Morgunblaðið - 01.07.1993, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1993
33
TONLIST
Ein af litríkustu
plötum þessa árs
Inýjasta tölublaði þýska vikurits-
ins Der Spiegel er fjallað um
hina nýju plötu Bjarkar Guð-
mundsdóttur „Debut“ á jákvæðan
hátt. Fær platan allítarlega um-
ijöllun. Blaðið sem er ótvírætt hið
áhrifamesta á þýsku málsvæði
hefur áður fjallað nokkuð um verk
Sykurmolanna, en í þeirri hljóm-
sveit var Björk áður.
Eftir að hafa rakið ferii Bjarkar
til þessa segir Der Spiegel: „Núna
hefur hið raddsterka konubarn
yfirgefið eyjuna sína og þarmeð
sagt skilið við skerandi tóna fortíð-
arinnar: Hún er flutt til London
og er búin að taka upp sólóplötu
— án gömlu rokkfélaganna. Skírn-
arnafn hennar eru nú hennar ein-
asta listamannsnafn. Og líkt og
vildi hún gleyma fortíð sinni og
þremur Sykurmolaverkum kallar
hún plötuna ranglega debútt:
„Debut“ er tákn flóttans frá nesja-
mennskunni og frægðinni, sem
eina popphljómsveitin sem nokk-
um tíma hefur komið frá íslandi,
öðlaðist. „Ég þoldi aldrei gítar-
rokkið hjá Sykurmolunum,“ segir
Björk þvermóðskufull.
Þessi falska frumraun afhjúpar
nýja Björk og tónlistarsmekkurinn
kemur mjög á óvart en honum
hélt hin „mjög svo venjulega ís-
ienska húsmóðir“, eins og hún
orðar það, leyndum árum saman.
„Debut“ er örugglega ein af lit-
ríkustu plötum þessa árs og endur-
speglar óstöðugt líf tónlistar-
manns á heimsvísu — þó er hún
í samræmi við nýjustu popp-
strauma og er undir áhrifum frá
þýsku teknói og bandarískri Ho-
use-tónlist.“
Umfjöllun í The Guardian
Þrátt fyrir að „Debut“ hafi ekki
selst eins vel í Bretlandi og leit
út fyrir í fyrstu, helgar dagblaðið
The Guardian Björk hálfa forsíðu
á fylgiblaði sínu, Women, 22. júní
sl. Er þar rakinn söngferill Bjark-
ar með Sykurmolunum, auk þess
sem fjallað er lítillega um nýjasta
geisladisk hennar. Viðtalið er þó
frekar á persónulegu nótunum og
er fjallað um giftingu og skilnað
Bjarkar, auk þess sem Sindra son
hennar ber á góma, en hann er
nú orðinn sex ára.
Segir meðal annars í blaðinu
að Björk, eins og margar aðrar
þekktar söngkonur, hafi alist upp
í ringulreið hippatímbilsins með
tiiheyrandi tónlist frá morgni til
kvölds. Þá spyr blaðamaður meðal
annars hvernig henni líki tilhugs-
unin um að verða stjarna og vitn-
ar þar til blaðafulltrúa hennar,
sem kveðst búast við að geisladisk-
urinn lendi ofarlega á vinsældar-
listum.
„Okkur Sykurmolunum þótti
frægðin leiðinleg. Auk þess er _er
ekki nokkur maður stjarna á ís-
landi, því þar er svo fámennt.
Maður getur alveg eins rekist á
svokallaðar stjörnur kaupa kló-
settpappír í stórmörkuðunum. Ég
er með mínar efasemdir um frægð.
Það geta allir orðið frægir — það
þarf ekki nema ganga einu sinni
nakinn um göturnar,“ svarar
Björk og bætir við síðar í viðtalinu
þegar útlit hennar er til umræðu:
„Ef fólk sér mig sem kyntákn
hefur mér alltaf fundist það þeirra
vandamál."
Þegar
halda á
skemmtilega
veislu þá eru
Valhallartiöláfn
mállð! Auk 200-800 m2risatjaldanna
bjóðum við nú upp á stórskemmtileg
36, 54 og 162 nfsamkomutjöld, sem leigjendur reisa
auðveldlega sjálfir.
TJALDAUEIGA Upplýsingarogpantanir
KOLAPORTSINS í síma 625030.
Nýja platan liennar Bjarkar Guð-
mundsdóttur fær jákvæða um-
fjöllun í vikuritinu Der Spiegel.
Það er engin gengisfelling hjá okkur, og ekki nóg
með það, heldur bjóðum við 20% afslátt aföllum
jazz „ Voltage" fjallahjólum
VERÐ ÁDUR 26.842 sji
VERDNÚ:21.474 m
Jazz „ Voltage"
hefur verið útnefnt
„BESTU KAUP" ár
eftir ár í bandaríska
neytendablaðinu
„Consumer Report'
Á JAZZ/TREK
FJALLAHJÓLUM
Jazz „Voltage" 26", svört eða rauðgul/dökkfjólublá (tvílit) í fimm
stellstærðum. Kromolý/stál-stell með ævilangri ábyrgð.Gírar (18 gíra),
átaksbremsur og sveifarsett (krankur) frá Shimano og Weinmann
álfelgur með grófum dekkjum. Líka til í 24" stráka- og 26" kvenhjól
eins og að ofan en í tveim stellstærðum.
°r^~ÖRNINNF»
RAÐGREIÐSLUR
SKEIFUNNI11, REIÐHJÓLAVERSLUN OG HJÓLABRETTAVERSLUN SÍMI679890, VERKSTÆÐI SÍNtl 679891
Áskrijiorsiminn er 83033
VERSUÐ VIÐ FAGMANNINN - ÞAÐ MARGBORGAR SIG! - 68 ÁRA REYNSLA