Morgunblaðið - 06.06.1993, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JUNI 1993
ÞINGKOSNINGARNAR Á SPÁNI
AZHAR BBtST VKI
VOFU FRADCOS
eftir Boga Arason
ÆTLA mætti að helsti
stj órnarandstöðufl okkurinn
á Spáni, Þjóðarflokkurinn,
ætti auðveldlega að bera sig-
urorð af Sósíalistaflokknum
í þingkosningunum í dag,
sunnudag. Efnahagurinn er
í mikilli lægð, atvinnuleysið
fer ört vaxandi og fjárlaga-
hallinn er orðinn geigvæn-
legur. Ofan á þetta bætast
fréttir um fjármálaspillingu
stjórnarherranna og kominn
er upp alvarlegur klofning-
ur á meðal sósíalista vegna
ágreinings um sljórnar-
stefnuna. Sósíalistaflokkur-
inn hefur nú verið við völd
í tæp ellefu ár og víðast
hvar myndu kjósendur ekki
víla fyrir sér að gefa öðrum
tækifæri til að sljórna þegar
svo er ástatt. En ekki á
Spáni. Spánverjar eru til-
tölulega ung lýðræðisþjóð
og mörgum þeirra stendur
enn stuggur af hægriflokk-
um eins og Þjóðarflokknum
sem vekja upp slæmar minn-
ingar um 36 ára einræði
Franciscos Francos hers-
höfðingja.
Keppinautarnir
FELIPE Gonzalez, forsætisráðherra Spánar (t.h.), heilsar José María Aznar, leiðtoga helsta stjórnarandstöðuflokksins, sem tekur hér þá
áhættu að brosa. Aznar þykir líkjast Charles Chaplin, einkum þegar hann brosir og þess vegna gerir hann það sem sjaldnast.
1
a
*a
Stefna Sósíalistaflokksins hef-
ur tekið miklum breytingum
frá því Felipe Gonzalez varð
leiðtogi hans árið 1974. Flokkurinn
aðhylltist lengi vel marxisma og
tapaði þingkosningunum 1979 þar
sem sósíalisminn féll ekki í kramið.
Flokkurinn tók upp hófsamari
stefnu og vann stórsigur í kosning-
unum 1982 og hefur verið við völd
siðan.
Gonzalez hefur smám saman
færst til hægri á ellefu ára valda-
tíma sínum. Hann var til að mynda
harður andstæðingur Atlantshafs-
bandalagsins á sínum yngri árum
en kóventi fyrir kosningarnar 1986
og er nú einn af hollustu stuðnings-
mönnum bandalagsins. Hann hefur
átt í hörðum deilum við verkalýðs-
samtökin og aðhyllist frjálsan mark-
aðsbúskap.
Fyrstu árin sem sósíalistar voru
við völd einkenndust af miklum
efnahagsuppgangi. Erlendar fjár-
festingar jukust til muna, stjórnin
dældi miklu fjármagni í endurbætur
á samgöngukerfinu og félagsleg
þjónusta hins opinbera var stórbætt.
Þreyttur forsætisráðherra
Nó er öldin önnur því efnahagur-
inn hefur verið á fallanda fæti und-
anfarin misseri. Gengi pesetans hef-
ur verið fellt þrisvar á átta mánuð-
um og fjárlagahallinn fer ört vax-
andi. Samkvæmt opinberum tölum
er atvinnuleysið nú orðið tæp 22%,
eða meira en í nokkru öðru EB-ríki
(hagfræðingar vefengja þetta
reyndar og segja að um þriðjungur
þeirra sem skráðir eru atvinnulausir
vinni á svörtum markaði).
Mikil óeining er innan Sósíalista-
flokksins um stefnu stjómarinnar,
því vinstriarmur flokksins segir
hana einkennast um of af fijáls-
hyggju. Spillingarmál hafa einnig
skaðað flokkinn og hann hefur ver-
ið sakaður um að fjármagna kosn-
ingabaráttuna árið 1989 með ólög-
legum hætti. Hermt er að flokkurinn
hafí þá þegið jafnvirði 500 milljóna
króna af stórfyrirtækjum og bönk-
um, sem hafi í staðinn fengið hjálp
við að hagræða bókhaldinu. Dag-
blaðið El Mundo, sem aðhyllist
hægristefnu, skýrði ennfremur frá
því nýlega að umboðslaun vegna
opinberra framkvæmda hefðu runn-
ið i kosningasjóði flokksins árið
1986. Það fé hefði síðan verið notað
til að réttlæta kúvendingu flokksins
varðandi aðildina að Atlantshafs-
baridalaginu fyrir almenningi.
Þótt á móti blási er forsætisráð-
herrann enn vinsælasti stjórnmála-
maður landsins. Gonzalez er 51 árs,
frá Sevilla í Andalúsíu, og lögfræð-
ingur að mennt. Hann er afbragðs
ræðumaður og gæddur miklum per-
sónutöfram, sem ásamt ellefu ára
reynslu við stjórnvölinn nýttust hon-
um vel í kosningabaráttunni. For-
lórast einskis
JULIO Anguita, leiðtogi komm-
únista, kveðst einskis iðrast; „ég
verð rauður fram í rauðan dauð-
ann.“
sætisráðherrann virtist orðinn
þreyttur á stjórnmálavafstrinu þeg-
ar kosningabaráttan hófst en sótti
í sig veðrið síðustu vikuna fyrir
kosningarnar.
Alvörugefinn Chaplin
Vandræði Sósíalistaflokksins
hafa stuðlað að því að Þjóðarflokk-
urinn, sem er hægri- og miðflokk-
ur, hefur nú í fyrsta skipti raun-
hæfa möguleika á að fara með sig-
ur af hólmi í þingkosningum. Ef
marka má skoðanakannanir sem
birtar voru á sunnudag var flokkur-
_ MIKILVÆGt______
FYLKJANNA A SPANI
Þjóöernisflokkar sem stjórna
mikiivægum fylkjum eins og
Baskalandiog Katalónfu, gætu
komist f oddastööu á spænska
þinginu eftir kosningarnar f dag,
i
s
inn með ívið meira fylgi en Sósíal-
istaflokkurinn, þótt munurinn væri
ekki mikill. Þjóðarflokkurinn hefur
átt í nokkrum erfiðleikum með að
nýta sér vandræði Sósíalistaflokks-
ins, meðal annars vegna rótgróinnar j
tortryggni Spánveija í garð hægri-
manna.
Leiðtogi Þjóðarflokksins er José
María Aznar, sem tók við af Manu-
el Fraga, fyrrverandi ráðherra í
stjórn Francos, árið 1989. Aznar
varð fyrir valinu eftir að Fraga hafði
hafnað öðrum leiðtogaefnum flokks-
ins. Almennt var því álitið að Aznar
væri skósveinn Fraga en það segir
hann algjöra fírru. Samt hefur hann
átt í erfiðleikum með að afmá þenn-
an stimpil og á kosningafundi ný-
lega lenti hann í vandræðum þegar
nokkrir af stuðningsmönnum
flokksins tóku að hrópa „Lifi
Franco!“ í sífellu.
Aznar er fertugur og lögfræðing-
ur að mennt eins og Gonzalez en
þykir litlaus stjórnmálamaður í sam-
anburði við forsætisráðherrann. Að
loknu lögfræðináminu starfaði Azn-
ar hjá skatteftirlitinu og sagt er að
hann beri þess enn merki, sé sami
grái og varkári embættismaðurinn
og þá. Aznar er alvörugefinn en lík-
ist nokkuð Charles Chaplin og skop-
teiknarar spænskra blaða hafa nýtt
sér það óspart.
Aznar hefur fært Þjóðarflokkinn
nær miðjunni og við fyrstu sýn virð-
1
'l
s