Morgunblaðið - 30.05.1993, Page 15

Morgunblaðið - 30.05.1993, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1993 T-i r~V----. "i; ; 1—!—)/:; ;‘-1 '-r—r?n- ’*'**-frH*" B 15 o.___L2__ sem bílumferð er töluverð. Hvað hún er að sækja í rykmökkinn er torséð. Tjaldurinn gerir þetta líka. Spóinn er einnig í þurrlendinu. Það er örðugt að finna spóaeggin þótt stór séu, því spóinn er kænn og laumast af eggjunum löngu áður en menn nálgast þau. Skreiðist síðan á milli þúfna uns hann er kominn langt frá eggjunum og rýkur þá upp með gjammi og velli. Þykist eiga eggin á allt öðrum stað heldur en raunin er. En hreiðrin eru opin og eggin stór. Hann á því úr vöndu að ráða er loftvargamir svífa yfir í leit að æti. Við þokumst nú nær sjónum, landið gerist hijóstrugra. Víða er urð, en á milli melöldur. Á melöld- unum er viðbúið að stór svartur og hvítur vaðfugl með langt rautt nef sendi okkur tóninn. Þetta er tjaldurinn sem er svo harður að veija varpið að smærri fuglar sækjast eftir að verpa í námunda við hann. Eggin eru nokkuð stór og brúnleit með breytilegum skell- um. Þau geta verið samlit jörðinni og eitt er víst, að það verður ekki íburðarmikil hreiðurgerðin sem kemur upp um hann. Tjaldurinn rétt rekur nefið í mölina og ýtir til nokkrum völum. Verpir síðan beint á melinn. Það sama gerir sandlóan og eru eggin hennar jafn- vel enn samlitari en hjá tjaldinum, ekki síst þar sem þau eru miklu minni. Egg beggja eru brúnleit. Menn ættu að gæta sín venju fremur í þessu kjörlendi að stíga ekki ofan á egg þessara fugla. Sundfuglar Sundfuglarnir eru auðvitað hin- ir margvíslegustu, allt frá mávum til anda og allt frá kríu til álfta. menn sjá ekki til kvenfuglsins getur verið örðugt að átta sig hvor tegundin eigi óðalið. Ef kven- fuglinn sést, þá er duggandarkoll- an með ljósa skellu við nefrót. Annars dökkbrún. Buslandareggin eru ívið minni og ljósari yfirlitum. Þeirra algeng- ust eru stokkandareggin. Stokk- öndin velur sér hina fjölbreytileg- ustu varpstaði, allt frá frumskógi gróðurs til harðamels undir báru- jámsplötu. Finni menn urtandar- hreiður þekkist það best á því hversu smá eggin eru. Egg rauð- höfða ívið lengri en egg stokkand- ar. En þetta er örðugt. Stærri mávarnir sem almenn- ingur er líklegastur til að ramba fram á í varplandi eru svartbakur og sílamávur. Skyld„mennin“ kjói og kría eru einnig algeng. Séu menn á skúmaslóðum fá þeir naumast mikið næði til að virða fyrir sér eggin, svo aðgangsharður er fuglinn. En egg skúmsins eru í laut í sandi. Kjói og kría eru í þurra mólendi og melupi og er hreiðurgerð engin. Eggin með brúnleitan grannlit og breytilegar skellur, í sama móti og egg máva og vaðfugla. Svartbakur og sílamávur era í þurrlendi, mólendi og hraunum. Þeir nostra örlítið við hreiðrið, róta til mosaflygsum og búa sér vænar skálar. Sílamávar era oftast í dreifðum byggðum og fínna menn oft margar tómar skálar er þeir ganga um sílamávsvarplöndr Oft er eitt og eitt svartbakspar í síl- amávsvarpinu og era egg svart- baksins greinilega stærri. Annars era svartbakarnir yfírleitt út af fyrir sig eða í enn dreifðari byggð- um. , Samlit TJALDSEGGIN eru furðu samlit jörðinni, en fuglinn fær fallein- kunn fyrir hreiðurgerð. Eða kannski 10? Fyrst dettur mönnum í hug vot- lendi og vötn. Ein tegund gerir sér meira að segja flothreiður, flór- goðinn, sem reyndar er að verða sárasjaldgæfur. Hettumávur er aftur á móti til muna algengari og er oft með hreiðurdyngjur sínar í sefínu. Þó ekki á floti. Eggin eru tvö til þijú svona yfírleitt og í lita- samsetningu svipar þeim til vað- fuglseggja. Hreiður hettumávs eru og oft á þurrara landi, en þá nærri vatnsbakka eða sefí. Andareggin era trúlega erfíðust í greiningu. Ekki einungis vegna þess að þau era afar lík, einlit, frá einni tegund til annárrar, heldur eru kvenfuglar anda oft furðu lík- ir. Þótt fátt sé algilt í þessum efn- um, þá virðast kafendur í heild séð vera bundnari við að verpa í þétt- um gróðri nærri vatnsbökkum. Þá verpa kafendur á borð við duggönd og skúfönd yfirleitt töluvert síðar heldur en buslendur á borð við stokkönd. Æðurin er undantekn- ing meðal kafanda, bæði hvað varðar varptíma og kjörlendi, en æðurin kýs sér þurrlendi nærri sjó, móa og/eða þýfi. Egg æðar- fugls era einnig stærst andareggja og með sterkasta græna litnum. Eru því auðþekkt og auðfundin. Ef menn eru á rölti við vötn inn til landsins og fínna kafandar- hreiður þá er líklegast að það til- heyri duggönd eða skúfönd. Ef Ránfuglar Áður en farið frekar út í þessa sálma er rétt að minna á, að lögum samkvæmt má ekki fara að hreiðr- um ama, fálka, smyrla og þeirra uglutegunda sem hér er að finna, sem raunar er einungis brandugla, enn sem komið er. Hitt getur allt- af hent að fólk rekist á þessi hreið- ur án þess að hafa ætlað sér að brjóta lög. Er þá heiðarlegast að hafa sig á brott hið fyrsta. Líkleg- ast er að fólk detti um smyrils- og brandugluhreiður með þessum hætti, enda era þeir liðflestu rán- fuglar þessa lands þótt hvorug tegundin sé algeng. Uglan verpir gjarnan í kjarr- og hrísmóum, stundum í votlendi. Eggin eru hvít og geta verið all nokkur. Smyrillinn er klettafugl, en stund- um eru hreiðrin aðgengileg. Eggin geta verið allt að 5 til 6 og eru rauðbrún. Þetta er yfirferð á hundavaði vitum við vel. Mjög oft er fuglinn sem eggin á að flögra í kring um aðkomumanninn og er þá grein- ingin auðveld svo fremi sem við- komandi hafi lágmarksþekkingu á algengustu fuglum landsins. Við það hljótum við að miða. Það get- ur hins vegar einnig hent að fugl- inn er ekki við hreiðrið og þegar svo ber undir gæti lýsing af þessu tagi verið betri en ekki neitt. Heimilistæki frá eru vönduð og stílhrein SUMARTILBOÐ h/f ZANUSSI uppþvottavélar eru til í tveimur gerðum, ZW 107 m/4 valk. og ID-5020 til innb. m/7 valkerfum. Báð- ar f. borðb. fyrir 12. Hljóðlát- ar - einfaldar í notkun. Verð frá kr. 53.600,- Gufugleypar frá ZANUSSI; CASTOR; FUTURUM og KUPPERSBUSCH eru bæði fyrir útblástur eða gegnum kolsíu. Verð frá kr. 9.800,- RAFHA, BEHA og KUPP- ERSBUSCH eldavélar eru bæði með eða án blásturs. Með glerborði og blæstri. 4 hellur og góður ofn. 2ja ára ábyrgð á RAFHA- vélinni. - Frí uppsetning. Verð frá kr. 38.300,- Um er að ræða mjög marg- ar gerðir af helluborðum: Glerhelluborð m/halogen, helluborð 2 gas/2 rafm. eða 4 rafm. hellur með eða án rofa. Verð frá kr. 22.400,- ZANUSSI og KUPPERS- BUSCH steikar/bökunarofn- ar í fjölbreyttu úrvali og lit- um. Með eða án blásturs - m/grillmótor - m/kjöthita- mæli - m/katalískum hreinsibúnaði o.fl. Verð frá kr. 36.000,- KUPPERSBUSCH örbylgju- ofnar í stöður 15 og 20 I. Ljós í ofni, bylgjudreifir og gefur frá sér hljóðmerki. Verð frá kr. 19.700,- Verð er miðað við staðgreiðslu. Bjóðum upp á 5 gerðir þvottavéla. 800-1000-1100 sn./mín. Með/án valrofa á hitasparnaðarrofi. Hraðvél, sem sparar orku, sápu og tíma. Þvottavél með þurrk- ara og rakaþéttingu. 3ja ára ábyrgð - uppsetning. Verð frá kr. 53.000,- Þurrkarar, 3 gerðir, hefð- bundnir, með rakaskynjara eða rakaþéttingu (barki óþarfur). Hentar ofan á þvottavélina Verð frá kr. 34.000,- 7 gerðir kæliskápa: 85, 106, 124, 185 cm á hæð. Með eða án frystihólfs. Sjálfvirk afhríming. Hægt er að snúa hurðum. Eyðslugrannir - hljóðlátir. Verð frá kr. 30.000,- Bjóðum uppá 9 gerðir kæli/frystiskápa. Ymsir möguleikar í stærðum: Hæð 122, 142, 175 og 185 cm. Frystir alltaf 4 stjörnu. Sjón er sögu ríkari. Fjariægjum gamla skápinn. Verð frá kr. 43.500,- Frystiskápar. 50, 125, 200 og 250 I. Lokf&ir með plast- lokum - eyðslugrannir - 4 stjörnur. Verð frá kr. 32.300,- ZANUSSI frystikistur 30( 213 og 400 I. Dönsk gæðt vara. Mikil frystigeta. Ljós loki. Læsing. 4 stjörnur. Verð frá kr. 42.000,- Okkar frábæru greiðslukjör - lánað til 30 mán. Opið sem hér segir: Virka daga til kl. 18. ______Laugardaga frá ki. 10-16.___ VERSLUNIN RAFHA, HAFNARFIRÐI. SÍMI 50022 - LÆKJARGÖTU 22 VERSLUN RAFHA, REYKJAVÍK, SÍMI 620100 - BORGARTÚNI 26

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.