Morgunblaðið - 30.05.1993, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 30.05.1993, Qupperneq 24
24 B MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1993 NÁM I Námsflokkakökunni var GuÐRÚN Halldórsdóttir skóla- stjóri Námsflokkanna undan- farin tuttugu ár segist hafa einna mest gaman af kennslu og þá eink- um dönsku, en samt var það eigin- lega fyrir tilviljun að hún leiddist út í það starf. „Vinkona mín Bryn- dís Víglundsdóttir var alltaf að hvetja mig til að verða kennari. Ég byijaði í íslenskunámi í háskóian- um, en þá var hann ekki sniðinn fyrir fólk sem þurfti líka að vinna fyrir sér svo að ég hætti þar og fór að vinna í Landsbankanum," segir Guðrún. „Ég hafði enga trú á að ég gæti orðið kennari. Svo var það eitt sumar, að ég var beðin að passa fjóra stráka á aldrinum 5-15 ára í einn mánuð meðan foreldramir voru erlendis. Ég bjó á heimilinu, vann á daginn og átti að annast þá eins og ég gæti. Þetta gekk svo ljómandi vel og okkur samdi öllum ágætlega þannig að ég ákvað að prófa að verða kennari og fór í Kennaraskólann." Guðrún segir að erfítt hafí verið að fá kennslu í Reykjavík á þessum árum og svo fór að hún tók að sér að kenna unglingum í 1. og 2. bekk í Lindargötuskóla, sem var gagn- fræðaskóli. „Það var helst að það vantaði kennara fyrir þennan ald- ursflokk, því hann þótti einna erfið- astur. Ég kenndi við skólann í tíu ár mér til óblandinnar ánægju og fannst einstaklega gaman að vinna með þessum æskulýð." Að sögn Guðrúnar var Jón A. Gissurarson skólastjóri mjög skilningsríkur og gátu kennarar meðal annars raðað stundatöflunni þannig, að þeim gafst tækifæri á að nema við há- skólann með kennslunni. Lauk Guð- rún því BA-prófi í dönsku og sögu á þessum árum. Þá var hún annar stofnanda Félags dönskukennara. Draumurinn um kökuna sem var full af góðgæti Það var svo árið 1972 að Jónas B. Jónsson fræðslustjóri hvatti Guð- rúnu til að sækja um starf skóla- stjóra Námsflokkanna, en þá stóð henni einnig til boða stjómunar- starf í efri deildum Lindargötu- skóla. „Það vill svo skrýtilega til,“ seg- ir Guðrún og getur ekki gert að sér að brosa þegar hún minnist þessa atburðar, „að stúlka sem vann með mér vissi hverju ég stóð frammi allt g’óðgætið KENNARAR Námsflokk- anna ásamt fjölskyldum sín- um notuðu einn góðviðris- daginn í sl. viku til göngu- ferðar. Hér má sjá Guðrúnu Halldórsdóttur skólastjóra í hópnum. Fáir vita, að Náms- flokkarnir eru næstfjöl- mennasta menntastofnun landsins og fylgir í kjölfar Háskóla íslands. fyrir og spurði hvom staðinn ég hefði valið. Ég sagðist hafa valið Námsflokkana og þá sagði hún mér draum, sem hana hafði dreymt. Ég á að hafa setið inni á kennara- stofu í Lindargötuskóla og fyrir framan mig vom tvær tertur sem ég átti að velja á milli. Önnur var fallega skreytt en hin alveg slétt og ég valdi þá sléttu. Síðan skar ég í hana sneið og út úr henni valt alls konar góðgæti." Nú lítur hún upp og segir: „Ég held að þetta hafí verið forspá. Inni í Náms- flokkakökunni, sem er einföld og fólk heldur að sé kannski sáralítill og ómerkilegur skóli, þar er allt góðgætið. Ég verð vör við, að fólk heldur að lítið sem ekkert sé að gerast hjá okkur, nema smávægileg tungumálakennsla, en það er bara brot af starfí okkar og það er ólg- andi starf frá kl. 9 á morgnana til kl. 10 á kvöldin." í Námsflokkunum er nú m.a. boðið upp á tuttugu mismunandi tungumálanám, þrettán verklega þætti í frístundanámi, auk próf- náms á fomáms- og framhalds- skólastigi, kennslu í líkamsrækt, starfsnám fyrir ófaglært fólk og námskeið fyrir atvinnulausa. Auk þess má nefna lestrarkennslu, sem Námsflokkamir hafa um árabil veitt ólæsu, treglæsu og lesblindu fullorðnu fólki. Tók að sér fósturböm Það hefur fallið í Guðrúnar hlut að aðstoða þá sem minna mega sín og hafa kannski átt erfitt uppdrátt- ar. Þannig tók hún nokkur böm heim til sín í stuðningskennslu meðan hún kenndi við Lindargötu- skóla. Þá hefur hún tekið að sér nokkur fósturbörn, „sem hafa rekið á mínar fjörur og verið hjá mér,“ eins og hún nefnir það. Auk þess segist hún hafa verið heppin að fá tækifæri til að aðstoða fólk í Námsflokkunum. Hún segist hafa komist að þeirri niðurstöðu eftir þijátíu ára kennslu, að engin manneskja sé vonlaus. „Það þarf bara að gefa fólki möguleika á að njóta sín og allir þurfa á kærleika að halda. Við vitum að félagsleg aðstaða barna er geysilega mis- munandi og ég er sannfærð um að eitt það besta sem er nú að gerast í grunnskólum er aðstoðin sem þeir eru farnir að veita við heimanámið. Þetta er slíkt jafnréttismál, að ég vona að þetta verði tekið upp í öllum grunnskólum í haust.“ Hugðarefnin mörg Guðrún hefur verið við kennslu undanfarin 30 ár, verið flóttafólki innan handar auk þess sem hún sat á þingi um skeið fyrir Kvennalist- ann. Þegar hún er spurð hver séu hennar hjartans mál um þessar mundir svarar hún að þau séu mjög mörg. „Ég hef haft geysilega gam- an af því að hjálpa fólki að þroska sig, hvort sem það er innflytjandi eða íslendingur. Þá hafa starfsnámskeið Sóknar líka verið mín hjartans mál. Nám- skeiðin eru fjölmenn og í vetur út- skrifuðust rúmlega 600 Sóknar- starfsmenn í hinum ýmsu greinum og rúmlega 60 dagmæður. Mér finnst svo gaman að geta unnið að því að hækka menntunarstaðal þjóðarinnar," heldur hún áfram og ljóst er að hér er hún að tala um hugðarefni sín. Síðan bætir hún við eins og afsakandi: „Þetta er stórt sagt, en á hveiju ári koma um 2.700 nemendur í Námsflokkana sem bæta við sig þekkingu." Því má skjóta hér inn í, að sam- kvæmt íslensku alfræðiorðabókinni geta Námsflokkamir stært sig af því að vera næstíjölmennasta menntastofnun landsins og kemur næst á eftir Háskóla íslands. Atvinnulausir geta orðið forgöngumenn Guðrún minnir ennfremur á nám- skeið fyrir atvinnulausa sem hafa verið starfrækt undanfarin fjögur ár í samvinnu við Atvinnumála- nefnd og Vinnumálaskrifstofu Reykjavíkur. „Við byijuðum með fagmenntun í umönnunar- og versl- unarstörfum ásamt iðnaði. Við höf- um horfíð frá því og í staðinn bætt undirstöðumenntunina. Við kennum fólki líka að end- urnýja fatnað með því að sauma upp úr öðrum fötum og lita flíkurn- ar. Atvinnulausir geta verið stoltir af því að vera forgöngumenn að þessu leyti, því við verðum að hverfa til endurnýtingarinnar og einfaldari lifnaðarhátta á alla kanta. Þetta á ekki bara við um ísland, heldur skiptir það miklu máli fyrir allan hinn vestræna heim að breyta lifn- aðarháttum og viðhorfum. Ef við gerum það ekki verður tuttugasta öldin ekki glæsileg," segir Guðrún Halldórsdóttir og ítrekar að þetta sé staðföst sannfæring sín. HÁSKÓLANÁM í KERFISFRÆÐI Innritun á haustönn 1993 stendur nú yfir í Tölvuháskóla VÍ. Markmið kerfis- fræðinámsins er að gera nemendur hæfa til að vinna við öll stig hugbúnað- argerðar, skipuleggja og annast tölvu- væðingu hjá fyrirtækjum og sjá um kennslu og þjálfun starfsfólks. Námið tekur tvö ár og eru inntökuskilyrði stúd- entspróf eða sambærileg menntun. Eftirtaldar greinar verða kenndar: Tölvubúnaður skólans er sambærilegur við það besta sem er á vinnumarkaðinum og saman stendur af Vict- or 386MX véium, IBM PS/2 90 vélum með 80486 SX örgjörva, IBM RS/6000 340 og IBM AS/400 B45. Nemendur við Tölvuháskóla VI verða að leggja á sig mikla vinnu til þess að ná árangri. Þeir, sem vilja und- irbúa sig í sumar, geta fengið ráðgjöf í skólanum. Mikil áhersla er lögð á forritun og er gagnlegt ef nem- endur hafa kynnst henni áður. Fyrsta önn: Forritun í Pascal Kerfisgreining og hönnun Stýrikerfi Fjárhagsbókhald Önnur önn: Fjölnotendaumhverfi og RPG Gagnasafnsfræði Gagnaskipan með C++ Rekstrarbókhald Þriðja önn: Gluggakerfi Kerfisforritun Hlutbundin forritun Fyrirlestrar um valin efni Fjórða önn: Staðbundin net Tölvugrafík Hugbúnaðargerð Raunhæf verkefni eru í lok hverrar annar eftir að hefðbundinni kennslu lýkur. Lokaverkefni á 4. önn er gjarnan unnið í samráði við fyrirtæki, sem leita til skólans. Umsóknarfrestur fyrir haustönn 1993 er til 18. júní. Umsóknir, sem berast eftir þann tíma, verða afgreiddar eftir því sem pláss leyfir. Kennsla hefst 30. ágúst. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar fást á skrifstofu TVÍ frá kl. 8-16 og í síma 688400. TÖLVUHÁSKÓLI Ví, Ofanleiti 1, 103 Reykjavík. Aðdáendur Dans Quayle geta nú skoðað gamla persónulega muni hans á safninu. Þar á meðal er biblían sem hann notaði við embætti- stökuna. BANDARÍKIN Dan Quayle safn opnað Ohætt er að segja að Bandaríkja- menn séu engum líkir. Nú hafa þeir sett á stofn fyrsta safn til heið- urs fyrrverandi varaforseta Banda- ríkjanna sem er á lífí og ber safnið heitið: Dan Quayle Center. Verður það opnað í Huntington, Indiana, í júní. Uppistaðan í safninu verða alls kyns persónulegir munir varaforset- ans fyrrverandi eins og keppnispeys- an í golfi, sem Quayle notaði í fram- haldsskóla, verðlaunaskjal frá laga- háskólanum í Indiana, biblían sem hann notaði við eiðsvörun í embætti að ógleymdum hárlokki varaforset- ans frá því hann var lítill drengur. Til þess að aðdáendur Quayles þurfi ekki frá að hverfa með einung- is minningar í huganum verður opnuð gjafavöruverslun, þar sem ýmis varn- ingur verður boðinn til sölu eins og Dan Quayle bolir, Dan Quayle póst- kort og Dan Quayle segulstál til að festa minnismiða t.d. á ísskáp. Aðstandendur safnsins vonast til þess að ekki færri en 25.000 manns láti sjá sig á fyrst? árinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.