Morgunblaðið - 20.06.1993, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1993
B 13
og ferðafélagi úr mörgum fjallaferðum, en nú
var hann kvikmyndatökumaður og ljósmyndari
hópsins og ætlar að fylgja okkur að jökuljaðri
en snúa þá sömu leið heim til íslands. Hann
var vopnaður ýmsum tækjum m.a. Canon kvik-
myndatökuvél sem við síðan notuðum yfír allan
jökulinn. Við flugum til Kulusuk og þaðan
daginn eftir með þyrlu til Ammassalik eða
raunar Tasiilaq, en svo heitir þorpið, en Amm-
assalik er eyjan. Þar bjuggum við hjá lækni
sem er mikill fjallamaður og nutum gestrisni
hans. Þann 24. apríl flugum við með þyrlu til
afskekkta veiðimannaþorpsins Isertoq.
Guðsorð íþyrlu en
tannlækningatól í skip
Einu Danimir í þorpinu Isertoq em kennara-
hjón og taka þau vel á móti okkur, bæði á
heimili sínu og bjóða okkur gistingu og aðsetur
í skólahúsinu. í þorpinu búa um 120 Grænlend-
ingar. Hver grænlensk fjölskylda á sin hunda-
eyki, byssur, skutla, línur, öngla og önnur veiði-
tæki. I sumarbyijun eru hundar úr hveiju eyki
fluttir í sína eyju eða sker það sem þeim er
gefíð einu sinni til tvisvar í viku yfír sumarið.
En þá eru líká litlu bátamir með utanborðsvél-
amar komnir undan snjó og fiskveiðin tekur
við. Mestur er þó atgangurinn þegar fréttist
af hval. Þá gellur hvalveiðikallið, smábátamir
æða hver í kapp við annan út á milli skeijanna
og veiðimennirnir leggja saman til
atlögu við bráðina vopnaðir öflugum
byssum og skutlum. Þorpsbúar eru
mjög gestrisnir og einlægir í viðmóti
en þó varfæmir og seinteknir. Aðeins
fimm tala dönsku, aðrir grænlensku
éingöngu. Margt er okkur framandi
svo sem að aðeins einn sími er í þorp-
inu, enginn bíll, vatnssalemi hvergi,
sorphirða engin, enginn jarðvegur
hvorki til ræktunar né greftrunar,
aðeins klappir á sumrin og snjór að
vetrinum. En fólkið er viðfelldið og
við náðum strax góðu sambandi við
það og slógum upp söngkvöldi í litla
samkomuhúsinu þar sem við sungum
íslensk lög en nokkrir tugir þorpsbúa
sungu grænlensk á móti. Daginn eft-
ir fórum við á hundasleða út á ísinn.
Þar var dorgað í gegnum vakir. Á
sunnudagsmorguninn vorurq við síðan
við grænlenska guðsþjónustu sem
meðhjálpari stýrði. Presturinn kemur
ekki nema fjórum sinnum á ári sem
er þó heldur skárra en hvað tannlækn-
inn áhrærir. Hann kemur aðeins einu
sinni á ári. Þetta skýrist af því að
Guðsorð er mun léttara en tannlækn-
ingatæki. Því kemst presturinn með þyrlunni
en tannlæknirinn verður að bíða eftir að kom-
ast í sumarskipið með sínar þungu borvélar,
stól og tengur. En þá hefst líka tannlækninga-
vikan í þorpinu.
Uppgangan - Piteraq stormur
Fáar góðar leiðir eru upp á austuijaðar
Grænlandsjökuls. Annað hvort standa fyrir
manni sæbrött granítfjöll eða sprungnir skriðjö-
klar. Þær leiðir sem eru vel færar liggja svo
fjarri stijálum mannabyggðum að leigja verður
þyrlu fyrir hundruð þúsunda. Það tók okkur
marga mánuði að velja uppgönguleiðina eftir
að hafa verið í sambandi við fýrri leiðangra í
ýmsum löndum og síðan lágum við yfír kortum
og loftmyndum. Isertoq-leiðin er tvímælalaus
sú besta.
Uppgangan er einn af erfiðustu hlutum leið-
arinnar. Flestir þeirra leiðangra sem eru sóttir
eða snúa við lenda í því á fyrstu vikunni. Það
sem hindrar þá helst er auðvitað margt svo
sem kuldi, ofþreyta, sprungur, villur, veikindi,
óhöpp, vanbúnaður, reynsluleysi, ótti og örygg-
isleysi. En fyrst og fremst er það hinn ill-
ræmdi jökulstormur Piteraq sem hefur eyðilagt
þessa leiðangra. Hann brestur mjög skyndileg
á í heiðskíru veðri. Menn koma ekki upp tjald-
inu eða það gefur sig. Kalt loft steypir sér
niður af jöklinum og þrengir sér niður fjalla-
skörðin sem leiðangamir fara upp. Veðurhæð-
in er gífurleg, langt yfír 12 vindstig, og ekki
sér út úr augum fyrir skafrenningi. Við vorum
því kampakátir þegar við biðum slíkan storm
af okkur áður en við lögðum af stað og héldum
kyrru fyrir í litla skólahúsinu í Isertoq í tvo
daga. Hús eru þar veðurbarin á Piteraqhlið-
inni og rúður oft brotnar. Var okkur sagt að
afarsjaldgæft væri að tveir Piteraqar kæmu í
röð.
Þriðjudaginn 27. apríl lögðum við upp frá
Isertoq. Við fengum tvo veiðimenn til þess að
flytja okkur á hundasleðum hálfa dagleið eftir
ísilögðum firðinum, gegnum fjallaskarð, inn á
jökullón og á jökulsporðinn. Við nauðþekktum
leiðina af .loftmyndunum. Allt var baðað sól-
skini en blika á lofti og upp úr hádegi var
farið að snjóa. Við kvöddum sleðamennina og
Ingimund Stefánsson og lögðum á Grænland-
sjökul. Snjókoman jókst og færið
versnaði. Nokkrar litlar sprungur
urðu á leið okkar og við fómm í belti
og jöklalínu enda skyggnið lélegt.
Um kvöldið tjölduðum við upp á
móti austanveðrinu.
Morguninn eftir er ekki ferðaveð-
ur. Hann er hvass á norðan, heiðskír
og háir snjóstrókar þyrlast upp inn
til jökulsins. Þetta vom skýr merki
Piteraqs. Það eru strax komin 11
vindstig um hádegi og tjaldið flatt
fyrir vindinum. Þetta er Piteraq. Veð-
urhamurinn tekur nú á sig fáránlega
mynd. Við sitjum með bakið í tjalds-
úðina og spyrnum í tjaldbotninn.
Hann bætir í vindinn síðdegis og enn
aftur um kvöldmatarleytið. Hann
hlýtur að fara að lægja. En það er
öðm nær. Um miðnætti keyrir um
þverbak. Úti geisar fárviðri sem er
ekki líkt neinu því sem við áður þekkt-
um. Skafrenningurinn er eins og
sandblástur. Við verðum að hrópa
hver til annars í tjaldinu. Af og til
koma eins og bylmingsskot þegar
veðurofsinn hefur rifíð upp skarann
og skotið honum á tjaldið þar sem
bök okkar tóku við sendingunum. Úti er ekki
stætt og skyggni innan við einn metra. Báðar
forstofur tjaldsins fyllast af snjó. Áveðurs
sækir skaflinn æ hærra og þyngra upp á tjalds-
úðina og skarimar em að losna. Við skipt-
umst á að skríða út og reyna að verja tjaldið.
Um miðnætti búum við okkur undir að tjaldið
geti failið. Við pökkum öllum búnaði í tjaldinu
niður og fömm í hlýjustu fötin og dúnúlpu og
Berghaus-algalla. Klukkan 3 um nóttina er
ljóst að ekki verður meira að gert. Tvísýnt er
hvort tjaldið sligist niður. En stuttu seinna fer
hann heldur að gefa sig og klukkan 6 um
morguninn er vindurinn aðeins 9-10 vindstig.
Þá leggjum við okkur eftir 22 tíma setu undir
súðinn. Síðar kom í ljós að tjaldið hafði látið
á sjá og súlumar bognað. Það stóð samt af
sér mikil óveður sem síðar bmstu á enda tjald-
SJÁ NÆSTU SÍÐU
vikuna.
hefst ífyrramálid 10-80%
afsláttur
Algjört verðhrun á gardínuefnum
Trönuhrauni 6 • 220 Hafnarfirði • Sími 651660