Morgunblaðið - 14.04.1993, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1993
Þróunarsjóðnum ætlað að
stuðla að aukinni arðsemi
NEFNDIN gerir svohljóðandi
grein fyrir Þróunarsjóði sjávar-
útvegsins:
„Auk hins djúpstæða skoðana-
munar um veiðigjald sem leysa
þurfti voru skuldastaða og offjár-
festing sjávarútvegsins viðfangs-
efni sem taka þurfti til umfjöllunar'
við mótun sjávarútvegsstefnu.
Samkomulagi ríkisstjórnarinnar
úm stofnun Þróunarsjóðs sjávarút-
vegsins er ætlað að taka á þessum
málum.
Umframafkastageta er bæði í
veiðum og vinnslu og varð hún enn
sýnilegri en áður með tilkomu afla-
markskerfisins. Finna þurfti leið
til að auðvelda sjávarútveginum
að laga afkastagetu sína að minni
heildarafla og markvissari sókn.
Þá er skulda- og afkomustaða
sjávarútvegsins slík að mikil gjald-
þrot blasa við með ófyrirsjáanleg-
um afleiðingum fyrir fyrirtæki
sem í hlut eiga, bankakerfið, lána-
sjóði og eintök byggðalög, ef ekk-
ert verður að gert.
Þróunarsjóðnum er fyrst og
fremst ætlað að ná tökum á um-
framafkastagetu í greininni á
þann hátt að framleiðslutæki sem
tekin eru úr rekstri verði ekki tek-
in í notkun að nýju. Markmiðið
er að taka húsnæði, áhöld og að-
stöðu úr rekstri og draga þannig
varanlega úr afkastagetu greinar-
innar.
Hlutverk Þróunarsjóðs sjáv-
arútvegsins er á þennan hátt að
stuðla að aukinni arðsemi í sjávar-
útvegi. I því skyni getur sjóðurinn
keypt fiskvinnslustöðvar og fram-
leiðslutæki þeirra og greitt styrki
vegna úreldingar fiskiskipa. Jafn-
framt er sjóðnum ætlað að stuðla
að skipulagsbreytingum í sjávar-
útvegi í samvinnu við lánastofnan-
ir, enda leiði slík endurskipulagn-
ing til verulegrar hagræðingar.
Þá er sjóðnum heimilt að greiða
fyrir þátttöku sjávarútvegsfyrir-
tækja í verkefnum erlendis með
fjárhagslegri fyrirgreiðslu og hafa
um það forystu. Þá getur hann
einnig haft samstarf við alþjóðleg-
ar lánastofnanir í þessu skyni.“
Gjald af úthlutuðu aflamarki
„Stofnfé sjóðsins skal vera eign-
ir Hagræðingarsjóðs sjávarútvegs-
ins. Sjóðurinn tekur við eignum
og skuldbindingum atvinnutrygg-
ingadeildar Byggðastofnunar
vegna sjávarútvegsfyrirtækja svo
og eignum og skuldbindingum
hlutaijárdeikiar Byggðastofnunar.
Ríkissjóður leggur sjóðnum til 4
milljarða króna að láni, sem endur-
greiðist á nokkrum árum. Jafn-
framt falla niður lagaákvæði um
Einnig leggur meirihluti
nefndarinnar til að bátar undir 6
brúttórúmlestum, sem völdu afla-
mark á sínum tíma, fái 825 tonna
viðbótarúthlutun þannig að heild-
araflamark þeirra verði aldrei und-
ir 4.725 tonnum, en núverandi
aflamark þessara báta er 3.900
tonn.
Með þessu móti verður meðal-
aflamark krókaleyfisbáta 11,8
þorskígildistonn. Meirihluti nefnd-
Hagræðingarsjóð sjávarútvegsins.
Um úreldingarstyrki vegna
fiskiskipa skulu gilda svipuð
ákvæði og í lögum um Hagræðing-
arsjóð sjávarútvegsins.
Þá er sjóðnum ætlað að kaupa
fiskvinnslustöðvar og föst fram-
leiðslutæki þeirra í því skyni að
auka arðsemi fiskvinnslu í landinu,
enda hafi viðkomandi stöð fengið
útgefið fullgilt vinnsluleyfi eða að
fiskvinnsla hafi verið stunduð í
fasteigninni með tilskildu vinnslu-
leyfi síðustu ár og henni hafi ekki
verið ráðstafað varanlega til ann-
arra nota. Það er jafnframt skil-
yrði að þær eignir sem sjóðurinn
kanna að festa kaup á séu afhent-
ar veðbandslausar.
Stjórn sjóðsins skal leitast við
að selja þær fasteignir sem sjóður-
arinnar telur nauðsynlegt að bæta
þeim bátum undir 6 tonnum, sem
völdu aflamark frá fiskveiðiárinu
1991, að einhveiju leyti þá skerð-
ingu aflaheimilda sem þeir hafa
orðið fyrir vegna þess að eigendur
þeirra hefðu átt þess kost að velja
krókaleyfi, sem hefði e.t.v. fært
meiri aflahlutdeild.
Takmarkað framsal
Þá er lagt til að varanleg afla-
inn eignast til óskyldrar starf-
semi. Skal þeirri kvöð þinglýst á
fasteignirnar að þær verði ekki
framar nýttar til fiskvinnslustarf-
semi.
Þá er samkomulag um að frá
og með því fiskveiðiári sem hefst
þann 1. september 1996 skuli inn-
heimt gjald af úthlutuðu afla-
marki. Upphæð þessa gjalds skal
miðast við að sjóðurinn geti staðið
undir skuldbindingum þeim sem
hann tekur á sig. Skal gjaldið
renna til sjóðsins á meðan hann
starfar, en sjóðurinn verður í eigu
íslenska ríkisins. Þessi gjaldtaka
er málamiðlun stjórnarflokkanna
í veiðigjaldsmálinu. Þegar hún lá
fyrir taldi nefndin ekki tilefni til
að vinna frekar að þessum mála-
flokki.“
hlutdeild og viðbótarúthlutun til
báta undir 6 brúttólestum verði
aðeins framseljanleg til annarra
báta í sama flokki með það að
markmiði að takmarka eins og
unnt er röskun í útgerðarmynstr-
inu.
Einn nefndarmanna, Árni Vil-
hjálmsson, mælti með að tekið yrði
á málum krókaleyfisbáta á þann
hátt sem ákveðið væri í gildandi
lögum og taldi að með tillögu
meirihluta nefndarinnar væri
gengið óhóflega langt á kostnað
annarra útgerða og sjómanna, auk
þess sem hann lýsti sig andvígan
hvers konar takmörkun á fram-
salsrétti veiðiheimilda smábát-
anna.
Krókaleyfisbátar fái 70% af
aflareynslu síðasta fiskveiðiárs
MEIRIHLUTI nefndar um mótun sjávarútvegsstefnu leggur til að
krókabátar fari á aflamark strax 1. september næstkomandi. Næg
reynsla af núgildandi fyrirkomulagi liggi fyrir og óþarft að láta
ákvörðun þess efnis bíða til 1. september 1994 eins og gert hefur
verið ráð fyrir. Meirihluti nefndarinnar leggur til að krókaleyfisbát-
um verði í heild úthlutað 70% af aflareynslu krókaleyfisbáta á fisk-
veiðiárinu 1991-1992, eða sem jafngildir 13.275 þorskígildistonna
kvóta, en að óbreyttu bæri þeim 4.300 tonna aflamark.
Athafna-
frelsi er-
lendra skipa
í höfnum
verði aukið
ATHAFNAFRELSI erlendra
skipa í íslenskum höfnum verð-
ur aukið, samkvæmt tillögum
nefndar um mótun sjávarút-
vegsstefnu. Nefndin gerir þann-
ig grein fyrir tillögu sinni:
„Leyfi erlendra skipa til athafna
í íslenskum höfnum hefur lengst
af verið afar takmarkað. Ástæða
þessa hefur öðru fremur verið vilji
til þess að gera veiðar erlendra
skipa hér við land erfiðari en ella,
enda oftar en ekki verið að veiða
úr fiskistofnum í samkeppni við
íslensk fiskiskip og í andstöðu við
hugmyndir íslendinga um eignar-
rétt á fiskistofnunum. Útfærsla
landhelginnar og almenn þróun
hafréttarmála hafa breytt viðhorf-
um í þessum málum. Yfírráð ís-
lendinga yfir fiskistofnum eru í
meira mæli viðurkennd nú en áður
og náðst hefur samkomulag um
nýtingu flestra þeirra stofna, sem
teljast vera sameiginlegir með öðr-
um. Alþingi hefur því séð ástæðu
til þess að slaka á þeim takmörk-
unum sem gilt hafa um athafna-
frelsi erlendra skipa í íslenskum
höfnum, enda fylgja þeim umsvif-
um verkefni og tekjur fyrir íslend-
inga. Þetta styður einnig þá þróun
sem er að hefjast. að íslensk fyrir-
tæki fjárfesti í erlendum útgerðar-
fyrirtækjum, og nái þannig meiri
áhrifum en ella á veiðum og
vinnslu sjávarafla.
Þær tilslakanir sem Alþingi hef-
ur ákveðið um athafnafrelsi er-
lendra skipa í höfnum landsins,
virðast ekki vera nægilega óyggj-
andi til þess að tryggja þann að-
gang, jafnvel þótt skipin séu að
meirihluta í eigu íslenskra aðila.
Nefndin telur því þörf á að opna
þessar heimilir enn frekar.“
Starfslaunum úthlut-
að tíl listamanna
Úthlutunarnefndir lista-
mannalauna hafa lokið störf-
um. Alls bárust 434 umsóknir
um starfslaun listamanna og
var eftirtöldum listamönnum
veitt starfslaun:
Úr Listasjóði:
3 ár:
Áshildur Haraldsdóttir,
Bryndís Halla Gylfadóttir,
Þorsteinn Gauti.
1 ár:
Halldór E. Laxness,
Hallveig Thorlacius,
Jón Aðalsteinn Þorgeirsson,
Sigrún Eðvaldsdóttir.
6 mánuði:
Alda Arnardóttir,
Arnaldur Arnarson,
Auður Bjarnadóttir,
Edda Erlendsdóttir,
Elva Ósk Ólafsdóttir,
Guðmundur Jónsson,
Guðný Guðmundsdóttir,
Guðríður St. Sigurðardóttir,
Gunnar Kvaran,
Helga Arnalds,
Inga Bjarnason,
Katrín Didriksen,
Kristinn H. Árnason,
Kristín Jóhannesdóttir,
Messíana Tómasdóttir,
Pétur Eggertz,
Pétur Jónasson,
Ragnheiður Tryggvadóttir,
Selma Guðmundsdóttir,
Sigrún Valbergsdóttir,
Snorri Þórisson,
Sverrir Guðjónsson,
Valgeir Guðjónsson,
Þór Hrafnsson Tulinius,
Þórunn Sigurðardóttir,
Örn Magnússon.
Ferðastyrk:
Ásdís Skúiadóttir,
Einar Kristján Einarsson,
Guðrún Birgisdóttir,
Hlín Gunnarsdóttir,
Kolbrún Kristjana Halldórsdóttir,
Kristín G. Magnús,
Martial Guðjón Nardeau.
Úr Tónskáldasjóði:
3 ár:
Þorkell Sigurbjörnsson.
1 ár:
Jónas Tómasson.
6 mánuði:
Hilmar Þórðarson,
Lárus H. Grímsson,
Tómas Ragnar Einarsson.
Ferðastyrk:
Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson,
Þorsteinn Hauksson.
. Auk þess voru veitt listamannalaun
til þeirra listamanna sem fengið hafa
listamannalaun undanfarin ár og eru
orðnir 60 ára og eldri, skv. 3. gr.
laga nr. 35/1991 og ekki fengu
starfslaun. Hver fær styrk að fjárhæð
kr. 87.000. Þau eru:
Agnar Þórðarson,
Ármann Kr. Einarsson,
Árni Björnsson,
Benedikt Gunnarsson,
Bragi Ásgeirsson,
Bragi Siguijónsson,
Einar G. Baldvinsson,
Eiríkur Smith,
Elías B. Halldórsson,
Eyþór Stefánsson,
Filippía Kristjánsdóttir,
Gísli Halldórsson,
Gísli Magnússon,
Gísli Sigurðsson,
Guðmunda Andrésdóttir,
Guðmundur Ingi Kristjánsson,
Guðmundur Jónsson,
Guðmundur L. Friðfínnsson,
Gunnar Dal,
Gunnar Eyjólfsson,
Hallgrímur Helgason,
Helgi Sæmundsson,
Herdís Þorvaldsdóttir,
Hjörleifur Sigurðsson,
Hrólfur Sigurðsson,
Hörður Ágústsson,
Jóhannes Geir Jónsson,
Jóhannes Helgi Jónsson,
Jóhannes Jóhannesson,
Jón Ásgeirsson,
Jón Björnsson,
Jón Dan Jónsson,
Jón Óskar,
Jón Þórarinsson,
Jónas Árnason,
Kjartan Guðjónsson,
Kristinn Hallsson,
Kristinn Reyr,
Kristján Einarsson,
Magnús Blöndal Jóhannsson,
Magnús Jónsson,
Ólöf Pálsdóttir,
Óskar Aðalsteinn,
Pjetur Friðrik Sigurðsson,
Róbert Arnfinnsson,
Rúrik Haraldsson,
Rögnvaldur Sigurjónsson,
Sigurður Hallmarsson,
Sigurður Sigurðsson,
Skúli Halldórsson,
Stefán Júlíusson,
Steingrímur St.Th. Sigurðsson,
Svava Jakobsdóttir,
Sveinn Björnsson,
Veturliði Gunnarsson,
Vilborg Dagbjartsdóttir,
Þórunn Elfa Magnúsdóttir,
Þuríður Pálsdóttir,
Örlygur Sigurðsson.
Úr Launasjóði rithöfunda:
3 ár:
Pétur Gunnarsson,
Þórarinn Eldjárn.
1 ár:
Einar Már Guðmundsson,
Fríða A. Sigurðardóttir,
Gyrðir Elíasson,
Ingibjörg Haraldsdóttir,
Ólafur Haukur Símonarson,
Vigdís Grímsdóttir.
6 mánuði:
Andrés Indriðason,
Berglind Gunnarsdóttir,
Birgir Sigurðsson,
Birgir Svan Símonarson,
Böðvar Guðmundsson,
Egill Egilsson,
Einar Heimisson,
Guðjón Friðriksson,
Guðlaugur Arason,
Guðmundur Andri Thorsson,
Guðmundur Ólafsson,
Guðmundur .Steinsson,
Hallgrímur Helgason,
Hannes Sigfússon,
Heiður Baldursdóttir,
Iðunn Steinsdóttir,
Inga Huld Hákonardóttir,
Ingibjörg Hjartardóttir,
ísak Harðarson,
Jónas Þorbjarnarson,
Kristín Ómarsdóttir,
Kristín Steinsdóttir,
Kristján Kristjánsson,
Linda Vilhjálmsdóttir,
Nína Björk Árnadóttir,
Oddur Björnsson,
Ólafur Gunnarsson,
Páll Pálsson,
Rúnar Ármann Arthúrsson,
Rúnar Helgi Vignisson,
Sigfús Bjartmarsson,
Sigfús Daðason,
Sigurður A. Magnússon,
Sigurður Pálsson,
Siguijón B. Sigurðsson - Sjón,
Stefán Hörður Grímsson,
Sveinbjörn I. Baldvinsson,
Þorgeir Þorgeirson,
Þorsteinn frá Hamri,
Þórður Helgason,
Þórunn Valdimarsdóttir.
Úr Launasjóði myndlistarmanna:
3 ár:
Kristján Guðmundsson,
Tumi Magnússon.
1 ár:
Ásgerður Búadóttir,
Daði Guðbjörnsson,
Georg Guðni Hauksson,
Hannes Lárusson,
Ingólfur Arnarson,
Jón Óskar Hafsteinsson,
Sigurður Árni Sigurðsson,
Svala Sigurleifsdóttir.
6 mánuði:
Arngrunnur Ýr Gylfadóttir,
Bjarni H. Þórarinsson,
Helgi Gíslason,
Hringur Jóhannesson,
Jón Axel Björnsson,
Kolbrún Björgólfsdóttir,
Kristín Gunnlaugsdóttir,
Kristján Steingrímur Jónsson,
Magnús Pálsson,
Sigrún Guðjónsdóttir,
Sigurður Örlygsson,
Sverrir Ólafsson,
Valgerður Hauksdóttir,
Þorvaldur Þorsteinsson.
Ferðastyrk:
Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir,
Hafdís Ólafsdóttir,
Hafsteinn Austmann,
Haraldur Jónsson,
Margrét Jónsdóttir,
Ólafur Gíslason.