Morgunblaðið - 14.04.1993, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 14.04.1993, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1993 35 Var Bólu-Hjálmar fyrsti popparinn? eftir Guðmund Guðmundarson Svo lágt geta menn lagst að vera að velta fyrir sér framangreindri spurningu og setja jafnvel samasem- merki á milli Bólu-Hjálmars og Bubba Morthens! Og venju sam- kvæmt eru svo fáránlegar vanga- veltur látnar afskiptalausar og við- komandi sleppur við verðskuldaða hirtingu. Ég fæ ekki betur séð en mennta- snobbararnir séu með slíkum hug- leiðingum að gera eins konar loka- aðför að hinu helga vígi ijóðlistar á Islandi. Einni okkar merkustu menn- ingararfleifð. Nú skal jarða ljóðstafi og brageyra með sem mestri háðung! Að sjálfsögðu má Bubbi í friði fara fyrir mér með sínar' yrkingar og lagasmíði. Hins vegar er ástæðu- laust að láta háskólaborgarana kom- ast upp með slíka speki átölulaust. Við skulum skoða örfá sýnishorn af ljóðagerð þessara garpa: Bubbi: Sárir góraar, flegnar hendur vöðvar gráta. Vilja ekki meir en áfram er þrælað, áfram púlað hugsað um hetjur Hemmingways. Þegar tími gefst til aflögu er drukkið og reykt hass. Það er slegist, það er riðið austur á fjörðum eða norður í rass. Bólu Hjálmar: Ei er kyn, þótt ort sé hér á landi hvar upplýsingin geisar lítt stöðvandi, svo kvæðasmiðir kalla má komi út úr steinum blá með hljóðin há. Gamburmosar gefa frá sér töðu, gnóg í mærðar hlöðu. íslenzkan er orða fijósöm móðir, ekki þarf að sníkja, bræður góðir, né heilum stela hendingum og hugmyndanna vendingum, með skjall og skrum, frá þeim, sem við fátækt sína þreyja og fordildarlaust deyja. „En eru þá bögubósar og hortittasmiðir titlað- ir ljóðskáid? Já, að sjálf- sögðu og margir þeirra komnir á skáldastyrk að auki!“ Náfregn: Dó þar einn úr drengja flokk, dagsverk hafði unnið, lengi á sálar svikinn rokk syndatogann spunnið. Finnst einhveijum að hér sé um hliðstæðan skáldskap að ræða? Við skulum líka athuga síðustu jólaplötu Bubba: Þingmannagæla: Er nokkuð skárra að lifa úti á landi eða er lömunin betri hér. Er það praktískt að sjúga mjólk úr sandi er hægt að synda í fijósandi hver. Þingmaður og svarið er: Já. Já. Þingmaður og svarið er: Nei. Nei. Er sólin víxill, sem vaknar hjá Denna? er vorið misnotað bam? Er Jónas Hallgnmsson á himnum að brenna? er Hitler að vefa þar garn...? Er helvíti Dantes íslands óður allt hafíð bleik klósettskál? Var Neró hinn ljúfi á lýruna góður? Hafa lögfræðingar sál? Þingmaður og svarið er: Já. Já. ■, Þingmaður og svarið er: Nei. Nei. Sem betur fer voru skárri textar á plötunni en þetta sullumbull. Bubbi var talinn „ástsælasta ljóðskáld æsk- unnar“ í fjölniiðium nýlega. Minna dugði ekki og því full ástæða til að skoða framleiðsluna. Barnabókasér- fræðingurinn Silja Aðalsteinsdóttir taldi á sinum tíma æskilegt að leiða börnin inn í undraheim ljóðlistar í gegnum ijóðagerð Bubba, sem yrkir um veruleika, sem börnin skilja svo vel!!! Það er tími til kominn að eldri Guðmundur Guðmundarson kynslóðin geri sér grein fyrir, hveiju „ástsælasta ljóðskáld æskunnar“ og allir hinir eru smygla frá sér í hug og hjörtu æskufóíks. Skoðum enn smábrot af ljóðagerð Hjálmars: Sálarskip mitt fer halt á hlið og hrekur til skaðsemdanna, af því það geingur illa við andvirði freistinganna. Sérhveijum undan sjó jeg slæ, svo að hann ekki fylii, en á hléborðið illa ræ, áttina tæpast grilli. Ónýtan knörinn upp á snýst, aldan þá kinnung skellir, örvæntingar því ólgan víst inn sér um miðskip hellir. Bítur mér fyrir nesin naum í_ Naustavík hjálpar kvergi, Óláns því hrekst í stríðan straum og steyti á Smánarbergi. Sýnist mér fyrir handan haf hátignarskær og fagur brotnuðum sorgar öldum af upp renna vonar dagur. Auðs þótt beinan akir veg ævin treynist meðan. Þú flytur á einum eins og ég allra seinast héðan. Eigin eftirmæli: Hér er grafið hjábarn veraldar eitt, sem þunginn ævidaga þjáði, augnablikið taldi hvert á láði heim að ná til hvilu þessarar. Það er Hjálmar heitinn arfi Jóns, sem hér eirir andláts bundinn fjötrum, undan forsmán, hatri, skorti, tötrum lagðist þreyttur lík í skauti fróns. Læt þetta nægja um samasem- spekina að sinni. Samt er mér spurn. Eru menn, sem ýmsir telja að hafi gott vit á ljóðagerð, að tapa glór- unni — eða hvað?? Ég vona að fræðimaðurinn, sem kom fram í sérstökum sjónvarps- þætti og er víst að skrifa doktorsrit- gerð um Bólu-Hjálmar gleymi ekki samanburðinum við skáldspírurnar nú á tímum, sem mest eru prísaðar og sýni með dæmum, að þær séu rökrétt framhald af Bólu-Hjáimari, sem honum og fleirum þóknast að kalla fyrsta „blúsarann". Spurning mín er, hvort rugl sé rökrétt fram- haid af snilld? Þótt talin sé þörf á endurnýjun ijóðformsins, þá er ömurlegt til þess að hugsa, ef menntamenn almennt telji að ljóðstafir og hrynjandi skipti ekki máli í ljóðagerðinni. Þessu er að sjáifsögðu þveröfugt farið! Að apa eftir alls konar erlendum tískufyrir- bærum er ekki endurnýjun ljóðforms UM MIÐJAN apríl verður byijað á hafnarframkvæmdum fyrir 15 millj. kr. á Bíldudal. Byggður verð- ur 30 metra langur viðlegukantur frá höfninni að flotbryggjunni. Við þessa framkvæmd eykst við- heldur lágkúra, sem fáránlegt er að vegsama. Um leið og aðdáendur óljóða hlýja sér við ylinn úr leirpyttunum, ættu þeir að íhuga, hvenær þeir verði búnir að rugla æskuna svo í ríminu, að hún verði frábitin allri ljóðagerð. Hvenær skyldi annars verða skrif- uð doktorsritgerðin um að ljóðgáfart sé oftar en ekki tekin að erfðum líkt og fögur söngrödd eða hagleikur? Er fólk sem ekki kemur ófölskum tón úr sínum barka titlað söngvarar? Er handarbakamaður, sem ekki get- ur rekið nagla í spýtu án þess að meiða sig, titlaður smiður? Að sjálf- sögðu ekki! En eru þá bögubósar og hortitta- smiðir titlaðir ljóðskáld? Já, að sjálf- sögðu og margir þeirra komnir á skáldastyrk að auki! Finnur „gáfumannafélagið" e.t.v. rósailm leggja frá þeim gorkúlum óljóða, sem tróna á fjóshaug ljóðlist- ar um þessar mundir? legurými verulega í höfninni. Kant- urinn verður úr harðvið. Engar dýpk- unarframkvæmdir verða í tengslum við nýja viðlegukantinn. Ráðgert er að verkinu ljúki í júnílok. R. Schmidt. Höfundur er framkvæmdastjóri. Morgunblaðið/Róbert Schmidt Nýi viðlegukanturinn verður byggður frá höfninni að flotbryggj- unni á svæðinu vinstra megin á myndinni. Bíldudalur Bygging á 30 m við- legukanti að hefjast Bíldudal. RAÐAÍiGi YSINGAR __ HUSNÆÐIOSKAST Fella- og Hólakirkja Húsnæði óskast fyrir organista kirkjunnar fyrir 1. júlí 1993. Sérbýli æskilegt, 3-4 herbergi, í nágrenni kirkju. Fjórir í heimili. Leigutími og fyrirfram- greiðsla samkomulagsatriði. Upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl: fyrir 25. apríl 1993. TILBOÐ ~ ÚTBOÐ Útboðsþjónustan sf. Ármúla 5,108 Reykjavík. Síml 683840, fax 683840. Útboð Útboðsþjónustan sf.,fyrir hönd húsfélagsins Hverfisgötu 105, auglýsir hér með eftir til- boðum í endurnýjun á þakklæðningu, 1. áfanga, á Hverfisgötu 105, Reykjavík. Útboðsgögn verða afhent hjá Utboðsþjón- ustunni, Ármúla 5, 4. hæð, gegn 5.000 kr. skilatryggingu. TIL SÖLU Blómaverslun Til sölu er falleg blóma- og gjafavöruverslun á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Góðir tekju- möguleikar. Gott verð og greiðslukjör. Tilboð óskast send auglýsingadeild Mbl. fyr- ir 19. apríl, merkt: „Bómabúð - 3627“. ÓSKASTKEYPT Pressa fyrir efnalaug Vantar vel með farna buxnapressu fyrir efnalaug. Þeir, sem hafa áhuga, vinsamlegast sendi inn nöfn á auglýsingadeild Mbl., merkt: „Pressa - 12996“, fyrir 20. apríl. SmÚ auglýsingar I.O.O.F. 7 = 1744148'/2 = I.O.O.F. 9 = 1744148’A = □ HELGAFELL 5993041419 IV/I 2 Frl. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía Skrefið kl. 18.00 fyrir 10-12 ára krakka. Bibiíulestur kl. 20.30. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Alir hjartanlega velkomnir. □ GLITNIR 5993041419 2 Frl. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma i kvöld kl. 20.00. REGLA MlJbTERJSRIDDARA RM Hekla 14.4 - VS - FL Frá Sálarrannsóknafélagi íslands Breski miðNlinn Keith Surtees starfar á vegum félagsins frá 15.-30. aprii. Einnig starfar Guð- mundur Mýrdal, huglækninga- miðill, á vegum félagsins til 20. april. Bókanir eru hafnar í símum 18130 og 618130. Stjórnin. IOGT St. Einingin nr. 14 Fundur í Templarahöllinni i kvöld kl. 20.30. „Skemmtum oss við skáldafans''. Félagar fjölmennið. Æ.T. Kynning á Kripalujóga verður haldin laugardaginn 17. apríl kl. 14.00. Allir velkomnir. Byrjendanámskeið hefjast fljót- lega. Jógastöðin Heimsljós, Skeifunni 19, 2. hæð, simi 679181 (kl. 17-19). /ffl\ SAMBANL) ÍSLENZKRA SjáP/ KRISTTNIBOÐSFÉLAGA Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58-60. Árleg fjáröflunarsamkoma Kristniboðsfélags kvenna i kvöld kl. 20.30. Efni i umsjá kristniboðanna Hrannar og Ragnars Gunnars- sonar. Einsöngur: Laufey Geirlaugs- dóttir. Happdrætti, kökusala og kaffi- sala. Samkoman er öllum opin. KENNSLA Heilsunuddstofa Þórgunnu, Skúlagötu 26, Námskeiö í svæðanuddi (helg- arnámskeið). Tilvalið fyrir fólk af landsbyggðinni. ★ Námskeið í ungbarnanuddi. ★ Námskeið i baknuddi. ★ Námskeið í andlitsnuddi. Einnig einkatímar. Góð aðstaða. Margra ára reynsla. Menntun erlendis frá. Upplýsingar, tímapantanir og innritun i síma 21850 eða 624745 (best milli kl. 9-11 f.h.). ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.