Morgunblaðið - 30.05.1993, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 30.05.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MAI 1993 B 3 „Bókin er ekki í þeim hávegum höfð sem hún áður var þegar ég byrjaði að safna bókum. Þjóðfélagið og efnahagsástandið er viss spegil- mynd af því í hvaða hávegum bók- in er höfð. Ef menn læsu meira og legðu áherslu á bækur og menningu almennt, væru fjármálin í betra horfi. Léttvægt efni situr í fyrirrúmi og alltof mikið af hundómerkilegu myndefni flæðir yfir. Seinagangur á uppbyggingu Þjóðarbókhlöðu á sama tíma og bruðlað er með pen- inga til óarðbærra fjárfestinga er óskiljanlegur. Það sem bókaútgefendur hafa verulegar áhyggjur af er virðis- aukaskattur sem fyrirhugað er að leggja á bækur 1. júlí næstkom- andi. Það skýtur skökku við að stjórnvöld skuli setja skatta á bæk- ur á saijje tíma og talað er um Evrópu sem órofa heild. Slíkt veikir viðnám gegn erlendum áhrifum. Þeir hamla gegn bókakaupum í stað þess að efla þau, og íþyngja náms- fólki og fjölskyldum þeirra. Það verða engar tekjur af þessum skatti, heldur mikið og margþætt tap. í fyrsta lagi munu útgefendur að líkindum draga útgáfuna veru- lega saman þannig að menningin verður einhæfari en áður, störfum mun fækka í prentiðnaði og ákveð- inn hópur manna missa atvinnu. Skattar og gjöld sem renna til ríkis- ins ef bókaútgáfa verður óbreytt, muni nema mun hærri upphæð en sá virðisaukaskattur sem fæst. Það er mat sérfræðinga sem hafa kann- að dæmið ofan í kjölinn, að ríkið muni tapa stórum fjárhæðum á þessum skatti. Við hátíðleg tækifæri er sífellt tönnlast á söguþjóðinni, bókaþjóð- inni, fomsögunum, allri þessari menningu og merku tungu, þessari latínu Norðurlanda. Ef það á svo að skattleggja þetta er best að hætta þessari umræðu líka.“ - Skáldin hætta líklega að yrkja, nenna því ekki? „Upplag ljóðabóka er aðeins nokkur hundmð eintök en vom Einn bresturinn í íslensku þjóð- félagi er sá, að það má ekki tala um sparn- að og ekki tala um hagnað. Ég á dálítið af fallegum mynd- um, á að kalla það fjárfestingu eða ekki? stærri, jafnvel mörg þúsund áður og seldust upp. Skáldin endurnýja málið. Lestur ljóðabóka gegnir ekki einungis því hlutverki að menn njóti fallegra ljóða og listar, heldur er gott ljóð nauðsynlegt framlag til málsins." - Gáfum þjóðarinnar mun þá fara hrakandi með minnkandi lestri skáldskapar? „Það er afstætt að spjalla um gáfur, því alltaf er eitthvað til af lærðu fólki sem er ómenntað. Menn geta verið ómenntaðir þótt þeir hafí sérþekkingu. Því verður að tengja alit saman, bækurnar og menninguna annars vegar við starf- ið og námið hins vegar. Annars missa menn tilfinningu fyrir tungu sinni og þjóð, og gjá myndast sem gerir það að verkum að sérþekking klofnar frá menningu." - Það er gaman að heyra bisniss- mann segja þetta. „Ef við glötum menningu okkar verðum við bara ný tegund af villi- mönnum, villimenn í tæknivæddu samfélagi, skilurðu." Hungraðir listamenn Marglitir hestar listamannsins Jó- hanns Briems bíta sísvangir sitt gras á myndum fyrir ofan okkur og ég spyr Sverri hvað honum finn- ist um þá staðhæfingu ágæts manns, að ekkert bitastætt hafí komið frá myndlistarmönnum síðari ára því þeir séu ekki nógu hungrað- ir? „Sú kenning að góðir listamenn þurfí að vera fátækir er fráleit. Þetta voru snillingar sem höfðu áhuga á myndlist, voru metnaðar- fullir og þess vegna urðu þeir góðir myndlistarmenn. Alls ekki af því þeir höfðu lítið að borða. Á vissum tímum var talið að bóhemlíf til- heyrði listum, en góður listamaður Sálfræðistofa Hef flutt sálfræðistofu mína í Hafnarstræti 20 (við Lækjartorg), 3. hæð. Tímapantanir í síma 643412 daglega milli kl. 19 og 20, á öðrum tímum í símsvara 628230. Eiríkur Líndal dr. phil., sálfræðingur. vinnur mikið eins og aðrir hæfír menn sem ná árangri hver í sinni grein. Listamenn þurfa að búa við góðan efnahag eins og aðrir þjóðfé- lagsþegnar. Það þarf að búa þeim þannig skilyrði að hæfileikar þeirra, kraftar og snilligáfa fái notið sín.“ - En eru þeir ekki of margir sem mála hér á landi án þess að hafa nokkra hæfileika? „Það er stór hópur manna sem fæst við myndlist um þessar mund- ir og þar er að finna marga fram- sækna myndlistarmenn. Verk þeirra gleðja augað. En eins og gerist í öllum greinum, myndlist jafnt sem atvinnurekstri, eru marg- ir kallaðir en fáir útvaldir.“ Hefur þig dreymt um ad eignast Míele þvottavél? MIELE W70I :VINDUHRAÐI 600-1200 SN„ MIELE GÆÐI. Tilboó: % afsláttur + visthæft þvottaduft og mýkingarefni I fylgir hverri vél. ' íslensk framleiðsla. Tilboðsverð: Kr. 99* 108 stgr.* Verðlistaverð: 124.676 Tilboðið gildir meðan birgðir endast. w W Jóhann Ólafsson & Co SUNDABORG 13 • SÍMI 688 588 Opnunartími mánudaga til föstudaga 9-12 og 13-18. Lokað á laugardögum. *Ver.ð miðað við gengi þýska marksins 15.10 1992. - tryggja betri endingu í ísskápnum MJÓLKURSAMSALAN Nú hafa verið teknar í notkun breyttar umbúðir undir ýmsar gerðir af jógúrti og skyri til mikils hagræðis fyrir neytendur. Dósirnar eru víðari en áður sem gerir þær auðveldari í notkun. Jafnframt eru komin plastlok á stærri dósirnar sem setja má á aftur að máltíð lokinni ef afgangur verður. - Þú getur því verið viss um að jógúrt og skyr endist nú betur í ísskápnum þínum!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.