Morgunblaðið - 06.06.1993, Síða 31
MOReUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1993
31
I
I
I
ð
I
í
s
j
J
I
I
I
8
-í
Ég var ungur drengur þegar ég
kynntist Kidda fyrst, en svo var
hann nefndur af vinum og kunn-
ingjum. Við systkinin höfðum misst
móður okkar og báðar ömmur á
skömmum tíma og dvaldi ég því
mikið hjá systur minni og mági.
Yar það mitt annað heimili um tíma.
Ég kunni strax mjög vel við Kidda.
í þá daga, sem 12 ára strákur,
fannst mér Kiddi geta næstum allt.
Sem reyndur fimleikamaður gat
hann stokkið heljarstökk afturábak
og áfram. Hann gat flogð svifflug-
vél, hann gat talað við fólk um all-
an heim með morstækjum, vissi
allt um gróður og tré og var svo
mikill veiðimaður; var í laxveiði,
stundaði sjóinn og fór á ijúpu upp
á fjöll. Og hann var svo vænn að
taka mig með í veiðitúra og um
leið opnaði hann þennan heim fyrir
mér, sem ég bý enn að. Kiddi reynd-
ist mér alla tíð mjög vel.
Kristinn var opinn og mjög hress
maður. Á mannamótum var hann
hrókur alls fagnaðar og hafði hann
mjög smitandi hlátur. Hann var
mjög bóngóður og vildi allt fyrir
alla gera. Ég man eftir atviki fyrir
mörgum árum þegar ég kom ásamt
vini mínum í heimsókn að Gufuskál-
um. Þá vorum við í sumarfríi og
okkur langaði norður. Við vorum
ungir og áttum engan bíl. Ekki var
hann bara tilbúinn að lána okkur
sinn bíl, en þegar bíllinn reyndist
vera bilaður dreif Kiddi jafnvel í
að láta laga hann strax um kvöldið
svo að við gætum komist. Þetta var
honum líkt.
Um leið og ég þakka honum sam-
fylgdina öll þessi ár votta ég systur
minni, bömum þeirra og öllum að-
standendum dýpstu samúð.
Valur Marinósson.
um bóklestri barna enda gerði hún
sem kennari sér glögga grein fyrir
gildi bóklesturs fyrir yngstu kynslóð-
ina. En henni var ekki nóg að bæk-
ur væru gefnar út fyrir læs böm
heldur vildi hún leita allra leiða til
að auðvelda þeim lesturinn sem eru
torlæs. Þar birtist þáttur í fari henn-
ar sem er svo áberandi í bókum
hennar: samstaða með þeim sem
minna mega sín. Hún sýndi í verkum
sínum ríka samúð með lítilmagnan-
um, börnum sem á einhvern hátt eru
öðruvísi en aðrir eða eiga við ein-
hverja erfiðleika að stríða: veikindi,
eru á eftir í þroska, lögð í einelti
og þar fram eftir götum. Hetjur
hennar voru þessi börn.
Það var okkur mikið reiðarslag
þegar veikindi Heiðar tóku sig upp
aftur nú í ársbyijun. Við höfðum
fylgst með hetjulegri baráttu hennar
við erfíðan sjúkdóm sem hún virtist
ætla að sigrast á. Á liðnu hausti
fylgdi Heiður nýrri bók sinni, Háska-
leik, úr hlaði og hélt eftir jólin aftur
utan til Bandaríkjanna þar sem hún
var í framhaldsnámi í sérkennslu-
fræðum. Dvölin þar var skemmri en
ætlað var. Krabbameinið blossaði
upp og ekki varð aftur snúið. Heiður
sýndi ótrúlegan dugnað, vilja og
innri styrk í veikindum sínum og
neitaði að gefast upp þótt óvinurinn
væri illvígur. Þegar færi gafst og
heilsa leyfði fór hún og las upp úr
væntanlegri bók, vann fram á síð-
asta dag að handritinu og ræddi
ýmsar breytingar á sögunni sem nú
er í vinnslu hjá Vöku-Helgafelli og
kemur út á haustdögum. Þessi nýja
bók sameinar á margan hátt allt það
besta sem birst hefur í fyrri verkum
hennar. Ævintýrið helst í hendur við
raunsanna frásögn úr nútímanum
af stúlku með astma. Hún á sér
töfrastein sem gerir henni kleift að
skyggnast inn í annan heim fullan
af ógnum og spennandi ævintýrum.
Kannski má segja að Heiður hafi
verið okkur hinum slíkur töfrasteinn.
Með sögum sínum veitti hún okkur
sýn inn í annan heim þar sem ímynd-
unaraflinu var gefínn laus taumur
og allt gat gerst. Þær sögur verða
ekki fleiri. íslenskar bamabók-
menntir hafa misst góðan höfund
og ötulan baráttumann en það er
okkar sem eftir ljfum að halda merki
hennar á loft. Ég færi eiginmanni
Heiðar, Ómari Sævari Harðarsyni,
dætrum þeirra tveimur, Brynhildi
og Þóreyju Mjallhvíti, og öðrum
vandamönnum innilegar samúðar-
kveðjur starfsfólks Vöku-Helgafells.
Ólafur Ragnarsson.
t
Elskulegur eiginmaður minn, sonur og
faðir,
GUÐMUNDUR HERMANN
SALBERGSSON
flugvirki,
Skógarlundi 9,
Garðabæ,
"sem lést 28. maí, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 8. júní
kl. 13.30.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en
hans, er bent á Hjartavernd.
Karólína Árnadóttir, Ingi
Hrund Guðmundsdóttir, Sigi
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MARGRÉT BJÖRNSDÓTTIR,
Mánabraut 8,
Kópavogi,
lést á heimili sínu 4. júní.
Sigurgeir Jónasson,
Ágústa Rut Sigurgeirsdóttir,
Sigrún Margrét Sigurgeirsdóttir, Guðni Albert Einarsson,
Halla Sigurgeirsdóttir, Rúnar Gíslason,
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson,
Jónas Björn Sigurgeirsson, Rósa Guðbjartsdóttir
og barnabörn.
t
Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
KRISTINN H. GUÐBJÖRNSSON,
Glaðheimum 6,
sem lést 29. maí, verður jarðsunginn
frá Langholtskirkju mánudaginn 7. júní
kl. 13.30.
Agnes Marinósdóttir,
Marinó Kristinsson,
Helga Kristinsdóttir, Flosi Sigurðsson,
Kristinn Björn Marinósson, Finnur Marinó Flosason,
Agnes Marinósdóttir, Agnes Rún Flosadóttir,
Hjördis Marinósdóttir, Fannar Már Flosason,
Sigurður H. Gislason.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir,
mágur og afi,
LÁRUS HAFSTEINN ÓSKARSSON,
Vatnsendabletti 102,
Kópavogi,
lést á heimili sínu 31. maí.
Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju
mánudaginn 7. júní kl. 10.30.
Jóna Ósk Lárusdóttir, Kristján Rafn Hjartarson,
Sigmar Hafsteinn Lárusson,
Sigurður Óskar Lárusson, Guðbjörg Magnúsdóttir,
Lárus Ingi Lárusson, Trine Tranvág 0ren,
Unnur Óskarsdóttir, Karl Jóhannsson
og barnabörn.
t
Eiginkona mín, móðir okkar og tengda-
móðir,
ÞÓRUNN PÁLSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Seljakirkju þriðju-
daginn 8. júní kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Fyrir hönd aðstandenda.
Þorgeir G. Guðmundsson,
Elísabet Þorgeirsdóttir,
Örn Norðdahl,
Sigurbjörn Þorgeirsson.
Þórunn S. Pálsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
LILJA KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Dönustöðum,
Vallartröð 12,
sem andaðist 29. maí, verður kvödd í Kópavogskirkju mánudag-
inn 7. júní kl. 15. Jarðsett verður í heimagrafréit á Dönustöðum.
Viktoría Skúladóttir, Sigrfður Skúladóttir,
Sólrún Skúladóttir, Ingibjörg Skúladóttir,
Guðrún Skúladóttir, Iða Brá Skúladóttir,
tengdasynir, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
MAGNÚS Þ. TORFASON,
fyrrv. hæstaréttardómari,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 8. júní kl. 13.30.
Sigríður Þórðardóttir,
Þórður Magnússon,
Torfi Magnússon,
Ásgeir Magnússon,
Ásgerður I. Magnúsdóttir,
Bergþór Magnússon,
Kolfinna Magnúsdóttir,
Magnús Magnússon,
og barnabörn.
Marta M. Oddsdóttir,
Laufey R. Bjarnadóttir,
Þórdis Kristinsdóttir,
Snorri Jóelsson,
Stefán Andreasson,
Magnea Vilhjálmsdóttir
t
Sonur okkar og faðir,
ÞÓRIR ÞORSTEINSSON,
Stekkjum 7,
Patreksfirði,
er lést af slysförum 30. maí, verður jarðsunginn frá Hóla- og
Fellakirkju mánudaginn 7. júni kl. 13.30.
Hulda Þórisdóttir, Magnús Mariasson,
Magnús Þórisson, Hulda Þórisdóttir,
Jóna Dís Þórisdóttir, Þórey Þórisdóttir,
Ottó Ingi Þórisson.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför
AXELS THORARENSENS,
Gjögri.
Jóhanna Sigrún Thorarensen, Benedikt Bent ívarsson,
Ólafur Gfsli Thorarensen,
Steinunn Thorarensen, Ólafur Grétar Óskarsson,
Kamilla Thorarensen, Rósmundur Skarphéðinsson,
Olga Sofffa Thorarensen, Sveinbjörn Benediktsson,
Jakob Jens Thorarensen,
Elva Thorarensen,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
t
Þökkum öllum þeim, sem sýndu okkur
samúð og veittu styrk, við andlát og
útför ástkærs sonar okkar, bróður, dótt-
ursonar, frænda og vinar,
BJARKA FRIÐRIKSSONAR,
sem lést 13. maí síðastliðinn.
Friðrik Alexandersson, Þuríður Einarsdóttir,
Arnar Friðriksson, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir,
Viöar Friðriksson,
Einar Jóhannesson, Sigrfður Bárðardóttir,
ættingjar og vinir.