Morgunblaðið - 06.06.1993, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JUNI 1993
19
65 ára maður dæmdur í fangelsi skilorðsbundið fyrir áreitni við barn
Dómur byggður á
framburði bamsins
HÉRAÐSDÓMUR Vesturlands hefur dæmt 65 ára gainlan mann
á Akranesi í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisaf-
brot gegn telpu sem nú er 10 ára. Maðurinn er talinn sekur um
að hafa áreitt telpuna margsinnis meðan hún var fjögurra til sjö
ára. Hann neitaði sakargiftum en dómurinn byggist á framburði
barnsins, mati sálfræðings á þeim framburði og lýsingum móður
barnsins og skólasérfræðings á breytingum á líðan og atferli telp-
unnar á þeim tíma sem brotin áttu sér stað.
Málið komst upp þegar telpan
sá síðastliðið haust í sjónvarpi þátt
um kynferðislegt ofbeldi gegn
börnum, brotnaði niður og sagði
móður sinni frá þeirri áreitni sem
hún hefði orðið fyrir en hafði lokið
tveimur áruni fyrr.
Fyrrum vinnuveitandi móður
Maðurinn var vinnuveitandi
móður bamsins á þeim árum sem
brotin voru framin en þau eru tal-
in hafa átt sér stað á skrifstofu
mannsins í fyrirtækinu þegar telp-
an kom þangað og einu sinni í bíl
fyrir utan fyrirtækið.
Telpan lýsti atferli mannsins
þannig í viðtölum við sálfræðing,
en annað þeirra var tekið upp á
myndband og með hinu fylgdust
dómari og sakflytjendur í gegnum
einstefnugler, að hann hafi látið
hana sitja á hnjám sér við skrif-
borð og sett hönd sína inn undir
buxur hennar og þreifað á kynfær-
um hennar fast og lengi.
Telpan sagði að maðurinn hefði
margsinnis sagt að hún mætti ekki
segja frá þessu en bar hvorki að
hann hefði hótað eða mútað henni
eða verið beinlínis vondur með
öðrum hætti. Hún sagðist aldrei
hafa þorað að biðja manninn að
hætta eða sagt honum að henni
þætti þetta óþægilegt.
Trúverðugur
framburður telpunnar
í niðurstöðum dómarans, Sím-
onar Sigvaldasonar, er rakið að
sálfræðingur teldi framburð henn-
ar trúverðugan og yfirvegaðan.
Frásögnin myndi heild, sé laus við
mótsagnir og breytist ekki við
umfjöllun. Stúlkan sé skynsöm og
virðist hvorki ýkja né reyna að búa
til frásögn.
Þá segir að greint hafi verið frá
andlegum og líkamlegum breyting-
um í hegðun telpunnar á þeim tíma
þegar talið er að misnotkunin hafi
átt sér stað en þær breytingar
hafi verið það alvarlegar að móðir
hennar og kennari hafi leitað eftir
aðstoð skólasálfræðings. Þá segir
að allt þetta þyki Veita frásögn
telpunnar'stoð. Sakargögn virt í
heild beri þannig böndin að mann-
inum og þyki fram komin fullnægj-
andi sönnun fyrir sekt hans.
Eldri kæra
Maðurinn hafði einu sinni geng-
ist undir sátt vegna brots á tékka-
lögum en fyrir lá kæra frá árinu
1979 um áreitni gegn 9 ára telpu
en sú kæra hafði ekki fengið fram-
gang. Refsing mannsins þótti
hæfileg 8 mánaða fangelsi en með
hliðsjón af sakarferli hans, aldri
og högum að öðru leyti þótti mega
fresta fullnustu refsingarinnar
þannig að hún falli niður að liðnum
þremur árum haldi hann almennt
skilorð. Þá var hann dæmdur til
að greiða sakarkostnað og mál-
svamarlaun.
4 nýjar gerðir. Sýningarsalur
opnaðurZ júní í Lágmúla 9.
Verð m/öllu frá kr. 371.000 stgr.
í STÓRVERSLUNINNI LAUGAVEGI 26
I tilefni Sjómannadagsins og útkomu nýju
geislaplötu SKRIÐJÖKLANNA höldum viS
sjómannadagshótíð í dag í Stórverslun
Skífunnar Laugavegi 26 milli kl. 13 - 17.
Jöklarnir koma a& sjólfsögSu og taka
lagið og órita hina sprellfjörugu plötu
sína. Harmonikkuleikari sér um
sjómannalögin í tilefni dagsins.
KíkiS inn! - heitt ó könnunni.
STÓRVERSLUN LAUGAVEGI 26 - SÍMI 600926
SÍRmBOÐ ó
ís\ensk«
•i.L.itnilWst