Morgunblaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1993
29
Þórlaug Guðmunds-
dóttir — Minning
Fædd 22. nóvember 1922
Dáin 22. júní 1993
Segðu raér söguna aftur,
söguna þá í gær,
um litlu stúlkuna ljúfu
með ljósu fléttumar tvær.
í þögninni, sem ríkti í húsinu
eftir að okkur hafði verið tilkynnt
lát ömmu Þórlaugar, hljómaði í
höfði mér þetta lag. Amma söng
það einu sinni þegar við Anna vor-
um litlar og lékum okkur hjá henni
á Langeyrarveginum. Eftir að hún
hafði lokið laginu, hlupum við strax
og settum í okkur tvær fléttur og
ég man sérstaklega hvað ég var
montin af að vera ljóshærð þennan
dag. Laginu fylgdi að sjálfsögðu
saga, en hana man ég ekki lengur.
Minnið mitt er nefnilega ekkert í
líkingu við minnið hennar ömmu.
Hún kunni skil á öllum atburðum,
stöðum og fólki sem hugsast gat
og hafði ánægju af að rifja upp og
segja frá, enda hæfileikarík á því
sviði.
Frásagnaraðferð ömmu fannst
okkur mæðgunum vel lýst í sögunni
um litlu músina Pílu Pínu: „En
henni þótti efnið varla nógu stór-
fenglegt og skáldlegt, svo að hún
fór að dæmi góðra sagnamúsa, að
halda sig ekki nákvæmlega við
staðreyndirnar, heldur skálda inn í
eftir þörfum, hér og þar.“ Amma
var sannkölluð sagnamús. Sögurnar
sínar sagði hún á þeirri góðu og
fallegu íslensku sem henni var töm
og ég held að skýrasta myndin sem
við systkinin eigum af henni sé
þegar hún stóð í eldhúsinu, segj-
andi frá á meðan við sátum á koll-
unum við borðið með djús og randal-
ínu. Eldhúsið verður tómlegt án
hennar. Amma var búin að segja
að hún myndi ekki halda fleiri jóla-
boð, en okkur grunaði ekki að sú
spá myndi ganga eftir á þennan
hátt.
Þórlaug ammá kvaddi okkur á
fallegu sumarkvöldi, þegar allt var
kyrrt og himinninn skartaði sínum
fegurstu litum. Nú býr hún í þessum
fallega og kyrra himni og skrifar
sögurnar sínar í skýin.
Með þessum orðum kveð ég
ömmu fýrir hönd okkar systkin-
anna. í minningunni lifir góð kona.
Guðlaug Kristjánsdóttir.
Elsku langamma mín, mér þykir
mjög vænt um þig. Nú ertu dáin
og farin upp til Guðs. Ég vona að
þér líði vel hjá Guði.
Mér fannst gaman að koma til
þín, þú varst alltaf svo góð við
mig. Ég hugsa alltaf til þín, elsku
langamma mín.
Lilja Guðrún.
Okkur langar í fáum orðum að
minnast elsku ömmu okkar, sem
hefur nú kvatt þennan heim. Það
er sárt að hugsa til þess að eiga
ekki eftir að sjá hana aftur í þessu
lífi, en minning um góða og ástríka
ömmu mun þó alltaf búa í hjörtum
okkar.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku afi, við biðjum Guð að
styrkja þig á þessari sorgarstund
og við vitum að amma er nú í góð-
um höndum hjá Guði.
Róbert, Guðrún, Þórlaug,
Kristín og Lísa.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — sími 681960
RAÐA UGL YSINGAR
Bifvélavirki óskast
eða maður vanurviðgerðum á stórum bílum.
Þarf að geta byrjað strax.
Upplýsingar í síma 673828.
Kennarar
Kennara vantar að Barnaskólanum á Eyrar-
bakka. Um er að ræða almenna kennslu,
einkum yngri barna.
Frekari upplýsingar gefur skólastjóri í síma
98-31141 eða 98-31117.
Hótelstarf
Vanur starfskraftur, eldri en 30 ára, óskast
straxtil starfa við þrif á herbergjum hótelsins.
Nánari upplýsingar veitir Gylfi á staðnum
í dag og á morgun.
Bergstaðastræti 37.
Sjúkrahús Akraness
Skrifstofumaður
Sjúkrahús Akraness auglýsir stöðu
skrifstofumanns lausa til umsóknar.
í starfi skrifstofumanns felast m.a. merkingar
og færslur bókhalds, útskrift reikninga og
önnur almenn skrifstofustörf. Æskilegt er að
umsækjandi hafi stúdentspróf eða hliðstæða
menntun, þekkingu á bókhaldi og reynslu í
notkun tölva.
Vinnutími er frá kl. 8.00 til 16.00.
Best væri að umsækjandi gæti hafið störf
sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir skrif-
stofustjóri í síma 93-12311.
Umsóknir sendist til skrifstofustjóra Sjúkra-
húss Akraness fyrir 8. júlí.
Beltagrafa
Vill kaupa nýlega eða nýja 30-40 tonna
beltagröfu.
Tilboð sendist í bréfsíma 97-12010.
Til viðskiptavina
Iðntæknistofnunar
Athygli er vakin á að Iðntæknistofnun verður
lokuð vegna sumarleyfa frá 19. júlí til og með
6. ágúst 1993.
Áríðandi prófanir og gæðaeftirlit á sviði suðu-
tækni verður starfrækt meðan á lokun stendur.
M
lóntæknistof nun I ■
IDNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS
Keldnaholt, 112 Reykjavík
Sími (91) 68 7000
Uppboð
Framhald uppboðs á neöangreindri fasteign verður háð fimmtudag-
inn 8. júlí 1993 á eigninni sjálfri, sem hér segir:
Hafnarbraut 34, Neskaupstað, þinglýst eign Ásólfs Gunnarssonar,
eftir kröfu Lífeyrissjóðs Austurlands. Kl. 14.00.
Sýslumaðurinn i Neskaupstað,
1. júlí 1993.
SJÁLf=STJE«MSf=LOKKURINN
F í l. A ('. S S r A R F
liriMI).M.I UK
F • U S
Þórsmerkurferð
Heimdallar
verður farin helgina 2.-4. júlí. Brottför verður frá Valhöll, Háaleitis-
braut 1, kl. 19.30 á föstudag, en komið verður til baka síðdegis á
sunnudag. Gist verður í tjöldum á einum besta stað í Húsadal.
Innifalið í verði: Rútuferðir, tjaldstæði, morgunverður laugardag og
sunnudag, grillveisla á laugardag og gönguferö um svæðið undir
leiösögn á laugardag. Verð aðeins kr. 3.700 fyrir félagsmenn en
4.000 fyrir aðra. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomnir.
fomhíáfp
í kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma I Þríbúðum. Fjölbreyttur
söngur. Ræðumaður Óli
Ágústsson. Kaffi að lokinni sam-
komu. Allir velkomnir.
Samhjélp.
Orö lífsins,
Grensásvegi8
Vakningasamkoma í kvöld kl.
20.30. Mikill söngur og beðið
fyrir sjúkum.
Allir hjartanlega velkomnir!
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Þórsmerkurferð
2.-4. júlí.
Félags- og fjölskyldutilboð
þessa helgi.
Um er að ræða helgarferð þessa
helgi með gistingu í skála á kr.
4.950 fyrir félaga en kr. 6.600
fyrir aðra. Fyrir félagsmenn
Ferðafélagsins gildir afsláttur í
ferðir einnig fyrir maka og börn.
Athugið að börn og unglingar
7-15 ára greiða hálft gjald i helg-
arferðir og fritt er fyrir börn yngri
en 7 ára. Það borgar sig að ger-
ast félagi í Feröafélaginu fyrir
essa helgi.
ferðinni verða skipulagðar
bæði lengri göngur og léttari fjöl-
skyldugöngur. Góð fararstjórn.
Útigrill á staðnum. Brottför kl.
20.00.
Pantið og takið farmiða fyrir
hádegi föstudag 2. júlí.
Munið sunnudags- og miöviku-
dagsferðirnar til Þórsmerkur.
Ferðafélag (slands.
FERÐAFÉLAG
@ ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Fró Ferðafélagi íslandsl
Helgarferðir til Landmanna-
lauga hefjast þessa helgi.
Gist i sæluhúsi F.í. Gönguferöir
um nágrennið, s.s. Bláhnúk,
Suöurnámur og víðar,
2.-4. júli: Hörðudalur - Hftar-
dalur. Gengið frá Hörðudal um
gamla þjóðleið til Hítardals.
Gist í tjöldum.
2.-4. júlí: Jöklanámskeið fsalp
(í Kerlingarfjöllum).
Laugardaginn 3. júlí kl. 09:
Hagavatn (dagsferð). Hagavatn
er austan undir Hagafelli f
Langjökli. Ekið verður að Eini-
felli þar sem sæluhús F.f. er.
Gönguferðir aö vatninu, Farinu
og ef tími leyfir um Brekkna-
fjöll. Þægilegar gönguleiðir.
Sunnudaginn 4. júlí —
dagsferðir F.Í.:
Kl. 08 Þórsmörk - dagsferð
(verð kr. 2.500) og sumarleyfis-
dvöl.
1) Kl. 10.30 Gullbringa - Vörðu-
fell - Herdísarvik. Gengið frá
Gullbringu austan Kleifarvatns
að Vörðufelli (526 m) og áfram
niöur til Herdísarvíkur.
2) Kl. 13 Fjölskylduferð í Her-
dísarvík. Herdísarvík var áður
kunn verstöð með fjölda sjóbúða
og sér fyrir rústum margra þeirra
enn. Sömuleiðis sjást grjótgarð-
ar í hrauninu, þar sem fiskurinn
var hertur. Einar Benediktsson
skáld bjó í Herdísarvík siðustu
æviár sín. Gaf hann Háskóla Is-
lands jörðina árið 1935.
Ferðafélag íslands.
UTIVIST
Hallvoigarstíg 1 • simi 614330
Kvöldferð
fimmtudag 1. júlí kl. 20.00:
Sigling um sundin blá. Farið
verður frá Suðurbugt (gömlu
höfninni), bryggjunni neðan við
Hafnarbúðir. Siglt m.a. að Akur-
ey, Engey og Lundey. Stutt við-
staða í Viðey. Verð kr.
1.000/1.100, frítt fyrir börn yngri
en 15 ára.
Helgarferðir 2.- 4. júlí:
Básar við Þórsmörk. Nú er
komið hásumar í þessari nátt-
úruperlu. Fjölbreyttar ferðir með
fararstjóra um Goðalandið og
Þórsmörkina. Gist í skála eða
tjöldum. Góð aðstaða. Farar-
stjóri: Margrét Björnsdóttir.
Básar - Fimmvörðuháls.
Ekið í Bása á föstudagskvöldi,
farið að Skógum á laugardags-
morgun og gengið aftur í Bása
sama dag. Fararstjóri: Gunnar
Gunnarsson.
Botnssúlur. Gönguferð með
allan búnað úr Botnsdal á Botns-
súlur og yfir á Þingvelli. Gist í
tjaldi og skála. Tilvalin æfing fyr-
ir lengri ferðir sumarsins.
Fararstjóri: Hörður Haraldsson.
Að Kötlurótum. Gengið á
Mælifell og svæðið ofan Mýr-
dals skoðað. Gist í tjaldi. Farar-
stjóri: Sigurður Einarsson.
Nánari upplýsingar á skrifstofu
Útivistar. Útivist.