Morgunblaðið - 30.05.1993, Side 26

Morgunblaðið - 30.05.1993, Side 26
2B£ B MORGUNBLAÐIÐ! SUNNUBA'GUR 80. [ MAI11993/! RAFVIRKJAR - RAFVERKTAKAR Próf í fagtæknilegum áföngum til löggildingar í rafvirkjun verður haldið íTækniskóla íslands mánudaginn 1. júní 1993 kl. 13.15-14.30. Þátttakendur leggi fram staðfest gögn um að þeir hafi lokið námskeiðunum eða sam- bærilegu námi. Rafmagnseftirlit ríkisins. Tóbakslaus veröld - Alþjóð legi tóbaksvarnadagurinn ALÞJÓÐA hcilbrigðisstofnunin hefur ákveðið að alþjóðlegi tóbaks- varnadagurinn, sem er 31. maí ár hvert, skuli að þessu sinni vera helgaður boðskapnum um að heilbrigðisþjónustan vísi veginn til tóbaks- lausrar veraldar. I þessu felast einkum fjórir meginþættir: Að tóbaks sé hvergi neytt þar sem veitt er heilbrigðisþjónusta, hvort sem í hlut eiga starfsmenn, sjúkling- ar eða gestir, að tóbákssala sé hvergi leyfð í heilbrigðisstofnunum né held- ur tóbaksauglýsingar, að starfsmenn og nemar á þessum stofnunum neyti ekki tóbaks, að þar fari fram starf- semi sem miðar að tóbakslausu sam- félagi, m.a. aðstoð við þá sem vilja hætta tóbaksneyslu, og þaðan komi hvatning og stuðningur til æ mark- vissari stefnu og löggjafar í tóbaks- vörnum. Hlutverk heilbrigðisstofnana og starfsfólks þeirra hefur jafnt og þétt orðið víðfeðmara en áður var og tekið í æ ríkara mæli til heilbrigðis- fræðslu og hvatningar um heilsu- samlega lífshætti. Oft er litið til heilbrigðisstétta sem fyrirmyndar um heilbrigt líf vegna þeirrar þekk- ingar og færni sem þær búa yfir. Þess vegna er ákaflega mikilvægt að tóbaksneyslu verði úthýst úr öll- um þáttum heilbrigðisþjónustunnar. Til þess liggja fleiri ástæður. Koma þarf í veg fyrir að sjúklingar, sem eru að leita sér heilsubótar og heilsuverndar, verði fyrir skaðlegum áhrifum vegna tóbaksreykinga ann- arra sjúklinga og starfsfólks á heil- brigðisstofnunum. Sömu verndar ættu starfsmennirnir einnig að njóta. Meðal aðildarþjóða Alþjóða heil- brigðismálastofnunarinnar eru mál þessi misjafnlega á veg komin. Sums staðar reykir fólk í heilbrigðisstétt- um ekki minna en almenningur, jafnvel meira. Annars staðar reykja læknar áberandi minna en aðrar stéttir manna. í Bandaríkjunum t.d. innan við tíu prósent en um fjórðung- ur landsmanna allra reykir. Árið 1990 höfðu 68 ríki sett lög til að takmarka eða banna reykingar á heilbrigðisstofnunum, þar á meðal ísland. Sjaldnast eru slíkar stofnanir þó með öllu reyklausar og þær sem hafa náð því marki hafa yfirleitt ákveðið það sjálfar. í lögum um tóbaksvarnir nr. 74/1984 eru sérstök ákvæði um tak- mörkun reykinga á heilsugæslu- stöðvum og sjúkrahúsum. í báðum tilvikum er aðalreglan sú að reyking- ar eru óheimilar en vissar undanþág- ur samt leyfðar. Undanfarið hefur verið umtalsverð hreyfing í þá átt að lýsa þessar stofnanir reyklausa vinnustaði. Tóbaksvarnanefnd hafa þegar borist slíkar yfírlýsingar frá heilsugæslustöðvunum á Djúpavogi, á Egilsstöðum, í Garðabæ, á Greni- vík, í Grundarfirði, á ísafírði, á Kirkjubæjarklaustri, í Kópavogi, í Ólafsvík, á Seltjarnarnesi og Heilus- gæslustöð Miðbæjar í Reykajvík. Sama er að segja um sjúkrahúsin á Egilsstöðum og Hvammstanga. Vit- að er að margar aðrar heilbrigðis- stofnanir eru reyklausar að miklu eða mestu leyti. Athyglisvert er að um 20 tann- læknastofur víðs vegar um landið hafa þegar sótt um viðurkenningar- skjal sem reyklausir vinnustaðir. Aðalframkvæmdastjóri Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar hefur af tilefni tóbaksvarnadagsins sent frá sér þá áskorun til allra sem vinna að heilbrigðisþjónustu að þeir vísi veginn til heilbrigðara samfélags þar sem talið er sjálfsagt að neyta ekki tóbaks. Annars vegar bæri þeim að gefa það góða fordæmi að neyta ekki sjálfír tóbaks og hins vegar veita fræðslu og leiðsögn sem miðar að því að jafnt og þétt dragi úr tób- aksneyslu. (Frétt frá Tóbaksvarnanefnd). ______________Brids___________________ Umsjón Arnór G. Ragnarsson Sumarbrids 1993 Mánudaginn 24. maí mættu 28 pör. Spilaðar voru 10 umferðir, 3 spil á milli para, með Mitchell-fyrirkomu- lagi. Miðlungur var 270. Efstu pör: NS: Alfreð Kristjánsson - Kjartan Jóhannsson 339 Þrösturlngimarsson-ÞórðurBjömsson 339 Sigurður B. Þorsteinsson - Gylfi Baldursson 309 AV: Hrafnhildur Skúladóttir - Jörundur Þórðarson 325 Eggert Bergsson - Jón Viðar Jónmundsson 304 Erla Sigvaldadóttir - Lovísa Jóhannsdóttir 300 Þriðjudaginn 25. maí mættu 32 pör til leiks. Spilaðar voru 15 umferðir, 2 spil á milli para, með Mitchell-fyrir- komulagi. Miðlungur var 420. Efstu pör voru: NS: Jón Steinar Gunnlaugsson - Gylfi Baldursson 494 María Ásmundsd. - Steindór Ingimundareon 483 Guðlaugur Sveinsson - Láms Hermannsson 476 Sævin Bjamason - Óskar Karlsson 472 AV Guðjón Sigurjónsson - Björgvin Sigurðsson 496 ÞórirMagnússon-EinarGuðmannsson 482 Guðjón Bragason - Erlingur Öm Amarson 481 Jóhann Guðnason - Sigmundur Hjálmarsson 453 Sumarbrids verður spilaður aila daga nema laugardaga og hefst spila- mennska alltaf klukkan 19. Skráning er á staðnum og er hvert kvöld sjálf- 10. bekkingar og framhaldsskólanemendur: Er erfitt að velja rétta staðinn? ú f t?j <" J-c/ m u \ ■7 AA ■(\^J> iíii. TTT Skattframtal lögaðila: Skilafrestur rennur út þann 31. maí Síðasti skiladagur skattframtals lögaðila er 31. maí. Skattframtalinu á að skila til skattstjóra í viðkomandi umdæmi. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI * I Matvælanám Uppeldisnám Sjúkraliðanám Fomám norri valdi Reykholt! Þar er endurnýjaður framhaldsskóli með f jölbreyttu námi. Bóknám fyrir allar brautir. Listanám Atvmnuhfsnam Innritun er haf in. Upplýsingar í símum 93-51200 / 51201 / 51210 / 51112 Framhaldsskólinn í Reykholti 320 Reykholt. Fax 93-51209 i i heimavist * hestamennska * fjölmiðlun * myndbandagerð * blaðaútgáfa * Ijósmyndun * íþróttir * líkamsræktarstöð * sundlaug * leiklist * nýjar tölvur (486) * klúbbar * nemendalýðræði m m m m rn~m'rm m m m m m -m-m-m m mm' m ~ittTm/~m~m^rm m stætt. Spilaður er Mitchell-tvímenn- ingur með tölvuútreikningi. Bridsklúbbur Fél. eldri borgara í Kópavogi Föstudaginn 21. maf 1993 var spil- aður tvímenningur og mættu 8 pör. Úrslit urðu: AmiJónasson-StefánJóhannesson 95 Ásta Erlingsdótttir — Helga Helgadóttir 93 ÞórarinnAmason-BergurÞorvaldsson 92 Ásta Sigurðardóttir - Júlíana Bjamadóttir 92 Meðalskor 84 Þriðjudaginn 25. maí 1993 var spil- aður tvímenningur og mættu 16 pör. Úrslit urðu: Ásthildur Sigurgísladóttir - Láras Amórsson 256 Garðar Sigurðsson - Eysteinn Einarsson 246 Sveinn Sæmundsson - Kjartan Þorleifsson 231 Guðmundur A. Guðm.son - Sigurlín Ágústsd. 231 Næst verður spilað þriðjudaginn 25. maí kl. 19 á Digranesvegi 12. Epson-alheimstvímenningur- inn spilaður 4. júní Áttundi Epson-alheimstvímenning- urinn verður spilaður föstudagskvöldið 4. júní nk. Spilað verður í Sigtúni 9, húsi Bridssambands íslands. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og skráning er á staðnum. Spilamennska hefst kl. 19. Keppnisgjald er 1.500 kr. á par og að íokinni keppni fær hvert par bækling með spilunum og umsögnum um þau eftir frönsku Ólympíumeistarana og Omar Sharif. Síðasta ár spiluðu rúmlega 102.000 manns víðs vegar um heim. Epson-tví- menningin og Heimssambandið vonast eftir enn fleiri þátttakendum á þessu ári. ALPÍNA vandaðir gönguskór fyrir meiri og minni háttar gönguferðir. Frábærverð frá kr. 5.500,- við Umferðarmlðstöðina, slmar 19800 og 13072.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.