Morgunblaðið - 14.04.1993, Page 37
MOIiGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRIL 1993
37
Ásgrímur Sigurbjörnsson spilaði hálft mótið við frænda sinn Ólaf
Jónsson. Þeir urðu efstir í fjölsveitaútreikningnum og fengu stór
páskaegg í verðlaun. Einn forsvarsmanna íslandsbanka, Ragnar
Önundarson, afhenti verðlaunin
Sveit Landsbréfa, eingöngu skipuð heims- og norðurlandameistur-
um, varð að sætta sig við tap gegn norðurlandsmeisturunum í
síðasta leik mótsins.
Unnu íslandsmeistara-
titilinn með glæsibrag
Morgunblaðið/Arnór
Feðgarnir Jón Sigurbjörnsson og Steinar Jónsson spila gegn heimsmeisturunum Guðlaugi R. Jó-
hannssyni og Erni Arnþórssyni. Hinir siðarnefndu unnu leikinn 17-13 en urðu að sætta sig við þriðja
sætið í mótinu.
Brids
Arnór G. Ragnarsson
Sveit Sparisjóðs Siglufjarðar
varð Islandsmeistari í sveitakeppni
í brids 1993 en sveitin sigraði í 8
sveita úrslitakeppni um meistara:
titilinn sem lauk sl. laugardag. í
lokaumferðinni spilaði sveitin úr-
slitaleik við sveit Landsbréfa. Leik-
urinn var jafn og spennandi allan
tímann. Sveit Landsbréfa hafði 5
punkta yfir í hálfleik en þurfti
tæpa 20 til að vinna mótið. Siglfirð-
ingar byrjuðu síðari hálfleikinn af
miklum krafti og gerðu vonir
Landsbréfa að engu og sigruðu
sannfærandi 18-12.
Jón Sigurbjömsson, einn fjög-
urra bræðra sem spila í sveitinni,
sagði að röð tilviljana hefði ráðið
því að þeir hefðu unnið mótið. Þeir
félagar hefðu vart átt heimangengt
þar sem verið var að ferma son
Jóns á skírdag en drengurinn
heimtaði að þeir færu. „Hann
hreinlega rak okkur af stað. Við
erum nú að flýta okkur heim því
veizlan verður á morgun, (páska-
dag).“
Jón sagði þá félaga hafa spilað
ágætlega í úrslitunum. Það spila
að jafnaði 13 sveitir á félagsmótum
í Siglufirði og þar á meðal eru 2-3
mjög þokkalegar sveitir á lands-
vísu. „Þá má segja það að við erum
dugleg að sækja mót einkum norð-
anlands og þar stelum við hug-
myndum sem við sjáum og heyrum
og nýtum okkur,“ sagði Jón.
Sigursveitin er skipuð eftirtöld-
um spilurum: Jóni Sigurbjörnssyni,
Ásgrími Sigurbjörnssyni, Boga
Sigurbjörnssyni, Anton Sig-
urbjörnssyni, Steinari Jónssyni og
Ólafi Jónssyni. Bræðurnir Steinar
og Ólafur eru yngstu íslandsmeist-
arar í opnum flokki frá upphafi.
Steinar er tvítugur og Ólafur árinu
eldri. Þeir bræður eru einnig núver-
andi íslandsmeistarar í tvímenningi
og sveitakeppni í yngri flokki.
Bræðrasveitin frá Siglufírði hef-
ir nú í áraraðir oftast verið meðal
þátttakenda í 8 sveita úrslitum. I
fyrra komust þeir ekki í úrslitin.
Þá töpuðu þeir í lokaumferð undan-
keppninnar fyrir Landsbréfum með
5 gegn 25 og urðu að sitja heima
á páskum. Þetta er kannski ein
þeirra tilviljana sem Jón Sigur-
björnsson minntist á í upphafi þess-
ara orða.
Sveit Sparisjóðs Sigluíjarðar
hlaut samtals 134 stig í mótinu,
vann 5 leiki og tapaði tveimur
13-17. Sveit Landsbréfa varð í
öðru sæti með 123 stig, Verðbréfa-
markaður íslandsbanka í þriðja
sæti með 109 stig, Hjólbarðahöllin
fékk 106 stig og sveit Trygginga-
miðstöðvarinnar hlaut 100 stig eft-
ir afar slæmt start.
Gefið var út mótsblað á meðan
mótið stóð yfir en það er til mikill-
ar fyrirmyndar. Veg og vanda af
því höfðu blaðamaðurinn Guð-
mundur Pétursson, keppnisstjórinn
og reiknimeistarinn Kristján
Hauksson, mótsstjórmn Elín
Bjarnadóttir frvkstj. BSÍ, og töflu-
stjórinn Jakob Kristinsson. Um
tæknilega hlið töflunnnar sá Sveinn
R. Eiríksson með glæsibrag og
sýndi áhorfendum hversu mögnuð
tækni er orðin í sýningu spila á
töflu.
Pjölsveitaútreikninginn unnu
Ólafur Jónsson og Asgrímur Sig-
urbjörnsson, hiutu 18,44 og páska-
egg í verðlaun. í öðru sæti urðu
Guðmundur Páll Arnarson og Þor-
lákur Jónsson með 17,49, Ásgrím-
ur var einnig í þriðja sæti ásamt
Jóni bróður sínum með 17,33 en
gamla kempan Hjalti Elíasson og
Jónas P. Erlingsson urðu fjórðu
með 17,28.
Einn spilaranna í mótinu bað
undirritaðan að geta þess hve kurt-
eisir og þægilegir viðmóts Norð-
lendingarnir væru og mættu ýmsir
sunnanmanna taka þá til fyrir-
myndar.
Áhorfendur hafa verið fleiri í
úrslitum íslandsmóts. Þó troðfyllt-
ist ráðstefnusalurinn í lokaumferð-
inni þrátt fyrir rjómablíðu utan-
dyra.
Konur mót-
mæla að-
stöðu til
fæðinga
Á AÐALFUNDI Kvenréttinda-
félags Islands, sem haldinn var
29. mars sl., var samþykkt eftir-
farandi ályktun:
„Aðalfundur Kvenréttindafé-
lags íslands, haldinn í Reykjavík
29. mars 1993, skorar á heilbrigð-
isyfirvöld að leita tafarlaust leiða
til varanlegra útbóta á því
ófremdarástandi sem ríkir í mál-
efnum fæðandi kvenna á höfuð-
borgarsvæðinu, þar sem fjöldi
fæðinga hefur farið langt fram
úr þeirn fjöida sem Kvennadeild
Landspítala er ætluð fyrir.“
(Fréttatilkynning)
r— ^
r^\
ÁBURfiUR
Maxi Crop
þaraáburður
Þörungamjöl
Þurrkaður
hænsnaskítur
Auk þess allur
áburður í
5 og 1 0 kg.
umbúðum
® FRJÓhf
HEILDVERSLUN
Fosshálsi 13-15.
Sími: 67 78 60
Fax: 67 78 63
T-Jöfðar til
11 fólks í öllum
starfsgreinum!
AEG VORTILBOÐ
Hjá Bræðrunum Ormsson
bjóðast þér nú þýsk gæða
heimilistæki frá AEG
á sérstöku tilboðsverði.
Þú hleypir ekki hverjum
sem er í húsverkin.
Upplýsingar um
umboðsmenn
fást hjá
62-62-62
■4 kæliskápur Santo, 3200 kg„ 170x60x60
Verð áður kr. 73.303. Tilboð kr. 61.900 stgr.