Morgunblaðið - 01.07.1993, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1993
Townshend
setur upp
söngleik
POPPARINN Pete Townshend
hyggst setja upp söngleik í
Lundúnum og verður tónlistin
líklega „stillt í botn“. Towns-
hend, sem þekktur var fyrir að
brjóta hljóðfæri á sviði þegar
hann var í hljómsveitinni Who,
mun notast við eigið söngkerfi
við uppfærsluna. Talsmaður
leikhússins sagði að áheyrendur
mættu búast við kraftmiklu
rokki. „Tónlistin verður líklega
nokkuð hátt stillt," sagði hann.
Söngleikurinn nefnist Jámmað-
urinn og byggir á ævintýri fyrir
böm eftir Ted Hughes, lárviðar-
skáld og hirðskáld bresku kon-
ungsfjölskyldunnar.
Klipping Clintons
olli engum töfum
SAGT var frá því í dagblaðinu
Newsday í gær að viðdvöl for-
setaþotunnar á Los Angeles
flugvelli meðan verið var að
klippa hárið á Bandaríkjaforseta
18. maí síðastliðinn hefði ekki
valdið teljandi töfum á flugum-
ferð. Upplýsingamar fékk dag-
blaðið hjá flugmálastjóm sam-
kvæmt lögum um upplýsinga-
skyldu stjómvalda.
Dæmdirtil
dauða fyrir
mannát
DÓMSTÓLL á Fílabeinsströnd-
inni hefur dæmt þijá flóttamenn
frá Líberíu til dauða fyrir mann-
át. Fómarlamb mannætanna var
tveggja ára drengur sem þeir
rákust á nálægt bænum Tabou
árið 1990. Fjórði vitorðsmaður-
inn lést skömmu eftir að glæpur-
inn hafði verið framinn.
Jeltsín hittir
Kohl 1 Síberíu
BORÍS Jeltsín, Rússlandsforseti,
og kanslari Þýskalands, Helmut
Kohl, ætla að halda vinnufund
í Síberíu í borginni Irkútsk
10.-11. júlí. Ætla þeir að nota
tækifærið og hittast í bakaleið-
inni af fundi sjö helstu iðnríkja
heims sem fyrirhugaður er í
Tókýó
Svartahafsflot-
inn sigli undir
sovétfána
YFIRMANNI Svartahafsflotans
var fyrirskipað í gær að siglt
skyldi undir fánanum sem notað-
ur var meðan Sovétríkin voru
og hétu. Tilgangurinn var sá að
bæla niður mótmæli vegna fyrir-
hugaðrar skiptingar flotans til
helminga milli Rússa og Úkra-
ínumanna. Eru sumir liðsmanna
þeirrar skoðunar að flotinn, alls
300 skip, eigi að vera undir
stjóm Rússa og skipting hans
þjóni hagsmunum hvorugs lýð-
veldanna og vildu þeir draga
siglingafána Rússa að húni í
mótmælaskyni. Sagði yfirmaður
flotans að liðsmönnum bæri að
hlýða fyrirskipunum sem kæmu
að ofan og að ríkisstjómir við-
komandi landa tækju ákvarðanir
um framtíð flotans.
Njósnarinn sem varð Willy Brandt að falli ber vitni gegn Wolf
Guillaume segir njósnir
sínar hafa stuðlað að friði
Diisseldorf. Reuter.
GÚNTHER Guillaume, iyósnarinn sem á sínum tímum varð
þess valdandi að Willy Brandt varð að segja af sér kanslara-
embætti í Vestur-Þýskalandi, vitnaði í gær fyrir dómstóli í
Þýskalandi í máli Markus Wolfs, fyrrum yfirmanns austur-
þýsku leyniþjónustunnar. Réttarhöldin fara fram í sama dóms-
sal og Guillaume var sakfelldur í fyrir átján árum. Guillaume
gerði frekar lítið úr njósnahæfileikum sínum og sagðist oft
ekki minnast einstakra atvika. Hvatti hann dómarana í stað-
inn ítrekað til að lesa sjálfsævisögu sína, sem hann ritaði á
þeim árum sem hann var í útlegð í Austur-Þýskalandi og
gefín var út árið 1988.
„Ég biðst velvirðingar á að
auglýsa sjálfan mig á þennan
hátt en þetta stendur allt í bók-
inni,“ sagði Guillaume og lagði
eintak af henni fyrir framan Klaus
Wagner, sem er æðstur þeirra
fímm dómara, sem dæma í mál-
inu. Wagner reiddist vegna hinna
sífelldu tilvísana í bókina og veitti
Guillaume áminningu. Þeim sem
fylgdust með réttarhöldunum var
greinilega skemmt.
Skíldi töskuna eftir handa
njósnurunum
Guillaume lýsti því meðal ann-
ars hvemig hann kom leynilegum
skjölum' til útsendara austur-
þýsku leyniþjónustunnar, HVA, á
leiðinni heim úr sumarfríi með
Willy Brandt í Noregi í júnímán-
uði 1973. Sagðist hann hafa skipt
á tösku með leyniskjölum ogtösku
með minjagripum og skilið þá
fyrmefndu eftir á hótelherbergi í
Stokkhólmi. Þar gafst sérfræð-
ingum HVA tækifæri til að taka
afrit af öllum skjölum. Á meðan
Guillaume eyddi nokkrum dögum
með fjölskyldu sinni í Svíþjóð fór
taskan með minjagripunum með
Brandt til Bonn og var skilað á
skrifstofu Guillaumes þar. Þegar
hann kom aftur heim gat hann
því víxlað töskunum á ný án vand-
ræða.
Lögfræðingar Wolfs hafa farið
fram á að Klaus Kinkel, utanríkis-
ráðherra Þýskalands, verði feng-
inn til að vitna í málinu. Kinkel
Markus Wolf
var á sínum tíma háttsettur emb-
ættismaður í innanríkisráðuneyti
Vestur-Þýskalands og vilja lög-
fræðingamir spyija hann hvort
það sé rétt að vestur-þýska leyni-
þjónustan hafi gmnað Guillaume
um græsku en látið hann óáreitt-
an í heilt ár. Enn hefur ekki verið
tekin afstaða til þessarar beiðni.
í fangelsi í 13 ár
Guillaume starfaði lengi innan
þýska Jafnaðarmannaflokksins og
varð smám saman nánasti ráð-
gjafi Willys Brandts. Hann var
handtekinn í maí 1974 og
skömmu síðar varð Brandt að
segja af sér embætti vegna máls-
ins. Guillaume sat þrettán ár í
fangelsi en var látin laus árið
1981 er Vestur- og Austur-Þýska-
land skiptust á njósnuram.
Hann varði njósnastarfsemi
sína og sagði að þær upplýsingar,
sem hann veitti Austur-Þjóðveij-
um hefðu hjálpað til við að við-
halda hernaðaijafnvægi og friði í
Evrópu. „Willy Brandt átti það
skilið að fá friðarverðlaunin [árið
1971] og ég tel að það hafí ekki
verið neitt athugavert við það, að
hann hafði baráttumann fyrír friði
sér við hlið,“ sagði Guillaume.
Fyrram yfírmaður Guillaumes,
Wolf, er nú sakaður um landráð
og að hafa fengið „moldvörpur"
og gagnnjósnara á sitt band í
vestur-þýska stjómkerfínu. Hann
brosti oft á meðan verið var að
yfírheyra Guillaume og er yfír-
heyrslunni lauk heilsuðust þeir
með handabandi.
Seðlabankastj óranum í Kína vikið frá vegna efnahagsóreiðunnar
„Gorbatsjov Kína“ falið
að rétta efnahaginn við
Peking. Reuter, The Daily Telegraph.
DAGBLAÐ í Hong Kong, sem nýtur stuðnings kínversku stjórnarinn-
ar, skýrði frá því í gær að seðlabankastjóranum í Kína yrði vikið
úr embætti. Heimildarmenn í Peking sögðu ástæðuna ringulreið í
efnahagslífinu sem skapast hefur vegna gífurlegrar þenslu á undan-
förnum misserum. Að sögn dagblaðsins tekur Zhu Rongji aðstoðar-
forsætisráðherra við embættinu. Þar með yrði hann gífurlega valda-
mikill því hann fer þegar með efnahagsmálin innan kínversku stjóm-
arinnar og gengur í störf forsætisráðherrans, Lis Pengs, sem hefur
verið óvinnufær vegna hjartasjúkdóms.
Zhu hefur verið í fylkingarbijósti
þeirra sem hafa beitt sér fyrir efna-
hagsumbótum og stjómin beinir nú
sjónum sínum til hans þegar leysa
þarf vandamálin sem skapast hafa
vegna umbótanna. Ríkisíjármálin
hafa farið úr böndunum, verðbólgan
er orðin geigvænleg, hvert fjár-
málahneykslið hefur rekið annað,
mikil ólga er á meðal bænda og
stjómin hefur ekki lengur taumhald
á útgjöldum ríkisins. Stjómin hefur
misst tökin á efnahagslífínu á sama
tíma og hagvöxturinn heldur áfram
að aukast; í fyrra varð hann 12%
og verður að öllum líkindum enn
meiri á þessu ári vegna uppgangs
einkafyrirtækja og erlendra fjár-
festinga.
Reutor
1313 ár frá dauða Husseins
„Gorbatsjov Kína“
Zhu hefur þótt líklegur arftaki
Dengs Xiaopings, leiðtoga landsins,
sem verður 89 ára gamall í ágúst.
Vandamálin sem honum er ætlað
að leysa gætu hins vegar orðið
honum að falli. „Þeir hafa sleppt
töfraandanum úr flöskunni með
efnahagsumbótum," sagði vest-
rænn stjómarerindreki í Peking.
„Hvernig geta þeir haft taumhald
á efnahagnum þegar þeir hafa misst
tökin á héraðunum?"
Auk þess sem Zhu hefur farið
með efnahagsmálin innan stjómar
innar og leyst Li Peng af hefur
honum verið falið að leysa vanda-
mál sem steðja að landbúnaðinum.
Hann hefur verið nefndur „Gorba-
tsjov Kína“ frá því hann var
borgarstjóri Shanghai en hann er
sjálfur lítt hrifinn af því að vera
líkt við síðasta sovétforsetann. „Ef
ég væri Gorbatsjov Kína væri ég
núna í miklum vanda,“ sagði hann
í tímaritsviðtali þegar hann varð
aðstoðarforsætisráðherra árið
1991.
MÚSLIMAR minntust þess í gær að 1313 ár eru liðin frá því Hussein, sonarsonur Múhameðs spámanns, var
drepinn. Myndin var tekin á göngu í bænum Mabatiyeh í Suður-Líbanon og er af heittrúuðum shítum sem
hrópa íslömsk vígorð. Shítar hafa þá hefð að beija sjálfa sig til tákns um sorg og það skýrir blóðið á ungu
mönnunum á myndinni.
ERLENT,