Morgunblaðið - 14.04.1993, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRIL 1993
39
Þórir Sæmundsson
— Minningarorð
Fæddur 7. nóvember 1935
Dáinn 5. apríl 1993
Haustið 1975 fæddu átök í
blaðaheiminum af sér Dagblaðið.
Þórir Sæmundsson verslunarmað-
ur var einn af frumherjum blaðsins
og seinna auglýsingastjóri þess.
Þórir er borinn til moldar í dag
og álengdar standa gamlir sam-
heijar og drúpa höfði.
Þórir Sæmundsson var atgervis-
maður. Hann kunni til verka á
dagblaði og lét ekki sitt eftir liggja
til að treysta ungan fjölmiðil í
sessi. Rösk handtök komu sér vel
í stöðugri glímu við að afla blaðinu
auglýsinga frá degi til dags.
Seinna skildu leiðir og Þórir hélt
áfram að starfa við auglýsingar á
öðrum vettvangi. Nú seinast rak
hann eigin verslun í Kópavogi.
Þóri Sæmundssyni stóðu allir
I vegir færir í einkalífi sínu og
gæfan blasti við honum. Hann
eignaðist góða lífsförunauta og
yndisleg börn, en hamingjuna
tókst honum ekki alltaf að höndla
fyrir sjálfan sig. Þórir Sæmunds-
son sætti sig því miður ekki við
það sem hann fékk ekki breytt og
breytti ekki því sem hann gat
breytt.
I nafni gamalla samheija á
Dagblaðinu kveð ég Þóri vin minn
Sæmundsson í dag og fylgi loka-
spölinn. Ástvinum hans öllum
sendum við einlægar samúðar-
kveðjur og biðjum alföður að
styrkja á saknaðarstundu. Minn-
ingin um öflugan félaga og góðan
dreng lifir björt í okkar hópi hve-
nær sem rösklega verður tekið til
hendi.
Megi Þórir Sæmundsson öðlast
sálarfrið að leiðarlokum og við hin
I æðruleysi sem eftir stöndum.
Ásgeir Hannes.
Nú þegar sól hækkar á lofti og
dagarnir lengjast óðfluga, erum
j við skyndilega minnt á, þrátt fyrir
birtu, yl og gróanda, fallvaltleika
lífsins, er einn okkar ágætu sam-
ferðamanna er kallaður burt úr
önn dagsins, allt of fljótt, snöggt
og vægðarlaust, við eftir í spurn,
af hveiju, en við því fæst ekkert
viðhlítandi svar.
Þórir Sæmundsson réðst í sveit-
arstjórnarstarfa í Sandgerði 1962,
ráðinn í krafti þess að Alþýðu-
flokksmönnum hafði tekist að fá
þá hreinan meirihluta í sveitar-
stjóm.
Hófust þá náin kynni okkar og
frjölskyldu hans og varaði þau fjög-
ur ár sem hann starfaði hér í
i byggðarlaginu. Fljótt varð ég þess
áskynja að hér fór harður mála-
fylgjumaður með fastmótaðar
( skoðanir í ýmsum grundvallarmál-
um, enda lét hann ógjarnan hlut
sinn í kappræðum, og fóru skoðan-
( ir okkar oft saman í ýmsum framf-
aramálum, sem þá voru á döfinni.
Miðneshreppur með kauptúnið
Sandgerði var þá eitt af stærri
hreppsfélögunum, í örri þróun með
sívaxandi þarfir íbúunum til
handa, sem slíku fylgir, og hefur
nú á seinni árum skilað því til
þess þroska, að verða yngsti kaup-
staður landsins, með þeim réttind-
um og skyldum sem því fylgja.
Þá eins og nú var við mörg
verkefni að fást en framkvæmdafé
af skornum skammti. Stækkun og
dýpkun hafnar var á döfinni,
bygging dagheimilis og áhalda-
húss gerð og gatnaframkvæmdir
fyrirhugaðar, ásamt mörgu öðru,
Það var því í nógu að snúast fyrir
dugmikinn framkvæmdamann
eins og Þóri, enda náðist á þessu
tímabili verulegur árangur í ýms-
um málaflokkum tii heilla fyrir
byggðarlagið.
Félagsmálin voru Þóri hugleik-
in, hann gekkst fyrir stofnun Tón-
listarfélags Miðneshrepps sem rak
tónlistarskóla, og var hann fyrsti
formaður félagsins. Þá var hann
einnig einn af stofnendum Lions-
klúbbs Sandgerðis, sem enn starf-
ar.
Að þessum fjórum árum liðnum
flutti Þórir með fjölskyldu sinni
burt, þar sem ekki var um endur-
ráðningu að ræða í stöðu sveitar-
stjóra. Þá fækkaði fundum okkar,
og síðustu áratugina hefur kynn-
um okkar ekki verið viðhaldið.
En nú er komið að kveðjustund,
fyrirvaralaust og alltof fljótt. Ég
og fjölskylda mín þakkar góð
kynni, margar ánægjustundir frá
þessum árum við ýmis tækifæri
sem skilja eftir góðar minningar.
Við flytjum öllu skyldfólki, vin-
um og vandamönnum innilegar
samúðarkveðjur.
Brynjarr Pétursson.
Bróðurkveðja
Bróðir minn, vinur og félagi
er látinn; skyndilega sló dauðinn
sprota sínum þar sem maður átti
síst von. Mig skortir orð, mig
skortir birtu, ský hefur dregið fyr-
ir sólu, maður spyr spurninga, en
fær engin svör, slíkir eru vegir
Guðs, órannsakanlegir, óskiljan-
legir. Eftir stendur maður og star-
ir í glóð minninganna um góðan
og sannan dreng, umhyggjusaman
son, föður og afa, sem hrifinn er
á brott langt um aldur fram.
Þórir Sæmundsson fæddist í
Hafnarfirði 7. nóvember 1935,
sonur hjónanna Sæmundar Sig-
urðssonar, dáinn 1945, og Guð-
rúnar Jónsdóttur sem lifir í hárri
elli og dvelur nú á Sólvangi.
Hinn 16. október 1954 gekk
Þórir að eiga Guðmundu Jóhanns-
dóttur, en þau slitu samvistir
1973. Börn Þóris og Guðmundu
eru Sæmundur Rúnar hljómlistar-
maður, giftur Örnu Vignisdóttur
og eiga þau þijú börn, auk þess
sem Sæmundur Rúnar á einn son;
Jóhann Jón flugmaður, giftur Elsu
Jónsdóttur, þau eiga einnig þijú
börn; Steinar Þór pípulagninga-
meistari, giftur Bryndísi Harðar-
dóttur, þau eiga tvö börn; Hugrún
Hrönn, gift Herði Guðmundssyni,
börn þeirra eru fjögur; og Guðrún
Jónína Mjöll, sambýlismaður
hennar er Gylfi Þór Þorsteinsson.
Árið 1976 eignaðist Þórir með
þáverandi sambýliskonu, Kol-
brúnu Bjarnadóttur, son sem
skírður var Þórir Örn. Hann ólst
upp hjá föður sínum og var afar
kært á milli þeirra feðga.
Þórir er dáinn því fær enginn
breytt, en minningin um góðan
dreng, son, föður og afa lifir og.
býr með okkur sem eftir stöndum
í þögulli sorg, undrandi yfir því
miskunnarleysi sem dauðinn er.
Þórir var ungur er pabbi dó, líf-
ið var hart og erfitt, en hann bauð
því byrginn, hann vildi leggja sitt
af mörkum til að hjálpa mömmu
í hennar erfiðleikum og vílaði ekki
fyrir sér þó ungur væri erfiðis-
vinnu, uppskipun úr togurum, salt-
skipum og fleira er í boði var.
Hann lauk gagnfræðaprófí frá
Flensborgarskóla og vegna dugn-
aðar, elju og góðra gáfna voru
honum falin mörg trúnaðarstörf.
Hann var sveitarstjóri, kaupfé-
lagsstjóri og framkvæmdastjóri,
auk þess sem hann gegndi mörg-
um öðrum ábyrgðarstörfum sem
óþarft er að telja upp.
Þórir var fylginn sér í þeim
málum sem honum fundust rétt
og hélt málstað þeirra fram af
festu og hreinskilni og alltaf án
þess að særa þann sem var á önd-
verðum meiði. Þórir var kylfingur
góður og stundaði þá íþrótt af
kappi eins og allt sem hann tók
sér fyrir hendur, en skákin átti
þó mest rúm í huga hans. Tírnun-
um saman sat hann setið yfir skák-
borði og þar held ég að hafi verið
hans bestu stundir. Hann tók þátt
í fjölda skákmóta og stundaði bréf-
skákir um allan heim.
Fyrst og fremst lifir Þórir í
minningu okkar sem mannlegur
maður, breyskur maður, góður
drengur sem öllum vildi vel og
ekkert aumt mátti sjá, þó að oft
ætti hann erfiða tíma sjálfur.
Ástkær bróðir er horfínn, ást-
kær sonur, faðir og afi er horfinn,
en lifír þó, lifir í Guði og lifír í
okkur. Fyrir það þökkum við,
þökkum fyrir þá birtu, heiðarleik
og drengskap sem hann veitti okk-
ur með lífi sínu.
Ég bið algóðan Guð að hugga
og styrkja mömmu, börnin hans,
tengdabörn og afabörn.
Megi minningin um góðan
dreng styrkja okkur í þeirri sorg
sem yfir okkur hvílir.
Dijúpa tár
drýpur þögn
í þjáning mína
Skín sól
sæl og heit
á minning þína
E.S.
Nú, þegar Þórir Sæmundsson
er fallinn frá, langt um aldur fram,
koma upp í huga mér margar ljúf-
ar minningar frá kynnum okkar,
en þau hófust árið 1987, þegar
dóttir hans kynnti okkur. Þau
kynni urðu strax mjög góð og átt-
um við margar ánægjulegar sam-
verustundir, þar sem rætt var um
lífið og tilveruna, oft langt fram
eftir nóttu, báðum til mikillar
ánægju. Þessar samverustundir
ber hæst hjá mér í minningunni
um góðan mann. Ýmislegt mót-
læti mætti honum í lífinu, sem
hann reyndi að beijast við, en
marga góða eðliskosti hafði hann.
Og sá, er ég dáði hvað mest, var
sú hlýja og væntumþykja, er hann
sýndi öllum þeim, er í kringum
hann voru.
Á kveðjustund er mér efst í
huga þakklæti fyrir liðnar sam-
verustundir um leið og ég votta
börnum hans, Rúnari, Jóhanni,
Steinari, Hugrúnu, Guðrúnu og
Þóri mína dýpstu samúð.
Gylfi Þór Þorsteinsson.
HÁSKÓLI ÍSLANDS - ENDURMENNTUNARSTOFNUN
Steínumótun á
sviði söluörvunar
(Promotional strategy)
Hvað er: áhrifaríkast? hagkvæmast? ódýrast?
Auglýsingar - sölumennska - söluhvatningar -
almenningstengsl - bein markaðssókn.
Leiðbeinendur: Bjami Grímsson, markaðsráðgjafi og Bergsveinn Sampsted,
markaðsstjóri og formaður Samtaka auglýsenda.
Efni: Markaðshlutun. Aðgreining frá keppi-
nautum. Val staðsetningar á samkeppnis-
sviðinu. Setning markaðs- og söluörvunar-
markmiða. Stefnumótun í söluörvun (promotion).
Boðmiðlunar- og sölumarkmið. Akvörðun
fjárveitinga til sölumennsku, auglýsinga,
almenningstengsla, söluhvatningaraðgerða
og beinnar markaðssóknar (Direct Marketing)
Gerð og framkvæmd söluörvunaráætlunar.
Tilhögun árangursathugana; boðmiðlunar-
og söluárangurs.
Námskeiðið er haldið í samvinnu við ffæðslu-
nefhd Sambands íslenskra auglýsingastofa og er
hluti af námskeiðaröð í markaðs- og sölufræðum.
Tími: 20., 21., 27. og 28 aprfl kl. 16:00-19:00
Verð: 12.000 krónur.
Skráning í móttöku Tæknigarðs í síma 694940. Nánari upplýsingar á
skrifstofu Endurmenntunarstofnunar í símum 694923, 694924 og 694925.
(
<
i
Bjóðum ÚRVALS
ÚTSÆÐI
Gullauga, Rauðar íslenskar, Amazone,
Premier, Bintje og Helga
Aburður, kalk, yfirbreiðslur og öll verkfæri sem til þarf
RÁÐGJÖF SÉRFRÆÐINGA UM GARÐ- OG GRÓÐURRÆKT
VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
GRÓÐURVÖRUR SF. SMIÐJUVEGI 5, 200 KÓPAVOGUR, SÍMI 4321 1
ÖRKIN 2111