Morgunblaðið - 06.06.1993, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1993
23
Laxveiðar í sjó
Grænlend-
ingar eru
reiðibúnir
að semja
„ÉG ER bjartsýnn á að það
dragi til tíðinda á næstu vik-
um,“ sagði Orri Vigfússon,
forsprakki Alþjóða kvóta-
kaupanefndarinnar, í samtali
við Morgunblaðið, en hann var
á Grænlandi fyrr í vikunni og
freistaði þess þar að ná sam-
komulagi við grænlensku land-
sljórnina og sjómenn um kaup
nefndarinnar á reknetaveiðik-
vótum grænlenskra laxveiði-
manna.
Á fundinum var samþykkt að
ganga til formlegra samningavið-
ræðna um laxveiðimálin gegn því
að Orri beitti sér fyrir stuðningi
við hval- og selveiðar Grænlend-
inga. Verður fundað á ný í Montre-
al í lok júní
Var vel tekið
Með Orra í för á Grænlandi
voru fulltrúar frá utanríkisráðu-
neyti Bandaríkjanna og einning
Kanada og forstöðumaður hinnar
víðkunnu stofnunnar „National
Fish and Wildlife Foundation".
Sagði Orri að þeim hefði verið
tekið vel og helstu hagsmunaaðilar
hefðu reynst samvinnufúsir.
„Þetta er þó alls ekki í höfn, það
er mikil vinna eftir, en það er
engin spurning að málið er á réttri
leið,“ bætti Orri við.
Veiðitímabil Grænlendinga
hefst 5. ágúst næstkomandi og
stendur út september. Talið hefur
verið að veiðar þeirra höggvi fyrst
og fremst skörð í laxagöngur á
leið í ár í Bandaríkjum og Kanada,
en einnig í göngur á leið í evrópsk-
ar ár, þar á meðal á íslandi.
terkurog
hagkvæmur
auglýsingamiðill!
FLUG
^ ^ P/órfrJa et /x*
^ °nda e xVtsumar- K
u9 til Orlando '
Fjölskyldutilboð • Flug og bíll - möguleikarnir eru endalausirl
39.780
Vta’
>Na
Só'
eN
\N°
;\ö^°
óv\W
FLUGLEIÐIR
Trauslur íilenskur ftrOafélagi Á
S, QATLAS/=
' Miðað við bíl í EC-flokki (Dodge Colt eða sambærilegan) og staðgreiðslu
ferðakostnaðar 4 vikum fyrir brottför. Að öðrum kosti hækkar verð um 5%.
Hvorki söluskattur af bílaleigubílnum né föst aukagjöld sem greiða verður
ytra vegna bílaleigubílsins eru innifalin.
/ Mjódd: simi 699 300,
viö Austurvöll: sími 2 69 00,
t Hafnarfirði: sími 65 23 66,
við Ráðhústorg á Akureyri: sími 2 50 00
og hjá umboðsmönnum um land allt.