Morgunblaðið - 01.07.1993, Side 21

Morgunblaðið - 01.07.1993, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1993 21 Reuter Viðgerðir í Bagdad IRASKIR verkamenn undirbúa hér viðgerðir á höfuðstöðvum leyni- þjónustunnar í Bagdad eftir eldflaugaárás Bandaríkjamanna um helgina. Konan á myndinni er verkfræðingur og segir verkamönnun- um til. Úkraína gagnrýnir árás á írak Tefur staðfestingu START-samnings ^ Kíev. Reuter. ^ ^ ^ ÚKRAÍNUSTJÓRN telur, að árás Bandaríkjamanna á írak geti taf- ið fyrir staðfestingu tveggja mikilvægra afvopnunarsamninga á úkraínska þinginu. Samkvæmt þeim eiga Úkraínumenn að losa sig við eða eyða 176 langdrægum kjarnaflaugum, sem voru þeirra hluti í kjarnorkuvopnabúri Sovétríkjanna. Anatolíj Zlenko, utanríkisráð- herra Úkraínu, sagði á fundi með bandaríska sendiherranum í land- inu, að vegna árásar Bandaríkja- manna teldu margir úkraínskir þingmenn tryggara, að landið réði yfir kjarnorkuvopnum. Ylli miklu um það óttinn við Rússa, sem ráðið hefðu yfir landinu í 300 ár, auk þess sem Úkraínumenn treystu því ekki, að Bandaríkjamenn gætu ábyrgst öryggi þeirra. Ekki rætt við Úkraínumenn Zlenko sagði einnig, að Banda- ríkjastjórn hefði látið Rússa vita af árásinni með klukkustundarfyrir- vara en ekki haft fyrir því að ræða við stjórnvöld í Úkraínu. Hingað til hafa þau stutt allar aðgerðir Banda- rílq'amanna í Irak en augljós eftir- sjá þeirra í kjarnorkuvopnunum hefur spillt nokkuð samskiptunum. GegnJjví að staðfesta samningana vilja Úkraínumenn, að Bandaríkja- stjórn veiti þeim öryggisábyrgðir og kosti eyðingu eldflauganna og aðra afvopnun. Er sá kostnaður áætlaður tveir milljarðar dollara. Danir lækka tekjuskattinn Kaupmannahöfn. Reuter. DANSKA þingið hefur samþykkt verulegar breytingar á skattalög- gjöfinni og er megintilgangur þeirra að stuðla að auknum hagvexti og lækka almennan tekjuskatt á næstu fimm árum. Verður skatta- lækkunin fjármögnuð með svokölluðum umhverfissköttum. Lagabreytingin var samþykkt með 65 atkvæðum gegn 64 en 50 þingmenn voru fjarverandi. Gerir hún ráð fyrir, að hæsta tekjuskatts- Danir í fræðslnför td Færeyja Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, frétta- ritara Morgunblaðsins. FJÁRLAGANEFND danska þjóðþingsins ætlar til Færeyja í september til að reyna að kynna sér hvað það var, sem fór úr- skeiðis. Nefndin hyggst kanna hvers vegna færeyski landsjóðurinn er gjaldþrota og kominn upp á framlög frá Dönum. Framfaraflokkurinn danski segist búast við forvitnilegri skýrslu að ferðinni lokinni. þrepið lækki úr 70% í 60% og það lægsta fari í 40% en er nú rúmlega 50%. Skattstofninn verður hins veg- ar breikkaður með því að fækka frádráttarliðum, einkum húseig- enda, og greiðslur til tryggingakerf- isins verða auknar. Á móti þessu koma nýir skattar á bensín, rafmagn, suma flokka bifreiða, hita og vatn. Danska stjórnin hefur reiknað út, að með þessu muni skattbyrði atvinnuveg- anna hækka um 30 milljarða ísl. kr. en atvinnurekendur segja aftur á móti, að hún aukist næstum um 80 milljarða. FIDE varð að bregðast við brotthlaupi Kasparovs - segir Friðrik Ólafsson stórmeistari FRIÐRIK Ólafsson stórmeistari segist út af fyrir sig skilja þá ákvörðun Alþjóðaskáksambandsins (FIDE) að svipta Garrí Kasparov og Nigel Short ELO-stigunum. Þeir hafi sagt sig úr lögum við FIDE og sambandið hafi hlotið að bregðast við því þótt e.t.v. hafi verið sjálfsagt að leita vægari úrræða fyrst. Michael Stean, blaðafulltrúi Nigels Shorts, segir ákvörðun FIDE barnalega. Lögsókn gegn FIDE sé hins veg- ar ekki inni í myndinni, menn vonist til þess að sambandið sjái að sér auk þess sem PCA, samtök Kasparovs og Shorts, muni halda eigin mót þar sem vera manna á ELO-lista FIDE skipti engu máli. „Kasparov og Short sögðu sig úr lögum við FIDE og forsvars- menn sambandsins urðu auðvitað að bregðast við því á einhvern hátt í samræmi við lög og reglur FIDE,“ segir Friðrik Olafsson en hann er fyrrverandi forseti FIDE. „Ef menn vilja ekki tefla innan vébanda FIDE er líka ljóst að þeir vilja ekki heyra undir kerfi sambandsins og þá er e.t.v. ekki fjarri lagi að þeir njóti ekki þeirra hlunninda sem aðild að FIDE felur í sér. En svo má reyndar efast um að FIDE hafi einkarétt á ELO-stigunum. Það má hugsa sér að fara hefði mátt vægar í sakirnar til að byija með og hafa stigin t.d. til viðmiðunar fremur að þau væru felld úr gildi.“ Friðrik segist hafa hitt Flor- encio Campomanes, forseta FIDE, í Vínarborg á dögunum en þar tók Friðrik þátt í keppni eldri meistara gegn bestu skák- konum heims. „Campomanes sagðist hafa vonast eftir friðsam- legri málamiðlun en greinilega hefði ekki verið neinn vilji til slíks hjá Kasparov og Short. En það er ljóst að málið er komið í þann farveg að hart mætir hörðu og samningsflötur virðist ekki á því.“ Friðrik segist ekki telja rétt að líta svo á að Kasparov og Short hafi verið sviptir atvinnu- réttindum. „Það veit auðvitað allur heimurinn að þetta eru sterkustu skákmennirnir og mótshaldarar vilja fá bestu Friðrik Ólafsson mennina án tillits til þess hver stig þeirra eru. Slík mót yrðu lík- lega aldrei viðurkennd af FIDE og þátttakendur í þeim gætu sætt viðurlögum t.d. þeim að verða sviptir aðild að FIDE. Það er spurning hvort sterkustu skák- mennimir myndu hætta á slíkt.“ Skákmenn hafa misst trúna á Kasparov Skákheimurinn er klofinn og skammt í að þrír menn geri til- kall til heimsmeistaratitils, þ.e. sigurvegararnir úr heimsmeist- araeinvígjunum tveimur í haust og Bobby Fischer. Friðrik segist hafa heyrt af hugmyndum móts- haldarans í Vínarborg, Hollend- ingsins Japs van Oosteroms, um að halda skákmót á næstunni með þeim sem helst koma til greina í keppni um heimsmeist- aratitilinn burtséð frá því hvort þeir séu innan eða utan FIDE. Tilgangurinn væri að finna lausn á þessu vandamáli. „En það tor- veldar lausn málsins hve Ka- sparov er óáreiðanlegur. Smám saman hafa aðrir skákmenn fjar- lægst hann og misst á hann trúna. Þegar hann hleypur út undan sér núna og Short með honum þá eru aðrir skákmenn ekkert ginnkeyptir fyrir því að fylgja á eftir. En ef sterkustu skákmennirnir ná saman þá er það af hinu góða jafnvel þótt það sé utan FIDE, þeir telja sig þá e.t.v. losna um leið úr tengslum við ýmislegt sem þeim hefur þótt of áberandi í starfi FIDE eins og útbreiðslustarf í þriðja heimin- um og alls kyns hreppapólitík," segir Friðrik. Girnilegt boð Michael Stean, umboðsmaður Nigels Shorts, segir að breska skáksambandið ætli að mótmæla ákvörðun FIDE kröftuglega fyrir hönd Shorts. Hvað varðar áhrif þess að detta út af stigalistanum segir Stean að Short muni nátt- úrulega eiga þess kost að tefla á millisvæðamóti PCA í desember og til þess þurfi engin ELO-stig. Hann segir að 50 sterkustu skák- mörinum heims miðað við ELO- lista FIDE verði boðið að vera með í næstu heimsmeistara- keppni PCA og aðspurður um það hvort von sé á fleiri þátttakend- um en Short og Kasparov segir hann: „Ég held að mikill meiri- hluti muni þekkjast boðið efir að hafa lesið boðsbréfið. Verðlaunin eru að öllum líkindum talsvert hærri en þau sem bjóðast í FIDE- keppninni.“ NYTT HJOL FYRIR NOTAÐ ----------------------1- milligjöf Fjallahjól 26" 21 gírs Dömuhjól 26" 3 gíra Réttverð kr. 33.900 Réttverð kr. 23.200 Tilboðsverð kr. 31.500 Tilboðsverð kr. 19.900 -Notaðhjól kr. -5.000 -Notaðhjól kr. -3.980 Mismunur kr. 26.500 Mismunur kr. 15.920 Staðgreitt kr. 25.175 Staðgreitt kr. 15.124 VERSLIÐ í TRAUSTRI VERSLUN * FULLKOMIN VARAHLUTAÞJÓNUSTA * ÁRS ÁBYRGÐ Á NÝJUM HJÖLUM * UPPHERSLA EFTIR EINN MÁNUÐ * FULLKOMIÐ VERKSTÆÐI, VANIR MENN Barnahjól 4-5 ára Rétt verð kr. 9.500 -Notað hjól kr. -1.900 Mismunur kr. 7.600 Staðgreitt kr. 7.220 Barnahjól f. 6 ára, Rétt verð kr. 17.350 -Notað hjól kr. -3.470 Mismunur kr. 13.880 Staðgreitt kr. 13.186 Fjallahjól 26' " 18 gíra, Rétt verð kr. 24.800 -Notað hjól kr. -5.000 Mismunur kr. 19.800 Staðgreitt kr. 18.810 Símar: 35320 688860 Ármúla 40

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.