Morgunblaðið - 06.06.1993, Page 12

Morgunblaðið - 06.06.1993, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1993 Innait sviðs Sunna Borg flutti til Akur- eyrar 1979 til að leika eitt ár með Leikfélagi Akureyrar og er þar enn. Hún hefur tekið þátt í fjölda uppfærsla með félaginu og leikstýrt nokkrum verkefn- um. Sunna var nýlega endurkjör- in formaður LA. Sem formaður Leikfélagsins og leikhúsráðs hefur Sunna áhrif á verkefnaval og leikaraval. Finnst henni hún sitja báðum megin borðs? „Sem formaður leikfélagsins fæ ég það auðvitað oft á tilfinninguna. Við erum nýbúin að semja bæði við leikara og leikstjóra um launakjör. Það var samið um launahækkun og sem formaður félagsins gat ég ekki varist þeirri hugsun að rekstur- inn yrði erfiðari." Sunna á bæði þátt í vali verkefna og leikara og er sjálf á launaskrá sem leikkona, truflar það hana eitthvað? „Fyrst þegar ég kom hingað lék ég í öllum aðalhlutverkum og það má segja að ég hafi verið komin með leiklist- ina upp í kok! Svo ákvað ég að taka mér frí frá leiksviðinu, bæði til að hvíla mig og áhorfendur. Ég hef ekki sóst eftir stórum hlutverk- um undanfarið, en leikið minni bita- stæð hlutverk. Nú er fólk farið að spyrja hvenær ég ætli að taka al- mennilegt hlutverk! Varðandi val leikara og leikstjóra hef ég auðvitað heyrt utanaf mér að ég sé í ansi góðri aðstöðu sjálf. En ég hef reynt að koma ungum leikurum að og Leikfélag Akureyrar hefur verið stökkpallur fyrir marga unga leik- ara. Það getur vel orkað tvímælis að leikari sé einnig í stjórn leikfé- lags, en maður veit þó nákvæmlega hvað er að gerast innan veggja leik- og utan Sunna Borg Sunna Borg er formaður Leikfé- lags Akureyrar og leikhúsráðs. Hún er einnig fastráð- in leikkona hjá fé- laginu og hefur leikstýrt nokkrum verkefnum hússins og fylgist betur með en maður úti í bæ.“ Sunna segir að formennskan sé annasöm og oft finnist henni starf- ið vanþakklátt. Oft hafi hún verið komin á fremsta hlunn með að hætta formannsstarfinu. „Svo gef- ur fólk manni hrós og maður geym- ir það í minningunni." Starfsmenn aóila alltaf FLUGRÁÐ stýrir flugmálum landsmanna undir yfirstjórn sam- gönguráðherra. í Flugráði sitja fimm menn og eru þrír þeirra kjörnir hlutfallskosningu af Al- þingi, ráðherra skipar tvo menn með sérþekkingu á flugmálum. Með sama hætti eru kjörnir fimm varamenn í ráðið. Leifur Magnús- son er formaður Flugráðs og jafn- framt einn af fimm framkvæmda- stjórum Flugleiða. Komið hefur fram gagnrýni á setu Leifs í Flug- ráði, þar sem hann þykir óneitan- lega tengdur stórum hagsmuna- aðila í flugrekstri. Leifur var fyrst skipaður formaður Flugráðs 1980 og hafði þá starf- að sem framkvæmdastjóri hjá Flug- leiðum í tæp tvö ár, en þar áður hjá Flugmálastjórn í tæp 18 ár. Leifur var jafnframt stjórnarformaður Arn- arflugs hf., en sagði sig úr því starfí þegar hann var skipaður formaður Flugráðs. Hvað segir hann um sína stöðu? „Ráðherra skipar tvo menn í Flug- ráð sem eiga að hafa sérþekkingu á sviði flugmála. í svo litlu þjóðféiagi sem okkar er oft erfitt um vik að finna hæfa menn. Þeir sem hafa sérþekkingu á þessu sviði og við- halda henni eru annaðhvort menn sem vinna í flugrekstri eða hjá Flug- máiastjórn, en hún heyrir undir Flugráð. Starfsmenn Flugmála- stjórnar og flugfélaganna hafa alltaf setið í Flugráði. Agnar Kofoed- Hansen flugmálastjóri var jafnframt formaður Flugráðs í 32 ár og stýrði því ráði sem var yfir honum sjálfum. Mín meginregla er sú að þegar koma upp mál þar sem Flugleiðir koma við sögu hef ég setið hjá við at- kvæðagreiðslur. Ég sé samt ekkert athugavert við að stýra þeim fund- um, leggja fram gögn og stjórna umræðum. I mörg ár hafa ýmis stéttarfélög starfsfólks í flugrekstri óskað eftir að eiga mann í flugráði, það má alveg eins spyija hvort þau megi eiga þarna mann.“ Leifur telur að nýju stjórnsýslulögin veki margar spurningar um skipan í nefndir og hagsmuna í Flugráði Leifur Magnússon Leifur Magnús- son er formaður Flugréðs og fram- kvæmdastjóri hjá Flugleiðum ráð, svo sem bankaráð. Hann segist ekki efast um að menn lendi í því að sitja báðum megin borðs og telur verulega bót að stjórnsýslulögunum. Þar komi fram ákveðnar reglur um meðferð mála. • Leifur bendir á að Flugráð sé umsagnaraðili um flugrekstrarmál og ályktanir þess séu sendar til sam- gönguráðuneytis þar sem endanleg- ar ákvarðanir eru teknar. I mörg ár hefur fulltrúi ráðuneytisins setið fundi Flugráðs sem áheyrnarfulltrúi. Leifur segist láta fylgja málum til ráðuneytisins hvaða afstöðu einstak- ir Flugráðsmenn taka, ef skoðanir eru skiptar. Leifur telur ótta manna við hlutdrægni sína í Flugráði vegna starfs hans hjá Flugleiðum ástæðu- lausan. Megnið af umfjöllunarefnum Flugráðs snúi að framkvæmdaáætl- unum í flugmálum og reglugerða- drögum. „Stundum verða læti út af flugrekstrarleyfum, en útgáfa þeirra er aðeins brot af starfi ráðsins," segir Leifur. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Sæmdir gullmerki Frá afhendingu gullmerkis Umferðarráðs á Selfossi á 25 ára afmæli hægri umferðar. Frá vinstri Óli H. Þórðarson, Valgarð Briem, Benta Briem, eiginkona hans, þá Sigríður Kjaran, eiginkona Sigurjóns Sigurðssonar, Sigurjón og loks Þórhallur Ólafsson formaður Umferðarráðs. 25 ára afmæli hægri umferðar U mfer ðar öryggisráð stofnað í hveiju kjördæmi Selfossi. FYRSTA umferðaröryggisráðið á landsbyggðinni var stofnað á umferðarmálafundi Umferðar- ráðs á Selfossi 26. maí. Kosið var í bráðabirgðastjórn Umferðarör- yggisráðs Suðurlands á fund- inum. Þess var minnst á fund- inum að 25 ár eru síðan hægri umferð var komið á. Umferðarráð stefnir að því að stofna umferðaröryggisnefndir um allt land á árinu 1993. Þær munu starfa innan umferðaröryggisráða sem verða i hveiju kjördæmi. Um- ferðaröryggisráðunum er ætlað að starfa í nánu samstarfi við Umferð- arráð. Stjórn umferðaröryggisráðs í hveiju kjördæmi annast samræm- ingu á störfum umferðaröryggis- nefnda í umdæminu og stuðlar að framgangi þeirra verkefna sem Umferðarráð vinnur að hveiju sinni. Siguijón Sigurðsson fyrrum lög- reglustjóri í Reykjavík og Valgarð Briem hæstaréttarlögmaður voru sæmdir gullmerki Umferðarráðs sem veitt var í fyrsta skipti á fund- inum. Þorsteinn Pálsson dóms- og kirkjumálaráðherra flutti ávarp og sagði meðal annars að breytingin yfir í hægri umferð sýndi hversu góðum árangri mætti ná með vel skipulögðu starfi að umferðarör- yggismálum. Hannes Þ. Hafstein fyrrverandi forstjóri Slysavarnafélags íslands rifjaði á fundinum upp eitt og ann- að frá breytingunni yfir í hægri umferð fyrir 25 árum. í máli Þór- halls Ólafssonar formanns Umferð- arráðs kom fram að umferðaróhöpp kosta 5 milljarða á ári, en hann sagði miklar vonir bundnar við umferðaröryggisráðin og nefndirn- ar. Sig. Jóns. Framhaldsstofnfundir Framhaldsstofnfundir umferðar- öryggisnefndanna verða þannig, að á þriðjudag klukkan 17 verður Umferðaröryggisnefnd Vest- mannaeyja stofnuð í stjórnsýslu- húsinu í Eyjum og klukkan 20:30 sama dag verður Umferðaröryggis- Wterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamióill! fHiOygmnMafoiifo nefnd Árnessýslu stofnuð á Hótel Selfossi. Þá verður umferðarörygg- isnefnd Rangárvalla- og V-Skafta- fellssýslu stofnuð að félagsheimil- inu Skógum þriðjudaginn 15. júní klukkan 20:30. SÝNINGOGSALA á handavinnu Hrafnistufólks á sjómannadaginn frá kl. 13.30-17.00. Kaffisalafrákl. 14.30-17.00. Hrafnista í Reykjavík og Hafnarfirði. \ __________r SJALFSTfEDISFLOKKURINN F É L A G S S T A R F Skoðunarferð um Laugardalinn - Fjölskylduferð - sunnudaginn 6. júní kl. 16.00 Hverfafélög sjálf- stæðismanna í Laugarnes- og Langholtshverfum bjóða félagsmönn- um og gestum þeirra til léttrar skoðunarferðar um Laugardalinn ítilefni þess að senn lýkur framkvæmdum við fjölskyldugarðinn. Dagská: Kl. 16.00: Safnast saman við anddyri Laugardalshallar. Kl. 16.10: Gengið að fjölskyidugarðinum undir leiðsögn Katrínar Fjeldsted, borgarfulltrúa, garöurinn skoðaður og mun Markús Örn Antonsson, borgarstjóri, ávarpa hópinn og lýsa framkvæmdum. Kl. 17.00: Félögin bjóða pylsur beint af útigrilli Argentinu steikhúss. Við hvetjum alla félaga okkar til að mæta og taka með sér gesti og góöa skapiö. Stjórnir félaganna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.