Morgunblaðið - 23.05.1993, Side 20

Morgunblaðið - 23.05.1993, Side 20
20 g AIQKGUNBI-AÐID SUNNL'DAGUK 23. MAÍ 1993 1240 Fall Skúla hertoga Bárðar- sonar, sem hafði gert upp- reisn gegn Hákoni konungi. 1866 Danska gufuskonnortan Fylla kemur til eftirlitsstarfa hér við land. 1873 Lög sett um nýja mynt á ís- landi. Krónur og aurar leysa af hólmi ríkisdali og skild- inga. 1918 Viðskiptasamningur við Bandamenn. 1938 Jökulhlaup í Skeiðará. 1953 Guðmundur Einarsson mynd- höggvari frá Miðdal andast. 1965 Afhending íslenzku handrit- anna endanlega samþykkt í danska þinginu. 1979 Snjóflóð á Siglufírði. Erlent 1498 ítalski trúarleiðtoginn Girol- amo Savonarola brenndur á báli fyrir villutrú. 1618 Hundrað vopnaðir aðalsmenn í Bæheimi fleygja tveimur óvinsælustu embættismönn- um Þýzkalandskeisara út um glugga í Hracfs/j/n-kastala í Prag. Þrjátíu ára stríðið hefst. 1660 Karl II siglir frá Schevening- en í Hollandi til Englands. Úlegð hans lýkur og konung- dæmi endurreist. 1795 Herlið í París bælir niður óeirðir, sem stafa af brauðs- korti. 1797 Uppreisn brezkra sjóliða í skipalæginu við Nore í ósum Thames. 1863 Kit Carson andast. Einn brautryðjenda Villta vesturs- ins í Bandaríkjunum. Veiði- maður, kunnugur Indíánum og barðist gegn þeim; leið- sögumaður landkönnuða og herforingja. Barðist í Þræla- stríðinu. 1873 Riddaralögregla sett á fót í norðvesturhluta Kanada. 1887 Frönsku krýningargeimstein- unum stolið. 1906 Norski leikritahöfundurinn Henrik Ibsen andast. 1945 Heinrich Himmler, innanrík- isráðherra Hitlers, sviptir sig lífi. 1951 Kínversk stjóm sett á lag- girnar í Tíbet. 1977 Hryðjuverkamenn frá Suður- Mólukkueyjum taka 161 far- þega jámbrautarlestar í gísl- ingu í Hollandi. AFMÆLISDAGAR Carl von Linné 1707. Sænskur grasafræðingur og alhliða náttúru- fræðingur. Upphafsmaður flokkunar jurta og dýra og faðir nútímagrasafræði. Franz Anton Mesmer 1734. Austurrískur læknir, sem beitti sefjun og dáleiðslu við lækningar og mótaði aðferðir sínar í kenningu um segulkraft. Douglas Fairbanks 1883. Banda- rískur hetjuleikari (Gríma Zorros, Hrói höttur, Þjófurinn frá Bagdad). Jón Engilberts 1908. Listmálari. Joan Collins 1933. Brezk leik- kona, kunn úr bandarískri sápuó- peru, Dynasty. Anatolíj Karpov 1951. Sovézkur skákmeistari. Kidd hengdur fyrir sjórán 1701 Kafteinn Kidd var hengdur fyrir sjórán og morð í London í dag. A leiðinni til af- tökustaðarins við Thames var komið við á nokkmm krám og áður en aftakan fór fram svar- aði Kidd áminningarorðum prestsins með formælingum. Hengja varð hann tvisvar, þar sem kaðallinn slitnaði í fyrra skiptið, og tjargað lík hans var hengt upp til sýnis, öðmm til viðvömnar. William Kidd heijaði upphaflega á spænsk og frönsk skip í umboði stjómvalda og sigldi til Madagaskar til að bæla niður sjórán, en gerðist sjóræn- ingi sjálfur. Þegar hann hafði tekið marga skipsfarma herfangi undan strönd Afríku sigldi hann til Vestur-Indía og þaðan til Long Island. Þegar hann hætti sér til Boston var hann handtek- inn og sendur til Englands, þar sem hann var leiddur fyrir rétt, en margt er á huldu um hagnað Adolf Eichmann handtekinn 1960 Forsætisráðherra ísra- els, Davíð Ben-Gurion, tilkynnti í dag að stríðsglæpamaðurinn Adolf Eichmann hefði verið tek- inn til fanga og yrði leiddur fyrir rétt í Israel. Eichmann var yfirmaður þeirrar deildar Ge- stapo, sem sá um útrýmingu Gyðinga, og hafði umsjón með dauðabúðum, þar sem sex millj- ónir Gyðinga létu lífið. Hann komst undan í stríðslok. Sam- kvæmt frétt- nrrr- um frá ísrael KMF3WB8 rakti nazista- veiðarinn Símon Wi- esenthal slóð Eichmanns til Argentínu, þar sem hann bjó undir dul- nefninu Ricardo Klimenti. Starfsmenn ísraelsku leyniþjón- ustunnar rændu honum síðan og færðu hann til Tel Aviv í opinberri flugvél. Wiesenthal missti 89 ættingja í útrýming- arherferðinni gegn ■Gyðingum og hefur átt þátt í því að mörg hundruð nazistar hafá verið dregnir fyrir lög og dóm. hans af sjóránum. Megnið af ránsfengnum er horfið og hann neitaði því að hafa falið mikinn fjársjóð, sem hefur gert hann að þjóðsagnapersónu. Hann var frægur fyrir hugrekki og grimmd og þar sem faðir hans var prestur segir í þjóðvísum að hann hafi grafið biblíu sína í jörðu. 32 >ISur .............. Mr r. III. IU. — Flmmludrgur U. mal 1H1 rruUmllJa Mcrfu.V'.Uaa Framsóknarmenn reyndu að fá Breta til að gera kröfur á hendur okkur Hvaða nafni viGja menn nefna slíka iðju? | Tíminn leyndi viðtalinu við IMfels P. Sigurðsson Kosningar nálgast 1963. Pólitíkin var fyrirferðarmikil á síðum íslensku dagblaðanna vorið 1963, og svo var einnig á þessum degi, 23. maí. Morgunblaðið fjallar um það á forsíðu, að framsóknarmenn hafi reynt að fá Breta til að gera kröfur á hendur okkur í landhelgismálinu. í inngangi fréttarinnar segir meðal ann- ars: „í landhelgismálinu hafa framsóknarmenn og kommún- istar að undanförnu lagt megináherslu á þau vísvitandi ósannindi, að breska stjómin hygðist fara fram á framleng- ingu undanþáganna til veiða á afmörkuðum svæðum innan 12 mílnanna þegar þær renna út eftir nokkra mánuði, og bætt því við, að leiðtogar stjórnarflokkanna væru óðfúsir að fallast á slíka framlengingu." í forsíðugreininni er þessu harðlega mótmælt og blekkingarvef framsóknarmanna í þessu máli ákveðið vísað á bug. Tvær aðrar fréttir eru á forsíðunni þennan dag. Annars vegar er varpað fram þeirri spurningu hver borgi tjónið ef bifreið brennur og er vitnað til nýlegs atviks er bíll gjöreyði- lagðist í bruna í Stóra-Vatnsskarði. Þar kemur m.a. fram að sé bifreið aðeins tryggð „skyldutryggingu" fáisttjón vegna bruna ekki bætt. Hins vegar er svo stutt frétt um að 114 refír og 223 minkar hafí verið drepnir í Skagafjarðarsýslu árið 1962 og að heildarkostnaður við eyðingu vargsins hafí numið tæpum 223 þúsund krónum. Marlborough hrfisar sigri 1706 John Churchill, hertogi af Marlborough, gersigraði 60.000 manna einvalalið franska marskálksins Villeroi við Ramillies skammt frá Nam- ur í dag með álíka fjölmennum her Breta og bandamanna þeirra. Marl- borough gerði yfirvarpsárás á vinstri fylkingararm Frakka þar sem þeir höfðu búizt til varnar í hæðum rétt hjá Ramillies. Villeroi færði hersveitir frá hægri fylkingararmi sínum og Bandamenn brutust í gegn með ofur- efli liðs. Öll franska varnarlínan gaf sig og Mariborough fyrirskipaði alls- heijarárás. Frakkar flúðu skipulags- laust og misstu 12.000 menn fallna og særða, 6.000 fanga og 50 fallbyss- ur, en Bandamenn 1.066 fallna og 3.633 særða. Mikið orð hefur farið af Marlborough síðan hann hnekkti veldi Frakka og tryggði ensk yfirráð í Norð- ur-Ameríku og á Indlandi með sigri sínum við Blenheim í hitteðfyrra. Stór- stríð hefur geisað í Evrópu síðan síð- asti konungur Spánar af ætt Habs- borgara lézt og Loðvík XIV og Leop- old keisari I deila um ríkiserfðimar. Englendingar og Hollendingar vilja koma í veg fyrir að Spánn sameinist Frakklandi eða Austurríki. Ósigur Frakka í dag veikir vígstöðu þeirra í spænsku Niðurlöndum og Marlboro- ugh virðist til alls líklegur. Da Gama siglir til Indlands 1498 Portúgalski sæfarinn Vasco da Gama kom til Calicut á Malabarströnd Indlands í dag eftir tæplega eins árs siglingu og er fyrsti Evrópumaðurinn sem hefur farið sjóleiðina til Austur-Indía. Da Gama sigldi á fjórum skipum frá Lissabon til Góðrarvonarhöfða og upp með austurströnd Afríku. Soldáninn í Mósambík hélt að leiðangurs- mennirnir væru múhameðstrúar og útvegáði þeim hafnsögumenn þegar þeir sigldu norður á bóg- inn, en fjandsamlegir Arabar réðust á þá í Mombasa. Viðtök- urnar í Calicut hefðu mátt vera vinsamlegri. Gjafir þær, sem da Gama fór með í land, hefðu átt betur við í Afríku og valdhafínn í Calicut hafnaði þeim. Arabísk- ir kaupmenn hafa reynt að snúa Indveijum gegn portúgölskum keppinautum sínum. Árás úr launsátri á Bonnie og Clyde 1934 Bankaræningjamir og morðingjarnir Bonnie Parker og Clyde Barrow féllu í kúlnaregni þegar lögregla gerði bifreið þeirra fyrirsát í Louisiana í dag. Bonnie og Clyde urðu fyrir rúm- lega 50 kúlum að sögn lögreglu. Skálmöld hefur ríkt af þeirra völdum í suðvesturri'kjum Bandaríkjanna í fjögur ár og þau hafa myrt 12 manns í árásum á banka og benzínstöðvar í smá- bæjum. Bonnie er 23 ára, en Clyde tveimur ámm eldri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.