Morgunblaðið - 20.06.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.06.1993, Blaðsíða 18
18 B MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1993 LOFTBRAUÐ BRAUÐ eru ekki aðeins rándýr í bakaríum heldur eru þau yfir- leitt svo léleg að ætla mætti að bakarar hefðu hnoðað þau sof- andi. Ekki er hægt að smyrja brauðsneiðarnar með mjúku smjöri án þess að gat komi í miðjuna, það er að segja ef gatið er ekki fyrir. Þetta eru sem sagt hin íslensku loftbrauð sem stundum eru seld á 164.00 kr. stykkið, og ef eitt slíkt er keypt á dag kostar það 59.560 kr. ári. Ef brauð er hins vegar bakað heima, þétt og án gata, kostar það um 40.00 kr. stykkið, eða 14.600 kr. á ári. Mismunurinn er 44.960 kr. Af því má sjá að álagning bakara hlýtur að vera þó nokkur. Bæði börn og fullorðnir hafa að baka brauðin sjálf, en bæði með sér samlokur í nesti og því er það mikilvægt að brauðin inni- haldi korn og hveiti en ekki loft. Kaup á brauði kemur heldur betur við budduna þegar margir em í heimili og því óþarfi að Tjorga hátt verð fyrir lufsur. Bakarí eru nú orðin glerfín og bjóða upp á mikið úrval brauða, en þegar kaupa á brauð til sam- lokugerðar er venjulegt heilhveit- brauð eða samlokubrauð lang best. Gæði þeirra brauða eru hins hef ég verið með lélegar upp- skriftir, tíu þumalfingur, og svo hefur tímaskortur háð mér. Eða svo hef ég talið mér trú um. En nú ér nóg komið. íslenskir bakarar geta átt sín loftbrauð. Ég hef nú fengið pottþétta upp- skrift frá fyrirmyndarhúsmæð- rum á Kjalarnesinu, og það sem meira er, eitt brauð kostar mig aðeins 40,00 kr. með rafmagn- snotkun og öllu. Þessa upphæð er búið að margreikna út. Það Morgunblaðið/Júlíus vegar slík í þessum glerfínu bak- aríum að menn komast í geðs- hræringu við það eitt að reyna að smyrja þau. Ég keypti sneitt heilhveitibrauð í sex bakaríum í .ReykjaVík í síð- ustu viku, vigtaði þau og bar sam- an verð þeirra. Þegar ég smurði þau með mjúku smjöri kom ann- aðhvort gat á þau, eða þau rétt héngu saman. Svo þunn, loft- kennd og ræfilsleg voru þau öll- sömul. Verðið á þessum lufsum var einnig athyglisvert. í Myllunni kostaði brauðið, • 600 grömm 118,00 kr. í Bakarameistaranum kostuðu 440 grömm 164,00 kr. í Borgarbakaríinu kostuðu 520 grömm 126,00 kr. í Bakaríinu Austurveri kostuðu 700 grömm 155,00, kr., hjá Sveini bakara kostuðu 520 grömm 145,00 kr. og hjá G.Ó. Sandholt kostuðu 500 grömm 133,00 kr. Bakarameistarinn í Suðurveri sló þeim öllum út hvað hátt verð snerti og lítið magn eins og sjá má, og þar kostár til dæmis hálft omegabrauð hvorki meira né minna en 107,00 kr. í gamla daga var ég daglega send út í bakarí til að kaupa hálft heilhveitibrauð. Þá voru bakaríin ekki svona fín en brauðin voru hins vegar þétt og matarmikil. Nú spyr ég sjálfa mig hvort fag- kunnáttu íslenskra bakara hafi farið hrakandi með árunum? Kunna þeir ekki lengur að baka almennileg heilhveitibrauð? Ef eitt brauð er keypt á dag á 164,00 kr. til dæmis, kostar það tæpar 60 þúsund á ári. Nú geym- ast þessi loftbrauð afar illa og því er afganginum oft hent í tunn- una. Kannski fjúka 10 þúsund krónur þar á ári. Að sjálfsögðu hef ég fyrir löngu gert mér ljóst að það borgar sig gerir tæpar 15 þúsund krónur á ári, og þá hef ég sparað mér 45 þúsund kr. Ég ætla nú ekki að vera svo mikið kvikindi að lúra ein á upp- skriftinni og aðferðinni og því koma þær hér. Til að braúðið kosti aðeins 40,00 kr. verður að kaupa 40 kílóa hveitisekk hjá Kornax á 1.102,00 kr. Ef hveitið er keypt í litlum pökkum úti í búð verður brauðið nokkrum krónum dýrara. Og hér kemur uppskrift hinna ágætu húsmæðra: í tvö brauð þarf: 900 g hveiti, 2-4 msk. hveitiklíð, 5 dl vatn, 'h dl olía, 2 tsk. salt og 50 g þurr- ger eða 1 gerkubbur, sem fæst í Bónus. Best er að baka þessi tvö brauð annan hvern dag og setja annað í frystinn. Aðferðin er eftirfar- andi: Gerið mulið í volgt vatnið ásamt 1 tsk. af sykri. Látið bíða í fimm mínútur. Besti hitinn á vatninu næst með því að setja helming þess í kaffivélina og blanda það síðan með köldu vatni úr krananum. Síðan er gerið hrært betur með gaffli, sett út í hveitið og hnoðað ásamt olíu og salti. Sett í skál með rökum klút yfir og látið lyfta sér, til dæmis nálægt eldavél, í eina klukku- stund. Hnoðað á ný, sett í tvö góð form, látið lyfta sér aftur í hálfa stund og síðan bakað. Þeir sem þykjast aldrei hafa tíma til neins geta byijað á að hnoða brauðið og látið það lyfta sér meðan þeir dunda við kvöld- matinn. Úr þessu sama deigi má síðan baka rúnnstykki til að borða með morgunmatnum um helgar, um leið og maður lætur sig dreyma um aurana sem annars hefðu farið í loftbrauð bakaranna. Krístín Maija Baldursdóttir. Stoltir foreldrar með nýútskrífuðum stúdentinum. F.v. Vildís K. Guðmundsson, Árni Geir Árnason og Árni Edwins. NAM Lauk prófi mánuði eftir að hann lamaðist * Ami Geir Ámason lauk stúd- entsprófi frá hagfræði- braut Fjölbrautaskólans í Garðabæ nú í vor. Það væri í sjálfu sér ekki í frásögu fær- andi, nema af því að aðeins tæp- um mánuði áður lenti hann í slysi og lamaðist fyrir neðan bijóst- kassa. „Dimmittendur" fjölbrauta- skólans áttu ekki von á öðru en að ferð þeirra á Hótel Örk í Hveragerði yrði skemmtileg, því hvaða „dimmisjón" er ekki skemmtileg? En slysin gera ekki boð á undan sér og Ámi Geir hálsbrotnaði — líklega við það að stinga sé í laugina og lenda á botninum, hann man það ekki. Höggið var það mikið að minnið strokar út það sem gerðist stuttu fyrir slysið og rétt eftir að hann raknaði úr rotinu. „Það getur ekki hafa gerst öðm vísi,“ sagði Árni Geir í sam- tali við blaðamann Morgunblaðs- ins, sem heimsótti hann upp á Grensásdeild nú í vikunm. „Það voru flestir krakkamir í heita pottinum og sumir úti í laug- inni, en samt sá enginn hvað gerðist. Ég man bara eftir því að ég ætlaði að synda eina ferð áður en við færam upp á her- bergi. Síðan man ég næst eftir því að ég var að gleypa vatn úti í miðri lauginni og gat komist að eigin rammleik að laug- arbarminum og kallað á aðstoð, en þá fann ég ekki fyrir fótun- um. Hefði höggið komið annars staðar á hálsliðina væri ég ekki til frásagnar nú.“ Ejns og fyrr segir brautskráð- ist Árni Geir 22. maí, eða sama dag og hinir stúdentamir. Þegar Múhameð kemur ekki til fjallsins verður fjallið að koma til Múha- meðs og því fóra skólameistar- inn, Þorsteinn Þorsteinsson, að- stoðarskólameistarinn, Gísli Ragnarsson og tveir kennarar, Kristín Bjarnadóttir og Elísabet Siemsen, _upp á Borgarspítala, þar sem Árni Geir lá, til að út- skrifa piltinn. Þar voru einnig saman komnir vinir og vanda- menn, þannig að veislugestir vora í kringum 40 manns. „Ég hótaði því að hann fengi langa og mikla ræðu eins og hinir, en hann bað mig blessaðan að sleppa því,“ sagði Þorsteinn. Því fékk hann bara stutta tölu. En hvemig tókst að útskrifa hann aðeins tæpum mánuði eftir slysið? Þorsteinn segir að Ámi Geir hafi verið búinn að skila ýmsum ritgerðum og verkefnum, auk þess að hafa lokið nokkrum áföngum. Hann fékk því þijár greinar metnar, en þurfti að taka munnlegt próf í stærðfræði og rekstrarhagfræði. Árni Geir segir að undirbún- ingurinn hafí nánast farið frm á tveimur strembnum dögum. „Ég á vini mínum, Jónasi Páli Bjömsr syni, mikið að þakka, því hann sat hér fram á nætur og þuldi yfir mér. Það gafst mjög vel, því ég náði.“ Þá vildi Árni Geir koma á framfæri þakklæti til skólastjóra og kennara fyrir að gera honum kleift að ljúka prófinu og óska hinum nýstúdentunum til ham- ingju. Sömuleiðis vildi hann fá að þakka starfsfólki Borgar- spítalans, sem hann segir að sé alveg frábært. SUMARBÚÐIR Notast enn- þá við gas- eldavélina T)eir skipta orðið þúsundum sem dvalið hafa síðustu tæplega hálfa öldina í sumarbúðum KFUM/K í Kaldárseli fyrir ofan Hafnarfjörð. Undanfarin 43 sumur hefur Sigrún S. Jónsdóttir — eða Rúna ráðskona eins og flestir kann- ast við hana — verið við stjómvöl- inn í eldhúsinu, þar sem hún hefur gefið 40 börnum máltíðir dags dag- lega yfir sumartímann. Þótt rafmagn sé komið í Kaldárs- el bakai^ Rúna enn og eldar á gas- eldavélinni. Margir krakkanna hafa einungis séð gaseldavélar í útileg- um og þykir þvi mörgum þeirra skrýtið að sjá eldinn undir stóru pottunum og horfa hugfangin á. Morgunblaðið/pþ Rúna ráðskona, eða Sigrún S. Jónsdóttir eins og hún heitir fullu nafni, setur léttreykt lambalæri ofan í stóra pottinn á gaseldavélinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.