börn og hefur sýnt mikla útsjónarsemi, þrautseigju og þolinmæði.“ Matti Tolonen, læknir og dósent við Háskólann í Helsinki, yfirfærði breska rannsókn á hjálpar- bekk finnskra barna sem áttu í lestrarerfiðleikum. í bréfí til Gyðu lýsir hann því sem persónulegri skoðun, svo og skoðun kennara og foreldra þess- ara barna, að þessi tegund af bætiefnagjöf hafi gagnast börnunum bæði við lestrar- og skriftar- erfiðleika. Ótrúlegar framfarir „Ég er sannfærð um að þessi aðferð getur skipt sköpum. Það eru ótrúlegar framfarir hjá þessum börnum undir handleiðslu Gyðu,“ segir Kristín Tryggvadóttir, skólastjóri í Selásskóla, þar sem Gyða hefur verið með sérkennslu í þijú ár. „Lituðu glærurnar hjálpa tvímælalaust mjög mikið, einnig þessi mikla samvinna við foreldra og það hlýtur að geta haft áhrif á heilastarfsem- ina ef mikilvæg steinefni skortir í líkamann." Kristín segist ekki geta dæmt um, hvað af þessu þrennu hafi mest áhrif, foreldraaðstoð, zink- skammtur eða litaðar glærur, en hún segist hvetja Gyðu til að halda áfram á sömu braut. Fleiri börn með lestrarerfiðleika Kristín kenndi byijendum að læra að lesa í samfleytt 12 ár í kringum 1960-’70 og hefur því góðan samanburð á lestrarnámi þá og nú. Hún segir að miklu fleiri börn eigi í erfiðleikum að læra að lesa nú en áður. „Ég hef orðið vitni að því, að þó nemendur hafí lært bæði stafi og hljóð eiga þau í meiri etfíðleikum með að tengja saman stafína en áður. Öll starfsemi líkamans þarf að vera í eðlilegu formi. Kannski stafar það af nær- ingarefnaskorti, að þau geta ekki einbeitt sér eða sjá vitlaust. “ Kristín segir, að ekki séu allir kenn- arar sammála þessu, en allir hljóti að styðja rann- sóknir á þessum málum. Allir lifna við Margrét. Friðriksdóttir, skólameistari Mennta- skólans í Kópavogi, segir ótrúlegt hvað nýja að- ferðin hafi gefið góða raun hjá fornámsnemendum skólans. „Við erum búin að vera með fornámsde- ildir í MK í 11 ár og að sjálfsögðu er búið að reyna margar aðferðir. Námserfiðleika forná- msnemenda má fyrst og fremst rekja til lestra- rörðugleika. Gyða kemur inn í fornámið með að- ferð, sem eru töluvert útbreidd í öðrum löndum, en algjör nýjung hér á landi.“ Margrét segir að ennþá liggi ekki fyrir mark- tækar tölur um námsárangur. „En við sjáum þegar svo mikinn árangur, að allir lifna við. Skóla- meistarafélagið hefur beðið Gyðu um að mæta á næsta aðalfund okkar í vor og kynna þessa að- ferð. Þetta gefur vonir um nýja sýn, en að sjálf- sögðu þarf að skoða þessa hluti og rannsaka betur.“ Höfum ekki tíma til að bíða „Ef við ættum að bíða eftir heildarniðurstöðum úr rannsóknum myndu mörg börn verða fullorðin án þess að ná tökum á lestri," segir Gyða. „Ég vil byrja að vinna strax. Ennþá er ég ein með þetta, en vonast eftir að geta sannfært fleiri. Mér sýnist vera full þörf á lækni sem sinni þessu eingöngu." Gyða stefnir til ísraels með haustinu. Hún seg- ir, að í ísraelskum skólum hafí til skamms tíma verið 60% fall hjá aðfluttum börnum frá öðrum nienningarstigum. Til að vinna bug á þessu hafí ísraelsmenn reynt svipaðar aðferðir og tekist að ná árangri í kennslu þessara barna. „Hvers vegna ættum við, svona fámenn, ekki líka að geta gert það! Þetta er þess virði að skoða það.“ O.B.Sv. Ríkisendurskoðun svarar Hrafni Uttekt aðeins að ósk þingforseta RÍKISENDURSKOÐUN hefur hafnað beiðni Hrafns Gunnlaugs- sonar, framkvæmdastjóra sjónvarps, um úttekt á fjárhagslegum samskiptum hans í starfi dagsskrársljóra í sjónvarpinu við stofnun- ina. Hrafn hafði ekki bréf ríkisendurskoðunar fyrir framan sig þegar Morgunblaðið ræddi við hann en sagði að í efnislegum inn- taki þess fælist vísun til þess að aðeins yrði gerð úttekt á sam- skiptum einstaklings við ríkisstofnun að ósk þingforseta eða fyrir tilstilli þingmanna í gegnum þingforseta. Hann segist vona að þeir þingmenn sem hafi atað persónu hans aur á þingi noti nú tækifærið og sjái sóma sinn í að fara fram á umrædda úttekt svo þessum pólitíska hráskinnaleik megi ljúka. Hrafn sagði að í framhaldi af því að hann hefði orðið fyrir hörðum árásum og rógi í ræðum þing- manna er nytu þinghelgi og á stað þar sem hann hefði ekki tækifæri til að svara fyrir sig hefði hann leitað ráða hjá föður sínum sem væri lögfræðingur um það hvernig hann gæti hreinsað mannorð sitt. Faðir hans hefði sagt honum að kannski væri eina leiðin að snúa sér til ríkis- endurskoðunar og hefði hann því farið fram á að hún gerði úttekt á fjárhagslegum samskiptum hans í starfi dagskrár stjóra hjá sjónvarp- inu við stofnunina. Hvað frávísun ríkisendurskoðunar varðaði sagðist Hrafn vonast til áð þeir þingmenn sem atað hefðu per- sónu hans aur á þingi notuðu nú tækifærið og sæju sóma sinn í að óska eftir því við þingforseta að umrædd úttekt yrði gerð svo þessum pólitíska hráskinnaleik mætti ljúka. Sjálfur legði hann áherslu á úttektin færi fram enda teldi hann sig hafa algjörlega hreinan skjöld í málinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.