Morgunblaðið - 23.05.1993, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 23.05.1993, Qupperneq 28
28 B MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1993 ©1988 Universal Press Syndic. ,, \Ji% hófum tonList sem heJur- i/erib hljobritub A, eJnd, spoUi scm t&tcur cxbeins £Too fcrénur. " Með morgimkaffinu meintir það sem þú segðir. Hættu að kvarta strákur og drekktu kartöflurnar! HÖGNI HREKKVÍSI BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691329 - Símbréf 681811 Svar biskups við fyrir- spumum um „kvennakirlqu“ Frá Ólafí Skúlasyni: Jóhann Guðmundsson beinir nokkrum spurningum til mín í Morgunblaðinu og er tilefni þeirra messur á vegum þeirra, sem hafa skilgreint sig undir heitinu „kvennakirkjan“. Þetta starf hafði ekki verið rætt við mig og hefur það heldur ekki enn. Það er þess vegna hvorki á ábyrgð biskups né Þjóðkirkjunnar og ekki skipulagt af henni. Er þetta ekki sagt til þess að áfellast þá, sem hér standa fyrir guðsþjónustu- haldi, heldur aðeins til skýringar. Mér hefur aftur á móti verið tjáð, að hvati þessa starfs sé runn- inn frá biblíulestrarhópum, sem sprottið hafa af fræðslu séra Auð- ar Eirar Vilhjálmsdóttur í Tóm- stundaskólanum. Er um nokkra hópa að ræða, þar sem konur koma saman og ræða texta úr Biblíunni og heimfæra að réynslu sinni og lífsskilningi. Enda þótt kvenprestar hafi leitt guðsþjónustur, sem hafa sprottið af þessum samverustundum, þá er þetta starf ekki að heldur á vegum hóps kvenpresta, sem funda reglu- lega. Kvenprestar hafa aðeins lagt þessu máli lið með prédikunum og annarri þátttöku í helgihaldinu. En heiti það, sem þessir hópar hafa kosið að sameinast undir, þ.e. kvennakirkja, getur auðveldlega valdið misskilningi og hefur gert það. Hef ég orðið var við efasemd- ir um nafn hjá mjög mörgum, ekki síst prestum, eftir að þessi hreyfing haslaði sér völl með framangreind- um hætti. Vandinn við nafngiftina felst í því, að hægt væri að líta á þetta sem sérstaka kirkju, þá ætl- aða konum og fyrir konur og leidd- ar af konum, og þá með hliðstæðu í fríkirkjusöfnuðum eða svo leitað sé hliðstæðu innan Þjóðkirkjunnar, kirkju heyrnarlausra. Þetta er þó alls ekki ætlunin, og hefði málið verið lagt fyrir mig, hefði ég hvatt til þess að leitað yrði að öðru kenn- ingarorði. Þessar auglýstu guðsþjónustur hafa verið leiddar af prestum Þjóð- kirkjunnar og því ekki nokkur ástæða til að ætla að hér sé klofn- ingslöngun að baki starfi og muni leiða til þess, að konur velji sér sérstakan biskup, er fram líða stundir. Afnot af kirkjum er á valdi við- komandi sóknarp'rests í samráði við sóknarnefnd, ef vafaatriði koma upp. Sé um ágreining að ræða milli prests og sóknarnefndar er honum skotið til prófasts og loks til biskups, ef samkomulag næst ekki fyrr. Svonefnd kvennaguðfræði hefur verið nokkuð áberandi á síðustu árum. Tengist hún löngun kvenna til þess að skoða og skilgreina stöðu sína og hafa notað til þess bæði bókmenntir og listir, auk sagnfræði og stjórnmála. Það er því eðlilegt og hefði reyndar verið óskiljanlegt, ef þessi vitundarvakn- ing kvenna hefði ekki náð til trú- mála og kirkjunnar. Þessu hefur vitanlega fylgt töluverð gagnrýni á hefðbundna framsetningu guð- fræðinnar og þar með karlkenning- ar og að „bræður“ einir séu ávarp- aðir, t.d. í bréfum Nýja testament- isins. í kvennaguðfræðinni er margt nytsamlegt og gagnlegt á ferðinni, en annað orkar tvímælis. Veldur þá óljós skilgreining miklu um slíkt eða að hugtök eru notuð á annan hátt en hefð býður, eins og t.d. þegar talað er um trúaijátn- ingu kvenna eða í nefndu dæmi kvennakirkju. Ég skil um margt viðleitni kvenna, en kýs þó að ekki sé alið á aðgreiningu kynja rétt eins og karlaklúbbar hafa tekið í móti kon- um hin síðari ár og ekki orðið til tjóns svo vitað sé. Og þannig vona ég að messur kirkjunnar verði öll- um ætlaðar og ekki öðru kyni ætl- að að leiða fyrir kynsystur eða bræður. En lestrarhópar kvenna eru mjög gagnlegir og hafa orðið að góðu liði. Vona ég starfið gagn- ist kirkjunni allri. ÓLAFUR SKÚLASON biskup, Biskupsstofu, Suðurgötu 22. Víkverji skrifar Víkveiji dagsins hefur horft á þijá af fjórum „íslandssögu: þáttum“ Baldurs Hermannssonar. í þá er tínt til allmargt annálabrota, sem sótt eru í sögu formæðra og forfeðra núlifandi íslendinga, og hrist saman í einhvers konar sjón- varpssagfræðihanastél. Annálabrotin, sem nær öll voru einnar tegundar, harðneskju og yf- irgangs, spegluðu „sakaskrá" löngu genginna einstaklinga og kynslóða. Þau eru ef til vill sönn á sinn hátt, en samt sem áður hálfsannleikur, ef ætlunin var að gefa sannferð- uga, heildstæða mynd af hinu foma bændasamfélagi. Og stundum er sagt að hálfsann- leikur sé verri en lygin sjálf. xxx Víkveiji dagsins gæti allt eins tínt til hliðstæðar hrollvekjur úr samtímanum og barið inn í sjón- varpshorfendur sem úttekt á borg- arsamfélaginu . Hann gæti fiskað upp úr fjölmiðlum höfuðborgarinnar firnlanga sakaskrá um eiturlyfjaaf- brot, morð, meiðingar (líkamsárás- ir), sifjaspell, misnotkun á börnum og milljónasvik í fjármálum. Hann gæti soðið þetta efni saman við sorgarsögur kvenna og barna í borgarsamfélaginu, sem flúið hafa í Kvennaathvarfið eða Unglingaat- hvarfið og notað í dómsorð yfir búskapar- og kerfisþáttum þéttbýl- isins. Myndun þéttbýlis hefur síður en svo leyst þau mannlegu vandamál, sem höfundurinn hengdi á klakk bændasamfélagsins. Búa ekki rúm- lega sextíu af hverju hundraði landsmanna í höfuðborgarþéttbýl- inu? Samt sem áður hikar Víkveiji dagsins við að útlista höfuðborgar- herlegheitin sem mafíusiðblindu. HÓPFERÐIR HÖFUM GÆÐA HÓPBIFREIÐAR FRÁ12 TIL65 FARÞEGA # EEITIÐ UPPLÝSINGA HÓPFERÐAMIÐSTÖÐIN Bíldshöfða 2a, sími 685055, Fax 674969 xxx Það er mat Víkveija dagsins að höfundur umræddra sjón- varpsþátta hafi farið offari í dómum sínum um íslenzka bændasamfélag- ið. Það hafði sína galla, eins og önnur samfélög, suma stóra eins og vistarbandið, en varðveitti engu að síður þjóðararfinn, menningar- arfleifðina, sem við reisum fullvéldi okkar og þjóðerni á, gegn um fá- tækt og harðæri fyrri alda. Baldur Hermannsson er alfrjáls að þeirri söguskoðun og túlkun sem þættirnir spegla. Umræðan, sem þeir vöktu, er af hinu góða. Sem og sitt hvað í gerð, vinnslu og fram- setningu þeirra. Og höfundurinn og þættir hans eru raunar íslenzkari og bændasamfélagslegri, bæði í kostum og göllum, alhæfingum og svarthvítri framsetningu, en menn gera sér í fljótu bragði grein fyrir. Eplið fellur sjaldan langt frá eikinni. Trúlega hefur sú margfræga aldamótakynslóð gengið of langt í því að fegra Islandssöguna. Við skulum hins vegar varast að þeyta söguskýringarpendúlnum á yztu mörk gagnstæðrar áttar. Það er ekki nauðsynlegt að vera ýmist í ökla eða eyra í öllu því sem við tökum okkur fyrir hendur. Það er til annað og farsælla vinnulag. xxx Höfundur þáttanna vitnár á stundum til Bólu-Hjálmars og annarra hagyrtra manna, sem lifðu súrt með sætu á erfiðum tím- um í sögu þjóðarinnar. En Bólu- Hjálmar, sem sagði samtíð sinni hressilega til syndanna, þagði held- ur ekki um kosti samferðarfólksins. Þannig mætti höfundur þessara rík- issjónvarpsþátta velta því fyrir sér, hvort ekki hafi stöku bóndi eða prestlingur verið í huga Bólu- Hjálmars þegar hann setti saman þessar listilega gerðu hendingar á harðindaskeiði norður í Skagafirði: Víða til þess vott ég fann, þó venjist oftar hinu, að Guð á margan gimstein þann sem glóir í mannsorpinu. Sú er raunin enn í dag, bæði í sttjál- og þéttbýli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.