Morgunblaðið - 14.04.1993, Page 45
: MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRIL 1993
45
Jón Baldvin Bjarna-
son, Dalvík — Minning
Fæddur 13. mars 1949
Dáinn 24. mars 1993
Fótmál dauðans fljótt er stigið
frma að myrkum grafarreit,
mitt er hold til moldar hnigið
máske fyrr en af ég veit.
Heilsa, máttur, fegurð, fjðr
flýgur burt sem elding snðr.
Hvað er lífið? Logi veikur,
lítil bóla, hverfull reykur.
(B. Halld.)
Það var bjartur og fagur morg-
unn 24. mars sl. Sól og vor í lofti.
Skyndilega var eins og dregið fyrir
sólu og enn og aftur var maðurinn
minntur á að ekkert er sjáfgefið í
heimi hér. Jón Bjarni var dáinn.
Hafði orðið bráðkvaddur á heimili
sínu.
Jón Baldvin Bjarnason var elstur
fjöggura barna þeirra hjóna Bjarna
Th. Jónssonar vélstjóra frá Sauða-
nesi á Upsaströnd sem lést 22. jan-
úar 1971 og Hildar JóhannSdóttur
frá Dalvík. Systkini Jóns eru Jó-
hann, búsettur á Dalvík, Þóra Soff-
ía, búsett í Reykjavík og Sædís,
búsett á Akureyri. Árið 1969 lauk
Jón námi frá Stýrimannaskólanum
í Reykjavík, var stýrimaður á
Bjarna II EÁ frá 1969-71, á Ólafi
Magnússyni frá 1971-74, á Björg-
vin EA frá áramótum 1976 til síð-
asta dags. 25. desember 1970
kvæntist hann Sigurlín Kjartans-
dóttur frá Hauganesi. Börn þeirra
eru Hildur Birna, f. 1970, búsett á
Dalvík ásamt unnusta sínum Hjalta
Hjaltasyni og syni þeirra Kjartani;
Bjarni Thorarensen, f. 1974, nemi;
Helena Sif, f. 1975, nemi, og Díana
Hrund, f. 1983.
Já, lífið er hverfult.
Heilsa, máttur, fegurð, fjör
flýgur burt sem elding snðr.
Eftir standa ástvinir með opnar
undir og skilja ekki tilgang þessa
lífs. Spurningar vakna. Af hverju
er ungur maður í blóma h'fsins hrif-
inn á brott? Því var honum og ást-
vinum hans ekki ætlað að njóta
lengur samvista? Hver er tilgangur-
inn að fólk þurfi að verða fyrir svo
nístandi sorg og söknuði? Engin
svör, nema það eitt sem við vitum
fyrir víst í heimi hér að eitt sinn
skal hver deyja. Hvenær eða hvern-
ig vitum við eigi.
Þegar ég minnist vinar míns,
Jóns, koma í huga minn orðin
trygglyndi, umhyggja, ástúð og
hógværð. Hugstæðar eru mér minn-
ingar úr bernsku okkar er við vorum
að leika ásamt fleiri félögum á
Brimnes- og Hafnartúninu. Eða
orrustur þær er háðar voru í Lágar-
brekkunni milli utan- og sunnanbæ-
inga. Lágarbrekkan var í þá daga
skíðasvæði okkar krakkanna á vet-
urna. Oftar en ekki var þar útbúin
hengja til að æfa skíðastökk og var
Jón þar oftast fremstur í flokki.
Skíðaíþróttin var alla tíð hans
áhugamál og var hann lipur og fjöl-
hæfur skíðamaður. Glæddi hann
áhuga barna sinna á íþróttinni og
var það hans síðasta verk að útbúa
yngstu dóttur sína á skíðaæfingu.
Erfidrykkjur
Glæsjleg ivalli-
hlaðborð fallegir
salirogmjög
g(kð jíjónusla.
Upplýsingíir
ísíma22322
FLUGLEIBIR
LIFTLEtm
Jón var heimakær eins og títt
er um sjómenn, mikið fyrir að hlúa
að heimilinu, undi sér í frítímum
sínum við að snyrta það og fegra
ásamt fjölskyldunni, sem var hon-
um allt. Börnum sínum og eigin-
konu var hann meira en faðir og
eiginmaður. Hann var þeim bæði
félagi og besti vinur. Athygli mína
og annarra vakti samstaða sú og
ástríki sem ríkti milli þeirra hjóna.
Það var gott að vera í návist Jóns,
þó að ekki væri hann margmáll
maður, en frá honum streymdi hlýja
og jákvæðir straumar sem sögðu
oft meira en töluð orð. Starfsvett-
vangur hans var hafið og sjó-
mennskan honum í blóð borin.
Fimmtán ára hóf hann sjómennsku
og stundaði hann sjóinn æ síðan.
Var hann farsæll sjómaður og sinnti
störfum sínum af alúð og samvisku-
semi.
Elsku Lína, börn og ástvinir all-
ir. Orð verða svo fátækleg og hljóm-
t
Astkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JÓHANNA M. KJARTANSDÓTTIR,
Heiðargerði 9,
andaðist á heimili sfnu að morgni páskadags.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
laus þegar lýsa á tilfinningum sín-
urn vegna ástvinamissis. Þeir sem
átt hafa mikið, missa mikið, en eft-
ir situr minningin um góðan dreng.
Guð styrki ykkur í þeirri sorg sem
að ykkur er kveðin._
Svanhildur Árnadóttir.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÍSLEIFUR GISSURARSON
bifreiðastjóri,
Fellsmúla 16,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 15. apríl
kl. 13.30.
Sveina Karlsdóttir,
Hrönn Isleifsdóttir, JónTryggvi Helgason,
Anna Guðrún ísleifsdóttir,
Gissur ísleifsson, Linda Ingvarsdóttir,
Karl ísleifsson, Margrét Nanna Jóhannsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HELGI KRISTINN JÓNSSON,
Laufbrekku 7,
Kópavogi,
sem lést 3. apríl, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni 15. apríl
kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Landssamtök hjarta-
sjúklinga.
Þóra Guðmundsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkirtil allra, sem sýndu okkur
vináttu og hlýhug við andlát og útför
ARNGRÍMS
SIGURJÓNSSONAR,
Hjallavegi 42,
Reykjavík.
Guðrún Alda Sigmundsdóttir,
Sigmundur Örn Arngrímsson, Vilborg Þórarinsdóttir,
Baldur Már Arngrímsson, Hrafnhildur Sigurðardóttir,
Haraldur Arngrímsson, Dóra Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KATRÍN einarsdóttir,
Kringiunni 61,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1 5. apríl
kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlegast bent á Heima-
hlynningu Krabbameinsfélagsins.
Einar Jónsson,
Einar Kristbjörnsson, Brenda Kristbjörnsson,
Sigrfður Kristbjörnsdóttir, Gunnar Zophaníasson,
Jóna Kristbjörnsdóttir, Jón Búi Guðlaugsson,
Birna Kristbjörnsdóttir, Aðalsteinn Aðalsteinsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
HJALTA SNÆS JÖKULSSONAR
°a
EGILS KRISTINS THEODORSSONAR
frá Ósabakka,
Skeiðahreppi.
Foreldrar, afar, ömmur,
og aðrir aðstandendur.
t
Útför móður okkar og tengdamóður,
MARGRÉTAR JÓNSDÓTTUR
frá Ferstiklu,
sem lést í Sjúkrahúsi Akraness 7. apríl, verður gerð frá Hallgríms-
kirkju, Saurbæ, föstudaginn 16. apríl kl. 14.00.
Börn og tengdabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
JÓHÖNNU RANNVEIGAR PÉTURSDÓTTUR,
Lindargötu 3,
Sauðárkróki.
Kristján Arason, Jóna Þórðardóttir,
Sigrfður Aradóttir,
Aðalheiður Aradóttir, Tómas Ástvaldsson,
Haraldur Arason, Eva Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞÓRIR SÆMUNDSSON,
Álfatúni 27,
Kópavogi,
sem lést í Borgarspítalanum 5. apríl, verður jarðsunginn frá Hafn-
arfjarðarkirkju, miðvikudaginn 14. apríl kl. 15.00.
Guðrún Jónsdóttir,
Þórir Örn Þórisson,
Sæmundur Rúnar Þórisson, Arna Vignisdóttir,
Jóhann J. Þórisson, Elsa Jónsdóttir,
Steinar Þór Þórisson, Bryndfs Harðardóttir,
Hugrún Hrönn Þórisdóttir, Hörður I. Guðmundsson,
Guðrún J.M. Þórisdóttir, Gylfi Þór Þorsteinsson
og barnabörn.
t
Elskuleg eiginkona, móðir og dóttir,
SVAVA
INGVARSDÓTTIR,
sem lést þann 31. mars, verður jarð-
sungin frá Garðakirkju á Álftanesi
fimmtudaginn 15. apríl kl. 13.30,
Fyrir hönd aðstandenda,
Páll Arnar Árnason,
Svanborg Daníelsdóttir,
Ingvar Herbertsson.
/ þœgilegu umhverfi med góðri þjónustu.
Glæsilegt kaffihlaðborð á hóflegu verði.
Almenna auglýslngaslofan hf.
Rauöarárstíg 18
-S* 62 33 50
m
SSÍtí*
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegrar móður okkar,
SVANDÍSAR KRISTJÁNSDÓTTUR,
Yrsufelli 13,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 6A, Borgarspítalanum.
Jóhannes R. Jensson,
Hulda Jensdóttir,
Helena Jensdóttir.