Morgunblaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1993
3
Við bryggju
HVALVEIÐIBÁTARNIR við bryggju í Reykjavíkurhöfn.
Paul McCartney á hljómleikaferð
Myndband af veiðum
íslensku hvalbátanna
sýnt fyrir tónleika
Fjöldi tónleikagesta um þrjár milljónir
ÍSLENSKIR hvalbátar að veiðum
eru meðal efnis sem sýnt er af
myndbandi fyrir hveija tónleika
á ferðalagi bítilsins fyrrverandi,
Pauls McCartney, sem nú stend-
ur yfir um heim allan. Fyrst stóð
til að rekja sögu Bítlanna í mynd-
um fyrir áhorfendur en þegar
McCartney fékk veður af fundi
Alþjóða hvalveiðiráðsins í Kyoto
í maí síðastliðnum vék sögunni
að umhverfisvernd og hvalveið-
um íslendinga. Gert er ráð fyrir
að dagskrá McCartneys nái eyr-
um og augum þriggja milljóna
manna og mun hljómleikaferðin
standa yfir í eitt ár.
Paul McCartney sendi Alþjóða
hvalveiðiráðinu yfirlýsingu í maí
síðastliðnum og sagði meðal annars
að ef hvalveiðiþjóðir fengju leyfi til
þess að hefja veiðar að nýju væri
það gegn vilja meirihluta jarðarbúa.
Bítillinn fyrrverandi hvatti meðlimi
ráðsins til þess að hætta að líta á
lífverur hafsins sem sjávarrétti og
sagðist jafnframt treysta því að
sjórinn yrði áfram blár en ekki rauð-
ur, eins og sagði í yfirlýsingunni.
Tillögur um
aukið öryggi
í Lönguhlíð
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
beina því til yfirverkfræðings
umferðardeildar borgarverkfræð-
ings að leggja fram tillögur til að
auka öryggi gangandi vegfarenda
á gatnamótum Lönguhlíðar og
Miklubrautar.
Nokkur slys hafa orðið á þessum
gatnamótum í júnímánuði. Hins veg-
ar hafa orðið fjölmörg óhöpp á gatna-
mótum Miklubrautar og Kringlumýr-
arbrautar og Lönguhlíðar og Ból-
staðarhlíðar. Ráðgert er að sett verði
upp umferðarljósamyndavél á fyrr-
nefndu gatnamótin auk fimm ann-
arra gatnamóta og stöðvunarskylda
verði á Bólstaðarhlíð.
Paul McCartney
Bítillinn reiður
Auk þess sendi Paul McCartney
yfirlýsingu til fjölmiðla. Þar kemur
fram að hann sé svo reiður yfir
þrýstingi hvalveiðiþjóða, þar á með-
al íslendinga, á hvalveiðiráðið, að
hann hafi afráðið að fá Kevin God-
ley, fyrrverandi liðsmann lOcc og
núverandi leikstjóra, til þess að
setja saman myndband sem sýndi
glögglega veiðiaðferðir hvalafang-
ara og sýna mætti fyrir hveija tón-
leika. íslenska myndskeiðinu, sem
komið mun frá grænfriðungum, var
síðan skeytt aftan við sögu fjór-
menninganna frá Liverpool ásamt
öðru umhverfisefni. Ennfremur var
ákveðið að tengja hljómleikaferðina
starfsemi Greenpeace og samtak-
anna Friends of The Earth og renn-
ur hluti ágóðans til starfsemi þeirra.
Siguijón Sighvatsson kvik-
myndaframleiðandi sá umrætt
myndband og segir að á því megi
sjá íslenska hvalbáta að veiðum.
Áðspurður taldi hann engan vafa
leika á hvaðan bátarnir væru upp-
runnir þar sem þeir hefðu verið
merktir einkennisstöfunum RE.
Kannabisneysla ósönnuð
RONG yfirfyrirsögn var á
frétt á blaðsíðu 3 í Morgun-
blaðinu í gær, þar sem skýrt
var frá skilorðsbundnum
dómi, sem ungur maður fékk
vegna banaslyss sem varð 11.
maí 1992 á Sæbraut í Reykja-
vík. Yfirfyrirsögnin, sem
hljóðaði svo: „Olli banaslysi
undir áhrifum kannabis“, er
röng, þar sem viðkomandi
neitaði að hafa verið undir
áhrifum efnisins og í dómnum
segir, að „fullnægjandi sönn-
ungargögn skorti um það
hvort ákærði hafi verið undir
slíkum áhrifum kannabisefna
að hann hafi ekki verið fær
um að stjórna bifreiðinni ör-
ugglega“.
Raunar kemur hið rétta fram
í meginmáli fréttarinnar, en í
fyrirsögn vantar og að tveggja
mánaða dómur piltsins hafi verið
skilorðsbundinn. Morgunblaðið
harmar þau mistök, sem urðu í
fyrirsögn og yfirfyrirsögn frétt-
arinnar í gær og biðst afsökunar
á mistökunum.
Avaxta-og grœnmetisdagar í
Hagkaupi dagana 1.-14. júlí
Alls konar ávextir og margvíslegt grænmeti, - bæði vel
þekkt og framancU, - ferskt og safaríkt í öllum verslunum
Hagkaups á ávaxta-og grænmetisdögum. Ný uppskera
streymir á markaðinn, þar á meðal mikið af
íslensku grænmeti. Hægt verður að bragða á
ÍH!§§ 2 fjölmörgum tegundum á kynningum og gera
ðZmy frábær kaup, því þarna verður hvert tilboðið
öðru betra. Njóttu þess!
HAGKAUP
gœði úrval þjónusta