Morgunblaðið - 14.04.1993, Side 54

Morgunblaðið - 14.04.1993, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1993 Mótmæli gegn bygg- ingu stjómsýslu- húss á Akranesi Akranesi. NOKKUR andstaða er meðal Akurnesinga um byggingu stjórnsýslu- húss í bænum, en Bæjarstjórn Akraness samþykkti nýverið að hefja byggingu þess í samvinnu við ríkisvaldið og fyrirtækin Tréverk hf. og Málningarþjónustuna hf. Hópur áhugafólks er að safna undir- skriftum þar sem mótmæit er breytingu á aðalskipulagi bæjarins svo og fyrirhugaðri byggingu undir kjörorðinu „Byggjum ráðhús með reisn“. Að sögn Guðmundar Vésteinsson- ar, eins af forvígismönnum þessa áhugahóps, er veruleg andstaða á Akranesi við þessa byggingu og þá breytingu á aðalskipulagi bæjarins sem fyrirhuguð er. Þá telja margir að mjög hafi skort á að bæjaryfír- völd hafi staðið vel að undirbúningi málsins og kynningu þess. Guðmund- ur leggur áherslu á að undirskrifta- Söngnámskeið hjá Agústu ÁGÚSTA Ágústsdóttir heldur söngnámskeið í Skóla Estherar H. Guðmundsdóttir, „Söngsmiðj- unni“ í Listhúsinu v/Holtaveg bak við Ásmundasal. Námskeiðið hefst með fyrirlestri fímmtudaginn 15. apríl kl. 20.30 í sal Listhússins. Kennsla hefst ki. 13 dagana 16.-18. apríi. Námskeiðinu lýkur með tónleikum á sama stað sunnudaginn 18. apríl kl. 17. Full- bókað er á námskeiðin. Þeim sem hlýða vildu á kennsluna eru velkomn- (Fréttatilkynning) söfnunin sé sett á fót til þess að mótmæla þeirri breytingu á aðal- skipulagi bæjarins sem auglýst hefur verið. Þessi breyting felur í sér að svonefnt stjórnsýsluhús verði byggt við Stillholt. Ljóst er að sá staður leyfír ekki að unnt sé að fullnægja lágmarkskröfum varðandi bílastæði, aðgengi almennings að opinberri þjónustu er ófullnægjandi, enda ætl- aður staður á þriðju hæð hússins, auk annarra annmarka. Guðmundur segir að fjölmargir Akurnesingar telji að bæjarlífið eigi skilið betra stjórnsýsluhús og það eigi að rísa á viðeigandi stað. Aðalskipulag bæjar- ins 1982 gerir ráð fyrir slíku húsi á miðbæjarsvæðinu svokallaða. Þá má einnig minna á að Bæjarstjórn Akra- ness samþykkti samhljóða í janúar 1982 í tilefni 40 ára afmælis kaup- staðarréttinda að hefja undirbúning að byggingu stjórnsýslumiðstöðvar á nýja miðbæjarsvæðinu. Guðmundur sagði að lokum að fyrir áhugahópinn væri aðaimálið að byggja ráðhús með reisn þannig að sómi yrði að því fyrir kaupstaðinn og hann vonaðist til að sem flestir kynntu sér málið. - J.G. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sólskin á fjöllum FERÐALANGAR á hálendinu sunnanverðu nutu veðurblíðunnar yfir páskana. Fjölmenni á hálendinu MIKILL fjöldi ferðamanna lagði leið sína inn á hálendið um páskana, að sögn lögregl- unnar á Hvolsvelli og í Vík sem fór í eftirlitsflug. Á laugardag og páskadag fjölgaði ferða- mönnum til muna og er talið að þessi helgi hafi verið með þeim fjölmennari á hálendinu. Á föstudag voru flestir ferða- menn á Landmannaafrétt og á Fjallabaksleiðum. Þar voru jeppar og vélsleðar við alla skála auk þess sem margir voru á ferð eftir öðrum slóðum. í Jökulheimum lentu vélsleðamenn í vandræðum og sá lögreglan um að koma til þeirra rafsuðuvír, sem var hent niður til þeirra úr þyrlu, og tókst þá að gera við sleðann. Þá sáust jeppar og sleðar í Veiðivötnum, við Hrafntinnusker og við Grímsvötn. Margir létu sér nægja dagsferð inn á hálendið og skildu jeppana eftir við Sigöldu og á páskadag voru þar hátt í 40 jeppar. Umhverfisfélag íslandsbanka stofnað Markmiðið að auka áhuga og skilning á umhverfismálum UMHVERFISFÉLAG íslandsbanka hefur verið stofnað og er markmið þess að auka áhuga og skilning fólks á nauðsyn um- hverfismála, og virkja starfsfólk og fjölskyldur þeirra til góðra verka. Félagið ætlar að beita sér fyrir samvinnu við umhverfis- samtök og benda á fleiri leiðir í rekstri Islandsbanka, sem skila bankanum enn lengra fram á sviði vistverndunar. Hið nýja fé- lag hefur þegar fengið góðar undirtektir hjá forystufólki félaga- samtaka á þessu sviði, s.s. Skógræktarfélagi Islands, Land- græðslu ríkisins og Landvernd. Starfsfólk íslandsbanka vill auka vég umhverfisverndar. I fréttatil- kynningu frá frá Umhverfisfélagi íslandsbanka, sem stofnað var 4. mars, segir að félagið sé hið fyrsta ELDUR kom upp í hjólhýsi sl. föstudagskvöld og var það brunn- ið að mestu þegar eigendurnir komu til gistingar um tvöleytið aðfaranótt laugardags. Eigendur eru hjón úr Kópavogi sem ætluðu að dvelja yfír páskana í hjólhýsinu sem var í landi Haga í Skorradal. Á föstudagskvöld brugðu þau sér frá og fóru í heimsókn í sumarbústað í Vatnsendahlíð í sinnar tegundar innan íslénsks fyr- irtækis svo vitað sé. Landeyðing á íslandi er mikið vandamál og vax- andi ef ekki verður gripið til enn öflugri sóknar gegn henni á næstu Skorradal. Þegar þau komu til baka um tvöleytið um nóttina var aðkom- an heldur dadurleg, hjólhýsið að mestu brunnið ásamt öllum viðlegu- búnaðinum. Atburðurinn var til- kynntur lögreglunni í Borgarnesi sem tók skýrslu og skoðaði bruna- leifarnar. Hjólhýsið var brunatryggt en allt sem í því var óvátryggt svo tjón hjónannna er talsvert. - D.P. árum. íslandsbanki hefur frá upp- hafí lagt ríka áhersiu á umhverfis- vernd og sú áhersla, sem bankinn og starfsfólk hans leggja á þau, hefur aukið áhugann jafnt og þétt innan íslandsbanka. Mikið starf unnið Skógræktardagur íslandsbanka er haldinn árlega. Þá gróðursetja starfsmenn íslandsbanka, VÍB og Glitnis og fjölskyldur þeirra um 20 þúsund tijáplöntur á 14 stöðum víðs vegar um landið. Þessi gróðursetn- ing er í tengslum við þá ákvörðun bankans að gefa Skógræktarfélag- inu fjórar tijáplöntur fyrir hvern fæddan íslending á ári hveiju. Bank- inn hefur styrkt Landgræðslu ríkis- ins til kaupa á raðsáningarvél til landgræðslu og landbóta, og Nátt- úruverndarráð með fjárframlagi, sem varið var til að bæta aðstöðuna í Dimmuborgum. Enn fremur stend- ur íslandsbanki að átaki, sem miðar að i'eyklausum banka fyrir árið 2000, og eru 11 útibú og deildir þegar orðin reyklaus. Um helmingur alls pappírs sem bankinn notar er vistvænn. Áhersla á umhverfismál Með tilkomu félagsins verður áhersla á umhverfismál aukin í starfi íslandsbanka. Félagið mun auk þess standa fyrir fræðslufundum innan bankans um gildi vistverndunar, standa að greinaskrifum, skógrækt- arferðum, átaki í hreinsun fjara, fræsáningu, áróðri um nauðsyn þess að flokka úrgang, kaupum á vörum sem valda umhverfinu minnstum skaða o. fl. Formaður í stjórn Um- hverfisfélags íslandsbanka var kos- inn Jón Gunnar Aðils hjá markaðsde- ild. Aðrir í stjóm eru Unnur Jóns- dóttir, útib. Laugavegi 172, Ólafur Stefánsson, útib. Lækjargötu, og Ingibjörg Hrund Þráinsdóttir, útib. Mosfellsbæ. Valgerður Friðriksdóttir útib. Garðabæ, situr í stjórn félags- ins fyrir hönd Starfsmannafélags íslandsbanka. Morgunblaðið/Davíð Pétursson Lítið var eftir af hjólhýsinu loksins þegar eldur slokknaði. Eldur kom upp í hjólhýsi Morgunblaðið./Jónas Guðmundsson Á kafi í snjó EFTIR fimm daga óveður voru Ijald og skiði nánast komin á kaf eins og sjá má en hér eru þeir félagar að búa sig undir ferðina til byggða. Veðurtepptir 5 daga á Breiðamerkurjökli SLÆMT veður og veikindi urðu til þess að þeir Jónas Guðmunds- son, Bergur I. Arnason og Þórarinn Ólafsson, sem ætluðu í 3ja vikna skíðagöngu á hálendinu urðu frá að hverfa eftir að hafa verið veðurtepptir í fimm daga á Breiðamerkurjökli. Þar gekk yfir slæm suðaustanátt og mældust 11 vindstig á Fagurhólsmýri en þeir félagar voru 1.500 metrum ofar í mun verra veðri. Þeir höfðu ætlað sér að ganga um 400 km á skíðum á hálendinu yfir Breiðamerkuijökul, Vatnajök- ul, Grímsljall og þaðan í Nýjadal. Úr Nýjadal í Laugafell, Hveravelli og norður fyrir Langjökul um Flosa- skarð að Þingvöllum. Að sögn Jónasar, komust þeir tvær dagleiðir upp á Breiðamerkur- jökul og að Esjufjöllum. „Þar vorum við veðurtepptir í tjaldi í fímm daga,“ sagði hann. „Við ætluðum lengra en lentum í bijáluðu veðri. Minnst átta vindstig og upp fyrir tólf ef það er þá hægt. Það er ekki hægt að segja að við höfum verið í lífshættú en við þurftum að fara út nokkrum sinnum yfir nóttina til að moka snjónum frá tjaldinu. Þeg- ar við komumst út úr tjaldinu eftir fimm daga þá stóðu um 15 senti- metrar af tjaldinu upp úr snjónum og rétt sást í skíðin.“ Þar sem gengið hafði á matar- birgðir þeirra félaga og tvær dag- leiðir í nýjar vistir í Nýjadal, var ákveðið að halda til byggða. Auk þess var einn fingurbrotinn og tveir veikir. „Við vorum mjög óheppnir," sagði Jónas, „En vorum samt ákveðnir í að halda áfram ef veðrið hefði ekki verið svona slæmt."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.