Morgunblaðið - 06.06.1993, Side 22

Morgunblaðið - 06.06.1993, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1993 KYIKMYNDIR/SAMBÍÓIN hafa tekið til sýninga kvikmynd Barry Levinsons, Toys eða Leikföng. f aðalhlutverki er Robin Williams, sem leikur mann sem snýst til varn- ar þegar hershöfðingi hyggst yfírtaka leikfangaverksmiðjuna hans. Dr. Strangelove í Leikfangalandi Ljúfur náungi ROBIN Williams hóf feril sinn sem skemmtikraft- ur í næturklúbbum og sjálfsagt er það þar sem hann hefur þróað fágæta hæfileika sína til að leika af fingrum fram en sagt er að hann njóti sín best þegar hann er ekki rígbundinn af því sem lagt er upp með í handriti heldur sé gefíð svigrúm til að breyta og bæta að eigin smekk, oft og einatt með fyrirvaralausum uppákomum sem koma sam- leikurum jafnt og leikstjóra í opna skjöldu. Williams er ekki aðeins vinsæll meðal kvik- myndaáhorfenda; hann virð- ist blátt áfram ástsæll meðal samstarfsmanna ef marka má ummæli þau sem sam- starfsmenn hans ýmsir við gerð Leikfanga hafa látið um hann falla í erlendum tímaritum. Sj ónvarpsstj arna Robin Williams varð fræg- ur í sjónvarpi í Bandaríkjun- um fyrir leik í gamanþáttun- um Mork & Mindy og eftir að hann lék m.a. um skeið í gamanþáttum á móti Who- oþi Goldberg sneri hann sér að kvikmyndaleik. Þekkt- ustu kvikmyndir hans eru „The World According to Garp“, „Moscow on the Hud- son“, „Awakenings", „Ho- ok“, „Dead Poets’ Society", „Good Morning Vietnam“ og „The Fisher King“. Fyrir þijár síðasttöldu myndimar hlaut hann tilnefningar til Óskarsverðlauna. Ekki má gleyma þætti hans í teiknimyndinni Aladd- in, sem farið hefur mikla sig- urför um kvikmyndahús vestanhafs en verður jóla- mynd hjá Sambíóunum hér á landi. Robin á þar rödd andans í lampa Aladdins og hefur verið farið hástemmd- um orðum um leik hans, svo hástemmdum að ýmsum þykir stappa nærri oflofi. Eins og fyrr sagði þykir Williams afskaplega þægi- legur maður í umgengni, blátt áfram og viðíelldinn og þar sem hann er að störfum er starfsandinn sagður ein- stakur. Þessi persónuleika- einkenni ná út fyrir hóp nán- ustu samstarfsmanna ef marka má umfjöllun breska tímaritsins Empire sem ný- lega sendi tugum kvik- myndastjarna bréf í nafni tilbúins einstaklings sem þóttist vera að biðja uppá- haldsleikarann sinn um eig- inhandaráritun. Flestir sendu aðdáandanum staðlað bréf eða þá ekki neitt. Bréf Williams skar sig úr því það var persónulegt og bar þess merki að leikarinn hafði sjálfur lesið bréfið og lagt á sig vinnu við að svara því. Sem sagt: Ef mann langar til að skrifast á við kvik- myndastjömu er Robin Will- iams vænlegur kostur. borg hans Baltimore. Að öðru leyti eru þessar kvik- myndir Levinsons hver frá- brugðin annarri og það verð- ur seint um hann sagt að verk hans beri ákveðin ein- kenni höfundar síns. Levinson er fimmtugur. Hann hóf feril sinn sem handritshöfundur fyrir sjón- varp en skrifaði í fyrsta skipti fyrir kvikmyndir árið 1975 þegar hann gerðist TOYS er fáránleikakennd gamanmynd sem fjallar um tilraun illkvittins hershöfðingja á eftirlaunum til að yfirtaka leikfangaverksmiðju og nýta hana til hergagnaframleiðslu. Hers- höfðinginn sem er leikinn af Michael Gambon — einkaspæjaranum syngjandi úr samnefndum sjónvarpsþáttum — er bróðir eiganda verk- smiðjunnar sem fallinn er frá. Þeir sem eiga að erfa fjölskyldufyrirtækið eru uppkomin börn iðjuhöldsins, systkinin Leslie Zevo (Robin Will- iams) og Alsatia Zevo (Joan Cusack). Þau systkinin lifa og hrærast í prívatheimi sem pabbi þeirra bjó sér til og á sér upphaf og endi í leikfangaverksmiðjunni. Alsatia gengur um í dúkkulísufötum. Leslie kann ekki að taka hlut- ina alvarlega enda á slíkt ekki við í heimi leik- fanganna. Hershöfðinginn Leland Zevo á bágt með að umbera þessa vitleysinga. Hershöfðing- inn hefur varið lífi sínu í það að drepa andstæð- inga sína — og einstaka samherja með slysa- skotum eins og komið getur fyrir bestu menn í þessum bransa — en nú eru kommúnistarnir búnir að leggja skottið milli lappanna þannig að litlar líkur eru á almennilegu stríði í bráð. Hershöfðinginn þarf að finna sér eitthvað ann- að að gera. Hann kemur til starfa í fjölskyldufyrirtæk- inu, reiðubúinn til stórátaka og fyllist viðbjóði á því sem við augum blasir; allt er fullt af vitleysingum sem hafa ánægju af því að búa til dót sem þeir láta hugsunarlaust í hendurnar á börnum og gera sér enga grein fyrir hernaðarlegum möguleikum í stöðunni. Fjarstýrt dót og rappari Hershöfðinginn hugsar upp snilldaráætlun sem á að gera honum kleift að yfir- . taka fyrirtækið og nýta þá möguleika sem það býður upp á. í hernaðarskyni en kallinn er fljótur að sjá að sérþekking í gerð fjarstýrðra leikfanga geti nýst í her- gagnaframleiðslu. Markmið- ið er að komast í efstu þrep metorðastigans í her- mennskunni. Helsti aðstoð- armaður hershöfðingjans er sonuijhans, sem er sérfræð- ingúr'í gagnnjósnum og dul- argerfum. Sá er leikinn af rapparanum L.L. Cool J, sem tekur ekki lagið. Leiftursókn hershöfðingj- ans gegn Leslie og Astaia fer vel af stað og sakleysin- gjamir vita í fyrstu ekki hvaðan á sig stendur veðrið en eignast bandamann í ljós- ritunarstúlku fyrirtækisins (Robin Wright) sem hinn burtkallaði faðir systkinanna hafði valið sérstaklega til starfa. í ljós kemur að sá gamli vissi hvað hann söng og smám saman ná systkinin vopnum sínum og taka að skipuleggja vömina gegn frændanum grimma með eigin vopnum og aðferðum. Leikföng er níunda kvik- mynd leikstjórans Barry Le- vinsons, sem hlaut Óskars- verðlaun fyrir Rain Man, hefur einnig búið til þekktar myndir eins og Bugsy, Good Moming Vietnam og The Natural og einnig Diner, Tin men og Avalon. Þær þijár síðasttöldu eru taldar með sjálfsævisögulegu ívafi Le- vinsons, allar gerast í heima- Ýkta veröld Leslie Zevo (Robin Williams) í bíltúr með frænda sínum hershöfðingjanum í Leik- fangalandinu sem þeir berjast um yfirráðin yfír. á því að kvikmyndinni yrði valin umgjörð í anda dada- ismans, óvitastílsins. Dada Þá hugmynd gripu menn á lofti og dadaismi er grunn- tónn þeirrar veraldar sem kvikmyndinni var búin og þurfti í senn að geta verið heimkynni leikfangasmiða og hermangara. Lögð var gífurleg vinna í alla ytri umgjörð myndarinnar. Með- al annars voru menn á full- um launum í hálft ár við að fara í gegnum heilu haugana af gömlum leikföngum sem síðan voru endursköpuð og gædd lífi í myndinni því þótt aðalpersónurnar séu stórsk- rítnar og sviðsmyndin ekki af þessum heimi eru það leik- föngin sem eru í titilhlut- verkinu. Toys var frumsýnd fyrir síðustu jól og það verður seint sagt að hún hafi farið sigurför um kvikmyndahúsin en hefur þó gengið betur í Evrópu og hefur náð vin- sældum hjá stálpuðum krökkum. Toys hefur fengið fremur lofsamlega dóma, einkum sviðsmyndin og leik- ur aðalpersónanna. Aðf- innslurnar lúta einkum að framlagi handritshöfundar- ins Levinsons. í uppklappinu skyggir enginn á Robins Williams en eins og þeir sem séð hafa kynningarbrot úr myndinni („trailer") vita hef- ur myndin ekki verið kynnt með atriðum heldur eintali og gamansemi þessa mikla leikara. Feðgarnir og frændi Hershöfðinginn (Michael Gambon) á son sem leikinn er af rapparanum L.L. Cool J. Sá er eini svertinginn í fjölskyldunni en sú staðreynd er ekki útskýrð í kvikmynd- inni og enginn hefur orð á henni. lærisveinn Mel Brooks og hjálpaði honum við handritin að High Anxiety og Silent Movie. Eftir það fór hann að reyna fyrir sér sjálfur í félagi við þáverandi eigin- konu sína, Valerie Curtin. Saman skrifuðu þau handrit- -in að And Justice for AIl, Inside Moves, Best Friends og árið 1979 Toys. Ætlunin var í upphafi að í Toys þreytti Barry Levinson frum- raun sína sem leikstjóri en sú áætlun gekk ekki eftir. Smám saman varð Barry Levinson þekktur sem leik- stjóri og vann gjaman eftir eigin handritum en þrátt fyr- ir Óskarsverðlaun og hvað- eina gekk honum ekkert að fá peninga til að ráðast í draumaverkefnið. Af því gat ekki orðið fyrr en árið 1991. Töfin langa Töfin langa hafði tvennt gott í för með sér að mati Levinsons. I fyrsta lagi ving- aðist hann við Robin Will- iams sem lék aðalhlutverkin í myndum Levinsons Good Morning Vietnam og Tin Men. Frá þeim tíma kom enginn annar til greina í aðalhlutverkið í Toys. Eins og allir vita er Williams ein- stakur gamanleikari og ber myndina að miklu leyti á eigin herðum. í öðru lagi gaf töfmLevin- son færi á að ráða ítalann Ferdinando Scarfíotti, sem vann óskarsverðlaun fyrir sviðsmynd Síðasta keisarans, til að hanna leik- mynd og búninga. Scarfiotti las hand- ritið og stakk strax upp

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.