Morgunblaðið - 06.06.1993, Side 38

Morgunblaðið - 06.06.1993, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1993 JV 1 V ■ ■ 1 N 1 I AUGL YSINGAR Listrænn starfskraftur óskast Einungis frumlegur og afkastamikill kemur til greina. Vinnutími frá kl. 13.00-18.00. Aldur 25-40 ára. Tilboð, með upplýsingum um fyrri störf, sendist í pósthólf 9014, 109 Reykjavík, merkt: „Skartgripir - Breiðholt". Kennararóskast Kennara vantar í Grunnskólann á Suðureyri. Ýmis hlunnindi í boði. Upplýsingar gefa formaður skólanefndar í hs: 94-6250 og skólastjóri í hs: 91-653862. Lítil heildverslun óskar að ráða starfskraft Bókhalds- og tölvukunnátta nauðsynleg. Um er að ræða fullt starf til að byrja með - frá og með 1. mars 1994 hálft e.h. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 9. júní nk., merkt: „G - 13878“. Skrifstofumaður Skrifstofumaður óskast til vinnu úti á landi. Umsóknir, er greini frá starfsreynslu og öðru sem máli skiptir, sendist auglýsingadeild Mbl., merktar: „K - 2387“, fyrir 14. júní. Gott boð Ein af elstu fasteignasölum borgarinnar ósk- ar eftir samstarfi við traustan lögmann. Gott húsnæði í boði fyrir lítið vinnuframlag. Ef áhugi er fyrir hendi geta fylgt vaxandi lögfræðistörf fyrir viðskiptamenn. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 10. júní, merkt: „Gott boð - 3828“. Hjúkrunarfræðingar Sjúkrahús Hvammstanga óskar eftir hjúkrun- arfræðingum til starfa frá ca 20. ágúst eða eftir nánara samkomulagi. Frí aðra hvora helgi. Unnið á kvöld- og morgunvöktum. Gott og ódýrt húsnæði í boði. Upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra í símum 95-12329 og 95-12920. Járnsmiður óskast strax Þarf að geta unnið sjálfstætt. Umsóknir leggist inn á auglýsingadeild Mbl., merktar: „J - 2389“. Skólastjórastaða Staða skólastjóra við Vopnafjarðarskóla er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur til 19. júní. Upplýsingar í símum 97-31263, 97-31268 og 97-31458. RADAUGÍ YSINGAR Benedorm,Spánn Til leigu eða sölu íbúð á Benedorm í sumar. Upplýsingar í síma 673593. Til leigu 4ra herbergja ibúð við Miðleiti Laus 1. júlí. Tilboð óskast send í pósthólf 3271, 123 Reykjavík, fyrir 15. júní. Húseigntil sölu Borgey hf. auglýsir húseignina Krosseyjarveg 17 á Höfn í Hornafirði til sölu. Húsið var byggt árið 1985, er 3.350 m3, grunnflötur er 558 m2 og heildargólfflötur er 866 m2. Húsið er steinhús að hluta á tveimur hæð- um. Á neðri hæð er veiðarfæraverkstæði og geymslur, á efri hæð er skrifstofuhúsnæði sem nú er í útleigu. Húsið var tekið í notkun árið 1986 og er ástand þess í alla staði hið besta. Jarðhæð þess er hægt að nýta til margskonar starfsemi og mögulegt að skipta henni í minni einingar þar sem hver eining hefði stórar akstursdyr. Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Magn- ússon, útgerðarstjóri Borgeyjar hf., sími 97-81818, fax 97-81848. Tilboð óskast send Borgey hf. HÚSNÆÐIÓSKAST Vantar minnst 4ra Við erum hjón með þrjú börn sem óskum eftir góðu húsnæði á Stór-Reykjavíkursvæð- inu, minnst 4ra herb., helst frá 1. júlí. Reglusemi og góðri umgengni heitið. Upplýsingar um stærð, verð, leigutíma, stað- setningu og tegund sendist auglýsingadeild Mbl., merktar: „E - 13009“ fyrir 15. júní. Hjón ígóðu starfi með tvö börn á skólaaldri, óska eftir að leigja stóra 4ra herb. íb. eða stærri, í 1-2 ár eða lengur, frá 1. júlí nk., helst í Kópavogi eða Reykjavík. Skilvísum greiðslum heitið. Þeir, sem áhuga hafa, hringi í síma 40496. Rockford College Amerískur háskóli í miðvestur-ríkjunum, staðsettur í friðsælli borg u.þ.b. 90 mílur vestur af Chicago, lllinois, býður upp á há- skólanám í rekstrarstjórnun (M.B.A.) og kennslu (M.A.T). Rockford College býður einnig háskólanám á BA-stigi og BS-stigi með meira en 40 náms- brautum. Hæfir háskólastúdentar geta feng- ið námsstyrk, hámark að upphæð US $4.000 á ári. Fáið nánari upplýsingar hjá: Mrs. Nancy Rostowsky, Director of International Student Programs. Sími: 90 1 815 226-4050 eða Mr. Richard Wilcox, Director of the MBA Program. Sími: 90 1 815 226-4093 Rockford College, 5050 East State Street, Rockford, IL 61108-2393, USA FAX: 90 1 815 226-4119. Frá Háskóla íslands Skrásetning nýrra stúdenta Skrásetning nýrra stúdenta til náms í Há- skóla íslands háskólaárið 1993-1994 fer fram í Nemendaskrá Háskólans dagana 1.-15. júní 1993. Umsóknareyðublöð fást í Nemendaskrá sem opin er kl. 10.00-15.00 hvern virkan dag á skráningartímabilinu. Einnig verður tekið við beiðnum um skrásetn- ingu nýrra stúdenta dagana 6.-17. janúar 1994. Við nýskrásetningu skrá stúdentar sig jafnframt í námskeið á komandi haust- og vormisseri. Umsóknum um skrásetningu skal fylgja: 1. Ljósrit eða staðfest eftirrit af stúdentsprófsskírteini. 2. Skrásetningargjald kr. 22.500. Ljósmyndun vegna nemendaskírteina fer fram í skólanum í september 1993. Ekki er tekið á móti beiðnum um nýskrásetn- ingu eftir að auglýstu skráningartímabili lýkur. Aðalfundur... Vegamót hf. Aðalfundur Vegamóta hf. verður haldinn 15. júní nk. kl. 20.30 á skrifstofu Máls og menn- ingar, Laugavegi 18, 3. hæð. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. Reykjavík: Kynningarfundur um einkavæðingu verður haldinn á Hótel Borg þriðju- daginn 8. júní, og hefst hann kl. 20.00. Á fundinum verður fjallað um starf og stefnu ríkisstjórnar- innar í einkavæð- ingu. Ræðumenn eru Friðrik Sophus- son, fjármálaráð- herra, og Hreinn Loftsson, formaður einkavæðingarnefndar. Allir velkomnir. Framkvæmdanefnd um einkavæSingu. Aðalfundarboð Aðalfundur Steinullarverksmiðjunnar hf. verður haldinn 16. júní 1993 kl. 16.00 í Safna- húsinu á Sauðárkróki. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, en skv. 16. gr. samþykkta félagsins, skal taka fyrir eftirtalin mál: 1. Skýrslu stjórnar félagsins um starfsemi þess sl. starfsár. 2. Efnahags- og rekstrarreikningar fyrir liðið reiknisár, ásamt skýrslu endurskoðenda, verður lagður fram til staðfestingar. 3. Tekin skal ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikn- ingsárinu. 4. Tekin skal ákvörðun um þóknun til stjórn- armanna og endurskoðenda. 5. Kjósa skal stjórn og varastjórn og tilnefna fulltrúa ríkisins. 6. Kjósa skal endurskoðanda. 7. Önnur mál sem löglega eru uppborin. Dagskrá fundarins, ársreikningur og skýrsla endurskoðenda liggur frammi á skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfund skv. 14. gr. sam- þykktar þess. Steinullarverksmiðjan hf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.