Morgunblaðið - 14.04.1993, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1993
að minnsta kosti vist,“ segir Ás-
grímur. Og báðir byijuðu þeir
ungir að spila brids, Ásgrímur
þegar hann var 12 ára með bróð-
ur sínum Boga og Jón þegar hann
var 18 ára nemandi í Verslunar-
skólanum. Synir Jóns, þeir Steinar
og Ólafur, byijuðu enn yngri að
spila eða 10 og 11 ára gamlir.
Þeir hafa orðið íslandsmeistarar
í flokki spilara 25 ára og yngri
tvö sl. ár og unnu íslandsmeist-
aratitilinn í tvímenning yngri spil-
ara í fyrra. Titilinn nú er því fjórði
íslandsmeistaratitilinn sem fjöl-
skyldan vinnur á síðustu tveimur
árum.
Og tveir yngri bræður þeirra
Steinars og Ólafs eru mjög liðtæk-
ir í brids og þegar farnir að vinna
mót á Norðurlandi. Fermingar-
barnið Birkir og bróðir hans Ingv-
ar unnu til dæmis Þorsteinsmótið
á Blönduósi og Fljótamótið í fyrra.
Og Ingvar 12 ára, vann aðaltví-
menning bridsfélagsins á Sauðár-
króki í ár með makker sem hann
hafði aldrei spilað með áður. Ingv-
ar fermist á næsta ári og aðspurð-
ur um hvort hann vilji ekki svip-
aða fermingargjöf og bróðir hans
fékk svarar kappinn: „Það væri
betra að fá heimsmeistaratitil-
inn.“
Á mót mánaðargamall
Eiginkonur þeirra Jón og Ás-
gríms, Björk Jónsdóttir og Guðrún
Sighvatsdóttir, spila báðar brids
og raunar keppir Björk töluvert.
Þær segjast báðar hafa fullan
skilning á þeim tíma og orku sem
eiginmenn þeirra þurfa að eyða í
spilið til að halda sér á toppnum.
Þetta er ekki lítill hluti ársins því
Jón hefur áaetlað að á síðasta ári
hafi sveitin eytt samtals 30 dögum
í ferðalög og keppni.
Björk segir að fjölskyldan þurfi
aldréi að láta sér leiðast heima
við því alltaf sé hægt að grípa i
slag. Aðspurð um hvort henni
hafi ekki þótt leitt að íslands-
meistaramótið setti ferminguna
úr skorðum segir hún að svo hafi
ekki verið. „Mér þótti verst að
komast ekki suður til að fylgjast
með Islandsmótinu," segir hún.
Er Morgunblaðið heimsótti fjöl-
skylduna á heimili þeirra á Siglu-
firði var yngsti meðlimur íjöl-
skyldunnar staddur þar í heim-
sókn, níu mánaða gamall sonur
Ólafs Jónssonar. Sonurinn var
skírður Jón Kort en nafnið helg-
ast ekki af spilaáhuga fjölskyld-
unnar heldur er hann skírður í
höfuðið á langafa sínum sem hét
þessu nafni. „Presturinn ætlaði
aldrei að fást til að skíra drenginn
þessu nafni og við lentum 'í vand-
ræðum við mannanafnanefnd en
að lokum tókst þetta," segir
Björk. Og það var snemma byijað
að venja þennan yngsta meðlim
fjölskyldunnar við brids því hann
var aðeins mánaðargamall er
hann fór í fyrsta sinn með föður
sínum á bridsmót á Akureyri.
Góður stuðningur
bæjarfélagsins
Á Siglufirði er starfrækt öflugt
bridsfélag og segja má að þetta
sé ein höfuðíþrótt bæjarbúa. Um
50 manns keppa reglulega í félag-
inu sem Jón telur einhverskonar
Islandsmet miðað við höfðatölu
því bæjarbúar í heild eru rúmlega
1.700 talsins.
Þeir bræður segja að bæjar-
samfélagið styðji vel við bakið á
þeim og fylgist grannt með ár-
angrinum á landsvísu. „Ég hef
ekki haft við að taka í spaðann á
fólki frá því við komum aftur
norður," segir Ólafur.
Aðspurðir um hvort þeir muni
keppa erlendis ef það stendur til
boða segir Jón að það verði varla.
„Við höfum meiri en nóg með að
keppa innanlands og grobbið í
þessu hjá okkur er að vera Sigl-
firðingar," segir hann. „Enda
fáum við góðan móralskan stuðn-
ing frá bæjarfélaginu auk þess
að við höfum orðið áþreifanlega
varir við að burtfluttir Siglfirðing-
ar fylgjast með árangri okkar.“
Sigurvegararnir frá Siglufirði
SVEIT Sparisjóðs Siglufjarðar sem vann Islandsmeistaramótið, frá vinstri eru þeir Ólafur Jónsson, Ásgrímur Sigurbjörnsson, Jón
Sigurbjörnsson og Steinar. Jónsson.
Islandsmeistarar í brids eru fjölskylda á Siglufirði
íslandsmeistaratitillinn
gefinn 1 fermingargjöf
EINN þeirra er framkvæmdastjóri, annar umboðsmaður, þriðji
bankamaður og fjórði námsmaður. En þeir eiga tvennt sameig-
inlegt, eru allir úr sömu fjölskyldunni á Siglufirði og eru ný-
krýndir íslandsmeistarar í brids. Titilinn hefur töluvert gildi
á alþjóðlegum vettvangi því íslendingar eru núverandi heims-
meistarar í brids og í úrslitaleiknum lagði fjölskyldan að velli
sveit sem skipuð er heimsmeisturum og Norðurlandameisturum
í brids. Islandsmeistarakcppnin fór fram að venju um páskana
á Hótel Loftleiðum. Þegar ljóst var að sveit Sparisjóðs Siglu-
fjarðar myndi komast í úrslitin kom upp sú staða að þeir
gæfu frá sér sætið sökum fermingar í fjölskyldunni á skírdag.
Fermingarbarnið, sem er mjög liðtækur bridsspilari, tók það
ekki í mál og sagðist vilja fá Islandsmeistaratitilinn í fermingar-
gjöf. Varð úr að sveitin hélt á Islandsmótið en fermingarveisl-
unni var frestað fram á páskadag. Þetta er fjórði Islandsmeist-
aratitilinn í brids sem fjölskyldan vinnur á síðustu árum því
yngri meðlimir sveitarinnar, bræðurnir Steinar og Ólafur,
hafa verið í l'remstu röð yngri spilara landsins um nokkurt
skeið og unnu bæði Islandsmótin í þeim flokki í vetur.
íslandsmeistararnir eru bræð-
urnir Jón Sigurbjörnsson og Ás-
grímur Sigurbjörnsson og bræð-
urnir Steinar Jónsson og Ólafur
Jónsson en þeir eru synir Jóns
Sigurbjörnssonar. Einnig spiluðu
bræður þeirra Jóns og Ásgríms,
þeir Bogi og Anton, með sveitinni
í undankeppnum fram að mótinu
en gátu ekki tekið þátt í loka-
sprettinum sökum veikinda. Jón
er framkvæmdastjóri Sjúkrahúss-
ins á Siglufirði, Ásgrímur er um-
boðsmaður VÍS á staðnum og á
hlut í vélaleigu, Ólafur vinnur hjá
sparisjóðnum og Steinar stundar
nám við Fjölbrautaskólann á
Sauðárkróki. Ólafur og Steinar
eru yngstu Islandsmeistarar frá
upphafi en þeir eru 20 ára og 21
árs gamlir.
Leiddu mótið frá upphafi
Þetta er í þriðja skipti sem sveit
Sparisjóðs Siglufjarðar tekur þátt
í íslandsmeistaramótinu skipuð
eins og nú en þeir bræðurnir Jón,
Ásgrímur, Bogi og Anton hafa
nokkrum sinnum náð að tryggja
sér rétt til þátttöku og besti
árangur þeirra hingað til var
fjórða sætið, „en draumurinn var
ætíð eitthvað annað og meira,“
segir Jón Sigurbjörnsson.
Á mótinu nú leiddi sveitin mót-
ið frá annarri umferð og til loka.
Aðspurðir um hvenær móts þeir
hafi eygt möguleikann á verð-
launasæti segir Steinar að það
hafi verið í hálfleik í næstsíðasta
leiknum fyrir úrslitaleikinn. „Þá
leiddum við með nokkrum mun
og ég fór að gæla við þriðja sæt-
ið,“ segir Steinar.
Titillinn í fermingargjöf
Jón segir að upphaflega hafi
þeir rætt um að gefa sætið í úr-
slitakeppninni eftir vegna ferm-
ingarinnar á skírdag. „Það komu
síðan ýmis vandamál upp þegar
til átti að taka og síðan var ferm-
ingarbarninu mjög umhugað um
að við héldum keppninni áfram,“
segir Jón. „Strákurinn vildi fá tit-
ilinn í fermingargjöf og engar
refjar."
Fermingarbarnið Birkir Jóns-
son var mjög spenntur kvöldið
fyrir úrslitaleikinn og hann segir
Gripið í slag
ÞAÐ er mikið spilað í eldhúsinu á heimili Jóns. Hér fylgist Björk
Jónsdóttir, kona Jóns með þeim Ásgrími Sigurbjörnssyni og yngri
bræðrunum, Ingvari og Birki Jónssonum.
að þá nótt hafi hann ekkert sofið.
Hann vaktaði síðan símann allan
daginn og er Jón faðir hans
hringdi loks til að tjá honum úr-
slitin öskraði hann svo heyrðist í
næstu húsum og grýtti símanum
í næsta vegg.
Rólegir allan tímann
Þeir félagar og bræður Jón,
Ásgrímur, Ólafur og Steinar
höfðu þá reglu að í hveijum leik
var pörunum skipt upp í hálfleik.
Þannig spiluðu Jón og Ásgrímur
saman fyrri hálfleikinn og Ólafur
og Steinar en í seinni hálfleik
spiluðu Jón og Steinar og Ásgrím-
ur og Ólafur. Þetta er mjög
óvenjulegt fyrirbrigði í brids og
svo til óþekkt í stærri keppnum.
En þeir spila allir sama kerfið,
„Siglufjarðarlaufið" sem byggir
að hluta til á Nákvæmislaufinu.
Hvað úrslitaleikinn sjálfan
varðar segja þeir félagar að þeir
hafi verið sallarólegir allan tím-
ann. „Við fundum að flestir áhorf-
endur voru á okkar bandi og raun-
ar hafði Guðmundur Páll [Arnar-
sonj í sveit Landsbréfa orð á því
að það væri erfitt að af sex hundr-
uð áhorfendum væru aðeins tvær
eiginkonur sem héldu með sinni
sveit,“ segir Jón. Ólafur bætir því
við að þeir hafi allt mótið tekið
hvern leik fyrir sig og ekkert örl-
að á stressi í úrslitaleiknum þótt
andstæðingarnir hafi byijað hann
með nokkrum látum.
Fjórir íslandsmeistaratitlar
Mikinn bridsáhuga í fjölskyld-
unni segja þeir Jón og Asgrímur
að megi rekja í báðar ættir þeirra
í Fljótunum. „Það er varla til
maður í ættunum sem ekki kann