Morgunblaðið - 06.06.1993, Síða 1
80 SIÐUR B
125. tbl. 81. árg. SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1993 ___________PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Alvörukoss hjá
Andrési og Söru
LANGUR alvörukoss Andrésar Breta-
prins og Söru Ferguson er leiðir skildu
í lok nokkurra daga samveru á sveitar-
setri drottningar í Skotlandi eykur
vonir um að hjónabandi þeirra verði
bjargað. Þau slitu samvistir í fyrrasum-
ar eftir að myndir birtust af Söru fá-
klæddri í faðmlögum með fjölskyldu-
vini. Að undanförnu hefur vinskapur
hertogahjónanna af Jórvík hins vegar
vaxið. Saman hafa þau farið út að
borða nokkrum sinnum og sést hefur
til þeirra í glaðlegum samræðum.
„Þetta var innilegur alvörukoss, ástúð-
legur en þó ekki lostafullur,“ sagði ljós-
myndari sem fylgdist með skilnaðar-
stund Andrésar og Söru gegnum kröft-
uga aðdráttarlinsu.
Dularfull veiki
rakin til músa?
YFIRVÖLD heibrigðismála í Nýju-
Mexíkó skýrðu frá því í gær að margt
benti til þess að rekja mætti dularfulla
veiki, sem dregið hefur 12 manns til
dauða á verndarsvæði Navajo-indíána
á mörkum Arizona og Nýju-Mexíkó að
undanfömu, til veiru sem fyndist í
þvagi hagamúsa. Líklegast þætti að
veiran hefði borist til manna með vind-
inum eftir uppgufun músaþvags.
Endurbyggja
jámtjaldið
YFIRVÖLD í bænum Hoetensleben, í
austurhluta Þýskalands hyggjast end-
urreisa 350 metra langan og 3 metra
háan hluta af múraum sem áður skipti
landinu milli austurs og vesturs. Efna-
hagsástandið í bænum er einmuna
slæmt og vonast yfirvöld til þess að
múrinn dragi fólk til bæjarins.
Hótelið fram
á hengiflugið
GESTIR á Holbeck Hall hótelinu við
Scarborough í Jórvíkurskíri á Eng-
landi voru rifnir upp frá morgunverð-
arborði á föstudag og sagt að flýta
sér út í skyndi; hótelið á 100 metra
hárri bjargbrúninni væri við það að
hrapa fyrir björg. Hrunið hafði hressi-
lega úr berginu um morguninn og allt
útlit fyrir að frekar gengi á bergið.
Hratt hefur sorfið úr strandlengjunni
við Scarborough, þegar hótelið var
byggt fyrir 110 árum stóð það tugi
metra frá sjó.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Til hamingju með daginn, sjómenn
SKIPVERJAR á Sleipni VE taka trollið á leddinni austur af
Eyjum. Þeir voru þar á humarveiðum, en mikið af fiski fylgir
oft með, þegar híft er. Humarvertíðin stendur venjulega sem
hæst á þessum árstíma. í dag liggja þó veiðar niðri og sjómenn
veija sjómannadeginum í landi til hátíðahalda og skemmtana
með fjölskyldum sínum.
Khasbúlatov hrökklast
út af stj órnlagaþingi
Moskvu. Reuter.
RÚSLAN Khasbúlatov, forseti rússneska fulltrúaþingsins, var klappaður
og púaður niður er hann reyndi að taka til máls á nýju stjórnlagasam-
kundunni sem sett var í Moskvu í gærmorgun. Gekk hann upp í ræðu-
stól er Jeltsín hafði lokið 45 mínútna setningarræðu en rússneski forset-
inn neitaði honum um leyfi til að taka til máls en bauð honum þess í stað
að flytja sjö mínútna ræðu á lokadögum samkundunnar. Khasbúlatov
sá sitt óvænna, strunsaði úr þingsalnum og hótaði að beita sér fyrir því
að sljórnlagaþingið yrði úrskurðað ólögmætt.
Jeltsín gagnrýndi Khasbúlatov og sakaði
hann um að hafa sýnt 700 manna sam-
kundunni óvirðingu. Hélt hann því fram
að upphlaup Khasbúlatovs hefði verið fyrir-
fram ákveðin sviðsetning. Annar þingmað-
ur, kommúnistinn Júrí Slobodkín, reyndi
að fara í ræðustól og lagðist á gólfið og
lét öllum illum látum er hann fékk ekki
orðið. Var hann borinn úr þingsalnum.
í setningarræðu hvatti Jeltsín fulltrú-
ana, héraðsstjóra, embættismenn, stjórn-
málaleiðtoga, þingmenn og fulltrúa ýmissa
hagsmunahópa til þess að samþykkja drög
að nýrri stjórnarskrá sem fyrir lægi. Sagði
hann það lífsspursmál fyrir Rússa að hrista
endanlega af sér arfleifð kommúnismans
og bæri í því sambandi að uppræta sovét-
in, gamla sovéska sveitarstjórnarfyrir-
komulagið sem enn lifði góðu lífi þrátt
fyrir að Sovétríkin hefðu liðið undir lok
1991.
Lítil ítök
Einn fulltrúi, Oleg Rúmjantsev, höfund-
ur stjórnarskrárfrumvarps sem stefnt er
gegn drögum Jeltsíns, sagði að um 50
fundarmenn af 700 hefðu yfirgefið þingsal-
inn í fundarlok og farið til Hvítahússins,
aðseturs rússneska þingsins, til þess að
lýsa stuðningi við Khasbúlatov. Eigi hann
ekki fleiri stuðningsmenn á samkundunni
þykja ítök hans þar lítil.
BAÐUM
MEGIN
BORÐS
UMBUNIN
ÚTTEKIN
ÍSLANDS
DLJSUND
ÁR