Morgunblaðið - 06.06.1993, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1993
Minning
MESSURÁ
SJÓMAIMNADAGINN
ÁSKIRKJA: Sjómannadagur-
inn. Guðsþjónusta kl. 11. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Sjómanna-
dagurinn. Sjómannamessa kl.
4 11 með þátttöku sjómanna.
Ræðumaður Guðjón A. Kristj-
ánsson skipstjóri og formaður
Farmanna- og fiskimanna-
sambandsins. Organisti
Guðni Þ. Guðmundsson.
Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Sjómanna-
dagurinn. Sjómannadags-
messa kl. 11. Hr. Ólafur Skúla-
son biskup íslands predikar
og minnist drukknaðra sjó-
manna. Sjómenn lesa ritning-
arorð. Sr. Hjalti Guðmunds-
son dómkirkjuprestur þjónar
fyrir altari. Dómkórinn syngur.
Órganisti Marteinn H. Frið-
riksson. Kl. 17 tónleikar Kirkju-
listahátíðar. Marteinn H. Frið-
riksson.
KVENNAKIRKJAN: Guðsþjón-
usta í Fríkirkjunni í Reykjavík
í kvöld kl. 20.30. Kristjana
Stefánsdóttir syngur. Sesselja
Guðmundsdóttir leikur á org-
el. Sr. Auður Eir Vilhjálmsdótt-
ir predikar. Elísabet Þorgeirs-
dóttir talar um kvennakirkjuna
og í kaffi eftir messu verða
umræður. Kvennakirkjan.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl.
11. Prestur sr. Halldór S.
Gröndal. Organisti Árni Arin-
bjarnarson. Þriðjudag: Kyrrð-
arstund kl. 12. Orgelleikur í
10 mínútur. Fyrirbænir, altar-
isganga og léttur hádegis-
verður. Biblíulestur kl. 14. Sr.
Halldór S. Gröndal annast
fræðsluna. Kaffiveitingar.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa
kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Organisti Hörður Áskelsson.
Fermd verður Jenný Brynjars-
dóttir, Reykási 23, Reykjavík.
Þriðjudag: Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl.
10. Sr. Sigurður Pálsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Hámessa
kl. 11. Sr. Arngrímur Jónsson.
Kvöldbænir og fyrirbænir eru
í kirkjunni á miðvikudögum kl.
18. Fimmtudag: Kvöldsöngur
með Taizé-tónlist kl. 21.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Sjó-
mannadagurinn. Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Flóki
Kristinsson. Organisti Jón
Stefánsson. Kór Langholts-
kirkju (hópur IV) syngur. Mola-
sopi að lokinni guðsþjónustu.
Aftansöngur alla virka daga
kl. 18.
LAUGARNESKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Ron-
ald Turner. Sr. Jón D. Hró-
bjartsson. Fimmtudagur:
Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleik-
ur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðar-
heimilinu að stundinni lokinni.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Barnastund á sama tíma.
Sr. Ingólfur Guðmundsson
héraðsprestur. Miðvikudag:
Bænamessa kl. 18.20. Sr.
Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Organisti Hákon
Leifsson. Prestur sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir. Mið-
vikudag: Kyrrðarstund kl. 12.
Söngur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11 árdegis á þrenn-
ingarhátíð. Organisti Sigrún
Steingrímsdóttir. Sr. Guð-
mundur Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti
Daníel Jónasson. Samkoma
ungs fólks með hlutverk kl.
20.30. Sr. Gísli Jónasson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 20.30. (Ath.
breyttan messutíma.) Prestur
sr. Guðmundur Karl Ágústs-
son. Organisti Violeta Smid.
Prestarnir.
GRAFARVOGSPRESTA-
KALL: Fjögurra ára afmæli
Grafarvogssóknar. Fyrsta
guðsþjónustan í Grafarvogs-
kirkju á fyrstu hæð kirkjunnar
kl. 11. Kirkjukórinn syngur
undir stjórn Sigurbjargar
Helgadóttur organista.
Trompetleikur. Eftir messu
verður grillað fyrir börnin. Allir
velkomnir. Vigfús Þór Árna-
son;
HJALLAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Kór Hjallakirkju
syngur. Organisti Kristín G.
Jónsdóttir. Kristján Einar Þor-
varðarson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
SEUAKIRKJA: Kvöldguðs-
þjónusta kl. 20. Prestur sr.
Hreinn Hjartarson. Snæfell-
ingakórinn syngur ásamt kór
Seljakirkju. Organisti Kjartan
Sigurjónsson. Sóknarprestur.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Hátíðarguðsþjónusta verður í
kirkjunni í tengslum við hátíð-
arhöld Sjómannadagsráðs og
hefst hún kl. 11. Einsöngur.
Organisti Helgi Bragason.
KRISTKIRKJA, Landakoti:
Messa kl. 8.30. Hámessa kl.
10.30. Messa kl. 14. Ensk
messa kl. 20. Laugardaga
messa kl. 14 og ensk messa
kl. 20. Aðra rúmhelga daga
messur kl. 8 og kl. 18.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti:
Messa kl. 11. Alla rúmhelga
daga messa kl. 18.30.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
KAPELLAN, St. Jósefsspít-
ala: Messa kl. 10.30. Rúm-
helga daga messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa
kl. 8.30. Rúmhelga daga
messa kl. 8.
KAÞÓLSKA kapellan Kefla-
vík: Messa kl. 16.
FRÍKIRKJAN, HAFNARFIRÐI:
Guðsþjónusta kl. 11. Einar
Eyjólfsson.
FÆREYSKA sjómannaheim-
ilið: Samkoma sunnudag kl.
17. Allir velkomnir.
SÍK, KFUM/KFUK, Háaleitis-
braut 58-60: Samkoma kl.
20.30 í Kristniboðssalnum.
Upphafsorð hefur Ingibjörg
Baldursdóttir en ræðumaður
verður Skúli Svavarsson. Yfir-
skrift samkomunnar er: Þér
munuð öðlast kraft - í orðinu.
GRINDAVÍKURKIRKJA:
Skrúðganga frá Sjómanna-
stofunni Vör að minnisvarð-
anum um drukknaða sjómenn.
Þar spilar Blásarasveit Tón-
skólans og sóknarprestur flyt-
ur bæn. Þaðan er gengið í
kirkju og hefst messa kl. 11.
Sjómenn lesa ritningarlestra
og börn af „kirkjuvikunni"
flytja stuttan helgileik um
„Hafið". Börn borin til skírnar.
Sóknarprestur.
HVALSNESKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Vil-
berg Viggósson. Bjarni Þór
Bjarnason.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 13.30. Organisti Frank
Herlufsen. Bjarni Þór Bjarna-
son.
GARÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Ferenc
Utassy. Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Kór Víðistaða-
kirkju syngur. Organisti: Ulrik
Ólafsson. Sigurður Helgi Guð-
mundsson.
AKRANESKIRKJA: Sjó-
mannaguðsþjónusta kl.
10.30. Ath. breyttan tíma.
Aldraðir sjómenn heiðraðir.
Minnst drukknaðra sjómanna.
Björn Jónsson.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Messa í Mosfellskirkju kl. 11.
Þórey Guðmundsdóttir, guð-
fræðinemi predikar. Sóropt-
imistar og lionsmenn í Mos-
fellsbæ aðstoða við messuna.
Jón Þorsteinsson.
ÞORLÁKSKIRKJA: Hátíðar-
messa kl. 14. Sjómenn að-
stoða í messunni. Svavar
Stefánsson.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Sjómannadagurinn Keflavík-
Njarðvík. Guðsþjónusta í Ytri-
Njarðvíkurkirkju kl. 11. Baldur
Rafn Sigurðsson.
HVÍTASUNNUKIRKJAN
FÍLADELFÍA: Brauðsbrotning
kl. 11. Ræðumaður Hafiiði
Kristinsson. Almenn sam-
koma kl. 20. Barnagæsla. Allir
hjartanlega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Kl.
16. útisamkoma á Lækjartorgi
ef veður leyfir. Kl. 19.30
bænasamkoma. Kl. 20 hjálp-
ræðissamkoma. Deildar-
stjórahjónin majorarnir Anne
Gurine og Daniel Óskarsson
stjórna og tala. Söngur og
tónlist. Vitnisburður.
SELFOSSKIRKJA: Messa
sunnudaginn 6. júní kl. 10.30.
Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA:
Messa kl. 10.30.
STOKKSEYRARKIRKJA:
Messa kl. 14.
SAFNKIRKJAN í ÁRBÆJAR-
SAFNI: Guðsþjónusta kl. 14.
Prestur sr. Þór Hauksson.
LAUGARDÆLAKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 14. Kristinn
Ágúst Friðfinnsson.
LANDAKIRKJA, VEST-
MANNAEYJUM: Guðsþjón-
usta kl. 13 sjómannadag. Há-
tíðin sett við upphaf guðsþjón-
ustunnar. Áð guðsþjón-
ustunni lokinrii verður minn-
ingarathöfn við minnismerkið
um hrapaða og drukknaða þar
sem Einar J. Gíslason flytur
ræðu. Ath.! Guðsþjónustunni
og minningarathöfninni verð-
ur útvarpað á svæðisútvarp-
inu, FM 102.
BORGARNESKIRKJA: Messa
kl. 17. Ath. breyttan messu-
tíma. Sóknarprestur.
Brynhildur Ingi-
björg Jónasdóttir
Fædd 8. maí 1920
Dáin 27. maí 1993
Amma mín, veistu þegar ég frétti
að þú værir komin með flensu hugs-
aði ég: Hún nær sér aftur, og trúði
því. En þegar mamma kom heim
þá vissi ég að þú varst farin í ró.
Það þekkja þig allir. Þú varst
alltaf dugleg og alltaf brosandi,
gafst öllum hlýjuna þína og gerðir
alltaf rétt. Þú varst sannkölluð
kjarnakona að vestan, og ég vil líkj-
ast þér.
Við áttum yndislegar stundir sem
ég mun lifa á allt mitt líf.
Þín nafna
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem)
Þín nafna,
Brynhildur.
Þegar mér barst fregnin um látið
hennar Binnu frænku minnar fyllt-
ist ég djúpri hryggð yfir að nú var
komið að hinni endanlegu kveðju-
stund. Frænka mín var orðin illa
farin af sjúkdómi sem á síðustu
árum náði að ræna hana nær allri
sjálfstæðri hreyfingu, tali og túlk-
un, og enginn veit hvaða sársauki
fylgdi því að skilja aðra, en geta
ekki gert sig skiljanlega. Hryggðin
vegna fráfalls hennar tengist því
ekki síst söknuði yfir því sem áður
var og öllu því góða sem fylgdi
þessari mætu konu. Hún tengist
líka þeirri staðreynd að enn einn
hlekkurinn við hið liðna er brostinn.
Brynhildur Jónasdóttir var dóttir
hjónanna Þórunnar Brynjólfsdóttur
og Jónasar G. Dósóþeussonar,
bónda á Sléttu í Sléttuhreppi. Hún
var yngst systkinanna á Sléttu,
móðir mín var þeirra elst.
Það var alla tíð kært með þessum
systkinum og íjölskyldur systranna,
sem bjuggu á Isafirði á uppvaxtar-
árum mínum, áttu með sér náið og
gott samband, sem varð okkur
börnum þeirra veganesti og fyrir-
mynd. Við systkinin eigum margar
góðar minningar frá samverustund-
um í þeirra hópi.
Binna frænka hafði alveg ein-
staklega góða lund. Frá henni staf-
aði bæði hlýja og glaðværð og það
var sem allt hennar viðmót ein-
kenndist af lífsgleði. Hún var vinsæl
bæði meðal skyldmenna og vina og
við systradætumar dáðum Binnu.
Allar áttum við með henni okkar
„vinkonu“-stundir, þar sem rætt var
um Iífsins gagn og nauðsynjar, sleg-
ið á létta strengi og jafnvel spáð í
bolla.
Hún var líka vinsæl langt út fyr-
ir hefðbundinn vina- og skyld-
mennahóp. Þær voru ófáar konurn-
ar á ísafirði sem bundust henni
sterkum tryggðarböndum eftir að
hafa notið umhyggju hennar og
skilnings, langt umfram ljósmóður-
skylduna.
Binna var lærð ljósmóðir og hóf
ljósmóðurferil sinn í Sléttuhreppi.
Það er erfitt fyrir nútímakonur að
reyna að gera sér í hugarlund
hvernig það var fyrir unga konu
að sinna' ljósmóðurstarfi í slíku
dreifbýli, eins og starfið var þá, og
axla ábyrgðina sem því fýlgdi.
Hjónabandsárin sín starfaði hún
sem ljósmóðir á Ísafirði. Þar nutum
við flestar systurnar þess að hún
tæki á móti bami hjá okkur, mörg-
um hjá sumum, og því var Binna
okkur frænka, ljósa og vinkona.
Ég held því fram að Binna
frænka hafi búið yfir þeirri djúpu
ábyrgð, ríku umhyggju, virðingu
fyrir lífi og líðan, ásamt öllu því
öðru sem samanlagt felst í því að
hafa „líkandi hendur". Fyrir það
var hún elskuð og dáð af öllum er
nutu.
Binna var gift Haraldi Valdi-
marssyni sem lengst af var verk-
stjóri hjá íshúsfélagi ísfirðinga. Þau
eignuðust þrjár dætur, Þórunni,
Valborgu Elsu og Jónu Vigdísi. Þau
birtust mér sem gæfusöm fjölskylda
og það var eftirsóknarvert að fá
að fara í heimsókn með mömmu
sem bam, út í Krók, það var líka
gaman að eiga stund í Króknum
sem ung kona. Seinna bjó ég um
hríð í nágrenni við Binnu frænku i
Reykjavik og þá gaf það sömu góðu
tilfinninguna að eiga stund í eldhús-
króknum hennar.
Eftir að Haraldur féll frá, langt
um aldur fram, fluttist Binna suður
til Reykjavíkur og hóf störf á fæð-
ingardeild Landspítalans. Þar starf-
aði hún svo lengi sem heilsa og
kraftar leyfðu.
Það var einstaklega gott sam-
band milli Binnu og dætra hennar
og mikil samskipti við fjölskyldur
þeirra eftir að þær giftu sig og eign-
uðust börn. Eftir að Binna var
hætt að vera rólfær gerðu dætumar
henni kleift að komast út á meðal
sinna nánustu. Slíkan dag átti hún
með fjölskyldunni á afmælisdaginn
sinn 8. maí síðastliðinn í bústað
Elsu dóttur sinnar fyrir austan fjall.
Ég veit að þar ríkir sorg nú hjá
Olafía G. Jónsdótt-
ir Hallgrímsson
Fædd 12. október 1919
Dáin 29. maí 1993
Kveðja frá bekkjarsystrum.
Ólafía eða Lóló, eins og við köll-
uðum hana, hóf feril sinn í Mennta-
skólanum í Reykjavík að gagn-
fræðaprófi loknu haustið 1934 og
settist þá í 4. bekk máladeildar, þá
aðeins 15 ára gömul. Þar með hóf-
ust okkar kynni.
Lóló vakti strax athygli annarra
menntaskólanema, ekki síst ungu
piltanna, því hún var ákaflega fal-
leg ung stúlka með glóbjarta hárið
sitt og geislandi af fjöri og lífs-
gleði, enda var hún kjörin fegurðar-
drottning íslands á vegum viku-
blaðsins Fálkans.
Lóló sóttist námið vel, því hún
var vel greind og hafði góðar
námsgáfur, ekki aðeins á bóklega
sviðinu heldur einnig á mörgum
listasviðum. Hæfileikar hennar voru
mjög dreifðir og hefði hún getað
náð langt á hverju sviði fyrir sig.
T.d. heði hún eflaust getað orðið
góður tískuteiknari, því hún teikn-
aði öll sín föt sjálf, og vora þau
mjög smekkleg, en jafnframt
óvenjuleg.
Auk þess var Lóló mjög ritfær
og hafði sérstakan stíl og var hún
þess vegna valin til að skrifa ferða-
sögu okkar bekkjarsystkinanna,
þegar við fórum í hina hefðbundnu
fimmtubekkjarferð.Var ferðasög-
unni dreift fjölritaðri milli okkar
bekkjarsystkinanna og þótti okkur
hún einstaklega skemmtileg aflestr-
ar. Auk þess hafði hún leikræna