Morgunblaðið - 14.04.1993, Page 52
52
MOKGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1993
„flmrrtcx-, geturðu tdruxð m 'er fooo tr.
■fyrir- gerfinöglum, ? "
TM Reg. U.S Pat Off — all rights reserved
BRÉF TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 681811
Hin mjúka eða hin harða leið
Frá Geir Þórðarsyni:
Á aðalfundi íslandsbanka, þann
29. mars sl., gagnrýndi Bent
Scheving Thorteinsson hluthafi
bankastjórn Islandsbanka fyrir að
fara svonefnda mjúka leið í hag-
ræðingu innan bankans. Ég er
þessari gagnrýni algjörlega ósam-
mála. Eg tel að þessi gagnrýni
stafi af vanþekkingu á eðli banka-
viðskipta. Bankar eru ekki bara
íjármálafyrirtæki heldur fyrst og
fremst þjónustufyrirtæki, og þjón-
usta snýst um fólk. Þrír hópar fólks
standa að íslandsbanka; hluthafar,
viðskiptavinir og starfsfólk. Allir
eru þessir hópar mikilvægir og
geta ekki án hvers annars verið.
Það er því mjög eðlilegt að banka-
stjórn reyni að haga rekstri bank-
ans með þeim hætti að jafnvægi
haldist á milli hópanna. Ein aðferð
til þess er að fara mjúku leiðina í
hagræðingu.
Skoðum aðeins hvað felst í þess-
ari mjúku leið. Það vita allir sem
starfa í þjónustufyrirtæki að við-
skiptin byggjast oftast á persónu-
legu sambandi og trausti á milli
starfsmanna og viðskiptavina.
Þetta samband og traust verður
að varðveita eins og hægt er. Ef
t.d. fiskvinnslufyrirtæki sameinast
þá er þorskunum alveg sama frá
hvaða fyrirtæki starfsmaðurinn
kemur sem snyrtir þá. Viðskipta-
vinir íslandsbanka eru ekki þorsk-
ar á.færibandi. Á þessum rúmlega
þremur árum sem liðin eru frá
sameiningu bankanna hefur stjórn
og starfsfólk íslandsbanka lagt
mikið á sig til að varðveita per-
sónulegt samband og traust við-
skiptavina. Við höfum gert það til
að tapa ekki innlánsviðskiptum,
sem er undirstaða útlána og þar
af leiðandi tekna og hagnaðar
bankans.
Það er önnur hlið á mjúku leið-
inni. Það er sú hlið sem snýr að
starfsfólki bankans. Fólk sem er
óánægt og hrætt við að missa
vinnu sína veitir ekki góða þjón-
ustu. Stjórnendur íslandsbanka
hafa mótað þá stefnu að hagræð-
ing innan bankans verði með þeim
hætti að ekki komi til almennra
uppsagna og er starfsmannafélag-
ið fylgjandi þeirri stefnu. í árs-
reikningi bankans kemur fram að
launakostnaður hefur lækkað um
5% á síðasta ári. Launakostnaður
bankans eru launatekjur okkar
starfsmanna. Lægri launakostnað-
ur þýðir að starfsmönnum hefur
fækkað og þeir sem eftir eru fá
minna útborgað vegna niðurskurð-
ar á yfirvinnu. Starfsmenn hafa
orðið fyrir óþægindum vegna til-
flutninga á milli vinnustaða. Þrátt
fyrir lakari kjör og ýmis óþægindi
hefur starfsfólk bankans tekið þátt
í hagræðingunni með það að leiðar-
ljósi að varðveita grundvöll atvinnu
okkar, sem er ánægðir viðskipta-
vinir. Við erum þess fullviss að
þegar birtir til í rekstri bankans
munu allir hóparnir þrír; hluthaf-
ar, viðskiptamenn og starfsfólk,
njóta þess á einhvem hátt.
Andstaða mjúku leiðarinnar er
hin harða leið. Ef sú leið hefði
verið farin hefði 10-12 útibúum
verið lokað og 200 starfsmönnum
verið sagt upp á fyrsta starfsári
bankans. Þarf að fjölyrða um það
hvaða áhrif slíkar aðferðir hefðu
haft á inniánsviðskipti og vinnu-
anda innan bankans? Ég tel að tap
bankans hefði orðið mun meira og
Frá Einari Kristjánssyni:
Á menningarvöku Dalamanna,
Jörfagleði, sem hefst í Búðardal á
sumardaginn fyrsta, 22. apríl nk.,
verður að þessu sinni sett upp
skjalasýning í tilefni af stofnun
héraðsskjalasafns Dalamanna.
Ennfremur mun Þjóðskjalasafn ís-
lands verða með sýningu á gömlum
og merkum skjölum úr Dölum.
Undirritaður hóf söfnun skjala
í Dalasýslu árið 1987 og hefur
unnið við hana síðan, en fyrstu
skjalagögnin komu úr skjalasafni
Þorsteins sýslumanns Þorsteins-
sonar í Búðardal. — Úttekt af hálfu
Þjóðskjalasafns á safngeymslu í
stjórnsýsluhúsinu í Búðardal fór
fram 27. nóv. sl. en í þeirri álmu,
sem eftir er að byggja við stjóm-
það hefði tekið mörg ár að vinna
aftur traust viðskiptavina og
starfsmanna.
Það var Ijóst fyrir sameiningu
bankanna að sameiningin sem slík
myndi hafa í för með mikinn kostn-
að. Það er ekki auðvelt verk að
sameina fjögur stór fyrirtæki og
það kostar mikla peninga. Samein-
ing útibúa hefur í för með sér
kostnað við húsnæði, innréttingar,
auglýsingar o.fl. Hluthafar vissu
að tíma tæki að ná fram öllum
kostum sameiningarinnar. Em þeir
búnir að gleyma því? Hafa þeir
ekki þolinmæði til að bíða eftir
þeim ávinningi sem felst í samein-
ingunni?
Það er mín skoðun að stjórnend-
ur bankans hafi gert rétt með því
að fara hina mjúku leið í hagræð-
ingu. Ég er sannfærður um að
aðrar leiðir hefðu gert meiri skaða
en gagn. Ég lýsi því yfir fullum
stuðningi mínum við stefnu banka-
stjómar í þessu máli og vonast til
að þeir hviki ekki frá henni þrátt
fyrir gagnrýni einstakra hluthafa.
GEIR ÞÓRÐARSON
formaður Starfsmannafé-
lags íslandsbanka,
Efstahjalla 25, Kópavogi.
sýsluhúsið í Búðardal, verður hús-
rými sem sérstaklega er ætlað fyr-
ir héraðsbóka- og skjalasafn, auk
listaverkasafns.
I tilefni af þessari sýningu og
væntanlegri starfrækslu skjala-
safnsins, vill undirritaður fara þess
á leit við Dalamenn — heima og
heiman — að þeir verði safninu
vinveittir og ljái því til varðveislu
gömul gögn. Á undanförnum árum
og áratugum hefur margt handrita
og skjala flust burt úr héraði. Þess
vegna er nú sérstök ástæða til að
hvetja burtflutt Dalafólk, sem hef-
ur gömul bréf og skjöl undir hönd-
um, að hafa sem fyrst samband við
undirritaðan.
EINAR KRISTJÁNSSON
Eskihlíð 20a, Reykjavík.
«
Gömul skjöl úr Dalasýslu
HÖGNI HREKKVÍSI
>. HANU £7? AE> KÍFA NVAHS -
HE/T/N / SUNÍ>UR."
Víkverji skrifar
A
Ilenski dansflokkurinn og stjórn-
andi uppsetningar hans á Copp-
elíu, Eva Évdokimova, geta verið
stolt af hinni fallegu sýningu sem
nú er á fjölunum í Borgarleikhús-
inu. Víkverji dagsins var viðstaddur
sýningu flokksins nú á annan í
páskum, þegar Eva Evdokimova,
hin heimsfræga ballerína, dansaði
aðalhlutverk Coppelíu, Svanhildi.
Frómt frá sagt var vald listakon-
unnar á hreyfingum, tjáningu og
dansi slíkt, að hrein unun var á að
horfa. Eva dansaði hlutverk Svan-
hildar á tveimur sýningum, nú síð-
astliðinn laugardag, og svo á annan
í páskum. Lára Stefánsdóttir dans-
aði hlutverk Svanhildar á frumsýn-
ingunni síðastliðinn miðvikudag og
hefur Víkveiji fregnað að hún hafi
staðið sig með mikilli prýði. Tónlist-
in í Coppelíu eftir Leo Delibes er
einkar falleg, létt, en á köflum
kraftmikil, og fellur vel að dönsun-
um.
XXX
að sem gerði sýninguna enn
eftirminnilegri, var það
hversu heildstæð og falleg hún var
fyrir augað. Samræming dansar-
anna var með miklum ágætum og
svo virtist sem hugað hefði verið
að hveiju smáatriði, hvað varðaði
útlit og tengingar atriða, þannig
að heildarrennslið var til fyrirmynd-
ar. Fjölmörg börn, nemendur úr
Listdansskóla Islands, komu fram
í hópatriðunum, og stóðu sig eins
og hetjur. Búningar dansaranna eru
gullfallegir og leikmyndin sömuleið-
is og lýsing. Víkveiji er þeirrar
skoðunar að sem flestir ættu nú
að nota tækifærið og skella sér í
Borgarleikhúsið á meðan sýningar
á Coppelíu standa, því það er ekki
á hveijum degi sem landsmönnum
stendur til boða að sjá hér á landi
klassískan ballett í fullri lengd.
Raunar er Víkveiji einnig þeirrar
skoðunar að sem flestir ættu að
leyfa börnum sínum að koma með
að sjá Coppelíu, því hér gefst mjög
gott tækifæri til þess að kynna
þessa fallegu listgrein fyrir ungu
kynslóðinni og á þann hátt að hún
mun hafa gaman af, þar sem létt-
leikinn, gáskinn og leikgleðin eru í
fyrirrúmi sýninguna á enda. Fagn-
aðarlátunum ætlaði aldrei að linna
í lok sýningar. Víkveiji missti fljótt
tölu á því hversu oft tjaldið fór
upp. Sýningargestir risu úr sætum
sínum og hylltu listafólkið, en mesta
hyllinguna fékk Eva Evdokimova,
ballerínan sem dansaði sig inn í
hjörtu leikhúsgesta, og tók svo við
hyllingu og fagnaðarlátum leikhús-
gesta á svo hógværan og auðmjúk-
an hátt, að það var sem hún teldi
að allt þetta ætti hún nú ekki skilið
- en auðvitað átti hún það og jafn-
vel gott betur.
xxx
Víst er um það að dansararnir
hinu ungu sem voru að stíga
sín fyrstu spor á leikfjölunum, fyrir
fullu húsi áhorfenda geta ekki feng-
ið meiri og betri hvatningu til þess
að halda áfram á listabrautinni, en
tækifæri sem þetta, að fá að taka
þátt í æfingum og sýningum með
atvinnudönsurum, undir hand-
leiðslu jafn frábærs listamanns og
Evu Evdokimovu.