Morgunblaðið - 06.06.1993, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1993
7
Mannvistarleifar frá landnámsöld finnast við forsetabústaðinn á Bessastöðum
Rústir stórbýlis frá
því land var numið
Mannvistarleifar frá landnámsöld fram á
okkar daga hafa komið í ljós við fornleif-
auppgröft vegna byggingar þjónustuhúss
austan Bessastaðastofu í vor. Meðal elstu
rústanna eru leifar af skálalaga íveruhúsi,
hringlaga garður og hleðsla, sennilega af
útihúsi. Guðmundur Ólafsson fornleifa-
fræðingur segir að langir garðar eða gerði
af þessu tagi frá þessum tíma hafi ekki
verið rannsakaður áður. Hleðslurnar séu
sömuleiðis óvenjulegar.
Guðmundur sem ásamt Sigurði Bergsteinssyni og
nú síðast Garðari Guðmundssyni, fornleifafræðingum,
hefur stýrt rannsóknarhópi 5-10 starfsmanna, sagði
að fjós, hlaða og bflskúr hefðu verið rifin til þess að
rýma fyrir þjónustuhúsi austan Bessastaða. Aður en
hafist yrði handa við sjálfa bygginguna hefði þó þurft
að rannsaka svæðið og hefði sú vinna staðið frá því
skömmu eftir áramót.
Aðalbygging ófundin
Rannsóknin hefur verið unnin á þann hátt að þegar
komið hefur verið niður á rústir hafa þær verið mæld-
ar út og teiknaðar upp og síðan hefur verið grafið
niður að næsta byggingarskeiði og síðan koll af kolli
þar til komið hefur verið niður á elstu rústirnar.
Guðmundur segir að þær hafi orðið til löngu fyrir
elstu rituðu heimildir. „Fyrstu heimildir um staðinn
eru frá því um 1200. En við höfum komið niður á
rústir frá því miklu fyrr og sýna að hér hafi verið
stórt býli frá því um iandnám," segir hann en í norður-
álmu svæðisins má nú glögglega koma auga á hleðslur
í tengslum við býlið. Þannig telur Guðmundur ekki
ólíklegt að annað hafi verið fjárborg, þó ekki sé hægt
að vita það með vissu, en hitt séu leifar af útihúsum.
Aðeins austar hefur svo verið komið niður á skálalaga
íveruhús og minnir það að sögn Guðmundar á elda-
skála. Hann telur þó ólíklegt að skálinn hafi verið
aðalbygging býlisins. Líklegra sé að sú bygging hafi
verið framan við Bessastaðastofu.
Yngri. raannvistarleifar
Ofar skálarústunum í austurálmunni segir Guð-
mundur að greina megi tóftir frá miðöldum. Tóftirnar
standi þétt og vera megi að þær séu frá ólíkum tím-
um. Svo segir hann að komið hafi verið niður á rústir
frá 16.-18. öld í porti við Bessastaðastofu og undir
henni hafi verið rústir af Konungsgarði og landfógeta-
bústað.
Hann segir í þessu sambandi að hugsanlega hafi
verið komið niður á svokallað þrælakistu eða svarthol
konungs í Konungsgarði. „Margir hafa velt því fyrir
sér hvar þrælakistan hafi verið staðsett. Hugsanlegt
er að hún hafi komið í ljós við rannsóknina rétt aust-
an við Bessastaðastofu. Þar fannst niðurgrafin rúst
og voru veggirnir gerðir úr stórum björgum,“ sagði
hann.
Aðspurður um minjar sem komið hafi í ljós segir
Guðmundir að engir sérstaklega merkir hlutir komið
upp þó fundist hafi nokkur þúsund munir enda væru
flestir þeirra aðeins brot af leirkerum og postulíni.
Guðmundur nefndi þó sérstaklega einn hlut. Litla hand-
skorna dúkku úr beini í búningi embættismanns frá
því á miðri 18. öld og fannst hún framan við Bessastaði.
Óvæntur fundur
Hvað varðar framgang rannsóknarinnar sagði Guð-
mundur að eiginlega ætti henni að vera lokið en óvænt-
ur fundur mannvistarleifa frá landnámsöld í nyrðri
álmunni hefði seinkað rannsókninni auk þess sem veð-
urguðir hefðu ekki verið rannsóknarfólkinu hliðhollir.
Hins vegar sagði hann að stefnt væri að því að ljúka
rannsókninni sem fyrst svo hægt væri að hefja fram-
kvæmdirnar við þjónustuhúsið.
x p Morgunblaðið/Þorkell
Bessastaðastofu
FREMST mæla þau (f.v.) Esther Hlíðar Jensen, Gyða Björk Hilmars-
dóttir og Kristjón Freyr Sveinsson út útihús frá landnámsöld. Fimm
til tíu starfsmenn hafa verið við rannsóknirnar frá áramótum.
Velt upp hugmyndum
GUÐMUNDUR Ólafsson, fornleifafræðingur, og Jóhann Ásmunds-
son, aðstoðarmaður, vinna við fornleifarannsóknirnar. Jóhann hefur
velt því fyrir sér hvort hringlaga garður í norðurálmunni gæti hafa
verið notaður til að ákvarða tima á landnámsöld.
' \
DALVIK
YDALIR
# /
Hafið, Kæra Jelerta, Rita gengur menntaveginn
þrjú af vinsælustu verkum leikársins á eftirtöldum stöðum íjúní:
Laugard.
hafip
SAUOARKROKUR
AKUREYRI
HAFíÐ
BLONDUOS
EGILSSTAÐIR
jud
29
Jelena
Sunn
20
júní
Júní
Rfts
Sunnud.
27.
GgYMIÐ
AUGLYSINGUNA
Hafiö eftir Ólaf Hauk Símonarson
Miðapantanir i sima 9
Kæra Jelena eftir Ljudmilu Razumovskaju
’aasisia
síilpí! ÞJÓÐ
Ríta gengur menntaveginn eftir Willy Russel