Morgunblaðið - 14.04.1993, Side 55
I
I
I
I
)
)
)
)
(
)
I
I
I
i
I
1
I
I
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1993
55
Fjöldi fólks tók þátt
í skíðaviku á ísafirði
ísafirði.
SKÍÐASVÆÐI ísfirðinga á Seljalandsdal var helsti samkomustað-
ur fólks vestra í dymbilvikunni og á páskunum. Þeir sem vildu
halda sér utan fjöldans, fóru í gönguferð um eyrina með Jóni
Páli Halldórssyni, eða í sund á Suðureyri. Þegar þoku gerði upp
úr hádegi á páskadag renndu nokkrir vélsleðamenn sér upp úr
sortanum, brunuðu yfir Glámuhálendið og létu ekki staðar numið
fyrr en á Patreksfirði. Enn sem fyrr er skíðavikan fyrst og fremst
fjölskylduhátíð, þar sem brottflutt fólk sækir vestur til ættingja
og vina, en þó fer þeim fjölgandi, sem notfæra sér þjónustu hót-
ela og gististaða og blanda geði
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, sem
hefur verið einskonar framkvæmda-
stjóri skíðavikunnar, sagði að skipu-
lögð vinna að undirbúningi hátíðar-
innar væri nú að skila sér. Dagskrár-
atriði hefðu yfirleitt gengið upp og
þátttaka verið í svo til öllum þeim
fjölda afþreyingaratriða sem boðið
hefði verið uppá, en farið var í útsýn-
isferð með Fagranesinu inn í Djúp
og flogið með fólk vestur um firði í
flugvélum Ernis, Óli M. Lúðvíksson
og Halldór Margeirsson fóru með
fólk í skíðagöngu um Breiðadals- og
Botnsheiðar, út á Hnífa og fyrir botn
Tungudals, svo eitthvað sé upptalið
af því sem boðið var uppá. Um kvöld-
in voru nýstárlegar uppákomur eins
og fondúteiti í Skíðheimum, þar sem
gestir renndu sér að lokum til byggða
á snjóþotum og ruslapokum. Bæjar-
stjórinn í Bolungarvík djassaði með
við ísfirðingana.
Villa rakara og fleirum, en stórbönd
úr Reykjavík eins og SSSól, KK band
og Vinir Dóra léku fyrir dansi.
Það má teljast heldur óvenjulegt
að alla skíðavikuna var mjög gott
veður á ísafirði, lengst af glaða sól-
skin og logn og að engin alvarleg
slys urðu þótt skíðaðar væru brött-
ustu skíðabrekkur landsins, þar sem
hátt í 2.000 manns voru saman
komnir.
Leikur á snjóþotum
Einn daginn fór fjöldi fólks á öllum
aldri inn í Tunguskóg. Að sögn Ást-
hildar var það einhver ævintýraleg-
asti þáttur helgarinnar að sjá alla
fjölskylduna samankomna við að
leika sér á snjóþotum svo að sumir
þeir fullorðnu gleymdu sér svo gjör-
samlega í hita leiksins að þau yngstu
komust stundum ekki að. Síðan var
farið út í golfskála þar sem Rut í
Gamlabakaríinu tók á móti öllum og
bauð upp á heitt kakó og nýbakað
brauð.
Það er hald manna að á stórum
hluta ísfirskra heimila hafi íbúarnir
meira en tvöfaldast þessa dagana,
því hefðin er sú, að Skíðavika sé
fyrst og fremst vika hinna týndu
sauða, sem leita heim úr öllum lands-
ins hornum, til að upplifa æskudag-
ana og fjörið eitt árið enn. Hvort sem
það er mamma og pabbi, amma og
afi eða frænka og frændi, sem eru
mætt á flugvöllinn til að taka á
móti týndu sauðunum þá er alls stað-
ar búið að kaupa til veislu svo öllum
finnist þeir vera komnir heim.
Að sögn Áslaugar Alfreðsdóttur
hótelstjóra á Hótel Isafirði hefur orð-
ið miki! aukning á skíðaviku gestum
á hótelinu, en fyrir fimm árum þegar
hún hóf hér störf var enginn gestur
á hótelinu um páskana og hafði ekki
verið nema með fáum undantekning-
um frá því hótelið var opnað. En nú
virðast íslendingar, sem ekki eiga
uppruna vestra vera að uppgötva þau
stórkostlegu skíðalönd sem hér eru
og fjölgar þeim nú árlega sem gista
á hótelinu og í gistihúsunum sem
hér starfa.
- Úlfar.
Morgiinblaðið/Úlfar Ágústsson
Á skíðum
Ungir sem aldnir skemmtu sér á skíðum á ísafirði um helgina.
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUNNAR í REYKiAVÍK:
8. -13. apríl 1993
MIKILL órói í fólki og ölvun ein-
kenndi þessa páskahelgi. Líkams-
meiðsl og slagsmál voru þó í lág-
marki. Tilkynnt var um 6 um-
ferðarslys í umdæmi lögreglunnar,
en á sama tíma í fyrra varð ekkert
umferðarslys í umdæminu.
Aðfaranótt skírdags var ekið á
gangandi vegfaranda á Laugavegi
gegnt húsi nr. 22. Ökumaðurinn
stakk af. Fiytja varð vegfarandann
á slysadeild, en líklegt var talið að
hann hefði fótbrotnað. Aðfaranótt
sunnudags valt bifreið á Hafra-
vatnsvegi við Skyggni. Þurfti að
flytja ökumann og tvo farþega á
slysadeildina. Um miðjan dag lenti
hjólreiðamaður á bifreið á Bústaða-
vegi og skömmu síðar þurfti að
flytja sjö manns á slysadeild eftir
árekstur þriggja bifreiða á Vestur-
landsvegi gegnt Korpúlfsstöðum.
Um páskana í fyrra var tilkynnt
um 26 innbrot, en nú var tilkynnt
um 35 slík. í langflestum tilvikum
var brotist inn í bifreiðir og í sölu-
turna. Einnig var brotist inn í tvær
íbúðir og tvo sumarbústaði. Mest
virtust þjófarnir vera að sækjast
eftir tóbaki, radarvörum og hljóm-
flutningstækjum. Tókst að hand-
taka nokkra þeirra við iðju sína,
en aðrir sluppu að sinni. T.d. var
tilkynnt um innbrot í söluturn við
Suðurlandsbraut. Grunur var um
að innbrotsþjófurinn væri enn þar
inni og eftir nokkra leit fannst
hann ofan í lokaðri frystikistu.
Aðrir voru handteknir við að reyna
að bijótast inn í söluturn í miðborg-
inni aðfaranótt föstudags og undir
morgun var maður handtekinn eft-
ir að hafa brotist inn í bifreið og
tvær verslanir við Skaftahlíð. - Á
sunnudagsmorgun komu lögreglu-
nienn að kunnum afbrotamanni þar
sem hann sat í bifreið í Ármúla. í
bifreiðinni var talsvert af ýmiskon-
ar varningi, s.s. útvarpstæki, tal-
stöð o.fl. og þar sem manninum
vafðist tunga um tönn er hann var
beðinn að gera grein fyrir hlutun-
um var hann ásamt þeim fluttur á
lögreglustöðina.
Skömmu fyrir miðnætti á skír-
dag var tilkynnt um heiftarlegar
deilur með mæðgum er enduðu
nieð handalögmálum. Deilurnar
voru út af stól sem báðar vildu sitja
>• Meiðingar urðu þó ekki. Eftir að
lögreglumenn komu á vettvang
komst á friður og sættir tókust
með þeim um að eldri konan hefði
stólinn fyrir sig þetta kvöld.
Aðfaranótt föstudags veittu lög-
reglumenn á eftirlitsferð á Skóla-
vörðustíg athygli bifreið með
tveimur mönnum í. Tóm skothylki
lágu á mælaborðinu. Undir fatnaði
í aftursætinu lá loftriffill, sem
mennirnir sögðust hafa verið með.
Þeir höfðu verið að æfa sig að hitta
auglýsingaskilti verslana við
Laugaveginn. Mennirnir voru færð-
ir á lögreglustöðina og hald var
lagt á riffilinn.
Aðfaranótt laugardags var til-
kynnt um mann að eiga við bifhjól
á Hólatorgi. Reyndist vera um ölv-
aðan mann að ræða og hafði hann
fallið af hjólinu eftir akstur. Maður-
inn var með áverka í andliti og
brotnar framtennur. Flytja varð
hann á slysadeild.
Skömmu eftir hádegi á mánudag
var tilkynnt um mann, sem búinn
væri að aka fram og aftur um
Hagamel við Hagaskólann. Þar
væru böm að leik og hefði maður-
inn gert sig áberandi með því að
fróa sér inn í bifreiðinni rétt þar
sem bömin vom að leik. Maðurinn
var handtekinn og færður á lög-
reglustöðina.
I dagbókinni segir að aðfaranótt
þriðjudagsins hefðu mál, sem upp
komu, einkennst af skemmdarfýsn,
afbrigðilegri hegðun og almennu
virðingarleysi fyrir eignum ann-
arra, en þeir þættir virðast sífellt
verða meira áberandi vandamál.
Aðfaranótt mánudags bárust
upplýsingar um fjölmennan dans-
leik í Njálsbúð. Lögreglan í Reykja-
vík var því viðbúin hinu versta er
líða tók á nðttina, enda kom í ljós
að full ástæða var til þess. Tæplega
þijú um nóttina var bifreið mæld
á 166 km hraða á Suðurlandsvegi
og í kjölfarið fylgdu þijár aðrar
með stuttu millibili á 142-147 km
hraða. Þessir ökumenn voru allir
sviptir ökuréttindum „á staðnum“,
og fjórir aðrir, sem mældir voru á
þessum vegarkafla voru kærðir
fyrir að aka of hratt. Allir voru
ökumennirnir að koma af umrædd-
um dansleik og virtist liggja mikið
á að komast í bæinn aftur.
í dag hefst sameiginlegt umferð-
arátak lögreglunnar á Selfossi, í
Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfírði,
Grindavík og í Keflavík. Að þessu
sinni verður athyglinni sérstaklega
beint að ökuhraða og ökuréttindum
ökutækjastjórnenda.
Morgunblaðið/Frosti Eiðsson
í sólbaði
VEÐRIÐ lék við landsmenn um páskahelgina og ófáir mættu sólbrennd-
ir til starfa sinna í gær. Þessar myndir voru teknar í Árnessýslu af
léttklæddu fólki sleikja sólskinið við sundlaugina í Úthlíð og baða sig í
Laugarvatni.
Bláfjöll og Skálafell um páskana
Um 20 þúsund á
skíðasvæðunum
TALIÐ er að um 20 þúsund
manns hafi lagt leið sína í Blá-
fjöll og Skálafell í blíðskapar-
veðri yfir páskana frá föstudeg-
inum langa og fram á páskadag.
Að sögn Þorsteins Hjaltasonar
fólkvangsvarðar, hefur veðrið sett
strik í reikninginn fyrir skíðafólk
í vetur en frá föstudegi og fram
á páskadag rættist úr veðri. Komu
þá að meðaltali um 3.500 manns
á dag í Bláfjöll og á páskadag
komu rúmlega 4.000 manns. I
Skálafell komu um 8.000 manns
yfir páskana en færri lögðu leið
sína á Hengilssvæðið. „Fólkið
dreifðist vel yfir daginn og mynd-
uðust aldrei þessar yfirþyrmandi
biðraðir eins og oft vill verða,“
sagði Þorsteinn.
Skíðavertíðin hefur aldrei geng-
ið jafn illa og í vetur, þar sem
veðrið um helgar hefur yfirleitt
verið mjög óhagstætt fyrir skíða-
fólk. Veðurspá næstu daga er
skíðamönnum fremur óhagstæð
en rétt er að taka fram að opið
verður í Bláfjöllum fram í maí.
—efþú spilar til að vinna!
14. leikvika, 10. -12. aprfl 1993
Nr. Leikur: Röðin:
1. IFK Göteborg - AIK - X -
2. Halmstad - Helsingborg 1 - -
3. Malmð FF - Brage 1 - -
4. Norrköping - Örgrytc 1 - -
5. V-Frðlunda - Hacken 1 - -
6. Örebro - Trelleborgs FF 1 - -
7. Öster - Dcgerfors 1 - -
8. Ipswich - Arsenal - - 2
9. Leeds - Blackbum 1 - -
10. Man. Utd. - ShelT. Wed. 1 - -
11. Middiesbro - Everton - - 2
12. Q.P.R. - Notth. Forest 1 - -
13. Southampton - Chelsea 1 - -
13 réttir: 37,750 | kr.
12 réttir: P 1,630 | kr.
11 réttir: [_ 0 | kr.
10 réttir: 0 _J kr'
Hcildarvinningsupphæöin:
103 miHjónir króna
OLTÍNN
14. leikvika - 10. aprfl 1993
Nr. Leikur:
Röðin:
1. Ancona - Roma - x -
2. Atalanta - Pescara í - -
3. Fiorentina - Brescia - x -
4. Genoa - Udinese í - -
5. Inter Milan - AC Milan - x -
6. Juventus - Torino í - -
7. Lazio - Foggia - X -
8. Napoli - Sampdoria - x -
9. Parma - Cagliari í - -
10. Cesena - Bologna í - -
11. Lecce - Verona í - -
12. Pisa - Padova í - -
13. Reggiana - Ascoli - X -
Heildarvinningsupphæöin:
16,1 milljónir króna |
13 réttir: | 308,750 1 ^
12 réttir: 8,270 1
11 réttir: | 690 ll ^
10 réttir: 200 1-